Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Page 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt: Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritetjorni
FOSTUDAGUR 15. JANUAR 1988.
Gunnar Helgi Hálfdánarson:
Banda-
mönnum
f
Steingríms
líður illa
„Þaö er langt frá því að fjármagns-
markaðurinn sé ófreskja. Þetta er
hins vegar ungur markaður sem er
að þroskast. En völd stjómmála-
manna með auknu frelsi á markaðn-
um hafa minnkað og það gremst
Steingrími Hermannssyni greini-
lega. Árangurinn af auknu frelsi er
sá að sparnaöur landsmanna hefur
stóraukist en því miður hefur eftir-
spurnin í lán ekki minnkað. Það er
"^andamálið. Það er þensla í þjóð-
félaginu," segir Gunnar Helgi Hálf-
dánarson, framkvæmdastjóri
Fjárfestingarfélagsins, um orð Stein-
gríms Hermannssonar í gærkvöldi.
„Ég held að ástæða orða Steingríms
um fjármagnsmarkaðinn sé sú að
bandamönnum hans í fyrirtækja-
rekstri hlýtur að líða illa. En
almenningur á spariféð og á kröfu á.
að stjórnmálamenn gæti hagsmuna
þeirra og muni að það er almenning-
ur sem kýs þá á þing,“ segir Gunnar
4*Selgi.
-JGH
Matarskatturinn:
Kappræða í
Miklagarði?
Ólafur Ragnar Grímsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, hefur
skorað á ráðherrana Þorstein Páls-
son og Jón Baldvin Hannibalsson að
koma á fund í Miklagarði klukkan
ppJ 6 í dag til að ræða matarskattinn
og svara fyrirspurnum frá fólki.
Ekki lá fyrir í morgun hvort ráð-
herrarnir myndu mæta til fundarins.
Mikligarður greiðir fyrir fundinum
með því aö koma upp hátalarakerfi
og ræðupalli. -S.dór
LíftiTggingar
ili
LOKI
Hefur heilagur Denni lagt
til atlögu við drekann eöa
vindmyllurnar?
Bandarísk Herculesvél frá flug-
félaginu Southem Air Transport
lenti á Keflavíkurílugvelli í gær.
Vélin var á leið frá Irlandi til El
Salvador. Um borð í vélinni vora
ýmis stríðstól. Þar á meðal vora
skriðdrekar.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá flugstjórn í Keflavík
var vélinni á vegum Leyniþjónustu
Bandaríkjaima.
Vökvastýri vélarinnar haföi bilað
og á meðan viðgerð fór fram var
vélin aöermd. Skriðdrekarnir og
vopnin vöktu mikla athygli þeirra
islepdinga sem til sáu.
„Ég kannast ekki við þetta mál.
Eflaust hefur vélin fengið leyfi til
að lenda hér. Ég veit ekki hvort
almennur flutningur með vopn er
bannaður hér á landi. Þaö er bann-
aö að flytja kjarnavopn til landsins.
Bretar hafa varla leyft vélinni að
fara með kjarnavopn til E1 Salvad-
or. Annars hljóta að vera til skjöl
yflr þann varning sem var í vél-
inni," sagði Steingrímur Her-
mannsson utanríkisráöherra.
íslendingur saem náði tali af ein-
um áhfnarmeðlima vélarinnar,
segir eftir flugliðanum aö vélin
hafi veriö á leið til E1 Salvador og
þar eigi vopnin að fara á hergagna-
sýningu. Skriðdrekinn mun vera
austurrískur.
Ljósmyndara DV var meinaö af
herlögreglu að taka mynd af vél-
inni og vopnunum. Var sagt við
hann að ef hann tæki mynd, þá
gæti hann átt á hættu að verða fyr-
ir skoti. Sjö herlögreglumenn
umkringdu ljósmyndarann.
-sme
AI.ÞJÓÐA
LÍ FTR Y GGINGARFELAGIÐ HF.
LÁCMÚI.15 -RHYKJAVlK
Simi 6N1M4
Þessir vígreifu og sigurvissu krakkar eru ekki úr ungliðasveit Borgaraflokksins. Krakkarnir eru úr Hólabrekku-
skóla og voru að vinna að gerð videoauglýsingamyndar vegna kappræðufundar sem haldinn verður i skólanum
í næstu viku. Báðu krakkarnir ýmsa þingmenn um að prýða auglýsingamyndina og meðal þeirra sem tóku vel
í hugmyndina var Albert Guðmundsson. DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Sunnanátt
ogyfir
frostmarki
Á morgun verður suðlæg átt og
rigning eða slydda um mestallt
land, þó síst norðaustanlands.
Hiti verður á bilinu 2 til 6 stig.
Jóhannes Nordal:
Markaðurinn
er engin
ófreskja
„Ég tel að fjármagnsmarkaðurinn
sé engin ófreskja. Þessi markaður
hefur þróast mikið og í rétta átt að
mínu mati. Meginatriðið er að það
var ákveðið í tíð síðustu ríkisstjórnar
að vextir mynduðust á ftjálsum
markaði. Árangurinn er sá að spam-
aður hefur stóraukist,“ segir Jó-
hannes Nordal seðlabankastjóri um
orð Steingríms Hermannssonar.
„Ég tel vissa gloppu á markaðnum
sem snýr að ávöxtunarfyrirtækjun-
um. Ég tel æskilegt að setja um
löggjöf um ávöxtunar- og fjármagns-
fyrirtæki ýmiss konar og slík löggjöf
er í undirbúningi.“
Um gífurlegar fjárfestingar sem
Steingrímur gagnrýndi, segir Jó-
hannes að skýringin á þeim sé
góðærið á síðasta ári, aukin bjartsýni
og áhrifin af nýja húsnæðiskerfinu
sé geysileg.“ -JGH
Verðlagsstoihun:
Biður SIBS um
útskýringar
Verðlagsstofnun hefur farið fram á
við Happdrætti SÍBS að happdrættið
útskýri fullyrðingar sínar í auglýs-
ingum um að þriði hver miði hljóti
vinning.
Sigríður Haraldsdóttir, deildar-
stjóri hjá Verðlagsstofnun, sagði í
samtah við DV að stofnunin bæði
happdrættin oft um útskýringar af
þessu tagi og hefur hún nýlega beint
tilmælum til Happdrættis Háskólans
og Landssambands hjálparsveita
skáta að setja fyllri upplýsingar um
vinningshlutfall á miða og í auglýs-
ingar svo upplýsingarnar virki ekki
villandi fyrir kaupandann. Bæði
happdrættin urðu við þeirri beiðni.
Olafur Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Happdrættis SÍBS,
sagði allar fullyrðingar réttar í aug-
lýsingunum en honum hafði ekki
borist fyrirspum Verðlagsstofnunar
er DV ræddi við hann. Sagði hann
upplag miðanna á ári vera 75 þúsund
en 25 þúsund vinningar væra dregn-
ir út ár hvert. -JBj
Boigarsjóður 1988:
Útsvörin
gefa um 3.4
mil|jarða
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg-
ar fyrir árið 1988 var tekin til fyrri
umræðu í borgarstjóm í gær.
Kom þar fram að heildartekjur og
heildarútgjöld borgarsjóðs era áætl-
uð 7,67 milljarðar króna og nemur
hækkunin þá 34,8% síðan í fyrra.
Helsti tekjustofn borgarinnar er út-
svörin og eru þau áætluð nema 3,4
milljörðum en fasteignaskattar eru
áætlaðir rúmur milljarður.
Rekstrarútgjöld borgarsjóðs era
áætluö nema 5,76 milljöröum en þau
hækka samkvæmt fjárhagsáætlun
um 30,9 % síöan í fyrra. Áætlað er
að stærsti liðurinn í rekstrarútgjöld-
um verði launakostnaður borgar-
sjóðs og muni hann nema 2,3
milljörðum. Til gatnagerðar og um-
ferðarmála er áætlað aö fari rúmur
milljarður og er það umtalsverð
hækkun frá fyrra ári. -JBj
i
:
!