Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988. Spumingin Vilt þú að Áburðarverk- smiðjan verði flutt frá höfuðborgarsvæðinu? Guðný Einarsdóttir: Mér finnst bara aö þaö ætti að fara með svona starf- semi langt út fyrir borgina. Ágúst Júlíusson: Já, ég myndi telja æskilegt að svo yrði gert þar sem mikil hætta er fyrir hendi. Hörður Sigurjónsson: Endilega Tel of mikla hættu af þessari starfsemi þarna. Það hefur stundum hvarflað að mér hvort gufustrókur, sem sést oft yfir Hvassaleiti, geti hugsanlega verið tengdur þessari starfsemi. Lárus M. Björnsson: Nei, ég sé nú ekki ástæðu til þess. Það hljóta allir að sjá aö áhætta er alltaf samfara slíkum rekstri, ekki síst iðnaði og framleiðslu. Helga Guðmundsdóttir: Það finnst mér sjálfsagt. Þetta getur verjö stór- hættulegt, eftir því sem fréttir segja. Baldvin Alfreðsson: Já, ég get alveg verið fylgjandi því. Lesendur Mengun í vatnsbólum Suðumesja: Nú er lag! Sigurjón Kr. hringdi: Eins og komið hefur fram í frétt- um hefur meint olíumengun frá vamarliðinu á KeflavíkurflugveUi valdið sumum miklum áhyggjum. AUt hefur þetta mál þó verið huUð nokkurri þoku frá byijun. Finnst mér sem áhorfanda og lesanda máhð hafa haft einhvem þann blæ yfir sér sem gæti bent til þess, að meira en lítið gmggugt væri þama á ferðinni. - Og á ég þá ekki viö gniggugt neysluvatn. í fyrstu tók það óratíma að finna meintan oUuleka og fannst hann raunar ekki fyrr en grafinn hafði verið skurður á skurð ofan. Raunar var lekinn aUs ekki þar sem helst hafði verið búist viö honum heldur á leiðslu sem var horfin mönnum úr minni, ef svo má segja. Ein- hverjir höfðu á orði að „lekinn“ hefði jafnvel verið „búinn tfi“ svo að hægt væri aö krefja varnarliðið, með aðstoð ríkisins, um skaðabæt- ur eða helst af öUu að það hreinlega léti sjá um gerð nýrra vatnsbóla. Og hvað er komið á daginn? „Suð- umesjamenn leita stuðnings hjá utanríkisráðherra" sagði í frétt einni í dagblaði nýlega. Og enn fremur: „VamarUðið sjái um gerð nýrra vatnsbóla“! - Datt mér ekki í hug! „Þetta var góður fundur með ráðherra," sögðu tveir bæjarstjór- ar af Suðumesjum er þeir komu út frá utanríkisráðherra og þing- manni þeirra Suðumesjamanna. „Við foram fram á að ný vatnsból verði gerð og við gemm kröfu tU þess, að varnarUðið sjái um það,“ var haft eftir bæjarstjórunum. Og nú er þegar búið að senda kröfugerðina til Washington og er búist við svörum fljótlega eins og ávaUt þegar íslendingar eiga í hlut. Þeir viUa fá skjót svör þegar pen- ingar em annars vegar. En þeir bæjarstjórar vUja fá meira. Þeir vilja einnig skaðabætur og áskilja Erfitt reyndist að tinna olíulekann. Unnið að uppgreftri í nóv. sl. sér aUan rétt í málinu, eins og það er orðað. Er það ekki með ólíkindum hvað við íslendingar ætlum að endast til að gera kröfur til þessa blessaða vamarUðs á KeflavíkurflugvelU. Okkur er ekki nóg að það haldi uppi, okkur að kostnaöarlausu, heUum milUlandaflugvelU og sjái um aUan daglegan rekstur og við- hald sem nemur miUjónum króna hvem dag ársins, heldur vUjum viö Uka og reynum eftir megni að koma hverri fjárkröfunni á fætur annarri á framfæri við þessa gistivini okkar á Miðnesheiði til innheimtu í Washington. Og þegar á aUt er Utið: góða að- stöðu þeirra Suðumesjamanna vegna nálægðar við vamarUðið, þingmann í stöðu flokksformanns og utanríkisráðherra, þá er ekki nema von að forsvarsmenn bæjar- félaga á Suðumesjum hugsi: Nú er lag! Erlendir sjómenn á kaupskipum Stefán Gíslason skrifar: Fyrir u.þ.b. tveimur árum hóf er- lent skipafélag flutninga fyrir VamarUðið á Miðnesheiði. Þá stukku forstjórar íslensku skipafé-. laganna upp tU handa og fóta og fengu ríkisstjómina í Uð með sér og sögðu að íslendingar ættu að hafa forgang um þessa flutninga. Það hafðist í gegn og íslensku skipafélögin fengu ákveðið hlutfaU í þessum flutningum. En hvaö skeður svo? Þá eru fengin leiguskip, að mestu leyti með erlendum áhöfnum, tíl þessara verkefna. - Það nýjasta er svo það að skipafélag eitt, sem er talsvert í saltfiskflutningum ásamt öðmm verkefnum, fékk leyfi til að ráða tvo erlenda vélstjóra á eitt skipa sinna sem sigUr undir íslenskum fána. Síðan réð það erlendan dag- mann í vél án þess að fá leyfi. Sjómannafélagið gerði ekkert í mál- inu. TU hvers greiðum við í Sjó- mannafélagið? Annað skip, skráð í Panama en í eigu sömu útgerðar, ræður svo pólska vélstjóra og síðar dagmann í vél. Það skal tekið fram aö við höfum ekkert út á þessa menn að setja. Nú er verið að segja upp íslenskum há- setum og ráða pólska í þeirra stað. Að vísu er boðið upp á skiprúm á öðrum skipum félagsins en þau skip sigla meira í beinum siglingum, svo- kölluöum, sem þýðir minni yfirferð (lægri laun). Forstjóri þessa skipafé- lags nefur margoft lýst því yfir í fjölmiðlum að hann væri mótfaUinn þess háttar aðgerðum. - Og skipafé- lögin halda flutningunum en íslensk- ur mannskapur má taka pokann sinn. Hugkvæmist einhveijum að minnast á stéttarfélag, aö ekki sé nú minnst á kjarasamninga, er sagt aö hann sé nöldrari og bolað burt. Hann hefur engan rétt. Þetta hafa skipafé- lögin komist upp með gegnum tíðina. Verði ekki gerðar róttækar ráðstaf- anir bráðlega, heyra íslenskir farmenn sögunni til og í þeirra stað kemur erlent vinnuafl, sem er ekkert annað en nútímaþrælahald, að því er varðar kaup og kjör. Þá leyfir rekstrarsjóri Nesskips hf. sér að niðurlægja þá íslensku sjó- menn sem em í störfum hjá félaginu (sjá grein í Þjóðviljanum þann 17. des. sl.). Mér finnst að hann ætti sem minnst að ræða slæleg störf annarra fyrr en hann hefur kynnt sér málin. Eða að halda því fram að hann hafi aldrei rætt þau og segir að greinin verði leiðrétt. Á meöan svo er ekki gert hefur maður þá trú að hann sé aö vonast eftir aö við segjum upp sjálfir til þess aö hægt sé að ráða eingöngu erlenda starfskrafta og bera því svo við að ekki fáist íslendingar í þessi störf. Melónur og vinber fín!“ - Ivar er furðu lostinn yfir verði ávaxta hér á landi. Það eru fleiri. Stigataflan frá sfðustu „Eurovisi- on“-keppni. Songlagakeppni Evropustoova: n n •• dÞ ■ Hófundar undir dulnefhi Dreifbýlisbúi skrifar: Ekki er mikil umfiöllun um „Eurovision“-keppnina að þessu sinni og erum við íslendingar kannski farnir að læra eitthvaö af þátttöku okkar þessi tvö und- anfarin ár. Við fóram geyst af stað og ætluðum okkur að vinna með glæsibrag. En falliö varð hátt eins og allir vita. I fyrra vorum við feimin og fór- um okkur „hægt og hljótt" og kunni ég vel við það. Styðjum lagahöfunda okkar á heiðarlegan hátt. Ekki þannig að maður þurfi að þekkja mann og annan tíl að komast áfram, eins og fai'ið er að kvisast út nú. Mig langar til að koma með uppástungu um hvort ekki sé ráðlegt að höfundar komi fram undir dulnefni. Þannig mættí koma í veg fyrir aö lög séu valin eflir nafni höfunda því að þar á klíkuskapuiinn greiðan aðgang. Gefum nýjum óþekktum höf- tmdum líka tækifæri. - Sem sé: ný og þekkt andlit í bland. Hátt verð á ávöxtum ívar Jónsson hringdi: Ég hef búiö hér á landi um nokk- urra ára skeið og kaupi ávallt mikið af ávöxtum. Ég skil mætavel að ávextir séu dýrari hér en t.d. þar sem þeir era ræktaöir en hins vegar skil ég með engu móti hvers vegna þeir þurfa að vera svo feiknalega dýrir sem raun ber vitni. Hinn 5. janúar sl. keypti ég gular melónur. Þá kostuðu þær 115 kr. kg. - En sama dag eða rétt fyrir kl. 18.30 voru þær komnar upp í 386 kr. kg! Og sagan er ekki enn búin. Næsta dag þar á eftír hækkuðu þær upp í 461 kr. kg!! - Og daginn eftír, er ég spurði um verðið, var það aftur breytt og var nú 361 kr. kg! - Þetta var alltaf í sömu versluninni. Samkvæmt fréttatilkynningum átti verðið að hækka um 16-18% en hækkaði um 300%! Þetta er mér al- veg óskiljanlegt og ég spyr sjálfan mig hvar öll þessi prósentuhækkun skih sér. - Þar sem ég þekki til er- lendis kostar kílóið af melónum svona um 12 krónur kg. - Ávaxtaverð hér á landi hlýtur að vera það hæsta sem gerist í heiminum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.