Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987.
5
DV
Uppsagnir hjá Orkustofnun:
Stjórnin
segi af sér
er krafa starfsmanna
Átján starfsmönnum Orkustofnun-
ar var sagt upp um mánaöamótin og
segir í frétt frá starfsmannafélagi
Orkustofnunar að stefiit muni að því
að strika tíu manns til viðbótar út af
launaskrá stofnunarinnar á næstunni.
í samtali við DV sagði Jakob Bjöms-
son orkumálastjóri að hann ætti ekki
von á fleiri uppsögnum hjá Orkustofn-
un en þar starfa á biiinu 120 til 130
manns þegar allt er tahð. Ástæður
uppsagnanna sagði Jakob samdrátt í
fjárveitingum til stofhunarinnar og
einnig samdrátt í sértekjum hennar
og því væra uppsagnir óhjákvæmileg-
ar.
Starfsfólk Orkustofnunar sam-
þykkti á fundi á miðvikudaginn þau
tilmæli til stjómar stofnunarinnar að
hún segði af sér tafarlaust þar sem
henni hefði mistekist að sjá hagsmun-
um stofnunarinnar borgið. Einnig
gagnrýndu starfsmenn það að tveir af
þremur stjómarmönnum hafa beinna
hagsmuna að gæta innan stofnana og
fyrirtækja sem em samkeppnisaðilar
stofnunarinnar, að mati starfsmann-
anna.
Skora starfsmennimir á Alþingi og
fjárveitingarvald að taka niðurskurð á
íjárveitingum til Orkustofnunar til
rækilegrar endurskoðunar „í ljósi
framsýni og fyrirhyggju", eins og
komist er að orði í ályktun frá starfs-
mönnunum.
-ój
Ingi U. Magnússon gatnamálastjóri og norski verkfræðingurinn Erling Hans-
en hafa sagt dekkjanöglunum stríð á hendur, en þeir sitja i „nagladekkja-
nefnd“ sem norræna ráðherranefndin hefur skipað.
Nagladekkin:
Ofmetum ör-
yggisþáttinn
segir norski verkfræðingurínn Erling Hansen
„Við ofmetum stórlega það öryggi
sem nagladekkin veita okkur umfram
venjuleg góð snjódekk," segir yflr-
verkfræðingur norsku vegagerðarinn-
ar, Erling Hansen, en hann mun lýsa
reynslu Norðmanna, í baráttunni við
naglana og aukið slit á gatnakerfinu
sem þeim er samfara, á fundi sem
haldinn verður á Hótel Sögu í dag
klukkan 16.00.
Erling Hansen segir til dæmis að
með því að draga úr ökuhraða um 10
kílómetra á klukkustund þá fáist
sama, ef ekki betra, öryggi með venju-
legum snjódekkjum.
Ingi U. Magnússon, gatnamálastjóri
Reykjavíkurborgar, hefur sagt dekkja-
nöglunum stíð á hendur og hefur því
boðið til þessa umræðufundar á morg-
un um nagla og götur borgarinnar.
Það er til mikils að vinna ef hætt verð-
ur að nota nagladekkin, þótt ekki
nema að hluta, því umframkostnaður
vegna slits á gatnakerfi borgarinnar
nemur um 60 til 80 miUjónum króna
árlega. Ef tíundi hver ökumaður
myndi hætta að nota nagladekk þá
myndu sparast 6 til 8 milljónir króna.
-JR
Fréttir
Víðishúsið er nú orðið fullgert að utan og klæðningin komin á sinn stað. Þá er verið að Ijúka við innréttingar í
húsinu og getur það þá að fullu tekið við því hlutverki sem þvi var ætlað.
Víðishúsið:
Breytingarnar kost-
uðu 27 milljónir
Víðishúsið, sem ríkissjóður keypti
undir menntamálaráðuneytið á sínum
tíma, er nú að komast í gagniö aö
fullu. Búið er að klæða húsið að utan
og innréttingum er að ljúka í húsinu.
Verður þetta hús, sem upphaflega var
byggt sem húsgagnaverksmiðja, þá
orðið að musteri menntunar í landinu
eins og til stóð þegar ríkissjóður keypti
það af Guðmundi Guðmundssyni í
Víði fyrir rúmum tíu árum.
Að sögn Karls Th. Birgissonar hjá
fjármálaráðuneytinu var kaupverð
hússins á verðlagi dagsins í dag 55
milljónir króna. Þá hafa breytingar,
innréttingar og aðrar framkvæmdir
við húsið kostað 27 milljónir króna á
núvirði, eða samtals 82 milljónir
króna.
Víðishúsið er um fimm þúsund fer-
metrar að stærð og þýðir það að
fermetrinn í húsinu hefur kostað rík-
issjóð um 16.400 krónur.
„Ég tel að það sé mjög vel sloppiö
ef miðað er við markaðsverð á nýbygg-
ingum," sagði Karl.
Þess má geta að talið er aö kostnað-
arverð við nýbyggt atvinnuhúsnæði
sé um 18 þúsund krónur fýrir fermetr-
ann, og er þá miðað við að húsið sé
fokhelt. Kaupi menn slíkt húsnæði
hins vegar frá verktaka er algengt
verð um 40 þúsund krónur fyrir'fer-
metrann.
-ATA
LEÐURLUX
Opið
alla
helgina
Hornsófar - Sófasett - Svefnsófar - Hvíldarstólar
Margir litir - Góð húsgögn - Gott verð
TM-HÚSGÖGN
Sérstök
október-
kjör
Síðumúla 30, sími 68-68-22.