Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Side 28
40 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987. Jarðarfarir Svanur Ágústsson lést 13. nóvember sl. Hann fæddist í Reykjavík 21. okt- óber 1933, sonur hjónanna Vcilgeröar Tómasdóttur og Ágústs Jónssonar. Svanur læröi til matreiösl umeistara í Álaborg i Danmörku. Aö námi loknu starfaði hann um hríð sem bryti á millilandaskipi þar til hann réðst til Loftleiða hf. þar sem hann Starfaði í átta ár. Síðustu sautján árin starfaði Svanur sem fram- kvæmdastjóri Þjóðleikhúskjallar- ans. Eftirlifandi eiginkona hans er Stella Þorvaldsdóttir. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið. Útför Svans verður gerð frá Fossvogs- kirkju í dag ki. 15. Erlendur Póll Grímsson lést 12. nóv- ember sl. Hann var fæddur í Reykja- vík 12. apríl 1944, sonur hjónanna Helgu Valtýsdóttur og Gríms Páls- sonar. Páll lærði bifvélavirkjun hjá Heklu og vann þar nánast allan sinn starfsaldur. Hann kvæntist Marít Davíðsdóttur en þau slitu samvist- um. Þau eignuðust einn son. Síðustu misseri bjó Páll i Grindavík ásamt sambýliskonu sinni, Kolbrúnu Ein- arsdóttur. Útfór hans verður gerð frá Neskirkju í dag kl. 13.30. Jarðsett verður í Grindavík. Steinþóra Sigurbjörnsdóttir, Dval- arheinúlinu Höföa, áður húsfreyja Þyrli, sem lést 10. nóvember, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju í Saurbæ laugardaginn 21. nóvember kl. 14. Útfór Bjarna Óskars Frímannssonar, fyrrverandi oddvita frá Efri-Mýrum, Austur-Húnavatnssýslu, fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 21. nóvember kl. 14. Sætaferð frá Fremstagili, Blönduósi, að morgni sama dags. Útför Kristínar Hrefnu Þorfinns- dóttur (Bíbí) frá Baldurshaga, verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, fóstudag, kl. 13.30. Útför Ástu Pálsdóttur, Silfurgötu 1, Stykkishólmi, fer fram frá Stykkis- hólmskirkju laugardaginn 21. nóvember kl. 14. Tilkyiiriingar IBBY kynnir myndskreytingar Barnabókaráöið, Islandsdeild ZBBY, 'gengst fyrir dagskrá 1 tilefni þess að for- seti IBBY, dr. Dusan Roll, er staddur hér á landi. Dr. Roll er jafnframt formaður Biennale of Illustrations Bratislava sýn- ingarinnar og er staddur hér á landi til að veita íslenska viðurkenningu frá þess- ari sýningu. Dagskráin veröur að mestu helguð Ragnheiði Gestsdóttur sem held- ur nú sýningu á myndskreytingum, m.a. úr bamabókum, í Hafnargalleríi, Hafnar- stræti 4. Einnig mun dr. Roll kynna I gærkvöldi Gunnar Kristinsson matvælafræðingur: Bamaefnið gott Ég settist niður með syni mínum í gærkvöldi og horfði nokkra stund á barnaefnið í sjónvarpinu. Leist syni mínum greinilega betur á bamaefnið á Stöð 2 í þetta sinn og ekki frítt við það að hann hafi verið örlítið smeyk- ur við það sem hann sá í Ríkissjón- varpinu um Þrífætlingana. Við þá breytingu sem orðin er við flutning barnaefnisins á íslensku máli hefur skilningur yngri sjón- varpsáhorfenda aukist til muna á því sem er að gerast. Þessi þróun er af hinu góða og á þennan hátt er hægt að innprenta bömunum góða ís- lensku ef vel er á málum haldið varðandi íslenskan málflutning barnaefnisins. Ég reyni yflrleitt að horfa á fréttir eftir því sem tök era á og þá fréttir Ríkissjónvarpsins vegna þess að þær koma þegar matmálstímanum er lokið og þær eru hnitmiðaðri en á Stöð 2. Kastljós var mjög athyglisvert og áhugavert að heyra afstöðu þeirra unglinga sem fóru ekki hina hefð- bundnu leið í menntaskóla og háskóla. Þeim fannst ekki mikill fjár- hagslegur ávinningur að því að fara í langa skólagöngu. Það er greinilegt að í hugum mjög margra eru þessi störf orðin að láglaunastörfum, alla vega miöað við þær launatölur sem komu fram í viðtölum við fólk sem var að læra til iðnaðarstarfa. Kenn- arar tii dæmis og uppalendur hafa mjög ábyrgðarmikil störf en eru ekki nema hálfdrættingar í launum miðað við til dæmis smiði eða verkstjóra í fiskverkunarhúsi. Þessar hugmynd- ir krakkanna, sem rætt var við í Kastljósi, sýna greinilega að mjög mikið launabil er ríkjandi hér á landi. Þó svo að alltaf sé gaman að horfa á handbolta í beinni útsendingu og sérstaklega íslensku strákana þá er jafnleiðinlegt að sjá þá tapa. Strák- arnir era stolt íslendinga á íþrótta- sviðinu og eiga því skilinn allan þann stuðning sem við getum veitt þeim. Að mínu áliti á þátturinn Nýjasta tækni og vísindi að vera fyrr á dag- skránni. Þrátt fyrir það er hann alltaf ferskur og skemmtilegur og á Sigurð- ur Richter miklar þakkir skildar fyrir hann. í gærkvöldi sýndi Sigurð- ur meðal annars mynd um botn- vörpurannsóhnir Hafrannsóknar- stofnunar, Hampiðjunnar og netagerðamanna á Vestfjörðum. Var myndin tekin með neðansjávar- myndavél og sérstaklega athyglis- verð fyrir þær sakir að hún sýndi hvernig botnvarpa virkar í togi. Bratislava sýninguna í myndum og máli. Dagskráin verður haldin í Hafnargal- leríi, Hafnarstræti 4, mánudaginn 23. nóvember og hefst kl. 17.30. Dagskráin er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Ný listaverkakort frá Listasafni íslands Út eru komin hjá Listasafni íslands fjög- ur ný litprentuð kort með eftirprentun- um af verkum íslenskra myndlistar- manna. Eru þau sem hér segir: Bátur á heimleið, 1966 eftir Gunnlaug Scheving, Uppstilling, eftir Jón Sveinsson, Fólk í landslagi, 1978, eftir Louisu Matthías- dóttir, íslandslag, 1944, eftir Svavar Guðnason. Litprentanimar em límdar á tvöfaldan karton, 16x22 cm að stærð, og fylgir þeim umslag. Kortin em mjög vön- duð og tilvalin sem jólakort. Áður hefu'r Listasafnið gefið út um 70 litprentuð kort í sömu stærð og eru þau fáanleg í safninu. Skógræktarfélag Reykjavíkur Landslagsarkitektarnir Reynir Vil- hjálmsson og Einar E. Sæmundsson segja frá ferð í þjóðgarða Norður-Ameríku í máli og myndum mánudaginn 23. nóv- ember nk. í Norræna húsinu kl. 20. Styrktarfélag vangefinna Sameiginlegur fundur með foreldmm/ forráðamönnum og starfsfólki félagsins verður í Bjarkarási mánudaginn 23. nóv- ember nk. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Magnús Kristinsson, formaður félagsins, greinir frá helstu verkefnum þess. 2. Margrét Margeirsdóttir, deildarstjóri í félags- málaráðuneytinu, sýnir nýtt myndband um sambýli í landinu og svarar fyrir- spurnum. Kaffiveitingar. Kvenfélag Neskirkju heldur afmælisfund sinn nk. mánudags- kvöld, 23. þessa mánaðar, kl. 20.30 í safnaðarheimili kirkjunnar. Sr. Bern- harður Guömundsson verður gestur fundarins. Lögfræðiaöstoð laganema Orator, félag laganema, er með ókeypis lögfræðiaðstoð fyrir almenning á fimmtudagskvöldum í vetur milli kl. 19.30 og 22 í síma 11012. Félagsmiðstöð Geðhjálpar að Veltusundi 3b, er opin á fimmtudögum kl. 20-22.30, laugardögum og sunnudög- um kl. 14-18. Einnig hefur Geðhjálp opna skrifstofu alla virka daga kl. 10-14 þar sem seld eru minningarkort félagsins og veittar upplýsingar um starfsemina. Sími 25990. Kynning hjá Hugi hf. Dagana 20. og 21. nóvember nk. heldur Hugi hf. kynningu á Roland DG tölvu- teiknurum, GTCO hnitaborðum og Generic CADD teiknikerfinu í húsakynn- um Tölvufræðslurmar, Borgartúni 28, 3. hæð. Á kynningunni verður í fyrsta sinn sýnd á Islandi vél til módelgerðar frá Roland DG. Tæki þetta, kallað CAMM-3, er fræsir sem stjómaö er með PC-tölvu og teikniforriti. Tækið fræsir í mismun- andi efni og vinnur með flöt sem er 180 mm langur, 150 mm breiður og 150 mm djúpur. Kynningin verður opin frá kl. 10-18 fóstudag 20. nóv. og 10-16 laugardag 21. nóv. Henrik Héden eigandi H-Data í Svíðþjóð, sem er endursöluaðili Roland DG þar í landi, verður með báða dagana og mun veita allar upplýsingar ásamt starfsmönnum Huga hf. Upplýsingamiðstöð ferðamála hefur aðsetur að Ingólfsstræti 5. Þar eru veittar allar upplýsingar um ferðalög á Islandi og það sem er á döfinni í borg- inni. Opið mánudaga til föstudaga kl. 10-16 og laugardaga kl. 10-14. Sími 623045. Háskólafyrirlestur Föstudaginn 20. nóv. heldur prófessor Alec Garner, frá University of London, fyrirlestur á vegum læknadeildar Há- skóla íslands í Eirbergi á Landspítalalóð. Fyrirlesturinn nefnist „Pathology of the Diabetic Eye“. Fyrirlesturinn hefst kl. 14.30 og er öllum heimill aðgangur. Hörpuskin Málningarverksmiðjan Harpa hf. hefur sett á markaðinn nýja innanhússmáln- ingu sem nefnist Hörpuskin. Þessi nýja málning hefur 10% gljástig sem gerir hana bæði áferðarfallega og auðvelda í þrifum. Hörpuskin er einkum ætlað á steinveggi innanhúss, er einfold í notkun og þekur mjög vel. Hörpuskin er fáanlegt í 10 staðallitum en völ er á fleiri litum með blöndun við aðrar málningartegund- ir Hörpu. FAAS Félag aðstendenda Alzheimersjúkhnga er með símatíma i Hlíðarbæ við Flóka- götu á þriðjudögrm kl. 10-12 í síma 622953. Bækur Myndin af Dorian Grey eftir Oscar Wilde er komin út á ný hjá bókaútgáfu Máls og menningar. Þessi fræga saga var fyrst prentuð í Lundúnum árið 1890 og vakti samstundis mikla deilu og hneykslan. 1 bókinni fjallaði höfundur- inn af kunnri orðsnilld um efiii sem þekkt var orðið úr bókmenntasögunni: ungan mann sem lætur sál sína í skiptum fyrir eilífa æsku. En hér birtist viðskiptavinur- inn, djöfullinn, ekki í eigin persónu heldur er hann eitt af öfiunum sem leika lausum hala í mannssálinni. Wilde tekur efni sitt nýstárlegum tökum um leið og hann veltir vöngum yfir togstreytu listar og siðferðis, skáldskapar og veruleika. Þrátt fyrir misjafnar viðtökur í upphafi hefur Myndin af Dorian Grey allar götur síðan verið talin til höfuðverka Wildes. Hún hefur notið mikillar hylli, verið gefin út í risa- upplögum og kvikmynduð. Bókin kom út á íslensku árið 1949 í þýðingu Sigurðar Einarssonar og hefur hún verið ófáanleg um árabil en kemur nú út í nýrri, endur- skoðaðri útgáfu. Myndin af Dorian Gray er sjötta bókin í afmælisröð Máls og menn- ingar. Kápumynd gerði Robert Guille- mette en prentun annaðist Prentstofa G. Benediktssonar. Bókin er 216 bls. að stærð. Bókasafn barnanna Isafoldarprentsmiðja hf. hefur hafið út- gáfu á bókaflokknum Bókasafn bamanna. Þetta eru bækur fyrir minnstu bömin, lit- prentaðar með litíum texta á hverri síðu. Aftast í bókunum em skýringar fyrir full- orðna fólkið, hjálpartexti fyrir þá sem vilja lesa fyrir litlu bömin. Fyrstu bækumar í bókaflokknum Bóka- safn bamanna era Árstiðirnar: Vetur, sumar, vor og haust og eru þær komnar á markaðinn. Næstu bækur í bókaflokknum era vænt- anlegar fyrir jólin en það era Skilningar- vitin: Sjón, heym, tilfinning, bragð og lykt. Bækurnar era þýddar af Rannveigu Löve kennara, samprentaðar á Spáni en að öðra leyti unnar í Isafoldarprentsmiðju hf. Hver bók kostar kr. 250,- og fæst hjá öllum bóksölum á landinu. Terva gjaldþrota: Skuldir á bilinu 20-30 milljónir „Þaö er greinilegt að þaö stefnir í gjaldþrot ferðaskrifstofunnar Terru og það er búist við því að farið verði fram á gjaldþrotaskipti í dag eða á mánudag,“ sagði Torfi Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Terra, í samtali viðDV. Torfi er einn af fyrri eigendum ferðaskrifstofunnar en hann starfar sem framkvæmdastjóri þessa dagana í umboði bæði núverandi og fyrri eigenda fyrirtækisins. Torfi sagði að stjóm Terru hefði enn ekki samþykkt að lýsa fyrirtæk- ið gjaldþrota en þess yrði að hkind- um skammt að bíða. „Fyrirtækið er gjaldþrota í vitund allra,“ sagði Törfi. Stjórnin hefur fundað með lög- fræðingum þar sem staðan hefur verið rædd og sagði Torfi að nánar þyrfti að fara ofan í hana. Þó væri ljóst að skuldir fyrirtækisins næmu á bihnu 20 til 30 milljónum króna en þó kæmu einhverjar eignir á móti. Nefndi hann þar viðskiptavíxla, inn- réttingar og úitistandandi peninga. Fyrri eigendur Terra era í stærst- um ábyrgðum fyrir fyrirtækið og staðfesti Torfi að þeir mundu tapa mjög miklum peningum á þessu gjaldþroti. -ój Flateyri: Togari færður til hafnar Togarinn Gyhir á Flateyri var í gærdag færður til hafnar af Land- helgisgæslunni vegna þess að undanþága hafði ekki verið fengin fyrir annan stýrimann hans. Að sögn Steinars Guðmundssonar, skráningarstjóra á Flateyri, hélt Gylhr á veiðar klukkan tvö í gærdag. Skömmu síðar var Gyllir færður aft- ur til hafnar vegna kæra þess efnis að annar stýrimaður um borð væri réttindalaus og ekki með undanþágu. Sá hinn sami hafði verið með undan- þágu um hríð en hún var útrunnin. Skýrsla var tekin hjá lögreglunni og fengin undanþága fyrir annan skip- verja um borð sem einnig er réttinda- laus en hefur oft áður fengið undanþágu til að gegna starfi annars stýrimanns. Gyllir hélt síðan aftur á veiðar klukkan 10 í gærkveldi. -J.Mar Borgarstjórn um húsið á Tjarnargötu 11: Fundinn verði annar staður Á fundi borgarstjórnar í gær flutti Hhmar Guðlaugsson, formaður byggingarnefndar, tillögu þar sem þess var farið á leit við borgarráð að fundinn yrði annar staður fyrir hú- sið Tjarnargötu 11 en ráðgert hafði verið, á horni Túngötu og Garða- strætis. í greinargerð með tillögunni segir að borgarráð hafi heimilað að flytja húsið en staðsetningu þess hafi verið frestað þar sem í ljós hafi kom- ið að húsið færi iha á lóðinni. Miklar umræður spunnust um til- löguna og fuhtrúi frá Alþýðubanda- lagi og Kvennalista bókuðu andstöðu við flutning hússins. Síðan var geng- ið til atkvæða um tillöguna og hún samþykkt með 14 samhljóða atkvæö- um en fulltrúi Kvennalista sat hjá. -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.