Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987. 7 Fréttir Pósturinn á Akureyri: Níu hafa sagt upp G5® Kristjánssan, DV, Akuieyii „Viö erum níu sem erum búnir aö segja upp frá og meö 3. desember," sagði Sigurbjöm Viöarsson yfirpóst- afgreiðslumaður í samtali við DV um hópuppsagnir póstafgreiöslumanna á Akureyri. „Þaö er mikil alvara í þessu hjá okk- ur enda getum við ekki lengur starfað fyrir þessi laun,“ sagöi Sigurbjöm. „Byrjunarlaun em nú um 37 þúsund krónur eftir nám í Póstmannaskólan- um og þau hækka ekki nema rétt upp fyrir 40 þúsund þótt menn hafi farið á fleiri námskeið og séu orðnir yfirpó- stafgreiðslmnenn. Það er krafa okkar að launin hækki um 15-20 þúsund krónur á mánuði og við stöndum fastir á þessu.“ Hinir 9 póstafgreiðslumenn sem sagt hafa upp em mikill meirihluti póstaf- greiðslumanna á Akureyri. Sigur- bjöm sagði að viðræður hefðu verið í gangi en víða í kerfinu væm menn sem lifðu í fortíðinni. „Ég skil það til dæmis ekki hvemig þeir geta metið það okkur til tekna að við höfum feng- ið nýjar innréttingar á vinnustað, þær innréttingar koma laununum okkar ekkert við þótt sumir vilji meina það,“ sagði Sigurbjöm. Sem fyrr sagði eiga uppsagnimar að koma til framkvæmda 3. desember en Sigurbjöm sagðist reikna með að ríkið myndi notfæra sér rétt sinn til að framlengja uppsagnarfrest sinn um þijá mánuði þar sem hér væri um hópuppsagnir að ræða. Einar Jónsson, skipverji á Sigrúnu RE 16, glotti innan um þann gula þegar báturinn kom til Reykjavíkur í fyrrakvöld. Um borð voru 4 tonn af vænum þorski og ýsu. Góður fengur það, þeir eru aðeins tveir á Sigrúnu. JGH/DV-mynd GVA Dalvík: Loksins gott drykkjarvatn Gyffi Kristjánssan, DV, Akuieyri; „Þetta tekur mikinn tíma, fiár- magn og mannafla," sagði Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Dal- vik, er DV ræddi við hann vatn- sveituframkvæmdir sem nú standa yfir á Dalvík. Undanfarin ár hafa Dalvíkingar mátt búa við rryög vont drykkjar- vatn. Það vatn hefur verið fengið úr borholu við Brunná og einnig úr Lándum á Ufsadal. Er nú svo komið aö það vatn sem þar fæst þykir ekki lengur drykkjarhæft og á mörkunum að það standist kröf- ur heilbrigðisyfirvalda. Dalvíkingar urðu því að leita á önnur mið eftír drykkjarvatni og verður vatnið sótt að Ytra-Hvarfi í Svarfaðardal um tíu kilómetra leið að sögn Kristjáns Þórs bæjar- stjóra. Hann sagði að hér væri um afar fjárfreka framkvæmd að ræða en kostnaður verður um 25-30 milljónir króna. JEPPI - SKUTBILL - FJOLSKYLDUBILL FJÓRHJÓLADRIF: ÞÚ SKEPTIR í 4WD MEÐ ÞVÍ AÐ ÝTA Á EINN TAKKA. VÉL: 2000 CC - 97 HESTÖFL (DIN) • 5 GÍRA, BEINSKIPTUR, 5 DYRA, AFLSTÝRI, VELTISTÝRI, 14" FELGUR. AUK ÞESS ALLT SEM FYLGIR VEL ÚTBÚNUM BÍLUM OG MEIRA TIL! VERÐUR SÝNDUR: Laugardag 3. október: Keflavík: Bifreiðaverkstæði Kristófers- Iðavöllum kl. 13-15. Grindavík: Félagsheimilið Festi kl. 16-18. Sunnudag 4. október: Selfoss: Fossnesti kl. 13-15. Hella: Söluskálinn Hellu kl. 16-18 fÆA i 30 Í ara Komið - skoðið og reynsluakið. FRÍMTIDARBÍILM NISSAN PRAIRIE 4WD ÁRGERÐ 1988 Á ÆVINTÝRALEGU KYNNINGARVERÐI FRÁER. 615.000,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.