Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Síða 36
36
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Janni Spies
ætlar nú loksins að láta verða
af því að giftast sínum
„gamla" kærasta, Gunnari
Hellström. Gunnar þessi er
sænskur kvikmyndaleikstjóri
og er 35 árum eldri en Janni
sem hefur ávallt verið veik
fyrir eldri mönnum. Nú er víst
bara eftir að velja daginn en
Janni mun hafa í huga að
flytjast til Svíþjóðar. Velta
menn því nú fyrir sér hvaða
áhrif þetta hefur á fjármála-
veldi Janni.
Rubert Everett
hefur nú mikinn hug á því að
gerast söngvari en hingað til
hefur hann verið þekktastur
fyrir frammistöðu sína í kvik-
myndum. Everett hefur smurt
olíu í hárið og lætur skegg-
broddana standa og vonast
með því til að slá í gegn. Af
söngnum sjálfum fer litlum
sögum.
óttast nú mjög að maðurinn,
sem hún var gift í 21 ár, Carl
Dean, muni ekki geta hennar
að góðu einu í endurminn-
ingum sínum en þar ætlar
hann meðal annars að geta
þess hvernig ferill hennar
hófst. Hún hefur nú beðið
hann að vera ekki að hafa
fyrir því að setja þessar minn-
ingar á blað en óvíst er hvort
hann verður við því.
Dolly Parton
I
Leikhúsmenn á spjalli. Sveinn Einarsson, rithöfundur og fyrrverandi leik-
hússtjóri, á tali viö Úlf Hjörvar rithöfund.
Inglmundur Sigfússon forstjóri og kona hans, Valgy Valsdóttir (Vals Gfslasonar leikara), ræða hér við Jón Stefánsson verkfræðing. DV-myndir S
Rómúlus mikli firumsýndui
Um síðustu helgi var leikritið Rómúlus mikli eftir Friedrich Durrenmatt frumsýnt í Þjóðleikhúsinu og er
það fyrsta frumsýning vetrarins þar. Eins og vant er þá var mikið fjölmenni viðstatt sýninguna og var
gerður góður rómur að frammistöðu leikhúsfólksins.
Með frumsýningu þessa verks hefst starfsárið í Þjóðleikhúsinu og eins og vant er verður margt á döfinni þar
í vetur. Að sjálfsögðu var Ijósmyndari DV í hópi frumsýningargesta og festi herlegheitin á filmu en ávallt
er viss stemning yfir fyrstu frumsýningu hvers starfsárs.
Gylfi Gíslason, prófessor og fyrrverandi menntamálaráðherra, er hér ásamt Ármann Ármannsson forstjóri á tali viö Svein Eyjólfsson, stjórnarformann
konu sinni, Guðrúnu Vilmundardóttur, en þau láta sig sjaldan vanta á frum- Frjálsrar fjölmiðlunar, og konu hans, Auði Eydal.
sýningar hér á landi