Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988. Utlönd spamaður vegna milds vetrar Haukur L. Haukæon, DV, KauprrLhöfn: í samanburði viö síðasta vetur hefur hinn mildi vetur nú sparaö öllum sveitarféíögum, ömtum og vegagerðinni hundrað mimónir danskra króna sem vanalega eru notaðar til saltausturs og snjó- ruðnings. Samkvæmt upplýsingum dönsku vegagerðarinnar er sparnaðarupphæðin sennilega enn hærri vegna sáralítilla frost- skemmda á vegum. Hefur verið lítið um hitasveiflur kringum frostmarkiö en þær fara verr með yfirborð veganna en stööugt frost. Meðalvetur í Danmörku kostar um fimm hundruö millj- ónir danskra króna og hafði vegagerðin ein, sem sér um aðal- þjóðveganetið, sparaö fimmtán milljónir um áramótin og runnu þær þvi aftur í þurfandi ríkis- kassann. í janúar hafa vegagerðinni þeg- ar sparast tíu milljónir og er vonast til að sparnaöurinn i ár renni í viðhald á vegum en síð- ustu þrír vetur, sem voru snjó- þungir, rýrðu mjög viðhaldssjóði. Sjást þess enn merki á vegum. í janúar hefúr hiti í Danmörku verið yfir meöallagi, allt aö tíu gráöur. Að sögn veðurfræðinga er ekki útlit fyrir aivöruvetur í bráöina. íranirnir aftur til Frakklands Bjami Hinrikssoiii, DV, Bordeaux: Aðeins 48 klukkustundum eftir að Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakklands, lýsti þvi síðast yfir að aldrei kæmi tii greina að ríkisstjóm- in endurskoðaði þá ákvörðun sína aö vísa úr landi 22 írönskum og 4 tyrkneskum flóttamönnum voru hann og stjómin búin að skipta um skoðun. í gærkvöldi sneru 7 flóttamenn aft- ur til Parísar frá Gabon þar sem hópurinn hefur verið. í Madrid bíða 8 sem em væntanlegir. Þessi kúvending stjórnarinnar kemur í kjölfar mikillar gagnrýni heima fyrir og erlendis frá því laga- legur grundvöilur fyrir brottvísun- unum þótti í sumum tiifellmn iítill. Enda hafa frönsk dómsyfirvöld lýst því yfir að gögn ríkisstjórnarinnar, sem réttlættu aðgerðirnar, séu ónóg. íranimir voru pólítískir flótta- menn og andstæðingar Khomeinis. Sakaði ríkisstjórnin þá um starfsemi Iranir, sem verið hafa í hungurverkfalli í París vegna brottyisunar félaga sinna frá Frakklandi, sýna sigurmerki er tilkynnt var um endurkomu flótta- mannanna. Simamynd Reuter sem ógnaði öryggi innanlands. Með því gerði ríkisstjómin brottvísanirn- ar hluta af baráttunni gegn hryðju- verkamönnum en aðrir sáu hins vegar í þessum aðgerðum einar af afleiðingum samningaviðræðum franskra og íranskra yfirvalda vegna frönsku gíslanna sem látnir vom lausir í Líbanon í lok nóvember. íranimir voru sendir til Gabon og hófu margir þar strax hungurverk- fall. í hópnum voru konur og böm. Ríkisstjómin segist leyfa sumum írönunum að snúa aftur til Frakk- lands vegna heilbrigðis- og mannúð- arsjónarmiða. Brottvísanimar séu einungis úr gildi á meðan málið er athugað betur og alls ekki tryggt að íranirnir séu komnir til baka fyrir fullt og allt. Líklegri ástæður fyrir þessari eftir- gjöf stjómarinnar era aðrar. í fyrsta lagi eru fyrmefndar yfirlýsingar franskra dómsyfirvalda. í öðra lagi var Mitterrand forseti farinn að gefa í skyn að hann sætti sig ekki við brottvísanimar og í þriðja lagi var kominn upp vísir að ósætti innan Stjórnarflokkanna. Chirac hefur því tahð hyggilegast, með tilliti til kom- andi forsetakosninga, að gefa eftir og forðast með því árekstra við for- setann og óánægju í eigin röðum sem orðið gæti honum álitshnekkir. í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi harð- neitaði Chirac því að þetta mál hefði nokkuð með gíslana aö gera né held- ur þýddi endurkoma írananna uppgjöf af hans hálfu. Gmnaðir um aðstoð við gerð kjarnorkusprengju Ásgeir Eggertssan, DV, Mimchen: Umhverfismálaráðherra Vestur- Þýskalands bannaði í gær kjarn- orkufyrirtækinu Nukem áframhaid- andi starfsemi. Þetta er afleiðing þess aö hjá fyrirtækinu fundust 50 tunnur af geislavirku efni sem þaö haíði áð- SKILÐ LAUNAMÐUM í tœka tíð Launamiðum fyrir greidd laun á árinu 1987 þarf að skila nú sem endranær. Síðasti skiladagur er ______20. janúarnk. KENNITALA í STAÐ NAFNNÚMERS í stað nafnnúmers ber nú að tilgreina kennitölu bæði launamannaog launagreiðenda. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI ur neitað að væra til. í gær var einnig tilkynnt mn að rannsókn á útflutningi fyrirtækisins á geislavirkum efnum væri hafin. Raddir era uppi um að efniö, sem auðveldar gerð kjamorkusprengju, hefði verið flutt til Líbýu öa Pakist- an. Ef svo er er þetta brot á reglum sem banna V-Þýskalandi að fram- leiða eða hjálpa ööram að framleiða kjarnorkuvopn. Fréttamenn v-þýska sjónvarpsins sögðu í gær aö ef gran- urinn um aðstoð við gerð kjarnorku- sprengju ætti eftir að sannast myndi þetta mál jafnvel bregöa skugga á Iran-kontra hneykshö í Bandaríkj- unum. Svo alvarlegar eru ásakanirn- ar. Postsamgóngur í samt lag Brynhildur Ólafedóttir, DV, Spáni: Póstyfirvöld Spánar hafa nú gripið til þess ráðs að endumýja samninga þeirra lausráðinna starfsmanna póstsins sem nmnu út þann 31. des- ember síðasthðinn til að bjarga póstþjónustunni frá hruni. Frá 1. janúar hefur hrúgast upp póstur sem ekki hefur verið hægt að dreifa vegna manneklu og stefndi í algjört óefni. Því hefur veriö ákveðið að veita aukafjárveitingu til að unnt veröi að lausráða hið fyrsta nýja starfsmenn. Tahð er að það taki um það bil viku að koma póstþjónustunni í samt lag aftur enda er mikið starf fyrir hönd- um þar sem aht hefur verið á heljar- þröm. Danskir nasistar í framboð Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmaimahofci: Danski nasistaflokkurinn, sem hefur bækistöðvar í Álaborg, hefur ákveðið að bjóða fram í næstu bæjar- og sveitarstjómarkosningum sem haldnar verða 1989. Telur flokkurinn sig standa svo vel að vígi aö hann mun bjóða fram í Álaborg, Kaup- mannahöfn og ýmsum sveitarfélög- um í nágrenni höfuðborgarinnar. Knudsen, foringi flokksins, hefur lýst því yfir að flokkurinn muni fyrst og fremst vinna að því að reka það sem flokkurinn kallar „hið svokah- aöa flóttafólk" úr landi. Auk þess mun flokkurinn ætla að taka þátt í umræðunni um umhverfisvemd. Th þessa hefur flokknum tekist að halda upplýsingum um meðhma- fjölda og fjármál leyndum. ■ Lands- fundimir era haldnir með mikihi leynd og aht um starf flokksfélag- anna vel huhð. Þó hefur fengist staðfest að hver meðlimur borgi 25 danskar krónur í félagsgjald á mán- uði og gefið er í skyn að einstaka persónur styrki flokkinn með vera- legum fjárútlátum. Flokkurinn, sem var stofnaður 1970, hefur fastmótað stigskipt fé- lagskerfi þar sem era bæði A- og B-meðhmir. Geta alhr orðið B-með- limir en forysta flokksins velur A-meðhmi eftir að þeir hafa stundað flokksstarf í mörg ár. „Th að verða A-meðhmur verður maður að th- einka flokknum tilvera sína. Maður verður að láta nota sig eins og for- ystu flokksins þóknast,“ segir flokks- foringinn. Kunnugir telja að fjöldi A-meðhma sé mhli 40 og 50. Flokks- félög fmnast víða um aha Danmörku en eru sterkust í Álaborg og Kaup- mannahöfn. Knudsen foringi er cand. mag. í germönskum málvísindum. Fyrir utan að vera foringi dönsku nasist- anna er hann aðalritari alþjóðasam- bands nasista. Hugmynafræði flokksins grund- vahast á riti Hitlers, Mein Kampf. Nasistamir neita útrýmingu 6 mhlj- óna gyðinga í seinni heimsstyrjöld- inni og segir Knudsen að 6, 12 eða 18 milljónir drepinna gyðinga skipti engu í kosningabaráttunni fyrir bæj- ar- og sveitarstjómarkosningamar. Auk þess séu flestir meðhmir flokks- ins, eða 95 prósent þeirra, fæddir eftir stríðslok.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.