Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987.
Fréttir
Álklæðningin er öll skellótt og verður hún tekin af og ný sett I staðinn. DV-mynd-GVA
Hitaveíta Reykjavíkur:
munum fara í mál við framleiðandann, segir Gunnar Kristinsson
Hitaveita Reykjavikur hefur í sumar
látið kiaeða hitaveitutankana við Bú-
staðaveg utan með sérstakri álklæðn-
ingu sem keypt var af fyrirtæki í
Austurríki. Að undanfómu hefur
komið í ljós að klæðningin er gölluð
því að hún upplitast og líta tankamir
út eins og þeir séu skellóttir.
„Við erum búnir að rifta samningum
við fyrirtækið sem seldi okkur klæðn-
inguna og höfum afþantað það sem
eftir var að senda til okkar. Við mun-
um svo í framhaldi af þessu fara í
skaðabótamál við fyrirtækið," sagði
Gunnar Kristinsson, yfirverkfræðing-
ur Hitaveitu Reykjavíkur, í samtali við
DV.
Gunnar sagði að klæðningin hefði
kostað 7 milfjónir króna en hann sagð-
ist ekki geta sagt til um hve mikiö það
kostaði að setja hana upp.
Telja má vist að skaðinn sé hátt í 10
milijónir króna, sem Hitaveita Reykja-
víkur verður fyrir. Gunnar sagði að
hægt væri að fa svona kiæðningar víða
annars staðar og yrði það mál skoðað
bráðlega. En þótt hægt sé að klæða
tankana yflr veturinn, ef veður hald-
ast stillt, má gera ráð fyrir að megin-
hluti verksins bíði þar tU næsta vor
eða sumar.
-S.dór
„Ég vil taka það fram aö við náö-
um einstökum árangri í að draga
úr aukafjárveitmgum og þær hafa
aldrei verið minni en í ár ef miöað
er við nokkur ár á undan, Hitt er svo
annað mál að það veröur aldrei tyá
þeim komist og af og frá að þær séu
stjómarskrárbrot eins og sumir
halda fram. En ég legg áherslu á aö
aöalatriöið er að dregiö sé úr þeim
sem frekast er kostur,“ sagöi Þor-
steinn Pálsson forsætisráöherra í
samtali viö DV í morgun.
A1 miklar umræður hafa átt sér
staö að undanfómu um aukafjár-
fjármálaráðherra á þessu ári. samníngu
Þorsteinn var spuröur hvort þaö
væri ekki óeölilegt aö hefja aukaflár-
veitingar aöeins nokkrám dörám
eða vikum eftir að fjárlög era sam-
þykkt á Alþingi. Hvort það benti
ekki tii þess að fjárlögin hefðu verið
röng?
Hann sagði að svo þyrfti ekki að
vera. Það færi aldrei hjá því að eitt
og annaö dytti miili skips og bryggju
þegar verið væri aö semja öárlög. ráöherra.
benti Þor-
framan af ári væru
„Aðalatriðiö er
fiárlög séu sem réttust hveiju sinni.
Sé svo og verðbólga lítil verða auka-
flárveitingar litlar. í mikilli verð-
bólgu er erfiðara að ráða viö málið,“
-S.dór
Niðurskurðurinn hjá Orkustofnun:
Þetta er mikil röskun
„Það er vitanlega skellur þegar 18
manns er sagt upp hjá stofnuninni
með svo skömmum fyrirvara. Þetta
er nvjög óþægilegt og mikil röskun.
En við leggjum áherslu á að hlífa jarö-
hitaskólanum og rannsóknum okkar
á aðstæðum til fiskeldis sem og vatna-
mælingunum fyrir vatnsorkuverin
sem alls ekki má hrófla við,“ sagði
Jakob Björnsson orkumálastjóri við
DV í gær.
Starfsmennimir 18 hætta frá og með
áramótum, 1. janúar. En um niður-
skurðinn í tölum talað vildi Jakob
ekki fjá sig og neitaði að staðfesta
töluna 30 milljónir króna.
Helstu verkefni Orkustofiiunar eru
jarðhitaleit og lausn vanda hitaveitna
úti á landi og vatnamælingamar fyrir
vatnsorkuverin. „Niðurskurðurinn er
svo nýtilkominn að við erum þessa
dagana aö skoða hvað sé hægt að skera
niður, það liggur ennþá ekki fyllilega
fjóst fyrir,“ sagði Jakob.
-JGH
- sjá ennfremur bls. 5
Borgarstjém:
Samþykkt
að byggja
ráðhús
Samþykkt var að byggja ráðhús í
Reykjavík á fundi borgarstjómar í
gærkveldi samkvæmt þeirri tillögu
sem hlaut 1. verðlaun í hugmynda-
samkeppni um ráðhús í Reykjavík
og var tillaga borgarstjóra um þetta
efni samþykkt með 10 atkvaeðum
sjálfstæðismanna og fúlltrúa Fram-
sóknarflokksins gegn 5 atkvæðum
Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og
Kvennaframboðs.
Ráðhúsið mun rísa á homi Vonar-
strætis og Tjamargötu og vegna þess
hve staðsetningin er viðkvæm að
mati borgaryfirvalda var samþykkt
að hraða byggingarframkvæmdum
og stefnt er að því að Ijúka bygging-
unni á næstu 2 árum.
Ráðhúsið verður tæplega 5.000 fer-
metrar að stærð með bílageymslu á
þremur hæðum í kjallara en gert er
ráð fyrir að þar rúmist 300 bílar.
Áætlaður byggingarkostnaður húss-
ins er um 750 milljónir króna, þar
af er ráðhúsbyggingin sjáif taiin
munu kosta um 500 milljónir og bíla-
geymslan um 250 mUljónir króna.
-ój
Tillaga Bjama P. Magnússonar:
Utvegsbankinn
að ráðhúsi
Tillaga um að Reykjavíkurborg
keypti Útvegsbankann og nýtti bygg-
ingu aðalbankans í Reykjavík fyrir
ráðhús var felld á fundi borgarstjómar
í gærkveldi með 1 atkvæði gegn 9.
Það var Bjami P. Magnússon, full-
trúi Alþýðuflokksins í borgarsfjóm,
sem lagði fram þessa tillögu en hún
hlaut aðeins atkvæði hans sjálfs. Borg-
arfulltrúar Sjáifstæðisflokksins
greiddu atkvæði gegn tiilögunni.
Þá komu fram hugmyndir hjá
Bjama um að borgin keypti hús Hótel
Borgar undir ráðhús en engin formleg
tiliaga kom fram um það efiii.
Á fundinum kom fram tillagq frá
Alþýðubandalaginu um að gerð verði
skoðanakönnun meöal borgarbúa um
byggingu ráöhúss en sú tillaga var
felld.
-ój
Borgarsljóm:
Kvosarskipulag
samþykkt
Skipulag Kvosarinnar var sam-
þykkt á fundi borgarstjómar Reykja-
víkur í gærkveldi, samkvæmt
skipulagstUlögu arkitektamia Dagnýj-
ar Helgadóttur og Guðna Pálssonar.
Jafiiframt var borgarráði faiið að
skoða ýmis atriði varðandi skipulagið,
samkvæmt upplýsingum sem DV fékk
hjá Hjörleifi B. Kvaran, framkvæmda-
stjóra lögfræði- og stjómsýslusviös
borgarinnar.
Meðal annars verða kannaðir mögu-
leikar á friðun hússins Aðalstræti 16
og teknar upp viðræður við eiganda
hússins um það mál. Þá verða kannað-
ir möguleikar á kaupum borgarinnar
á lóðumun númar 12 og 14 við Aðal-
stræti og hugsanlegur flutningur
hússins á lóðinni Austurstræti 8 á þær
lóðir.
Þá var samþykkt að ræða við eigend-
ur húsanna Lækjargata 6,6b og 8 um
að húsunum verði haldið í sama horfi
og nú en þó þannig að lagt verði í
kostnað við endurbætur þeirra.
Hyggst borgjn taka þátt í þeim kostn-
aði með eigendum, náist um það
samkomulag, en þeir haldi síöan hús-
unum í óbreyttri mynd eftir endur-
bætur. Jafiiframt falli eigendur frá
endurbyggingarrétti á lóðunum. Þá
var tekið fram að með samþykkt
skipulagsins væri ekki verið aö sam-
þykkja fyrirhugaöa viðbyggingu
alþingishússins og áskilur borgin sér
allan rétt í því máli.