Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988.
7
p v________________________Viðskipti
England og Þýskaland:
Fiskverð að lækka
- afHnn glæðist í Norðursjó
England
Að undanförnu hefur veiði glæðst
í Norðursjó og má búast við að fisk-
verð sé að lækka. í næstu viku er
búist við að 6 íslensk skip landi í
Grimsby og Hull, auk fisks úr gám-
um. Mb. Þorri seldi afla sinn 1
Grimsby 25. febrúar, alls 78,6 lestir,
fyrir 4,5 mijlj. kr. Meðalverð á þorski
var kr. 58,96 og meðalverð á ýsu kr.
78,37. Uppistaða aflans var þorskur,
alls 59,8 lestir, ýsuaflinn var 10,3 lest-
ir og blandaður afli 8,7 lestir, meðal-
verð kr. 29,55.
Hull
Bv. Björgvin seldi afla sinn í Hull
29. febrúar, alls 152,7 lestir, fyrir 8,494
millj. kr. Meðalverð kr. 55,61. Meðal-
verð á þorski kr. 54,60. Meöalverð á
ýsu kr. 82,81.
Dágóður afli íslenskra skipa verður boðinn upp í Englandi í næstu viku.
Þá munu sex skip selja í Grimsby og Hull, auk þess sem íslenskur fiskur
í gámum verður á markaðnum.
Sundurl. e. teg. Seltmagn kg V. í erl. mynt Söluv. ísl. kr. kr. pr. kg
Þorskur 146.830,00 122.147,60 8.018.012,76 54,61
Ýsa 4.375,00 5.519,20 362.291,33 82,81
Ufsi 130,00 93,00 6.104,71 46,96
Karfi 570,00 436,60 28.659,30 50,28
Koli 15,00 23,00 1.509,77 100,65
Grálúða 5,00 8,00 525,14 105,03
Blandaö 820,00 1.176,80 77.247,51 94,20
Samtals: 152.745,00 129.404,20 8.494.350,50 55,61
England - gámafiskur - .
Dagana 22. til 26. febrúar var seldur fiskur úr gámum sem hér segir:
Sundurl. e. teg. Seltmagnkg V. í erl. mynt Söluv. ísl. kr. kr.pr.kg
Þorskur 648.236,25 568.399,80 37.247.208,13 57,46
Ýsa 310.825,00 324.749,50 21.281.871,33 68,47
Ufsi 20.730,00 7.733,50 506.873,12 24,45
Karfi 24.770,00 10.801,30 707.732,10 28,57
Koli 176.367,50 187.672,00 12.297.520,68 69,73
Grálúða 0,00 0,00 0,00 0,00
Blandað 112.217,50 89.758,80 5.882.057,67 52,42
Samtals: 1.293.146,25 1.189.115,30 77.923.289,24 60,26
Fiskur seldur úr gámum 29. febrúar
Sundurl. e. teg. Selt magnkg V. í erl. mynt Söluv. ísl. kr. kr. pr. kg
Þorskur 244.370,00 209.894,60 14.656.310,23 59,98
Ýsa 99.310,00 105.548,25 7.370.117,65 74,21
Ufsi 5.473,75 2.442,60 170.559,43 31,16
Karfi 8.120,00 4.508,20 314.794,08 38,77
Koli 58.520,00 62.145,40 4.339.426,85 74,15
Grálúöa 306,25 435,00 30.374,74 99,18
Blandað 30.612,50 27.927,40 1.950.086,56 63,70
Samtals: 446.712,50 ' 412.901,25 28.831.655,58 64,54
Karfinn á 58 kr. í Þýskalandi
Bv. Viðey seldi afla sinn í Bremer-
haven 29. febrúar, alls 205,797 lestir,
fyrir 11,981 millj. kr. 199,4 tonn voru
karfi en meðalverð á honum var kr.
58,25. Blandaður fiskur var rúm 6
tonn og meðalverð á honum var kr.
57,50. Meðalverð aflans var kr. 58,22.
Ekki er búist við að verð á fiski
hækki í Þýskalandi vegna þess að
nú hefur borist meira af fiski úr
Norðursjó á þýska markaðinn.
Allar geymslur fullar
af saltfiski
Þúsundir tonna af þurrkuöum salt-
fiski eru í geymslum í Norður-Nor-
egi.
í Norður-Noregi er fréttaritari
„Fiskaren“, Torill Munter. Eftirfar-
andi er haft eftir honum í viðtali við
Karl Sörensen í Sörensen og Sönner
á Stött í Malöy í viðtali við Fiskaren:
Við keyptum mikið af þorski fyrir
jólin og trúðum því að útlit væri gott
á sölu þurrfisks eins og veriö haföi
en verðið lækkaði, segir Karl Sören-
sen. Erfiðleikar eru einnig miklir hjá
Safish á Sör-Arnöy í Gildeskál. Einn-
ig þar eru allar geymslur fullar af
saltfiski.
Talsmenn fyrirtækisins John And-
ersen segja að allar geymslur hjá
þeim séu fullar og þeir greiði 25.000
n.kr. á mánuði í vexti. Sörensen á
Stött greiðir 1000 n.kr. á mánuði í
vexti.
Ufsinn fellur I verði
Á ufsa hefur orðið afdrifaríkt verð-
fall úr 11-12 n. krónum í 7-8 n. kr.,
ségir Karl Sörensen. Framleiðendur
eru alvarlega varaðir við framleiðslu
á ufsa og keilu til söltunar. Það eru
alvarleg tíðindi að ekki sé hægt að
framleiða saltaðan þorsk með hagn-
aði. Framleiöendur vonuðu að ufsinn
kæmi aftur inn með þokkalegu verði
en það hefur brugðist enn sem komið
er. Markaðurinn í Brasilíu var með
mjög gott verð fyrir hrunið og hann
er afgerandi fyrir sölu á söltuðum
ufsa sem allur er seldur þurrkaður.
Portúgal greiðir miklu lægra verð.
Eftir því sem ég hef heyrt, segir Sör-
ensen, hafa íslendingar selt mikið af
saltfiski á síðasta ári, allt að 10 til
12000 tonn á lægra verði en við getum
selt á.
Vextirnir erfiðir
saltfiskverkendum
Einsog fyrr segir greiðir fyrirtækið
mikla vexti af þeim 150 tonnum af
saltfiski sem það liggur meö. Það al-
varlegasta er að í ár getum við ekki
vænst styrkja við framleiðsluna.
Fiskmarkaðimir
Ingólfur Stefánsson
Við viljum hjálpa
Við höfum tekið á móti fiski þar til
nú eða fram í miðjan febrúar. Veiði
hefur verið góð frá því í haust fram
yfir nýár en um nýárið kom hrunið.
Við getum ekki selt fiskinn. Þetta
segir Johann Andersen, framleiðslu-
stjóri hjá Safish í Gildeskál. Hann
segir fyrirtækið liggja með 1,5 millj.
króna í saltfiski og vextir af þessari
upphæð eru eins og hann gat um í
upphafi þessa viðtals. Við veröum
að fá 23 n.kr. fyrir hvert kíló svo
framleiðslan borgi sig. Fiskurinn er
verkaður á allra besta hátt, eftir
kúnstarinnar reglum. Við vorum
ekki undir þennan skell búnir nema
hvað varðar ufsa og keilu en við átt-
um ekki von á að verða í vandræðum
með þorsksölu. ísaður fiskur stendur
sig vel. Sama er að segja hjá Sören-
sen og Sönner, þeir segja verðiö hafa
lækkað um 4-5 n.kr. og nú getum við
ekki meira. Veröið, sem rætt er hér,
er verð til sjómanna.
Getur ekki verið ömurlegra
Áður hefur „Rofisklaget" getað
skotið uppbótum til framleiðenda
þegar illa hefur staðið á en nú verður
ekki séð að það gerist. Þetta getur
ekki verið ömurlegra, fiskimennirnir
koma úr suðri og norðri og við getum
ekkert gert en munum hefjast handa
þegar tekist hefur aö selja það sem
er liggjandi í geymslum okkar. Við
vonumst til að fiskimennirnir skilji
aðstöðuna. Vextirnir hrannast upp
og við ráðum ekkert við þaö og getum
ekkert gert í stöðunni, segir Karl
Sörensen.
Búnaðarþing:
Bannið erlendar kartöflur
og niðurgreiðið innlendar
Fyrir Búnaðarþingi liggur ályktun
jarðræktarnefndar þess efnis að
skorað verði á landbúnaðarráðherra
að taka upp sölukerfi á kartöflum er
byggist á framleiðslustjórnun. Þá
skorar nefndin á ráðherra að beita
sér fyrir þvi að kartöflur verði niður-
greiddar, að minnsta kosti sem
nemur þeim söluskatti sem á þær er
lagður. Að lokum vill nefndin að
þingið samþykki áskorun um bann
við innflutningi á kartöflum og hvers
kyns vörum unnum úr þeim meðan
eitthvað er til í landinu af innlendum
kartöflum. -gse
Áður Nú
Khaki-buxur 1.490 500
Galla-buxur 1.490 500 ,
Joggingpeysur 1.425 600
Joggingbuxur 1.190 400
Peysur 2.490 1.900
Skyrtur 1.790 400
Gallajakkar 2.900 1.400
Dömujakkar 2.790 1.395^
Barnabuxur 1.100 600
Áprentaðirbolir 600 300
„Allar aðrar vörur
með 20% afslætti"
ri Jeep ri AMC
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR
Eigum fyrirliggjandi mikið úrval original
varahluta í AMC og Jeep bifreiðar. Einnig
aukahlutir fyrir Wagoneer og Cherokee árg.
'84-'88, m.a. upphækkunarsett, toppgrind-
ur, mottusett, vindskeiðar, sílsalistar, stokk-
ar, útispeglar, varadekkspokar, safarígrindur
að framan, stuðarahlífar, dráttarbeisli, aur-
hlífar o.fl. o.fl.
Ath. sérpantanir á ca 2-3 vikum án auka-
kostnaðar. Hraðpantanir á ca 3 dögum.
EGILL VILHJÁLMSSON HF„
Smiöjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200
VERÐDÆMI