Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 15. JANUAR 1988.
Neytendur_________________________________
Matarskatturínn:
Hik á fólki, hættir
jafhvel við að kaupa
DV kannar hljóðið í neytendum
Á ég að hætta við, bíða eða bara skella mér á þetta?
í vikunni gerðum við okkur ferð í
Hagkaup í þeim tilgangi að heyra
álit fólks á hækkunum matvara. Sjá
mátti að viðskiptavinir komu og
skoðuðu ögn meira en gengur og ger-
ist. Vörur voru teknar upp, verð
skoðað og þær jafnvel lagöar aftur á
sinn stað. Fáir höfðu gert sér ná-
kvæma grein fyrir því hvaða vörur
höfðu hækkað qg hve mikið. Auðséð
var þó aö hjá flestum gætti einhvers
óróleika, a.m.k. á meðal þeirra sem
við var rætt.
Afgreiðslumaður við kjötborðið
sagðist mikið hafa orðið var við að
fólk spyrði sig um verð og þakkaði
síðan pent fyrir sig og gengi á brott.
Viðskiptavinir hættu einfaldlega við
að kaupa kjötvörur, a.m.k. á meðan
þeim hefur ekki runnið reiðin vegna
aðgerða ríkisvaldsins. Orð eins og
„allt of dýrt“ og „allt hækkað“ haíði
afgreiðslumaðurinn oft heyrt á síð-
ustu dögum.
Jenný Bjamadóttir var ein síns liðs
með vagn að versla er blaðamaður
mætti henni. Um helgar sagðist hún
til þessa hafa keypt inn nokkurn veg-
inn sömu hlutina og greitt fyrir við
kassann á bilinu 6-7.000 kr. í þessu
verði væru tvær nautakjötsmáltíðir.
í dag greiðir hún aftur á móti um
8.000 kr. fyrir sömu vörur. Á mánuði
er hækkunin því um 4-6.000 kr. fyrir
hennar heimih og þá aðeins um helg-
ar. Jenný hélt ekki að þessar
hækkanir kæmu svo mikið við sig.
Aftur á móti fann hún til með barna-
fólki.
Næst rákumst við á hjón sem virt-
ust ánægð með lífið. í ljós kom þó
að þau voru mjög óhress með hækk-
anir á matvörum. „Ekki hækka þeir
kaupið þó þeir hækki matvöruna,“
sagði konan, Guðrún Ellertsdóttir.
Eiginmaðurinn, Ásgeir Ásgeirsson,
tók undir orö hennar og bætti við:
„Já, svo er sagt að aðrar vörur eigi
að lækka til þess að vega upp á móti
söluskattshækkununum.“ „Það er
ekki rétt, ég ætlaði að fara að kaupa
dekk undir bílinn, sá svo að verðið
haíði akkúrat ekkert lækkað og hætti
því við. Við náum þessum peningum
aldrei inn aftur og þurfum ekkert á
þessum lúxusvörum að halda sem
eru að lækka.“ Þau hjónin sögðust
ekki geta ímyndað sér annað en að
þessar hækkanir kæmu illa við
yngra fólkið.
Sigríði Einarsdóttur mætti blaða-
maður er hún gekk í átt að kassan-
um. Hún er í hópi yngra fólksins sem
þau eldri kenndu svo í bijósti um.
Sigríður sagðist sérstaklega hafa tek-
ið eftir verðbreytingu á rjóma en átti
eftir að skoða verðbreytingar betur.
Engu að síður sagðist hún hissa á
stjórnvöldum að láta sér detta í hug
að hækka vörur sem eru dýrar miðað
við önnur lönd, þ.e.a.s. matvörur.
„Ferðamenn eiga ekki til orð þegar
þeir koma hingað - matvörur eru
allt of dýrar.“ Aðspurð um breyting-
ar á hátollavörum sagðist Sigríður
vera fullviss um að þar hefði upp-
stokkun tollflokka fylhlega átt rétt á
sér. „Hlutum eins og borðbúnaði og
öðru þess háttar var hvort sem er
bara smyglað inn til landsins en nú
Jenný Bjarnadóttir taldi verðhækk-
anir koma verst niður á yngra fólk-
inu.
fer maður og leyfir sér að kaupa
þessa hluti á skikkanlegu verði.“
Fleiri voru þama á ferð sem til-
heyra hópi unga fólksins. Friðrik
Raifnsson og Kristjana Kristjánsdótt-
ir keyrðu son sinn, Rafn Vídalín, um
í imikaupavagni. Það stóð ekki á
undirtektum hjá þeim er þau voru
spurð hvort þau hefðu tekið eftir ein-
hverjum breytingum á verðlagi
síðustu daga. „Jú, það er hagstæðara
að kaupa 300 grömm af nautahakki
en fiski núorðið - meiri matur út úr
sömu þyngd. Lambakjötið er líka
orðið það dýrt að við erum hætt að
kaupa það - kaupum frekar nauta-
kjöt. Svo er það áleggið, það hefur
hækkað óþægilega mikið.“ Hvort
þeim fyndist eitthvað sem sneri beint
að syni þeirra hefði hækkað? „Jú, jú,
eggin. Strákurinn er svo hrifinn af
eggjum. Eggjaverð var nefnilega
mjög sanngjarnt en nú er búið að
eyðileggja það,“ sagöi Kristjana. En
hefur barnið séð hvemig eggin verða
til? Foreldramir urðu nú dálítið
hissa, brostu þó og sögðu það góða
hugmynd að sýna baminu eitthvað
úr sveitinni. Það skaðaði varla að
upplýsa bamið lítillega um matvörur
þær sem foreldramir kaupa dýrum
dómum.
Það var greinilegt þetta síðdegi að
allir voru ósáttir við aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar. Áberandi lítið var í
innkaupakörfum viðskiptavina. Fólk
spáði meira og skoðaði heldur en að
kaupa. Allir vildu halda verði mat-
vara niðri og láta munaöarvörur
halda sínu háa verði. Enginn taldi
sig koma til með að njóta góðs af
tollaniðurfellingum munaðarvara til
jafns við hækkanir matvara.
-ÓTT.
Þessum hjónum fannst óréttlátt að hækka matvörur á meðan kaupið stæði
í stað.
Friðrik Rafnsson og Kristjana Kristjánsdóttir með son sinn, Rafn Vídalín,
sem finnst egg óhemju góð.
Niðurgreiðslupen-
ingar étast upp
Er ákveðið var að setja söluskatt
á matvömr vora auknar niður-
greiðslur á landbúnaðarvörar sem
að áliti ríkisstjómarinnar era
nauðsynlegustu fæðutegundirnar.
Tekna til aukinna niðurgreiðslna
var m.a. aflað með því að leggja
25% söluskatt á matvæli en fyrir-
hugað hafði verið aö hann yrði
22%.
Til að greiða niður söluskatt á
kindakjöti, smjöri og mjólk voru
niðurgreiðslur auknar um 1,3
milljarða og nema þær því 2,9 millj-
örðum til landbúnaðar. Þetta eru
nær 30% af heildarveltu allrar
smásöluverslunar í landinu en hún
er um 20 milljarðar.
Nú hefur komið á daginn að þess-
ir peningar era ekki verðtryggðir
og munu niðurgreiðslur því skerð-
ast í prósentum eftir því sem
verðbólga eykst því að krónutala
er óbreytt. Neytendur geta því
búist við því að „nauðsynlegustu
matvæli“ hækki þegar fram líða
stundir, samkvæmt upplýsingum
sem DV hefur aflað sér.
-PLP
Tímarit fvrir alla
HENTAR ÖLLUM ALLS STAÐAR - Á FERÐALAGINU JAFNT SEM HEIMA
MEÐAL EFNIS:
Skop 2 • Karlar í kvennastörfum 3 • Saga víkinganna lesin úr sorpi 7 • Við kennum börnunum okkar
að nota fíkniefni 11 • Lífsins tré 18 • Maggie Thatcher: kona með bein í nefinu 23 • Úti að aka 31 •
•Aktu meðvitað og lifðu lengur 34 • John Huston: risinn í Hollywood 40 • Björgun í lausu lofti 47 •
Skoðanakannanir eru ekki vísindi 55 • Hugsun í orðum 60 • Pilla handa karlmönnum 62 • Þegar
Heydrich var myrtur 70 • Sagan af Finna Karlssyni og meykónginum 88 • Völundarhús 96 •