Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988.
7
Fréttir
Afengisútsalan í Kringlunni: ekki er enn ráðið hvort sams konar sjálfsaf-
greiðsla verður í nýja „ríkinu" í Mjóddinni.
Áfengisverslun í Mjóddinni:
Líklega opnuð í sumar
- „ríki“ í Neskaupstað með vorinu
Ný áfengisverslun er í byggingu í
Mjóddinni í Breiðholti og verður hún
líklega tekin í notkun í sumar.
Húsnæðið, sem er að Álfabakka 14,
verður afhent Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins, ÁTVR, tilbúið undir
tréverk 1. maí næstkomandi en
Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR,
sagði í samtali við DV að kappkostað
yrði að opna eins fljótt og auöið yrði.
ÁTVR keypti húsnæðið af KRON
og verður verslunin tæpir 200 m2 að
flatarmáli en svipað pláss fer undir
geymslur. Ekki er ákveðið hvort
verslunin verður með sama sniði og
í Kringlunni þar sem kaupendur ná
sjálfir í vöruna eða lík eldri verslun-
um þar sem afgreitt er yfir borð.
Einnig er í bígerð að opna áfengis-
útsölu í Neskaupstað með vorinu en
endanlegt húsnæði er ekki fundið.
Höskuldur sagði þó líklegt að fyrir-
komulag verslunarinnar í Neskaup-
stað yrði eins og í Ólafsvík en þar
var áfengisútsölunni komið fyrir í
vefnaðarvörubúö. Þessi tilraun hef-
Ur reynst mjög vel að sögn Höskuldar
og hefur ÁTVR því kannað þennan
sama möguleika í Neskaupstað.
Önnur sveitarfélög, sem samþykkt
hafa opnun áfengisverslunar, eru
Hafnarflörður, Garðabær, Kópavog-
ur og Seltjarnarnes en engin ákvörð-
un hefur verið tekin hvenær
áfengisútsölur verða opnaðar þar.
-JBj
Verðhækkunin hjá Á1VR:
Létt vín hækkuðu mest
„Léttvín hækkuðu að meðaltali
meira í verði en sterku vínin,“ sagði
Þór Oddgeirsson hjá Áfengis- og tó-
baksverslun ríkisins um nýjustu
verðhækkun á áfengi og tóbaki. Nam
hækkunin að meðaltali 5,7%.
Þór sagði að léttvínin heföu hækk-
að meira en þau sterku vegna er-
lendra verðhækkana. „Eins munar
miklu hvort reiknað er í dollurum
eða Evrópumyntum því þær hafa sig-
iö frá síðustu verðbreytingum,"
sagði Þór. „Þá kemur líka inn í dæm-
ið að stærri hluti af verðinu er inni
í innkaupsverði á léttum vínum held-
ur en sterkum."
Sem dæmi um þær hækkanir má
nefna að amerískar filtersígarettur
hækkuðu úr kr. 130 í 136 pakkinn.
London Docks-vindlar hækkuöu úr
190 krónum í 210 pakkinn. St. Emili-
on rauðvín hækkaði úr 680 krónum
í 740, Brennivín hækkaði úr 880 í 940
krónur, Smirnoff-vodka hækkaði úr
1320 krónum í 1370, Bristol Cream
sérrí hækkaði úr 730 krónum í 780,
Johnny Walker viskí hækkaði úr
1530 krónum í 1610 og Liebfraumilch
hvítvín hækkaði úr 400 krónum í 460.
-JSS
Kjarasamningatilraunin á Vestfjörðum að fjara út: .
Matarskatturinn mun
leiða til aukinna krafna
„Því miður fer það saman að þungt
er fyrir fæti hjá atvinnurekendum
og að þær kröfur sem við vorum með
fyrir áramót passa ekki nú þar sem
matarskatturinn hefur fariö verr en
menn bjuggust við,“ sagði Pétur Sig-
urðsson, formaður Alþýðusambands
Vestfjaröa, í samtali við DV. Hann
sagðist því vera hóflega bjartsýnn á
aö samningar næðust fyrir vestan
eins og margir bjuggust við að gæti
gerst á næstunni.
Pétur sagði að veður og ófærð hefði
komið í veg fyrir formlega samninga-
fundi síðustu daga en samt sem áður
Þorskeldi Norðmanna:
Á leiðinni að verða
ígildi laxeldisins
- Norðmenn framleiða eitt þúsund lestir í ár
Á síðustu árum hafa Norðmenn
verið að fikra sig áfram með þorsk-
eldi í norsku fjörðunum. Til aö
byrja með voru ýmis vandamál
sem þurfti aö leysa en nú virðist
sem þau séu yfirstigin og því er
spáð að á næstu árum verði eldis-
þorskur jafnmikilvæg útflutnings-
grein og útflutningur á eldislaxi.
Jann Holst hjá norsku upplýs-
inganefndinni fyrir sjávarafurðir
segir í viötali við sjávarútvegs-
blaðið Fiskaren að þessa sé ekki
langt að bíða.
Hann bendir á að í fyrra voru
framleiddar 100 lestir af eldisþorski
sem nær allur fór í jólaþorskinn,
sem fræg jólamáltíð Norðmanna
er kölluð. Á þessu ári er búist við
að framleiddar verði eitt þúsund
lestir af eldisþorski.
Til þessa hafa Norðmenn farið
þannig að: Þeir veiða smáþorsk á
hefðbundnum miðum en ala hann
svo í lokuöum fjörðum. Jann Holst
segir að það sem gera muni eldis-
þorskinn eins vinsælan og búist er
við sé að kaupendur geta fengið
hann í nákvæmlega þeirri stærð
og þyngd sem þeir vilja hverju
sinni. Jann Holst segir í viðtalinu:
„Á næstu árum verður kominn
mikill kraftur í þorskeldi eftir allri
norsku ströndinni og útflutningur-
inn mun aukast jafnt og þétt. Þegar
við getum tryggt jafna framleiöslu
af ákveðinni stærð af fiski munu
veitingahús um allan heim sækjast
eftir norska eldisþorskinum. Þar
með verður komið nýtt útflutnings-
verkefni sem margir spá aö verði
ekki minna en í eldislaxinum.
Ef þetta gengur eftir hjá Norð-
mönnum er ef tii vill fundinn lausn
á smáfiskaveiðunum hér við land.
Þá gætu til aö mynda frystitogar-
arnir hirt smáfiskinn lifandi og sett
hann í eldisstöð í stað' þess að
henda honum dauðum.
-S.dór
Leigubílstjóri:
Kærður fyrir sjónvarpsstuld
Lögð hefur verið fram kæra á
hendur leiguhílstjóra í Reykjavík.
Kona sem kærði segist hafa tekið
leigubíl við Fellagarða í Breiðholti.
Hún fór fyrst meö bílnum aö verslun
þar sem hún festi kaup á litlu sjón-
varpstæki. Konan lét síðan aka sér
að annarri verslun. Bað hún leigubíl-
stjórann að bíða á meðan hún versl-
aði. Þegar konan kom út segir hún
leigubílinn hafa verið á brott. Sjón-
varpstækiö, sem konan haföi fest
kaup á skömmu áöur, var í aftursæti
bílsins.
Konan fór strax til lögreglu og
kærði þjófnaöinn. Hún vissi ekki
númer bílsins.
-sme
hefðu menn ræðst við og þær viðræð-
ur heföi síst aukið sér bjartsýni.
Varðandi matarskattinn sagði Pét-
ur að mikill kurr væri í fólki enda
hefði hann komið öðruvísi út en yfir-
völd sögðu þegar ákveðið var að setja
hann á.
„Það er ekki nema eðlilegt að fólk
sé óánægt þegar verð á matvælum
hækkar en kaupið stendur í staö. Ég
er þess fullviss að fólk gerir nú harð-
ari kröfur til kauphækkunar en var
áður en matarskatturinn kom á,“
sagöi Pétur Sigurðsson.
-S.dór
OPffl
t KVÖLD
50 / staðgreiðslu-
f 0 afsláttur
í öllum deildum.
RAFDEILD:
Er jólaserían í lagi fyrir
næstu jól?
30% afsláttur af jóla-
seríum og perum á
meðan birgðir endast.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
Á tröppur, gangstéttir, vegi, bílastæði og víðar. Dreifist í litlu magni sem jafnast. Bræðirsnjó, klaka
og hindrar ísmyndun í allt að - 9°C. Dreifing: Olíufélagið hf. og Áburðarverksmiðja ríkisins.
ÁBURÐARVERKSMIÐJA RÍKISINS