Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Síða 30
42
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987.
HLJOMPLÖTUR/KASSETTUR
Venjul. Okkar
verð verð
1. La Bamba-úr kvikmynd....... 799,- 719,-
2. Bjartmar-
í fylgd með fullorðnum.... 899,- 809,-
3. Megas- Loftmynd........... 899,- 799,-
4. George Michael - Faith..... 799.- 719,-
5. PetShop Boys-Actually...... 799,- 719,-
6. ABC-AlphabetCity........... 799,- 719,-
7. Meatloaf- Live............. 799,. 719 .
8. Eurythmics - Savage........ 799,- 719,-
9. Sting - Nothing Like The Sun. 1099,- 989,-
10. Whitesnake -1987 .......... 799,- 719,-
GEISLADISKAR
Tilboö vikunnar
Merming
Stálnótt
þessir turnar, sem ég tala um, eru
turnar eins og eru á Vatnsenda-
hæðinni og þar er svona loftskeyta-
stöð líka. Tíminn er kannski ekki
alveg núna, það hefur eitthvað
gerst, það er talað um slys og þarna
er geislavirkt svæði og svo er allt
í niðurníðslu, til dæmis í fjölbýlis-
húsinu sem Jonninn býr í. Ég er
líka aöeins að ýja að þessum kjarn-
orkuótta sem fólk virðist vera
haldið, sjálfur hef ég ekki svo mikl-
ar áhyggjur af kjarnorkunni, ég
veit ekki hvort lífið eftir sprengj-
una verður neitt verra en það er
núna. Ég var að reyna að sýna
þessa svokölluðu lágmenningu og
nota mér þær aðferðir sem eru
notaðar í bókum og myndum af því
tagi, til dæmis endurtekningarnar.
Um leið og ég reyndi að nota þetta
meðvitað, til að halda í spennuna
á sviðaðan hátt og til dæmis í Bob
Moran bókunum og vísindaskáld-
sögum, þá reyndi ég líka að bæta
einhverju viö, koma með eitthvað
allt annað á móti. En það var þessi
lágmenning sem ég var að hugsa
um, svona eins og hún kemur fram
í þessum bókum sem ég var að
nefna og líka í bíómyndum. Það eru
myndir eins og Rebel without a
Cause, Bladerunner, Clockwork
Orange og Mad Max, sem gerist
einmitt eftir sprengjuna, og jafnvel
svona gúmmískrímslamyndir eins
og Gremlins. Ég lít ekki á þetta sem
neitt fínt bókmenntaverk. Ég vil
alveg eins höfða til þeirra sem lesa
til dæmis ísfólkið eða Morgan
Kane.
- Hver er Johnny Triumph?
- Johnny er svona ævintýrahetja
eins og Bob Moran eða Mad Max,
ég vona að mér hafí tekist að bæta
einhveiju við hann, þróa hann að-
eins áfram. Hann er þessi kaldi
kall, þessi heillandi og hættulegi
maður sem er svo mikill hljóm-
grunnur fyrir í okkar vestræna
þjóðfélagi og ég reyni að sýna það
með bílnum og með fótunum. Það
er mikill ljómi yfir þessum náung-
um sem ferðast neðansjávar og
koma með vandræðin á land.
- Hvað um unglingana?
- Þeir eru eins konar stökkbreytt
afbrigði af hetjunum úr ævintýra-
bókunum eftir Enid Blyton, það er
að segja að nöfnin eru sótt þangað
en þau eru auðvitað allt öðruvísi.
Jonninn er blökkudrengur í blokk,
Dísan asískt tökubam í einbýlis-
húsi, Finnurinn drengur í raðhúsi
og Annan bækluð stúlka í kjallara.
En saman mynda þau eina heild,
eina manneskju með íjögur andlit.
Ég reyni að sýna heim unglingánna
í gegnum þau, ég er eiginlega aö
leika mér með unglingagoðsögurn-
ar og ég lagði áherslu á að kynna
þau eins og unglingar kynna sig
sjáfír, eða með útlitinu, fótunum.
Sigurjón Birgir Sigurðsson (Sjón).
Bókmenntaviðtalið
Lilja Gunnarsdóttir
Svo eru alltaf ákveðin ritúöl innan
unglingahópa, ákveðin tákn og lit-
ir, já og skótegundir, hlutir sem
þýða eitthvað alveg ákveðið innan
hópsins og gera hann frábrugðinn
öðrum hópum. Það eru oft þessi
tákn sem gera að fólk er hrætt við
svona unglingahópa, það skilur
ekki hvað þetta er, kann ékki að
lesa í táknin. En þetta er líka end-
urspegluii á þessum heimi sem við
lifum í. Ég er að reyna að sýna
þjáningu unglingsins, það þjást all-
ir unglingar bara við aö vera til og
þessir þjáningaleikir eða þjáninga-
ritúöl, sem ég sýni þá í, eru bara
afbrigði af leikjunum sem krakkar
eru alltaf í. Það er eiginlega heimur
unglingsins sem ég reyni að sýna
í gegnum þessi fjögur sem ég fylgi
alveg frá fæðingunni, ég byggi sög-
una upp sem einhvers konar ritúal,
ritúal sem er grundvallaö á lág-
menningunni. Það eru þrjú atriði
eða þrír þættir sem mér finnst vera
nauðsynlegir og sem ég vona að
mér hafi tekist að láta koma fram,
það er húmorinn, hryllingurinn og
svo pornógrafían eöa erótíkin. Ég
var að reyna að umfaðma alla af-
kimana, til dæmis með svona
DV-mynd
atriöum eins og þegar Jonninn hitt-
ir djöfulinn.
- Já, þessir djöflar, sem hitta
unglingana. Hvað gerir þá að djöfl-
um? Eru þeir eitthvað verri en til
dæmis unglingarnir?
- Það sem gerir þá að djöflum er
eiginlega þeirra upphaf og þeirra
þróun. Ég sýni þá á mismunandi
þróunarstigum, þeir kaflar heita
gler, málmur og hold og þaö er ein-
mitt heimur þessarar bókar; stál-
nótt eða stáliö í mjúkri og heitri
nóttinni sem ég tala um. Það eru
þessar þijár tegundir lífs, í berns-
kunni eru djöflarnir gler og þaö eru
meðal annars í þeim teningar sem
er verið að kasta og allt getur gerst,
það er eins og börn eru, þau geta
orðið hvað sem er. Á miöstiginu
eru þeir málmur, þeir eru vélar og
mér finnst það vera eins með þró-
unarstig manneskjunnar, hún er
ómótað barn og gengur svo í gegn-
um vélina og þessi vél á að skila
henni sem manneskju þó að flestir
staðni nú á masiunustiginu,
klemmist fastir á milli tannhjól-
anna. Annars eru djöflarnir bara
venjulegt leðurlið og leðurliðið tek-
ur oftast á sig þá byrði að vera
blórabögglar. En svo kemur bara í
ljós hver er hinn vondi í raun og
veru.
Lilja Gunnarsdóttir
iÁnhr P>i<> 6H?
f?arw ad s&[a bíí?
SMA-AUGLYSING I DV GETUR LEYST VANDANN.
Smáauglýsingadeild
VISA
sími 27022.
KRINGLUNNI • BORGARTÚNI • LAUGAVEGI
Stálið í mjúkri og
heitri nóttinni
- viðtal við Sjón skáld um
Fyrsta skáldsaga Sjóns (Sigurjóns
Birgis Sigurðssonar) heitir Stál-
nótt, byrjar á hafsbotni og endar í
eins konar Breiðholti. Stálnótt er í
senn mynd af nútímanum og
mögulegri framtíð okkar, sam-
bland draums og veruleika, ævin-
týraheimur þar sem allt getur
gerst. - Á hafsbotni keyrir ævin-
týrahetjan Johnny Triumph á
amerískum kagga, hann er með
undirrót illskunnar í farangurs-
geymslunni og stefnir á land. í
steypuveröld borgarinnar fæðast
fjögur börn, þau eru ólík og alast
upp við mismunandi aðstæöur en
samt eru þau nátengd, fjórar ólíkar
hliðar á einni og sömu persónunni.
- Sjón, þessi heimur sem þú dreg-
ur upp mynd af í bókinni, er þetta
veröldin eins og hún lítur út í dag
eða er þetta veröldin eftir kjarn-
orkustríð?
- Hún er eiginlega hvort tveggja.
Ég var að reyna að búa til goðsögu-
legt landslag sem gæti eins vel
verið veröldin eftir kjarnorkuslys-
ið. Sögusvið bókarinnar er í
rauninni einhvers konar Breiðholt,
Venjul. Okkar
verð verð
1. Meatloaf- Live 1.299,- 1.169,-
2. ABC-Alphabet City 1.299,- 1.169,-
3. Sting - Nothing Like The Sun . 1.299,- 1.169,-
4. La Bamba - úr kvikmynd 1.299,- 1.169,-
5. George Michael - Faith 1.499,- 1.349,-
6. Magnús Eiríksson- 20 bestu lögin ... 1.399,- 1.259,
7. Eurythmics - Savage ... 1.299,- 1.169,
8. Strax-Strax ... 1.399,- 1.259,
9. Vilhjálmur Vilhjálmsson - ... 1.399,- 1.259,
10. Black-Wonderful Life ... 1.299,- 1.169,
platan Dirty Dancing
Venjulegt verð 799,-
Okkar verð 679,-