Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988.
41
Fólk í fréttum
Jón Þorgilsson
Jón Þorgilsson, sveitarstjóri á
Hellu, var nýlega skipaöur fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í bankaráð
Landsbankans. Jón er fæddur 31.
mars 1931 á Ægissíðu í Djúpár-
hreppi og lauk landsprófi frá
Héraðsskólanum á Laugarvatni
1949. Hann var verslunar- og skrif-
stofumaður hjá Kaupfélaginu Þór
á Hellu 1949-1963 og framkvæmda-
stjóri trésmiðjunnar Rangár hf.
1963-1970. Jón var fulltrúi skatt-
stjóra Suðurlandsumdæmis
1963-1978 og hefur verið sveitar-
stjóri Rangárvallahrepps frá 1978.
Hdnn sat í hreppsnefnd Rangár-
vallahrepps 1961-1974 og var
oddviti 1966-1974. Jón var formað-
ur Samtaka sveitarfélaga í Suður-
landskjördæmi 1980-1984 og hefur
setiö í stjórn Jarðefnaiðnaðar hf.
frá 1980. Hann var formaður kjör-
dæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi 1966-1968 og
1977-1978. Jón sat í miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins 1977-1978 og er nú
formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
flokksins í Rangárvallasýslu. Kona
Jóns er Gerður Þorkatla Jónas-
dóttir, f. 2. apríl 1929. Foreldrar
hennar eru Jónas Kristjánsson, b.
í Vetleifsholti í Holtum, og kona
hans, Ágústa Þorkelsdóttir. Börn
Jóns og Gerðar eru Sævar, f. 22.
apríl 1952, byggingameistari í Rvík,
sambýliskona hans er Friðjóna
Hilmarsdóttir, Þorgils Torfi, f. 10.
júh 1956, sláturhússtjóri á Hellu,
kvæntur Soffiu Pálsdóttur. Systk-
ini Jóns eru Gunnar, f. 19. apríl
1932, b. á Ægissíðu, kvæntur Guð-
rúnu Halldórsdóttur, Ásdís, f. 28.
janúar 1934, bankastarfsmaður í
Rvík, gift Steini Val Magnússyni,
aðstoðarbankastjóra Verslunar-
bankans, Sigurður, f. 19. febrúar
1936, d. 29. apríl 1982, verkamaður
á Hellu, kvæntur íshildi Einars-
dóttur, Ingibjörg, f. 28. apríl 1937,
gift Jóhanni Kjartanssyni, raf-
virkjameistara á Hvolsvelli, og
Þórhallur Ægir, f. 13. september
1939, rafvirkjameistari og kaup-
maður á Ægissíðu, kvæntur
Þorbjörgu Hansdóttur.
Foreldrar Jóns voru Þorgils
Jónsson, b. á Ægissíðu, og kona
hans, Kristín Filippusdóttir. Faöir
Þorgils var Jón, b. og fræöimaður
á Ægissíðu, bróðir Jóns í Hhð, afa
Jóns Helgasonar, prófessors og
skálds. Jón var einnig bróðir Skúla,
afa Jóns Skúla Sigurðssonar, for-
stöðumanns Loftferðaeftirhtsins.
Jón var bróðir Júlíu, ömmu Guð-
rúnar Helgadóttur, fyrrv. skóla-
stjóra Kvennaskólans. Önnur
systir Jóns var Ingiríður, lang-
amma Sigurðar, afa Þórðar Frið-
jónssonar, forstjóra Þjóðhagsstofn-
unar. Jón var sonur Guðmundar,
b. á Keldum, bróður Stefáns, lang-
afa Magneu, langömmu Qlafs
ísleifssonar, efnahagsráðgjafa rík-
isstjómarinnar. Guðmundur var
sonur Brynjólfs, b. í Vestri-
Kirkjubæ á Rangárvöllum, Stef-
ánssonar, b. í Árbæ á Rangárvöll-
um, Bjamasonar, b. og hreppstjóra
á Víkingslæk, HaUdórssonar, for-
föður Víkingslækjarættarinnar.
Móðir Þorgils var Guðrún, systir
Sigríðar, langömmu Jóhanns Sig-
urjónssonar sjávarhífræðings.
Guðrún var dóttir Páls, b. á Þing-
skálum á Rangárvöllum, Guð-
mundssonar, hálfbróður,
samfeðra, Jóns á Ægissíðu.
Móðursystir Jóns var Jónína,
móðir Páls G. Jónssonar, forstjóra
Pólaris. Kristín var dóttir Filippus-
ar, verkamanns á Blönduósi,
Vigfússonar, b. og járnsmiðs í
Vatnsdalshólum, bróður Þorbjarg-
ar, móður Jóns prentara og Krist-
ínar Ámadóttur, ömmu Júlíusar
Sólness alþingismanns. Vigfús var
sonur Filippusar, b. á Þómnúpi í
Hvolhreppi, Jónssonar og konu
hans, Kristínar Vigfúsdóttur, b. á
Jón Þorgilsson.
Miðfelli í Hrunamannahreppi,
Þórðarsonar. Móðir Kristínar var
Þuríður Ámundadóttir, b. og smiðs
í Syðra-Langholti, Jónssonar, lang-
afa Margrétar, langömmu Björg-
vins, fóður Ellerts * Schram rit-
stjóra. Móðir Kristínar var
Sveinsína Sveinsdóttir, b. á Syðri-
Ey á Skagaströnd, Pálssonar og
konu hans, Elínar Jónsdóttur.
Afmæli
Eðvald Halldórsson
Eðvald Halldórsson smiður,
Framnesi, Hvammstanga, er átta-
tíu og fimm ára í dag. Eðvald
fæddist á Hrísum í Víðidal í Vest-
ur-Húnavatnssýslu og ólst þar upp
hjá móður sinni til tíu ára aldurs
en flutti þá til Hvammstanga þar
sem hann ólst upp hjá fóður sínum.
Eðvald var í sveit á sumrin en á
unglingsárunum fór hann í vinnu-
mennsku til Páls Leví, söðlasmiðs
að Heggsstaðanesi, þar sem Eðvald
lærði söðlasmíði, en að Heggs-
staöanesi var hann í þrjú ár.
Eðvald fór síðan á sjóinn, en hann
hefur löngum stundað sjó-
mennsku. Eðvald varð ungur
formaður á bátum sém reru frá
Hvammstanga og hann hefur lengi
stundað trilluútgerð og útgerð á
dekkbátum. Eðvald var útvegs-
bóndi að Stöpum í Vatnsnesi í
tuttugu og sjö ár en eftir að þau
hjónin brugðu búi fluttu þau á
Hvammstanga.
Kona Eðvalds er Sesseha, f. 1905,
dóttir Guðmundar b. á Gnýsstöö-
um á Vatnsnesi, Jónssonar, og
konu hans, Marsibilar Árnadóttur.
Eðvald og Sesselía eignuðust sex
börn, en tvö þeirra dóu í barnæsku.
Börn þeirra sem upp komust eru:
Guðmundur, f. 1927, b. að Stöpum
á Vatnsnesi; María Erla, f. 1928,
húsmóðir, gift Ólafi Guðmundssyni
smið og eiga þau tvær dætur en
hún átti fjögur böm í fyrra hjóna-
bandi; Marsibil Sigríður, f. 1930,
gift Daníel Péturssyni sjómanni, en
þau eiga fjóra syni; og Sólborg
Dóra, f. 1939, gift Helga Ólafssyni
rafvirkjameistara en þau eiga fjög-
ur börn.
Eðvald átti fjögur hálfsystkini
sammæðra, sem fóru með móður
hans vestur um haf til Ameríku,
en tveir hálfhræður hans á lífl,
samfeðra, eru: Gústaf Adolf bóndi
og síðar verslunarmaöur á
Hvammstanga; og Guðmar, verka-
maður á Hvammstanga.
Foreldrar Eðvalds voru Halldór
Ólafsson, verkamaður frá Akra-
nesi, og Sigríður Jóhannsdóttir úr
Víðidal.
Kristinn Siguwinsson
Kristinn Sigurvinsson verka-
maður, Silfurgötu 9B, Stykkis-
hólmi, er áttræður í dag. Kristinn
fæddist í Ólafsdal í Dölum og ólst
upp í Innri-Fagradal th átján ára
aldurs en þá flutti hann með fóstur-
bróður sínum að Hríshóh í eitt ár
og síðan til Hólmavíkur þar sem
Kristinn stundaði öh almenn
sveitastörf. Kristinn og kona hans
fluttu svo til Reykjavíkur 1942 en
stunduðu búskap í Ólafsdal frá
1944-53. Þá fluttu þau að Svarfhóli
í Miklaholtshreppi og stunduðu þar
búskap til 1972 er þau brugðu búi
og fluttu í Stykkishólm. Kristinn
starfaði í frystihúsinu eftir að
þangað var komið.
Kona Kristins er Guðbjörg, f.
11.12.1909, dóttir Magnúsar smiðs
Magnússsonar og Önnu Eymunds-
dóttur.
Kristinn og Guðbjörg eignuöust
þrjú börn og eru tvö þeirra á lífi:
Magnús, mjólkurbílstjóri og b. að
Bjarmalandi í Höröudal, giftur
Hólmfríði Einarsdóttur, og Elín-
borg húsmóðir, gift Guðna Sigur-
jónssyni.
Systkini Kristins: Sigurbjörg,
sem átti Salómon Hafliðason á
ísafirði og í Reykjavík; Baldvin, b.
í Belgsdal í Saurbæ, sem átti Ólaflu
Páhnu Magnúsdóttur í Belgsdal;
Olgeir, b. á Melum á Skarðsströnd,
átti Jóhönnu Árnadóttur úr
Grindavík; Stefanía sem lést um
tvítugt; Anna María sem átti Björn
Benediktsson b. á Neðri-Torfustöð-
um í Miðfirði; Pétur á Saurhóh;
Guðný sem lést um tvítugt; og
Evert Jón í Fagradalstungu. Hálf-
systkini Kristins, samfeðra: Líndal
Albert í Hjarðarholti í Stafholtst-
ungum og Laufey, húsfreyja á
Bjargi á Skarðsströnd. Foreldrar
Kristins voru Sigurvin Baldursson,
vinnumaður í Ólafsdal, f. 5.9.1867,
d. 26.6. 1939, og kona hans Katrín
Böðvarsdóttir, f. 1879, d. 20.2. 1959.
Föðurforeldrar Kristins voru Bald-
vin Guðmundsson á Stóra-Múla í
Saurbæ og kona hans, Sigurbjörg
Guðmundsdóttir. Móðurforeldrar
Kristins voru Böövar, b. á Skarði í
Haukadal, og kona hans, Ehnborg
Tómasdóttir frá Litlu-Þverá í Mið-
firöi, Guðmundssonar. Foreldrar
Böðvars voru Guðmundur Hálf-
dánarson, síöar í Sælingsdalst-
ungu, og Kristín Jónsdóttir á
Bálkastöðum í Hrútafiröi.
_________________________Tugafmæli
Til hamingju með daginn!
85 ára______________________^
Bergþóra Hafliðadóttir, Sæunnar-
götu 6, Borgamesi, er áttatíu og
fimm ára í dag.______________
80 ára_______________________
Margrét Árnadóttir, Háaleitisbraut
35, Reykjavík, er áttræð í dag.
Sigurður Guðmundsson, Arnar-
stapa, Álftaneshreppi, er áttræður
í dag.
75 ára_______________________
Guðfinna B. ólafs, Látraströnd 19,
Seltjamarnesi, er sjötíu og fimm
ára í dag.
70 ára_________________________
Gísli Sch. Kristmundsson, Efri-
Brunnastöðum, Vatnsleysustrand-
arhreppi, er sjötugur í dag.
Dalrós Sigurgeirsdóttir, starfs-
mannahúsi, Skjaldarvík, Glæsi-
bæjarhreppi, er sjötug í dag.
Sveinn Þórðarson, Kvíabólsstíg 1,
Neskaupstað, er sjötugur í dag.
60 ára
Helga Jónsdóttir, Unufelh 30,
Reykjavík, er sextug í dag.
Sólveig I. Kristjánsdóttir, Hraun-
bæ 102A, Reykjavík, er sextug í dag.
Svanlaug Jónsdóttir, Langholts-
vegi 61, Reykjavík, er sextug í dag.
50 ára
Guðjón Guðlaugsson, Vesturbergi
34, Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Gunnar Sigurðsson, Núpabakka 17,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Gígja Árnadóttir, Langholtsvegi
118, Reykjavík, er fimmtug í dag.
Hildimundur Björnsson, Tanga-
götu 9, Stykkishólmi, er fimmtugur
i dag.
Svavar Níelsson, Skólavegi 25,
Búðahreppi, er fimmtugur í dag.
Gísli Guðbrandsson
Gísh Guðbrandsson lögregluþjónn,
Laugarnesvegi 102, Reykjavík, er
sextugur í dag. Gísh fæddist í Áh-
gerðarholti í Borgarhreppi í
Mýrasýslu en ólst upp hjá fóstur-
foreldrum í Borgarnesi, þeim
Stefáni Ingimundarsyni, sem er
látinn, og Maríu Tómasdóttur, sem
einnig er látin, en hún var fóður-
systir Gísla. Hann fór ijórtán ára
aö vinna fyrir sér sem vinnumaður
að Kletti í Reykholtsdal og síðan
að Nesi í sömu sveit þar sem hann
var til heimilis í tólf ár. Gísh flutt-
ist svo vestur til ísafjarðar 1959 og
var lögregluþjónn þar hjá Halldóri
Jónmundssyni til 1963 en þá flutti
hann til Reykjavíkur og hefur
starfað þar sem lögregluþjónn síð-
an.
Kona Gísla er Guöbjörg, f. 1927,
dóttir Ólafs skósmiðs á ísafirði,
Jakobssonar, en hann er látinn, og
Önnu' Bjarnadóttur sem býr í Hhð
á ísafirði.
Guðbjörg á þrjú börn frá fyrra
hjónabandi sem eru stjúpböm
Gísla: Stefán Bjami, f. 1959, versl-
unarmaður hjá Kornmarkaðnum,
er kvæntur My Österman og eiga
þau tvö börn; María Sigríður, f.
1960, húsmóðir í Neskaupstað, gift
Erni Sæmundssyni, loftskeyta-
manni og starfsmanni loftskeyta-
stöðvarinnar í Neskaupstað, en
þau eiga tvö börn; Guðbjörg Ólafia,
húsmóðir í Kópavogi, f. 1963, er gift
Gylfa Skarphéðinssyni, tölvu-
tæknifræðingi og starfsmanni hjá
Verslunarbanka íslands, en þau
eiga tvö börn.
Gisli Guðbrandsson.
Gísh átti fimm systkini, en elsti
bróðir hans er látinn, Ragnar
Hjörtur, bílstjóri í Borgarnesi. Hin
eru: Sigurður, deildarstjóri Kaup-
félagsins í Borgarnesi; Sigríður,
húsmóðir í Reykjavík; Sigursteinn,
strætisvagnabílstjóri í Reykjavík;
Birgir, kaupmaður í Reykjavík,
sem lengi rak verslunina Birgisbúð
á homi Ránargötu og Ægisgötu.
Foreldrar Gísla voru Guðbrand-
ur Tómasson, verkamaöur í
Borgarnesi, f. 1882, og kona hans,
Sigþrúður Siguröardóttir, f. 1885.
Föðurforeldrar Gísla voru Tómas
Jónsson, b. á Hóh við Hvanneyri,
og kona hans, Sigríður Guðbrands-
dóttir. Móðurforeldrar Gísla voru
Siguröur Eiríksson, b. á Álftá á
Mýrum, og kona hans, Sigríður
Gísladóttir. Tómas var sonur Jóns
Jónssonar og Birgittu, dóttur Jóns,
b. í Múlakoti, Sigurðssonar, og
Guðríðar Jónsdóttur, en Jón Jóns-
son var hálfbróðir Jóns Borgfirö-
ings.
Leiðréttingar
Móðir Óskars Vigfússonar, for-
manns Sjómannasambands ís-
lands, heitir Ephemía.
Systir Guðmundar í Helhsholti
var Margrét, móðir Magnúsar
Andréssonar alþingismanns.
Anna Ragnheiður Fritzdóttir,
móðir hennar heitir Regína Hans-
en.
Sigríður Svavarsdóttir, móðir
hennar heitir Sigurbjörg, Sverrir
Sigurðsson er kvæntur Sigrúnu
Halldórsdóttur, Svavar Guð-
mundsson, lést 6. júní 1980.
Guðmunda M. Gunnarsdóttir,
Fannarfehi 12, Reykjavík, varð fer-
tug 12. desember.
Höskuldur Eyjólfsson, Hofstöð-
um, Hálsasveit, varð níutíu og
fimm ára 3. janúar.
Hafdís Sigurmannsdóttir Williams
lést 11. janúar í Bandaríkjunum.
Helgi Finnlaugsson, Lambhaga 10,
Selfossi, andaðist á Landspítalan-
um 12. janúar.
Elís Hannesson, bóndi, Hhðarási,
Kjós, lést á gjörgæsludeild Borg-
arspítalans 11. janúar.
Ólavia H. Sigurþórsdóttir frá Efri
Rauðalæk lést á sjúkrahúsi Suður-
lands þriðjudaginn 12. janúar.
Andlát
Sigríður Stefánsdóttir, ÁsvaUagötu
31, Reykjavik, lést í Borgarspítal-
anum 13. janúar.
Hrafn Jónsson forstjóri, Vaðlaseli
2, Reykjavík, lést í Borgarspítalan-
um 14. janúar.
Jenný Sigurðardóttir, Grundar-
götu 8, Siglufirði, lést í Sjúkrahúsi
Siglufjarðar þriðjudaginn 12. jan-
úar.