Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Síða 14
14
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988.
Frjálst, óháö dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjórj: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr.
Verð i lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr.
Ríkisútvarpið
Við meðferð alþingis á frumvarpi til lánsflárlaga, sem
endanlega var samþykkt í gær, komu fjármál Ríkisút-
varpsins nokkuð við sögu. Stjómarandstæðingar gerðu
tilraun til að rétta nokkuð hlut Ríkisútvarpsins með því
að fá samþykkt að RÚV héldi að öllu eða einhverju leyti
tekjum af aðflutningsgjöldum af hljóðvarps- og sjón-
varpstækjum. Stjórnarliðið lagðist gegn þeim tillögu-
flutningi og benti á að RÚV hefði fengið hækkun á
afnotagjaldi langt umfram almennar verðlagsbreyting-
ar.
Þessar umræður um RÚV stafa meðal annars af því
að fjárhagsstaða Ríkisútvarpins hefur stórlega versnað
og fyrirsjáanlegur mikill halh á rekstri þess. Þar ræður
auðvitað mestu samkeppnin um auglýsingarnar við
aðrar stöðvar, bæði Stöð tvö og hljóðvarpsstöðvarnar,
en í ofanálag hefur ríkissjóður tekið í sína hít þær tekj-
ur sem RÚV hafði af aðflutningsgjöldunum. Minna má
á að þegar einkaréttur RÚV var afnuminn var gert ráð
fyrir því að RÚV héldi þessum tekjum, þannig að með
réttu má halda því fram að hér sé verið að koma aftan
að Ríkisútvarpinu.
Hitt er annað mál að forráðamenn RÚV vissu að
hveiju stefndi, enda hafa aðflutningsgjöldin áður verið
skorin niður og vitað var um fyrirætlan ríkisstjórnar-
innar um þá skerðingu sem nú er orðin að lögmn.
Ekki fer á milli mála að slæm fjárhagsstaða Ríkisút-
varpsins mun hafa þær afleiðingar að stofnunin verður
að draga saman seglin. Kannske er réttara að orða það
svo að RÚV þurfi nú loks að horfast í augu við breytta
tíma og laga sig að þeirri nýju samkeppnisstöðu sem
ekki verður umflúin. Dagskrárgerð og efnisval verður
að draga dám af þvi. Fram að þessu hefur stefna RÚV
verið sú að teygja út anga sína, lengja dagskrártíma og
taka magn fram yfir gæði. Þessi stefna gengur ekki leng-
ur og hennar er ekki þörf. Til hvers þarf opinber stofnun,
sem skattborgaramir standa undir, að senda út allan
sólarhringinn? Hvers vegna þarf RÚV að senda út á
tveim rásum? Hér er hvort sem er um afþreyingarefni
að ræða, sem aðrar stöðvar sinna með ágætum. Einnig
má spyija hvemig standi á því að Stöð tvö geti á einu
ári tútnað út og blómgast á sama tíma og ríkissjón-
varpið virðist vera að sligast undan rekstri sínum. Er
yfirbygging sjónvarpsins of mikil? Er hagræðingin ekki
til staðar? Hafa kannske of miklir peningar farið í stór-
hýsi og flottheit á kostnað dagskrárgerðarinnar sjálfrar?
Er ríkisreksturinn sjónvarpinu íjötur um fót?
Enda þótt aðflutningsgjaldatekjurnar hafi verið tekn-
ar af RÚV og auglýsingatekjur dregist saman nýtur
stofnunin enn þeirra forréttinda að innheimta nefskatt
af öllum heimdlum landsins í formi afnotagjaldanna.
Ríkisútvarpið býr og að áralangri reynslu og velvilja
alls þorra þjóðarinnar. Það stendur á traustum gmnni
og engin ástæða til barlóms eða uppgjafar. Það eina sem
hefur gerst er að RÚV er nú ekki lengur eitt um hituna
dg ríkið hefur ekki framar einkarétt á þessari fíölmiðl-
un. Ríkisútvarpið er ekki guðsútvalin stofnun sem
þjóðin stendur og fellur með.
Eiður Guðnason alþingismaður, sem hefur verið einn
af eindregnustu stuðningsmönnum Ríkisútvarpsins,
hefur áttað sig á þessum breytingum. Hann hefur varp-
að fram þeirri hugmynd hvort ekki væri rétt að breyta
Ríkisútvarpinu í sjálfseignarstofnun með aukna flár-
hagslega ábyrgð. Þessa hugmynd Eiðs á að taka til
alvarlegrar athugunar. Efiert B. Schram
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, og Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráöherra. Að mati
greinarhöfundar hafast þau ólikt aö.
Helmilis-
skattar
Nú þegar jólaönnum Alþingis er
aö ljúka eftir næturvökur og þras
um hátíðamar spyr margur maö-
urinn: Af hverju vinna alþingis-
mennimir svona? Er þingtíminn
ekld nógu langur eða hvað?
Ég hef aðeins setið þetta eina þing
og get ekki dæmt um önnur. Þingið
kom saman í október og fór mjög
hægt af stað. Stjómarandstaðan
lagði fram mörg mál en stjómar-
sinnar fóm sér hægt, mjög hægt.
Ósamkomulag var og er áberandi
í þeirra röðum á milli flokka og
innbyrðis, einkum í Sjálfstæðis-
flokknum. Við vissum að vísu að
stjómarflokkamir voru að vinna í
stórum málum en það var allt
breytingum undirorpið. Fjárlög
breyttust. Þegar Þjóðhagsstofnun
reiknaði út reiknuðu sérfræðingar
Jóns Baldvins suður. Útkoman
varð fellibylur. Þar í leyndist sá ill-
ræmdi matarskattur, versta heim-
ilisböl sem íslensk stjómvöld hafa
dregiö yfir heimilin í landinu.
Pólitiskur banabiti?
Það sem jámfrúin enska hefur
aldrei leyft sér að leggja á þegna
sína lætur foringi íslenskra jafnað-
armanna hafa sig út í að berja í
gegn á Alþingi. Vel gæti það orðið
hans pólitíski banabití. Þetta stóra
mál var, ásamt öllum hinum stór-
málunum, fyrst lagt fram þegar
líða tók á desember og var meining-
in að knýja þau í gegn fyrir jól.
Auðvitað brást stjómarandstaðan
harkalega við. ÖU sem eitt börð-
umst viö gegn matarskattinum og
gegn kvótafrumvarpinu og það er
sannfæring mín að við eigum ekki
eftir að iðrast eftir það. AUt tal um
málþóf frá okkar hendi er tflbún-
ingur fréttamanna sem em
kannski meiri flokksmenn en
fréttamenn.
Hitt er svo annað mál að ríkis-
stjómin lagði málin þannig fram í
þingdeUdum að það oUi miklum
töfum. Fyrst vom öll þessi viða-
miklu mál lögð fyrir efri deild á
meðan sú neðri hafði Utið að gera.
Þeim var svo að lokinni afgreiðslu
í efri deild, eftir stanslausa fimdi,
fleygt inn í neðri defld þar sem áttí
að knýja þau fram fyrir jól. Á
Kjallarinn
Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir
alþingismaður fyrir
Borgaraflokkinn
meðan var sú efri verklaus að
mestu.
Vænlegttil árangurs?
Ekki tókst að ljúka máium fyrir
jól og aftur var þingað miUi jóla og
nýárs með sama vinnulagi. Þaö
getur svo hver spurt sjálfan sig
hvort svona vinnulag sé vsenlegt
til árangurs. Þótt deflt hafi verið
um öU stjómarfrumvörpin vom
deUumar um matarskattinn og
kvótaframvarpið harðastar. Ég
hygg þó að engum sé þaö alveg ljóst
hverjar afleiðingar þess fyrrnefnda
veröa.
Það Ufa ekki aUir í aUsnægtum í
veUerðarþjóðfélaginu. Á þeim
bitna þessir neysluskattar verst.
Bamabætumar hverfa í hækkuð-
um dagvistargjöldum og hærra
fæði á stofnunum og hvað um ör-
yrkja og aldraða? -Það hefur verið
sagt af talsmönnum ríkisstjómar-
innar aö bætur tU þeirra hafi
hækkaö. Ég spyr: Geta þeir sjálfir
lifað á um 30 þús. kr. á mánuði?
Ég get svaraö mér sjáif. Þeir hafa
aldrei reynt það og kemur það ekki
við.
Ráðist að lífsafkomu
í fmmvarpinu um kvótann var
ráðist að byggðasjónarmiðum og
Ufsafkomu fjölda fólks. Því vUdum
viö ekki una, auk þess sem einum
ráðherra er veitt allt of mikið vald.
Það er sennUega vandfundinn sá
maður sem treystir sér tíl að full-
yrða að þessi stjóm sitji í þijú ár
þó kannski hangi hún saman af
hræðslu. Það getur verið að næsti
sjávarútvegsmálaráðherra heiti
ekki Halldór Ásgrímsson ef það er
sáluhjálparatriði.
Og kannski endum við svo þessa
grein með fáum orðum um Leifs-
stöð. Fyrst stækkaði hún um 1000
fermetra án þess að nokkur vissi.
Svo kostaði hún yfir einn - senni-
lega einn og hálfan mUljarð meira
en ætlað var. Það er bara taUð eðU-
legt. Svo fór hún að leka. Enginn
ber ábyrgð á því. Svo féUu blöðin
af fíkjutrénu græna og síðasta frétt
er að starfsfólkið var aö krókna í
fyrsta kulda vetrarins. Útihurðim-
ar vom nefnUega rokprófaðar í
Ameríku en ekki Vestmannaeyj-
um. Það ber enginn ábyrgð á neinu
- ekki fyrri ríkisstjórnir, ekki
hönnuðir eða verktakar. Hvað um
það? Núverandi stjóm erfir synd-
imar og við borgum í einhvers
konar sköttum.
Gleðilegt ár.
AðaUieiður Bjarnfreðsdóttir
„Þótt deilt hafi verið um öll stjórnar-
frumvörpin voru deilurnar um matar-
skattinn og kvótafrumvarpið
harðastar.“