Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987.
Útlönd
Mótmæli í
Um eitt hundrað og fimmtíu þús-
und andstæöingar herstjórnar
Augusto Pinochet i Chile efndu til
frið9amlegra mótmæla í Santiago,
hofuðborg landsins, i ga;r. Kröfðust
stjómarandstæöingamir þess aö
aftur yrði horfið til lýðræðislegra
stjómarhátta í landinu. Þetta er í
fyrsta sinn um tveggja ára skeiö
sem stjómarandstæöingar fá heim-
ild yfirvalda til þess að efna til
mótmælaaðgerða.
Ekkikom til neinna átaka vegna mótmælaþessara. Stjómarandstæðing-
ar kreíjast þess aö efnt verði til fijálsra kosninga í landinu en herinn
kveðst ætla að halda fast viö fyrri ákvörðim sína um að heimiia aðeins
einn frambjóðanda, hugsanlega Pinochet sjálfan. Á framboð hans aö koma
til þjóðaratkvæðagreiðslu snemma árs 1989.
Efast um batann
Óróleiki á verðbréfaraarkaði í
Mexíkó og fall gjaldmiðils landsins
í gær hafa vakið efasemdir um bata
í efnahagsmálum landsins. Ríkis-
stjóra Mexíkó reyndi í gær að
fullvissa þegna sína um að stefiian
væri enn upp á við í efnahagsmál-
ura en þær. fullyrðingar virðast
ekki hafa mikil áhrif.
Mexíkanski pesóinn féll í gær um
þijátíu og tvö prósent.
Fall hans jók mjög á áhyggjur
þarlendra vegna hruns á verð-
bréfamarkaði landsins undanfarið.
Aðeins fýrir hvíta
Bandarflqanna, hefði átt íbúðarbyggingar í Texas sem ekki mætti selja
eða leigja út til þeldökkra.
Að sögn blaðsins eru byggingar þessar í Houston og Midland í Texas.
Opinber skjöl sýna að á tímabilinu 1955 til 1966 áttu George og Barbara
Bush þar eignir sem ekki mátti selja eða leigja til negra eða annarra sem
ekki vora af hvitum kynstofiii, þar sem slíkt var bannað í stofnsamningi
fyrirtækisins sem stóð að byggingunum.
Sagði tímaritið ennfremur að Bush hefði keypt töluvert land af verk-
taka í Texas sem hefði forboðið að landið yrði notað í þágu þeldökkra.
Hefðu Bush-hjónin búið þar fram til ársins 1959 þegar þau fluttu til
Houston, á staö þar sem öðrum en hvítum var bannaö að byggja.
í blaðinu segir ennfiremur að slíkar takmarkanir á hveijura mætti selja
eða leigja hefðu veriö algengar í BandaríKjunum áður fyrr.
Árás á sjúkrahús
ÍRAK
7
JDI - ARABÍA
ÍRAN
Irakar hafa mótmælt harðlega
árás írana á sjúkrahús í írak þar
sem þeir segja að tíu manns hafi
látiö lifið. Segja írakar að sjúkra-
húsið, sem er vandlega merkt
rauða hálfmánanum, merki rauða
krossins í þessum heimshluta, hafi
oröiö fyrir eldflaugaárás frá írön-
um.
Hópur fréttamannaflaug yfir bæ
þann í norðurhluta írak þar sem
sjúkrahúsiö er og kvaöst hafa séð
merkingamar á byggingimni
greinilega.
Segja Irakar að tvær íranskar orrustuþotur hafi hundsað merkingamar
og flogið mjög nálægt byggingunni til að skjóta á hana eldflaugum
Móbnæli í LetHandi
Aö sögn sovésku fréttastofunnar
Tass efndu um tfu þúsund manns
til mótmæla í Riga, höfuðborg Lett-
lands, í gær. Beindust mótmæli
fólksins gegn tilraunum Banda-
ríkjamanna til þess að hlutast til
um málefhi Lettlands.
Hópur lettneskra útflytjenda seg-
ir hins vegar að komið hafi til átaka
milli lögreglu og hundruða mót-
mælenda í Rlga þegar efnt var til
mótmæla á sextugasta og níunda
afimælisdegi sjálfstæðisyfirlýsing-
ar Lettlands.
Engin ástæða
til að óttast!
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
sagði í ræðu í gær að engin ástæða
væri til að óttast að hrunið á verð-
bréfamörkuðum heimsins fyrir um
mánuði myndi hafa alvarlegar af-
leiðingar fyrir hagvöxt í Bandaríkj-
unum. Sagði forsetinn að þótt
vissulega væri full ástæöa til að
ígrunda þessi mál vandlega, sæi
hann ekki ástæðu til þess að vera
með neina dómsdagsspádóma.
Hagfræðingar og aðrir sérfræðing-
ar um efnahagsmál hafa undanfar-
inn mánuð lýst þeim skoöunum
sínum að verðhrunið gæti haft alvar-
legar og langvarandi afleiðingar fyrir
hagkerfi Bandaríkjanna. Hafa þeir
gagnrýnt forsetann og ríkisstjórn
hans fyrir að bregðast lítið og illa við
áfalli þessu.
í ræðu sem Reagan forseti hélt á
fundi verslunarráðs Bandaríkjanna
í gær reyndi hann að lægja óttann
um að áfallið á verðbréfamörkuðun-
um gæti valdið kreppu í Bandaríkj-
unum. Lagði forsetinn áherslu á að
verðbréf væru enn mun hærri en þau
voru fyrir tæpum sex árum síðan,
þegar þau byijuðu að hækka veru-
lega í verði þrátt fyrir hrunið í
síðasta mánuði.
Vísaði forsetinn til áhrifa þeirra
sem varnar- og skatta aðgerðir
bandarísku ríkisstjórnarinnar höfðu
áriö 1929 og sagði að þess yrði að
gæta að grípa ekki til aðgerða sem
gætu dregiö úr hagvexti.
Reagan viðurkenndi að áhyggjur
vegna halla á íjárlögum Bandaríkj-
anna hefðu átt sinn þátt í því sem
hann nefndi „óróleika“ á verðbréfa-
mörkuðum.
Sagði forsetinn mikilvægt að þing
og ríkisstjórn lykju sem fyrst við nið-
urskurð fjárlaga. Forsetinn nefndi
engar tölur en sagði að ólíklegt væri
að samkomulag það sem gæti náðst
milli þings og ríkisstjórnar dygði til
að eyða fjárlagahallanum.
Forsetinn lagði áherslu á að draga
yrði úr fjárlagahalla með aðgerðum
sem jafnframt styddu við bakið á
hagvexti.
Reagan lýsti harðri andstöðu við
skattahækkanir sem leið til að rétta
af fjárlagahallann. Sagði hann að all-
ir vissu að vandamálið væri ekki
hægt að leysa með því einu að hækka
skatta Bandaríkjamanna. Sagði
hann að hægt væri að treysta því aö
skattalækkanir þær sem fengist
hefðu fram á undanfómum árum
yrðu ekki dregnar til baka.
„Það þýðir ekki að steyta hnefana neitt framan i mig, góði,“ gæti Reagan forseti verið að segja við bandaríska
boxmeistarann Thomas Hearns sem heimsótti forsetann i Hvíta húsið í gær. Símamynd Reuter
„Ég rétti þér þá bara eitt bjartsýnishögg á kjamman, eins og ég geri við þessa dómsdagsspámenn, sem halda
aö heimurinn sé að farast þótt verðbréf hrynji. Þú liggur þá bara eins og þeir, góði, því ef þú ert bara nógu bjart-
sýnn þá eru engin vandamál til staðar," gæti forsetinn bætt við. Sfmamynd Reuter