Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987.
39
Fólk í fréttum
Georg Ólafsson
Georg Ólafsson verölagsstjóri
hefur verið í fréttum DV vegna
verðhækkunar á eggjum. Georg er
fæddur 13. júlí 1945 og lauk við-
skiptafræðiprófi frá HÍ 1970. Hann
var í fjármálafræðinámi í Verslun-
arháskólanum í Kaupmannahöfn
1971- 1973 og var viðskiptafræðing-
ur í bankaeftirliti Seðlabankans
1970-1971 og 1973-1974. Georg var
eftirlitsmaður með bönkum og
sparisjóðum í Danmörku og vann
í hagfræðideild Danska bankans
1972- 1973. Hann hefur verið verð-
lagsstjóri frá 1975. Kona Georgs er
Soffla Stefánsdóttir, f. 23. apríl 1945,
kennari. Foreldrar hennar voru
Stefán Pálsson, tannlæknir í Rvík,
og kona hans, Guðný Níelsdóttir.
Börn Georgs og Soffiu eru Ólafur,
f. 5. júlí 1967, og Páll, f. 27. desemb-
er 1974.
Foreldrar Georgs voru Ólafur
Georgsson, forstjóri í Rvík, sem lést
1961, og kona hans, Alda Bryndís
Hansen. Faðir Ólafs var Georg,
bankastjóri í Rvík, Ólafsson, gull-
smiðs í Rvík, Sveinssonar, b. í
Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum,
bróðir Sigríðar, langömmu Þor-
leifs, föður Kolbeins prests. Sveinn
var sonur ísleifs, b. í Skógum, Jóns-
sonar, b. og lögréttumanns í
Skógum, ísleifssonar. Móðir ísleifs
var Vigdís Magnúsdóttir, systir
Hildar, ömmu Þorsteins í Núpa-
koti, langafa Eggerts Haukdals.
Systir Vigdísar var Þuríður, lang-
amma Jensínu, móður Ásgeirs
Ásgeirssonar forseta. Systir ísleifs
var Guðný, langamma Þuríðar,
langömmu Ragnheiðar Þórarins-
dóttur borgarminjavarðar. Móðir
Sveins var Þórunn Sveinsdóttir, b.
í Ólafshúsi undir Eyjaíjöllum, Þor-
leifssonar, bróður Guðmundar
Ögmundssonar, langafa Ingigerð-
ar, langömmu Páls, föður Þorsteins
forsætisráðherra. Systir Ólafs var
Guðrún, móöir Sveins Jónssonar í
Völundi, afa Leifs Sveinssonar lög-
fræðings og Sveins Björnssonar
listmálara. Móðir Georgs banka-
stjóra var Ásta, systir Jensínu,
langömmu Guðmundar J. Guð-
mundssonar. Ásta var dóttir Jóns
prests í Dýrafjarðarþingum, bróð-
ur Þorkels prests á Staðastað,
langafa Jóns Sólnes, fóður Júlíusar
Sólnes. Jón var sonur Eyjólfs
prests í Miðdalaþingum Gíslasonar
og konu hans, Guðrúnar Jónsdótt-
ur, prests og skálds á Bægisá,
Þorlákssonar. Móðir Guðrúnar var
Margrét Bogadóttir, systir Bene-
dikts, langafa Sigríðar, langömmu
Geirs Haligrímssonar. Móðir Ólafs
var Augusta Weiss, dóttir Martins
Sörensen Weiss, málarameistara í
Kaupmannahöfn.
Alda Bryndís er dóttir Hans
Hansen, járnsmíðameistara í Rvík,
ættuðum frá Borgundarhólmi og
konu hans Soffiu, systur Krist-
bjargar, móður Erlends bæjarfó-
geta og Marteins verkfræðings
Bjömssona. Systir Soffiu var Þóra,
amma Ingjalds Hannibalssonar
forstjóra. Soffia er dóttir Péturs, b.
í Miðdal í Kjós, Árnasonar, b. í
Hagakoti, Árnasonar, bróður Guö-
mundar, langafa Guömundar,
fóöur Einars Más rithöfundar.
Móðir Soffiu var Margrét Benjam-
Georg Ólafsson.
ínsdóttir, b. í Flókakoti í Kjós,
Jónssonar, og konu hans Kristínar
Þorkelsdóttir, b. í Prestshúsum í
Húnavatnssýslu, Þorlákssonar.
Kristófer Guðmundsson
Kristófer Guðmundsson hús-
gagnasmiður, Kirkjugerði 17,
Vogum, er fimmtugur í dag. Kristó-
fer fæddist að Stóru-Drageyri í
Skorradal og ólst þar upp hjá for-
eldrum sínum en flutti til Reykja-
víkur 1966 og hóf þar nám í
húsgagnasmíði. Hann hefur að
námi loknu unnið við smíðar, fyrst
í Reykjavík en sl. ellefu ár á tré-
smíðaverkstæöi íslenskra aðal-
verktaka á Keflavíkurflugvelli.
Kristófer flutti í Voga á Vatns-
leysuströnd 1981.
Kona Kristófers er Hlíf, f. 7. 9.
1948, dóttir Trausta, leigubílstjóra
í Keflavík og síðar verkstjóra hjá
íslenskum aðalverktökum, Jóns-
sonar, sem er látinn, og konu hans
Sigurborgar Ólafsdóttur.
Kristófer og Hlíf eiga eina dóttur,
Ester, f. 28.1. 1974.
Kristófer er yngstur sjö systkina.
Ein systir hans lést tuttugu og
fimm ára. Hin eru: Þuríður sauma-
kona, f. 1919, gift Stefáni Gíslasyni,
byggingaverkamanni í Reykjavík;
Guðrún, f. 1923, átti eitt barn ’en
lést 1948; Halldóra, hjúkrunarkona,
f. 1927, gift Jóni G. K. Jónssyni,
skrifstofumanni í Reykjavík; Guð-
björg, f. 1929, er verslunarmaður i
Reykjavík; Vernharður trésmíða-
meistari, f. 1932, býr í Reykjavík
og er giftur Lydiu Thejll; Guð-
brandur, sölumaður í Reykjavík,
f. 1934, er giftur Elínu Aðalsteins-
dóttur.
Foreldrar Kristófers eru bæði lát-
in. Þau voru Guðmundur b. á
Stóru-Drageyri, f. 20. 6. 1889, Guð-
brandsson og kona hans Guðrún,
f. 15.12.1893, Vernharðsdóttir. Þau
bjuggu síöast á Grettisgötu í
Reykjavík. Föðurforeldrar Kristó-
fers voru Guðbrandur b. í Geirshlíð
í Flókadal og á Stóru-Drageyri í
Skorradal, Guðmundsson og kona
hans Guörún Jónatansdóttir. Móð-
urforeldrar Kristófers voru
Torfi Torfason
Torfi Torfason sjómaður, Suður-
götu 27, Akranesi, er áttræður í
dag. Torfi fæddist í Hnífsdal og var
þar í foreldrahúsum fyrstu árin en
var fjögurra ára þegar hann missti
fóður sinn og níu ára þegar móðir
hans lést. Hann ólst því upp hjá
hálfsystur sinni, Vilborgu. sem þá
var vinnukona í Grafargih í Val-
þjófsdal í Önundarfirði. Þar var
hann fram að fermingu en flutti þá
til Hnífsdals. Torfi var ijórtán ára
þegar hann byijaði til sjós en hann
stundaði sjómennsku þar til hann
varð fjörutíu og eins árs. Fyrst var
hann á bátum frá ísafirði en flutti
til Vestmannaeyja 1930 og fór í sigl-
ingar nokkrum árum síðar. Torfi
sigldi öll stríðsárin en var síðan á
báti sem hann gerði út ásamt
tveimur öðrum. Hann hóf síðan
störf í slippnum í Vestmannaeyjum
og vann hann þar fram að gosi en
þá fluttist hann til Akraness og
vann þar við sútun síðustu starfs-
árin.
Kona Torfa er Halla Soffia, f. 12.5.
1910, en þau giftu sig 1952. Foreldr-
ar hennar voru Hjálmur, b. á
Lágafelli og Laxárbakka í Hnappa-
dalssýslu, Hjálmsson og Helga
Bogadóttir. Halla var áður gift
Lauritz Jörgensen málarameistara
og eignuðust þau fimm börn en
Lauritz er látinn. Halla á nú fjölda
barnabarna og sautján barna-
barnabörn.
Torfi er nú einn eftir systkinanna
en hann átti fimm hálfsystkini og
fjögur alsystkini. Af hálfsystkinum
hans komust tvær systur til full-
orðinsára en af alsystkinum hans
ein systir. Hálfsystumar tvær voru
Guðbjörg, húsmóðir á ísafirði, gift
Þórði Guðmundssyni sjómanni, og
Vilborg, húsmóðir á Isafirði, gift
Jóni Kristjánssyni skipstjóra. Al-
systir hans, sem upp komst, var
Guðmunda Torfadóttir seni var gift
Sighvati Bjarnasyni, skipstjóra og
Kristófer Guðmundsson.
Vernharöur vinnumaður á Stein-
dórsstöðum í Reykholtsdal, Björns-
son b. víða í Borgarfirði, Björns-
sonar, Guðmundssonar, og kona
hans Guðrún Sigurðardóttir.
Kristófer tekur á móti gestum í
samkomuhúsinu Glaðheimum í
Vogum eftir kl. 20:00 í kvöld.
Torfi Torfason.
útgerðarmanni í Vestmannaeyjum.
Foreldrar Torfa voru Torfi, sjó-
maður og b. á Dröngum í Dýrafirði,
f. 1863, Björnsson, b. á Kaldá og í
Fremstuhúsum í Önundarfirði,
Björnssonar og kona hans, Jónína
Ólafsdóttir, en þau bjuggu lengst
af í Hnífsdal.
Torfi verður ekki heima á af-
mælisdaginn.
Andlát
Steinþóra Sigurbjörnsdóttir
Steinþóra Sigurbjömsdóttir, Dval-
arheimilinu Höfða, Akranesi, lést
10. 11. sl. Steinþóra fæddist 14. 8.
1898 á Hólmavaði í Aðaldal. Hún
var yngst níu systkina sem nú eru
öll látin. Foreldrar hennar voru
Sveinbjöm Hallgrímsson og kona
hans, Guðrún Þorsteinsdóttir.
Steinþóra giftist 1935 Sigurði, b. á
Þyrli í Hvaffirði, f. 13.11. 1904,
Helgasyni, en foreldrar hans voru
Helgi, b. á Þyrh, Jónsson og kona
hans, Guðleif Jónsdóttir. Steinþóra
og Sigurður bjuggu á Þyrli til 1978
en þá fluttu þau til Akraness.
Börn þeirra: Sigrún, gift Ingva
Böðvarssyni, verkstjóra í Hval-
stöðinni; Helgi, starfsmaður í
Járnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga, giftur Laufeyju Sig-
urðardóttur; Guðrún, gift Ingva
Ingvasyni, b. á Múlastöðum í
Flókadal. Steinþóra átti ellefu
barnaböm og tvö barnabarna-
börn.
Útför hennar verður gerð frá
Hallgrímskirkju í Saurbæ laugar-
daginn 21.11. klukkan 14.00.
Haukur Magnússon, Tunguvegi
3, Hafnarfirði, lést miðvikudag-
inn 18. nóvember.
Gunnar Þorvarðsson rafeinda-
virkjameistari, Stífluseli 8,
Reykjavík, andaðist í Landspítal-
anum að kvöldi 18. nóvember.
Jóna Ásgeirsdóttir, Álfaskeiði 64,
Hafnaríirði, andaðist í St. Jó-
sefsspítala miövikudaginn 18.
þ.m.
Hans Kristján Elíasson, Kjalvegi,
lést 18. nóvember.
Afmæli
Bent Jónsson
Bent Jónsson, aðalbókari bæjar-
fógetans á Akranesi, til heimilis að
Vogabraut 16, Akranesi, er sextug-
ur _í dag. Bent fæddist í Hattardal
í Álftafirði við ísafjarðardjúp og
ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann
var við búskapinn fyrstu unglings-
árin og síðan til sjós frá Súðavík í
nokkur ár. Hann fór síðan í lands-
próf að Laugarvatni og útskrifaðist
úr Samvinnuskólanum 1953. Bent
starfaði svo næstu tvö árin hjá
Kaupfélagi Hvammsfjarðar í Búð-
ardal og þar næst hjá Kaupfélagi
Suður-Borgfirðinga á Akranesi í
tvö ár. Hann var svo varðstjóri hjá
lögreglunni á Akranesi í ijórtán ár,
en þarnæst skrifstofustjóri hjá út-
gerðafélaginu Haferninum á
Akranesi í þrettán ár. Bent hefur
verið aðalbókari bæjarfógetans á
Akranesi frá 1983.
Kona Bents er Gerður, en þau
giftu sig 18.7.1954. Foreldrar henn-
ar eru bæði látin. Þau voru Rafn
Sveinbjörnsson, vélstjóri frá
Bíldudal, og kona hans Gyða Pét-
ursdóttir.
Bent og Gerður eiga þrjú börn:
Gyða, f. 1953, á einn son og er kenn-
ari á Eiðum; Guðrún Edda, f. 1957,
er kennari við Æfingadeild Kenn-
araháskólans i Reykjavík; Jón
Bjarki, f. 1965, er nemandi við Tón-
listarskóla FÍH.
Bent á fjögur systkini: Lára, f.
1921, er gift Baldvini Björnssyni,
sjómanni frá Ólafsvík. Þau bjuggu
áður í Hattardal en búa nú í Súða-
vík og eiga tvö börn; Matthías, f.
1923, er starfsmaður á Hrafnistu í
Reykjavík. Hann er giftur Þóreyju
Þorbergsdóttur og eiga þau eina
dóttur; Guðrún, f. 1925, er gift El-
íasi Þorbergssyni, hreppstjóra í
Súðavík, og eiga þau fjögur börn;
Sigurður, f. 1935, er ókvæntur og
búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Bents: Jón, b. í Hattar-
dal, f. 26. 7.1901, Bentsson og kona
hans Guðrún frá Seljalandi í Álfta-
flrði, f. 22. 7. 1899, Guðnadóttir.
Föðurforeldrar Bents vom Bent
Eikesdal, norskur maður sem hing-
að kom fyrir aldamót og starfaði
við hvalstöðina á Langeyri í Álfta-
firði, og kona hans, Friðgerður
Þórðardóttir. Móðurforeldrar
Bents voru Guðni, b. á Seljalandi.
Einarsson, b. á Svarthamri, Jó-
hannessonar, og kona hans,
Bjarney Guðmundsdóttir.
Ingunn Gunnlaugsdóttir
og Guðmundur Bjarnason
Hjónin Ingunn Gunnlaugsdóttir
og Guðmundur Bjarnason, til
heimilis að Asparfelli 2, Reykjavík,
eiga gullbrúðkaup í dag. Guðmund-
ur var byggingaverkamaður í
Reykjavík lengst af en síðustu
starfsárin var hann vaktmaður á
Bifreiðastöð Steindórs. Ingunn
vann í áraraðir á saumastofu Kópa-
vogshælisins.
Börn þeirra eru Halldóra Björt,
húsmóðir í Reykjavík, og Ómar
Þór, íþróttakennari á Akureyri.
Ingunn og Guðmundur munu
taka á móti gestum í Domus Medica
við Eiríksgötu milli klukkan 14.30
og 17.00 í dag.
75 ára________________________
Málfríður Kristjánsdóttir, Hraun-
bæ 38, Reykjavík, er sjötíu og fimm
ára í dag.
70 ára_____________________
Sigurður Helgason, Fjarðarstræti
6, ísafiröi, er sjötugur í dag. Hann
er að heiman í dag.
60 ára_____________________
Magnús Stefánsson, Aðalgötu 33,
Ólafsfirði, er sextugur í dag.
Kristín L. Hrafnfjörð, Strandaseli
3, Reykjavík, er sextug í dag.
Sverrir Einarsson, Laugalæk 62,
Reykjavík, er sextugur í dag.
Hjónin Ingunn Gunnlaugsdóttir og
Guðmundur Bjarnason.
50 ára_______________________
Teitur Albertsson, Heiðarbrún 2,
Keflavík, er fimmtugur í dag.
40 ára________________________
Eirikur Grímsson, Hæðarseli 10,
Reykjavik, er fertugur í dag.
Sigriður Hálfdánardóttir, Holtastíg
10, Bolungarvík, er fertug í dag.
Magnús Guðmundsson, Njarðar-
holti 8, Mosfellsbæ, er fertugur í
dag.
Örnólfur Sveinsson, Melgerði 3,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Sigurður Jakobsson, Búðarvegi 55,
Búðahreppi, er fertugur í dag.
Ólafur Eggertsson, Manheimum,
Skaröshreppi, er fertugur í dag.