Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 20. NÖVEMBER 1987. { Viðskipti Risamir Steinar og Skrfan keppa hart á plötumarkaðnum Risarnir á íslenska hljómplötu- markaönum, Steinar hf. og Skífan, keppa hressilega fyrir þessi jól sem oft áður. Fyrirtækin hafa í þaö minnsta um 80 prósent af allri plötu- sölu hérlendis. Steinar Berg Björns- son er aðaleigandi Steina hf. en Jón Ólafsson er eigandi Skífunnar. Hressilegir bisnessmenn báöir tveir. „Við erum heilbrigðir keppinautar og ég vísa öllum kjaftasögum um eitt- hvert hatur á milli okkar á bug. Við ræðum oft saman og berum saman bækur okkar um plötumarkaðinn," segir Jón Ólafsson hjá Skífunni. Steinar með tólf íslenskar plötur Steinar hf. er stærsta hljómplötu- útgáfufyrirtækið hérlendis. Fyrir- tækið gefur út um tólf plötur fyrir þessi jól á meöan Skífan er með um helmingi færri. Ennfremur hafa fyr- Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverötryggð Sparisjóðsbækurób. 19-21,5 Sp SparireiKnirtgar 3ja mán. uppsögn 19 23 Ab 6mán. uppsogn 20-25 Ab 12mán.uppsögn 22-28 Úb 18mán. uppsógn 31 Ib Tékkareikningar, alm. 6-12 Sp Sértékkareikningar 8 20.5 Sp Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6mán. uppsogn 3,5-4 Ab Úb, Lb.Vb -Innlán meðsérkjör- 19-34 Sp vél. um Innlán gengistryggö Bandarikjadalir 6,5-8 Ab Sterlingspund 8,59 Ab.Úb,. Vb.Sb Vestur-þýskmörk 3-4 Ab Danskarkrónur 8.5-10 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv.) 31 33 Sb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 33-36 eða kaupgengi Almennskuldabréf 31 35 Sb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(vfirdr) 33 36 Lb. Bb Utlán verötryggö Skuldabréf 9-9,5 Úb.Sb. Sb Utlán til framleiöslu isl. krónur 29,5-31 Sb SDR 8,25 9,25 Sp Bandarikjadalir 9.25-10.75 Sp Sterlingspund 11,50 12 Vb.Bb Vestur-þýsk mork 5.75-6.75 Sp Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 45,6 3.8 á mán. MEÐALVEXTIR överðtr. nóv. 87 31,5 Verðtr. nóv. 87 9.1 VlSITÖLUR Lánskjaravisitala nóv. 1841 stig Byggingavísitala nóv. 341 stig Byggingavísitala nóv. 106,5stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 5% 1 okt. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Ávöxtunarbréf 1,3079 Einingabréf 1 2.426 Einingabréf 2 1,421 Einingabréf3 1.503 Fjölþjóðabréf 1.060 Gengisbréf 1.0295 Kjarabréf 2.420 Lifeyrisbréf 1.220 Markbréf 1.239 Sjóðsbréf 1 1.178 Sjóðsbréf 2 1.135 Tekjubréf 1,268 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 114 kr Eimskip 278 kr. Flugleiðir 196 kr. Hampiðjan 118 kr Hlutabr.sjóðurinn 119 kr. Iðnaðarbankinn 143kr Skagstrendingur hf. 182 kr. Verslunarbankinn 126 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Otvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- Inn birtast í DV á fimmtudögum. Steinar Berg er stærstur á hljómplötumarkaðnum og með umboð fyrir tvö stærstu hljómplötuútgáfufyrirtæki heims, CBS og VEA. Poppkóngar eins og Michael Jackson og Bruce Springsteen eru báðir hjá CBS. irtækin umboð fyrir helstu plötufyr- irtæki erlendis. „Það er erfitt að segja til um hve heildarmarkaðurinn er nú stór en ég held að það láti nærri að um 300 þúsund erlendar hljómplötur seljist fyrir þessi jól og um 75 til 100 þúsund íslenskar," segir Steinar Berg. Hljómplata kostar frá 7 til 9 hundr- uð krónur stykkið og er það mjög svipað verð og i fyrra. Jón Ólafsson segist reikna með að verðið væri í kringum 15 hundruð krónur ef Al- bert Guömundsson hefði ekki lagt niður vörugjald af plötum fyrir nokkrum árum og Þorsteinn Pálsson lækkaö tolla. Skífan með Strax Bæði Steinar og Skífan hafa auðvit- aö lagt áherslu á að fá helstu tónhst- armennina til aö syngja inn á plötur fyrir sig. Skífan gefur meöal annars út plötu hljómsveitarinnar Strax Verðbólgan að festast í 38%? Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs íslands, segir að þvl sé nú spáð að framfærsluvísitalan hækki um 2 prósent um næstu mánaðamót, 1. desember, og um 3 prósent um ára- mótin, 1. janúar. Framfærsluvisi- talan hækkaði um 3,2 prósent þann 1. nóvember síðastliðinn og miöað við væntanlegar hækkanir veröur veröbólga þessa ársfjórðungs um 38 prósent. Sé aðeins litiö á hækkun fram- færsluvísitölunnar um síöustu mánaöaraót, ura 3,2 prósent, jafn- gildir þaö hvorki meira né minna en 45,9 prósenta verðbólgu á ári Vilhjálmur segir aö eftir hækk- unargusuna þann 1. nóveraber hefði framfærsluvísitalan ekki mátt hækka um meira en 1 prósent 1. desemberog l.janúar tilaömenn hefðu trú á því að veröbólgan væri ekki að fara úr böndunum. -JGH Ríkisskuldabréfin: Milljónimar flæða inn Roksala ríkisskuldabréfa í haust hefur gefiö ríkissjóöi skildinginn, frá 17. ágúst til 1. nóvember seldust bréf fyrir um 1140 milljónir króna. Á sama tíma voru innleyst bréf fyrir 250 milljónir króna sem með vöxtum gera um 370 milljónir. Ríkissjóður hefur því fitnað á haustmánuðum. Rúmlega 700 milljónir króna hafa bæst við í pottinn. „í upphcdl seldust 2ja ára bréfin best en eftir að við hækkuðum vext- ina á 6 ára bréfunum í október hafa þau seist fyrir hundruð milljóna,“ segir Amdís Steinþórsdóttir hjá fjár- málaráðuneytinu sem hefur umsjón með sölu bréfanna. Einn helsti sölustaður bréfanna er í Seðlabanka íslands. -JGH (nokkrir Stuðmanna) og Steinar er meðal annars með Bjartmar Guö- laugsson, Ríó tríó og fleiri þekkta. En það er samt þriðja plötufyrirtæk- ið, Grammið, sem sennilega verður með metsöluplötuna fyrir þessi jól, nýju plötu Bubba Mortens. Grammið gefur einnig út plötu Megasar. „Það er miklu betra efni á boðstól- um núna en áður. Það er mikið af einstaklega góðri íslenskri tónlist sem gefin er út fyrir þessi jól,“ segir Steinar Berg um ástæðu þess að óvenjumikið af íslensku efni er gefið út. Báðir eru bjartsýnir Steinar Berg spáir því að yfir fimm íslenskar plötur nái yfir tíu þúsund platna sölu í jólavertíðinni og Jón Ólafsson er bjartsýnni, hann spáir því að jafnvel sjö plötur nái þessum árangri. Keppinautarnir tveir eru því báðir mjög bjartsýnir. Jón Ólafsson segir samt aö ljóst sé að ekki seljist allt efni sem gefið er út. Og það sé ávallt þannig á þessum markaði. „En það er nauðsynlegt fyrir unga listamenn aö fá tækifæri og menn verða að vera bjartsýnir á aö þeir nái sölu,“ segir Jón Ólafsson. Jón bætir því við að Skífan og Steinar séu meira en helstu keppi- nautarnir á íslenska hljómplötu- markaðnum, bæði fyrirtækin vilji gera veg plötunnar sem mestan og bestan og það sameini þau. „Það er engin gjöf hagkvæmari en hljóm- plata og ég trúi því að hún geti komið í stað blóma sem tækifærisgjöf," seg- ir Jón Ólafsson. Þýsk-íslenska hjá saksóknara Rannsókn Rannsóknarlögreglu ríkisins á skattframtali fyrirtækisins Þýsk-íslenska er hjá ríkissaksóknara til skoðunar. Bragi Steinarsson vara- ríkissaksóknari segir að ekkert sé hægt að segja til um hvenær embætt- iö taki ákvörðun í málinu; hvort ákært verði, hvort farið veröi fram á frekari rannsókn eða málið fellt nið- ur. Það var í júní í fyrra sem skoðun skattrannsóknarstjóra á skattfram- tali fyrirtækisins leiddi til þess að skattar þess voru hækkaðir. Skýrsla skattrannsóknarstjóra var síðan send til rannsóknarlögreglunnar. Eftir að úrskurður ríkisskattstjóra lá fyrir var sá úrskurður kærður aft- ur, samkvæmt lögum. Nýr ríkis- Dósamál Davíðs Ríkissaksóknari endursendi á dög- unum kæru Verðlagsráðs vegna auglýsinga Davíðs Scheving Thor- steinssonar um að gefa hundrað þúsund krónur í fundarlaun fyrir milljónustu dósina af Sól-kóla. Bílalán Féfangs Kjartan Georg Gunnarsson, að- stoðarframkvæmdarstjóri Féfangs, vill að gefnu tilefni taka fram vegna þess sem hann sagði í frétt nýlega í DV um að vextir af bílalánum Fé- fangs væru um 12 prósent aö sú tala er fengin sé tekið tillit til stað- greiðslukjara sem menn njóta hjá bílaumboðunum. „ En sé ekki tekið tillit til staðgreiðslukjara eru vext- Diskaspilarinn Diskaspilarinn mun setja mark sitt á hljómplötumarkaðinn fyrir jólin. Nú er efni allra platna sem fluttar eru til landsins og eins þeirra sem gefnar eru út hérlendis jafnframt gefið út á geisladisk. Helstu skýringuna á því hvers' vegna íslensk tónlist nýtur meiri vin- sælda en oft áður segir Jón Ólafsson vera þá hve íslensk tónlist hefur ver- iö mikið leikin í nýju útvarpsstöðv- unum. En hvor risanna, Steinar eða Skíf- an, hefur betur í samkeppninni fyrir jólin? Markaðurinn svarar þeirri spurningu með sölutölum. En Stein- ar gefur út fleiri plötur en Jón Ólafsson og er aukinheldur með umboð fyrir tvö stærstu hljómplötu- útgáfufyrirtæki í heimi, CBS og VEA. Hann hefur trúlega betur - báðir gera þó vel. -JGH Jón Olafsson, eigandi Skífunnar, veitir Steinari Berg hressilega keppni. Hann er með umboð fyrir þekkt hljómplötuútgáfufyrirtæki. Og þá gefur Sktfan út plötuna með Strax fyrir þessi jól. skattstjóri var skipaður í málinu, Sigmundur Stefánsson, skattstjóri í Hafnarfirði. Hann úrskurðaði í málinu þann 30. október síðastliðinn. Þeim úrskurði er hægt að áfrýja til ríkisskatta- nefndar og þeim úrskurði er aftur hægt að skjóta til dómstólanna en mjög sjaldgæft er að svo sé gert. Samkvæmt skattalögum er útilok- aö aö fá úrskurð ríkisskattstjóra, opinbers embættismanns, í máhnu gefinn upp. „Ég er bundinn þagnar- skyldu,“ segir Sigmundur. Þar sem flest skattamál eru til lykta leidd hjá ríkisskattanefnd þýðir það að þessi mál koma sjaldnast fyrir almenn- ingssjónir. -JGH Ríkissaksóknara þótti kæran bæði óljós og ennfremur ónógur rökstuðn- ingur með henni. Verölagsráö hefur sent kæruna aftur til saksóknara með ítarlegri upplýsingum. -JGH irnir allt að 18 prósent," segir Kjart- an. Að sögn Kjartans lætur nærri að þegar kjörin af bílalánunum er borin saman við útlánsvexti banka að vext- ir bílalánana eru um 16,5 prósent en bankanna um 9,5 prósent. Er þá í báðum tilvikum búið aö taka tillit til lántökugjalds og stimpilgjalds. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.