Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Page 18
18 Iþróttir Anna María skoraði mest og var valin best í Skotlandi - möig verkefni framundan hjá kvennalandsliðinu í körfuknatlleik Anna María Sveinsdóttir, körfu- knattsleiksstúlkan efnilega frá Keflavik, geröi það gott með 21 árs landsliði Islands á Dunedin-mótinu í Skotlandi á dögunum. Hún var valin besti leikmaður mótsins og þá skoraði hún flest stig, eða 65. Anna María og Anna Björk Bjamadóttir, IS, voru valdar í lið mótsins sem þjálfarar völdu eftir keppnina. „Anna María hefúr yfir geysilegri tækni að ráða,“ sagði Sigurður Hjör- leifsson, þjálfari landsliðsins. ís- lenska liðið lék fimm leiki í mótinu og vann sigur í þeim öllum. í mótinu tóku þátt félagslið frá Skotlandi. Sigurður Hjörleifsson landsliðsþjálfari sagöi að mörg verkefni væru fram- undan hjá íslensku kvennalandsliðun- um. Landsliö Lúxemborgar kemur hingaö til lands milli jóla og nýárs. Þá er von á unglingalandsliði Skot- lands hingað í haust. „Rúsínan í pylsuendanum verður svo öflugt mót sem verður hér á landi um páskana. Hingaö koma þá þrjú finnsk félagslið og landslið Wales. Einnig er von á að landslið Lúxem- borgar og Skotlands komi til leiks,“ sagði Siguröur. -SOS Stein aftur undir mark- slá HVS? Sigurður Bjömsscm, DV, V-Þýskalandi; Líklegt er talið að Ole Stein leiki að nýju með HSV og þá jafhvel á laugardag. Þá glima saman lið Hamborgara og Bayer Uerdingen. Skoblar, þjálfari HSV, segir að allar dyr félagsins standi Stein opnar, svo framarlega sem hann sjái sig um hönd og biðjist opin- berlega afsökunar á dólgslegu framferði sínu. Eins og margur veit þá sló Stein mótherja sinn í grasið í viöureign snemma hausts. Allir leikmenn HSV standa ákaf- ir að baki fyrrum markverði sínum enda hefur liðið verið sem vængstýft í haust. Arftaki Stein er afjúgóslavnesku bergi brotinn og heftir sá ekki náð aö binda saman vöm liðsins. Er það vonlegt því maðurmn mælir ekki stakt orð á þýska tungu og mörkin hafa þannig hrannast upp. Þess má geta að HSV fékk á sig 8 mörk í síðustu umferð en þá atti félagið kappi við Borussia Mönc- hen Gladbach. -JÖG Rijkaard á sölulista Hollenski landsliðsmaðurinn Frank Rijkaard hjá Ajax, var sett- ur á sölulista hjá félaginu í gær. Rjjkaard þaut af æfingu hjá Ajax fyrr í vikunni eftir að hafa lent í hávaðarifrildi við Johan Cruyff þjálfara. Hann sagði bá 'ð þaim myndi aldrei láta sjá sig í^nerbúð- um Ajax framar. Kappinn stóð við opð sín og hefur hann ekki kornið- á félagssvæði Ajax síðan. Stjóm Ajax tók því ákvörðum um það í gær að láta hann á sölulista. AC Milano hefur lengi haft auga- stað á þessum snjalla miðvallar- spilara. -SOS „Síðustu árin hjá Þrótti voru vírkilega góð- ar skotæfingar' - segir Guðmundur Amar Jónsson, markvörður Fram í handknattteik „Ég vissi alltaf að ég myndi veija þetta vítakast. Birgir félagi minn kom og rétti mér boltann og ég sagði honum að þetta vítakast myndi ég verja. Þetta var aldrei spuming. Það er erfitt að lýsa þessu. Það var bara eitthvað sem sagði mér að ég myndi verja. Þetta hefur einu sinni áöur komið fyrir mig. Þá var ég að leika með landsliðinu u-21 árs á Ítalíu," sagði Guðmundur Amar Jónsson, markvörður Fram í handknattleik, en hann hefúr verið mikið í sviðsljósinu að undanfómu. Guðmundur var öðrum fremur mað- urinn á bak við jafnteflið sem Fram náði gegn Val á miðvikudagskvöld en vítakastið sem hann minnist á hér að framan var tekið af Jóni Kristjánssyni skömmu fyrir leikslok og hefði Guð- mundur ekki varið hefðu Valsmenn hrósað sigri. „Hef eiginlega ekki æft fyrr en nú“ - Er það rétt, Guðmundur, að þú hafir lítið sem ekkert æft fram að þessu keppnistímabili frá því þú byijaðir í handknattleiknum? „Já, það má segja það. Ég hef eigin- lega ekkert mætt á æfingar af viti fyrr en undirbúningurinn fyrir nýhafið ís- landsmót hófst. Ég er sjálfselskur og þarf að hafa jámkarl til að rífa mig áfram. Þessi jámkarl er nú til staðar, Björgvin Björgvinsson þjálfarl. í fyrra leyfði ég mér hluti sem ganga hrein- lega ekki í dag. Ég hef gert mér grein fyrir því að með því að mæta ekki á æfingar er ég ekki aðeins að svíkja sjálfan mig heldur félaga mína í lið- inu. Það er miklu skemmtilegra að stunda þetta af krafti. Meiningin er að reyna að halda áfram að æfa á fúllu og gera einhveija hluti.“ Byrjaði 12 ára í Þrótti - Hvenær byijaðir þú að æfa hand- knattleik? „Þá var ég tólf ára gamall. Félagar mínir drógu mig á æfingu hjá Þrótti og vinur minn, Bergur Bergsson, setti mig í markið. Eg vissi ekki hvað hand- bolti var á þessum árum. Daginn eftir fyrstu æfinguna lék ég minn fyrsta leik og vissi ekkert hvað ég átti að gera. Eg þvældist þó fyrir einum og einum bolta. Þetta var í 5. flokki. Þeg- ar ég gekk upp í 4. flokk lék ég einnig með 3. flokki og þá fékk ég mína fyrstu tilsögn sem markvörður. Það voru þeir Sveinn Tómasson og Snorri Sig- geirsson sem kenndu mér öll undir- stöðuatriðin og ég á þeim mjög mikið að þakka.“ „Síðustu árin í Þrótti voru góð- ar skotæfingar11 Guðmundur heldur áfram: „Ég spil- aði með öllum yngri flokkum Þróttar en komst fyrst í meistaraflokk þegar Páll Björgvinsson þjálfaði liðið. Páll Ólafsson tók við af honum en þegar hann fór frá félaginu hrundi allt sam- an til grunna. Þróttarliðið var oft skrautlegt á þeim árum en eftir að Palli Ólafs hætti var botninn dottinn úr þessu. Þá var mótstaða Þróttar oft lítil en ég fékk aftur á móti mjög góðar skotæfingar í markinu leik eftir leik.“ - Hvemig stóð á því að þú fórst yfir í Fram? „Forráðamenn Fram höfðu sam- band við mig og höfðu áhuga á að fá mig til liðs við sig. Fleiri félög höfðu áhuga en áhugi Framara var greini- lega mestur svo að ég lét til leiðast og hef ekki séð eftir því. Ekki spillti það fyrir að félagi minn, Birgir Sigurðsson, hafði ákveðið að fara úr Þrótti í Fram. Liðsandinn hjá Fram er sérstaklega góður og þjálfarinn frábær. Björgvin er að gera góða hluti og hann hefúr góð tök á mér og ber mig áfram. “ „Stefni að því að komast í fremstu röð“ - Að hveiju stefnir Guðmundur A. Jónsson sem markvörður? „Auövitað er takmarkið alltaf að ná sem allra lengst og ég stefiii einfaldlega að því að komast í fremstu röð. Eg stefni að því að ná því allra besta út úr mér sem markveröi." - Hvar stendur þú í dag? „Ég er alveg örugglega ekki kominn í fremstu röð. Ég verð einhvem tíma að vinna upp lélega æfingasókn hjá mér á síöasta vetri en ég er bjartsýnn. Ég tel mig hafa gert góða hlutí í Reykjavíkurmótinu en það er ekki nóg. Eg á að geta gert mér grein fyrir þvi hvar ég stend þegar íslandsmótið er farið að rúlla áfram.“ „Það er spurning hvernig ég væri léttari“ - Nú ert þú óvenju þungur af mark- verði að vera. Háir þyngdin þér? „Ég veit það ekki. Það er spuming hvemig maður væri léttari. Ég hef alltaf hugsað mér að létta mig en sjálfs- elskan er það mikil að ég hef ekki komið megrun fyrir á dagskránni. Það væri eflaust ekki vitlaust að fara að hugsa alvarlega um þessa hluti.“ „Sumir skjóta alltaf á sama stað, aðrir út um allt“ Þú hefúr oft átt auðvelt með að veija vítaköst. „Er það ekki bara breiddin sem ger- ir það. Það er rétt aö ég hef oft átt auðvelt með að veija vítaköst en kannski aldrei eins auðvelt og gegn KR í fyrra þegar mér tókst að veija sjö víti í einum leik. Ég held að það sé enginn galdur á bak við þetta. Eflaust er þetta heppni í bland. Þetta fer allt eftir vítaskyttunni hvemig maður bregst við. Sumir skjóta alltaf á samá stað en aðrir era villtir og skjóta út um allt. Það er sérstaklega þegar menn era óstyrkir sem mér tekst vel upp í vítaköstunum." Hveijir era erfiðastir við að eiga af andstæðingunum í 1. deild? „Júlíus Jónasson í Val er mjög erfið skytta. Hann nær alltaf að klifra að- eins hærra en vömin og þar af leiðandi er lítil hjálp í henni þegar Júlíus á í hlut. Gylfi Birgisson í Stjömunni er einnig mjög erfiður en Siggeir Magn- ússon í Víkingi er sá skotfastasti. Ég hef ekki leikið gegn Sigurði Gunnars- syni og þekki hann því ekki. Af homamönnunum era homamenn KR langerfiðastir, þeir Konráð Olavsson og Sigurður Sveinsson. Þeir era mjög villtir í skotum sínum. Finnur Jó- hannsson, línumaður ÍR-inga, er hins vegar sá erfiðasti af línumönnunum. Hann er gífúrlega öruggur. Sömu sögu má reyndar segja um Hilmar Sigur- gíslason í Víkingi." -SK FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987. Guðmundur A. Jóns- son, markvörður Fram í handknattleik, brá sér í bæjarferð í gær með Ijósmynd- ara DV og staldraði við á hafnarvigtinni úti á Granda. Var þetta meira í gríni gert en alvöru en hitt er grínlaust að Guð- mundur er 127 kg á þyngd og líklega með þyngri handknatt- leiksmarkvörðum. Guðmundur hefur sýnt snilldartakta með Fram nú í byrjun keppnistímabilsins og mikið mun reyna á hann í vetur. I------------- Kvarta völlum -auði Það má með sanni segja að roðinn í austri hafi verið á kinnum knattspymu- manna frá Rússlandi og A-Þýskalandi. Forráðamenn Dinamo Kiev frá Rúss- landi vora ekki ánægðir þegar þeir yfirgáfu Glasgow eftir að hafa verið slegnir út úr Evrópukeppninni. Þeir kvörtuðu yfir því að Glasgow Rangers hefði beitt brögðum - haft línumar á keppnisvellinum á Ibrox í þrengsta lagi eða látiö breidd vallarins vera aðeins 64 m, sem er lámarksbreidd á knattspymu- völlum sem notaðir era til leikja í I alþjóðlegum kappleikjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.