Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Side 32
44
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Ava Gardner
- sem nú er 65 ára gömul -
liggur nú á spítala í Los
Angeles vegna öndunarerfið-
leika. [ nóvember árið 1986
fékk leikkonan lungnabólgu
og hefur síðan átt við öndun-
arerfiðleika að stríða. Þeir
hafa ágerst svo að nauðsyn-
legt þótti að leggja hana inn
á spítala til öryggis. Ava
Gardner er þrígift. Fyrsti eig-
inmaðurinn var - Mickey
Rooney, næstur í röðinni var
hljómsveitarstjórinn Artie
Shaw og sá þriðji Frank Sin-
atra. Öll hjónaböndin enduðu
með skilnaði.
Don Johnson
er ákaflega tekjuhár leikari.
Þeir sem hafa gaman af því
að leika sér með tölur hafa
skemmt sér við að reikna út
kaup leikarans. Þeir hafa
komist að því að hann hefur
að jafnaði 25 þúsund krónur
í kaup á mínútuna. Til saman-
burðar má geta þess að kaup
Thatcher, forsætisráðherra
Breta, er 12 krónur á mínút-
una og er hún hæstánægð
með það.
Joan Collins
stendur þessa dagana í mála-
ferlum við nokkur ensk blöð
sem hafa lýst því yfir að hún
hafi pumpað nokkru magni
af sílikoni í brjóst sín svo að
minna beri á áhrifum frá
Dyngdarlögmálinu. Blöðin
hafa birt samanburðarmyndir
til að sanna mál sitt frá því
fyrir og eftir aðgerð. Joan
Collins er ævareið og heimtar
skaðabætur fyrir þessar
ósvífnu lygar, allssex milljón-
ir króna (þrjár fyrir hvort
stykki?).
DV
Samkeppni um hörmun úra
I :i' ■
ÍM.VNUS
Honæn sarekegpni iiffi hðriTOfl «»
Úrsmiðafélag íslands og
Iðnaðarbankinn hafa tek-
ið saman höndum sem
fulitrúar íslenskra aðila til
að sjá um norræna sam-
keppni um hönnun úra
hér á landi. Börnum á
aldrinum 6 til 16 ára er
ætlað að senda inn hug-
myndir sínar að úrsmíð
og er tilgangurinn sá að
skapa norrænt úr, eins og
börn á Norðurlöndunum
óska sér.
Samkeppnin er einnig í
gangi á hinum Norður-
löndunum og hafa úr-
smiðasambönd um
gjörvöll Norðurlöndin
tekið sig saman um fram-
kvæmd samkeppninnar.
Þátttakendum er skipt í
tvo hópa: 6 til 11 ára og 12
til 16 ára. Svissneskir úra-
framleiðendur munu
síðan velja bestu eða
frumlegustu hugmyndirn-
ar að úrum og smíða úr
eftir þeim.
Veitt verða verðlaun,
meðal annars þrjár ferðir
til Sviss. Hægt er að skila
tillögum til úrsmiða eða
Iðnaðarbankans. Hver
þátttakandi má skila einni
hugmynd. Framleiðendur
í Sviss ætla svo að gera
sitt besta til þess að úrið
verði tilbúið haustið 1988
en skilafrestur er til 6. fe-
brúar.
Aóstandendur samkeppninnar hér á landi með auglýsingabæklinginn. Fremst eru Björn Ágústsson, varaformaður Úrsmiða-
félagsins, og Axel Eiríksson, formaður Úrsmiðafélagsins. Fyrir aftan standa Viðar Hauksson gjaldkeri, Birna Einarsdóttir,
markaðsfulltrúi Iðnaðarbankans, og Frank Micheisen úrsmiður.
Glysmuiiir
á uppboði
Christie’s, uppboðsfyrirtækið
þekkta, er um það bil að hefja uppboð
á 15 þúsund munum sem voru í eigu
glyskóngsins og píanóleikarans Li-
berace.
Liberace, sem lést fyrir skömmu
67 ára gamall úr sjúkdómnum eyðni
að talið er, var tahnn samkynhneigð-
ur.
Hann hafði alveg ótrúlega söfnun-
arástríðu og þá sérstaklega á yfir-
skreyttum hlutum. Flestir minnast
hans á sviði með hringa á öllum
fingrum og í furðulegum glimmer-
fatnaði. Vegna ríkidæmis síns tókst
honum að viða að sér stóru safni alls
kyns muna. Meðal annars er þar að
flnna ein þrettán píanó, nokkurra
metra langt rúmteppi úr minka-
skinnum og stofuborð úr hreinum
kristal. Allir þessir munir og fleiri
fara á uppboðið hjá Christie’s og
búast uppboðshaldarar við að selja
hluti fyrir hundraö til hundrað og
sextíu milljónir króna. Til dæmis
búast þeir við að kristalsþorðið selj-
ist á um það bil eina og hálfa milljón
króna en það var áður í eigu ind-
versks fursta.
Að ósk listamannsins verður ágóð-
anum af sölunni varið til styrktar
ungum og efnilegum listamönnum
um gjörvöll Bandaríkin.
Glyskóngurinn sálugi, Liberace, stendur hér við skáp sem hefur að geyma
iítinn hluta af safni hans sem nú stendur til að setja á uppboö.
- '■fef ■•>
■.”. ...........1
■■••■ I. '
’í'
i-f ' ■■.
■ .■ i
...............
:■, ■■:
Það er orðið vandlifað í henni veröld núorðið. Af hverju gátu þeir ekki
bara skrifað KARLAR - KONUR eins og í gamla daga. Ég hef ekki hug-
mynd um hvorum megin ég á að fara.