Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988.
Viðskipti
Eriendir markaðir:
Álið lýfur 1300 punda múrinn
glæsilega og enn lækkar olían
Stórglæsilegt álverö var skráö í fyrradag í London. Verðiö fór þá í 1313
sterlingspund í London. Álheimurinn er ánægður. Það er bjart framundan.
Þau stórmerku tíðindi berast nú
af erlendum mörkuðum aö verð á áli
hafi ekki verið eins hátt í fimm ár.
Það rauf 1300 sterlingspunda múrinn
glæsilega í fyrradag og fór í 1313
sterlingspund í London. Glæsilegt
met. Astæðan er framboðskreppa,
segja álmenn. Það er minna framleitt
en áður. Önnur stórmerk tíðindi að
utan koma frá olíumarkaðinum í
Rotterdam. Verð á hráolíu er komið
niður í 14,70 dollara tunnan. Það er
bingó fyrir olíunotendur. Greinilega
mikið framboð á markaðinum og
erfiðlega ætlar að ganga fyrir OPEC
að skrúfa fyrir kranann.
Þrátt fyrir að hráolíuverð hafi
lækkað í verði hefur bensínið hækk-
að í verði í Rotterdam að undan-
fórnu. Það er augljóslega farið að
vora í bensíninu. Slíkt gerist alltaf.
Bensíniö hækkar á vorin og nær
hámarki á sumrin þegar allir eru að
ferðast. Bensínið fer því eftir lögmál-
unum þetta vorið sem önnur, að
minnsta kosti ennþá, því í viðskipt-
um eiga menn aldrei að segja aldrei.
Það getur allt gerst.
Venjulegt bensín er núna í kring-
um 150 dollara en ekki eru nema
tvær vikur síðan það kostaöi um 138
dollara. Sama er að segja um súper-
bensínið. Það fór á um 166 dollara
fyrir um tveimur vikum en nú er það
komið í 174 dollara. Frá sjónarhorni
bíleigenda í Evrópu er þetta dökka
hliðin á vorinu, því meira sem birtir,
því meira hækkar verð á bensíni.
Örlítið meira um álið. Það var árið
1983 sem verðið náði að fara yflr 1300
sterlingspunda múrinn. Síðan eru
liðin fimm ár með miklum verð-
sveiflum. Verð á áli í dollurum
reiknað er núna um 2.324 dollarar.
Svo hátt dollaraverð hefur álheimur-
inn ekki séð áður. Nota bene, dollar-
inn er ekki lengur dollar. Verðgildi
hans hefur hrapað eins og öllum er
kunnugt. Hvað um það, bjartsýni
gætir í álheiminum þótt verðið komi
líklegast til með að lækka eitthvað á
næstunni.
Vert er að benda fólki á að kaffið
er að hækka í verði. Hægt og hljótt,
en þó fyrst og fremst hægt og bít-
andi, hækkar verðið vegna minna
framboðs á markaðinum. Það er
dauft kaffihljóðið í þeim í Brasilíu
en þar er útlit fyrir uppskerubrest.
Tíu droparnir bregðast þó aldrei.
-JGH
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15
ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður
þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra
16 ára. 65 ára og eldri geta losað innstæður
sínar með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir
eru verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert inn-
legg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9%
nafnvöxtum.
Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris-
sjóðum eða almannatryggingum. Innstæður eru
óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 25%
og ársávöxtun 25%.
Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 20% en 3%
bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar
upp í 29%. Hvert innlegg er meðhöndlað. sérs-
taklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð
úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán-
uði ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða
fresti er gerður samanburöur við ávöxtun þriggja
mánaða verðtryggðra reikninga, nú með 2%
vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færð á
höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö
vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir.
Búnaöarbankinn: Gullbók er óbundin með 29%
nafnvöxtum og 31,1% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eöa ávöxtun verðtryggðs reiknings
með 4,0% vöxtum reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,85% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu. Vextir færast hálfsárslega.
Metbók er með hvert innlegg bundið í 18 mán-
uði á 30,5% nafnvöxtum og 32,8% ársávöxtun,
eöa ávöxtun verótryggðs reiknings með 4,0%
vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust
að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru færðir hálfs-
árslega.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur með 30% nafnvöxtum og
32,2% ársávöxtun. Verðtryggð bónuskjör eru
4%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verð-
tryggð og óverðtryggð kjör og gilda þau sem
hærri eru. Heimilt er aö taka út tvisvar á hverju
sex mánaða tímabili. Vextir færast misserislega
á höfuðstól.
18 mánaða bundinn reikningur er með 32%
nafnvöxtum og 32% ársávöxtun.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin meö 32%
nafnvöxtum og 34,1% ársávöxtun. Af óhreyfð-
um hluta innstæðu frá síðustu áramótum eða
stofndegi reiknings síðar greiðast 33,4% nafn-
vextir (ársávöxtun 36,2%) eftir 16 mánuði og
34% eftir 24 mánuði (ársávöxtun 36,9%). Á
þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikninga og
gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast
0,85% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir fær-
ast tvisvar á ári á höfuöstól. Vextina má taka
út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta-
tímabil á eftir.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur
stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3
mánuðina 22%, eftir 3 mánuði 26%, eftir 6
mánuði 33%, eftir 24 mánuði 35% eða ársávöxt-
un 38,06%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaöa
verðtryggðum reikningum gildir hún um há-
vaxtareikninginn. Vextir færast á höfuðstól 30.6.
og 31.12.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 34% nafn-
vexti og 36,89% ársávöxtun á óhreyfðri inn-
stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs
reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast
hálfsárslega. Af útttekinni upphæð reiknast
0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt-
um síðustu 12 mánaða.
Utvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu
ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum,
nú 28,82% (ársávöxtun 30,16%), eða ávöxtun
3ja mánaða verðtryggðs reiknings, sem reiknuð
er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman-
burður er gerður mánaðarlega og vaxtaábótinni
bætt við höfuðstól, en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 19%, þann mánuð. Heimilt er aö
taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan
án þess að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki
er tekið út af reikningnum í 18-36 mánuði tek-
ur hann á sig kjör sérstaks lotusparnaðar með
hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun kemst þá
í 30,75-32,55%, samkvæmt gildandi vöxtum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Megin-
reglan er að innistæöa, sem er óhreyfð í heilan
ársfjóröung, ber 25,0% nafnvexti, kaskóvexti,
sem gefa 27,44% ársávöxtun, eða nýtur kjara 6
mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 4%
vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir
þann ársfjórðung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess-
ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör,
þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem
færðar hafa verið á undangengnu og yfirstand-
andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum
sem hér segir:
Við eina úttekt í ársfjórðungi reiknast almennir
sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó-
kjör af eftirstöðvum. Við fleíri úttektir fær öll
innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti.
Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan
dag ársfjórðungs, fær innistæðan kaskókjör ef
hún stendur óhreyfð út fjórðunginn. Reikning-
ur, sem stofnaður er síðar fær til bráðabirgða
almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunnið
sér kaskókjör frá stofndegi að uppfylltum skil-
yrðum.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verðtryggður
og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 4,0
nafnvöxtum. Sé reikningur oröinn 3ja mánaða
er gerður samanburður á ávöxtun með svoköll-
uðurri trompvöxtum, sem eru nú 26% og gefa
28,17% ársávöxtun.Reynist trompvextir gefa
betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning-
ihn. Hreyfðar innstæöur innan mánaðar bera
trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða,
annars almenna sparisjóðsvexti, 19% Vextir
fæ/ast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra
er með innstæðu bundna í 12 mánuði,óverð-
tryggða, en á 29,5% nafnvöxtum. Misserislega
er ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú
meó 5,0% vöxtum, borin saman við óverð-
tryggða ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur.
Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs.
Topp-bók nokkurra sparisjóða er með innstæðu
bundná í 18 mánuði óverðtryggða á 27,5%
nafnvöxtum og 29,93% ársávöxtun eða á kjör-
um 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með
5,0% vöxtum. Vextir færast á höfuóstól misseris-
lega og. eru lausir til útborgunar á næsta
vaxtatímabili á eftir. Sparisjóðirnir í Keflavík,
Hafnarfirði, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði,
Ólafsfirði, Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Nes-
kaupstað, Patreksfirði og Sparisjóður Reykjavík-
ur og nágrennis bjóða þessa reikninga.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verð-
bréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði
undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf-
in eru ýmist verðtrýggó eða óverðtryggð og
með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu
vextir á óverðtryggðum skuldabréfum vegna
fasteignaviðskipta eru 20% eða meöalvextir
bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum
og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verö-
tryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá- húsnæðisstofnun ríkisins
getur numió 2.898.000 krónum á 1. ársfjórð-
ungi 1988, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á
síðustu þrem árum, annars 2.028.000 krónum.
Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.929.000
krónum, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á sl. þrem
árum, annars 1.420.000 krónum.
Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru
hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna.
Lánin eru til 40 ára og verðtryggð. Vextir eru
3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur
og vextir, síðan hefjast afborganir af lánunum
jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður
ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæöir,
vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er
30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn láns-
rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru
mjög mishá eftir sjóöum, starfstíma og stigum.
Lánin eru verðtryggð og með 5-9% vöxtum,
algengastir eru meðalvextir, nú 8,1%. Lánstími
er 15-42 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt
er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða
safna Jánsrétti frá fyrri sjóöum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir í einu
lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagð-
ir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir
og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirn-
ir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10%
nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímabilsins
1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé
innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr
raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn-
vel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10%
nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mán-
uði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan
á þá upphæö leggjast 5% vextir seinni 6 mánuð-
ina. Á endanum verður innstæðan því 1.102,50
og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,8% á mánuði eóa 45,6% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala fyrir mars 1988 er 1968 stig
en var 1958 stig í febrúar. Miðað er við grunn-
inn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala fyrir mars 1988 er 343 stig
á grunninum 100 frá 1983, en 107,3 á grunni
100 frá júlí 1987.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 9% 1. jan. Þessi
vísitala mælir aöeins hækkun húsaleigu þar sem
við hana er miðað sérstaklega í samningum
leigusala og leigjenda. Hækkun vísitölunnar
miðast við meðaltalshækkun launa næstu þrjá
mánuði á undan.
JTlröðum akstri fylgir:
^Oryggisleysi, orkusóun
og streita. Ertu sammála?
UMFERÐAR
RAÐ
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 19-20 Ib.Ab
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 19-23 Ab.Sb
6mán. uppsögn 20-25 Ab
12 mán. uppsögn 21 -28 Ab
18mán. uppsögn 32 Ib
Tékkareikningar, alm. 8-12 Sb
Sértékkareikningar 9-23 Ab
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb. Lb.Vb,
Bb.Sp
Innlánmeðsérkjörum 19-28 Lb.Sb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 5,75-7 Vb.Sb
Sterlingspund 7,75-8,25 Úb
Vestur-þýsk mörk 2-3 Ab
Danskarkrónur 7,75-9 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 29,5-32 Sp
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 31-35 Sp
Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 32,5-36 Sp
Útlán verðtryggð
Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 30,5-34 Bb
SDR 7,75-8,25 Lb.Bb, Sb
Bandaríkjadalir 8,75-9,5 Lb.Bb, Sb.Sp
Sterlingspund 11-11,5 Úb.Bb, Sb.Sp
Vestur-þýskmörk 5-5,75 Úb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 45,6 3,8 á mán.
MEÐALVEXTIR
óverðtr.feb. 88 35,6
Verötr. feb. 88 9,5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala mars 1968 stig
Byggingavísitalamars 343stig
Byggingavísitala mars 107,3stig
H úsaloiguvísitala Hækkaði 9% . jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1,3927
Einingabréf 1 2,670
Einingabréf 2 1,555
Einingabréf 3 1,688
Fjölþjóðabréf 1,342
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,672
Lífeyrisbréf 1.342
Markbréf 1,387
Sjóðsbréf 1 1,253
Sjóðsbréf 2 1,365
Tekjubréf 1,365
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 130 kr.
Eimskip 384 kr.
Flugleiðir 255 kr.
Hampiðjan 138 kr.
Iðnaðarbankinn 155 kr.
Skagstrendingurhf. 189 kr.
Verslunarbankinn 135 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge, Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Verð á eriendum
mörkuðum
Bensírt og olía
Rotterdam, fob
Bensín, venjulegt,..149,5$ tonnið
eða um......4,49 ísl. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um ................145$ tonnið
Bensin, súper.....174$ tonnið
eða um.........5,18 ísl. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um...............................170$ tonnið
Gasolía..........................135$ tonnið
eða um.;...4,53ísl. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um...............................135$ tonnið
Svartolía.......................80,5$ tonnið
eöa um......2,94 ísl. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um.,....„.........................88$ tonnið
Hráolía
Um................14,75$ tunnan
eða um......580 ísl. kr. tunnan
Verð i síðustu viku
Um................15,90$ tunnan
Gull
London
.Um.................432$ únsan
eða um..........17.042 isl. kr. únsan
Verð í síðustu viku
Um...................438$ únsan
Al
London
Um....1313 sterlingspund tonnið
eða um......91.778 ísl. kr. tonnið
Verð í siðustu viku
Um....1294 sterlingspund tonnið
Ull
Sydney, Ástralíu
Um..........11,30 dollarar kílóið
eða um.........445 ísl. kr. kílóið
Verð í síðustu viku
Um..........11,75 dollarar kílóið
Bómull
New York
Um.............60 cent pundið
eða um.........52 ísl. kr. kílóið
Verð i síðustu viku
Um...............63 cent pundið
Hrásykur
London
Um..........204 dollarar tonnið
eða um......8.048 ísl. kr. tonnið
Verð í síðustu viku
Um..........229 dollarar tonnið
Sojamjöl
Chicago
Um..........186 dollarar tonnið
eða um......7.338 ísl. kr. tonnið
Verð í síðustu viku
Um..........187 dollarar tonnið
Kaffibaunir
London
Um.............121,6 cent pundið
eða um.......„.105 ísl. kr. kílóið
Verð í síðustu viku
Um....,.........119 cent pundið
Verð á íslenskum
vörum eriendis
Refaskinn
Khöfn, febr.
Blárefur.............298 d. kr.
Shadow...............299 d. kr.
Silfurrefur..........692 d. kr.
Bluefrost............312 d. kr.
Minkaskinn
Khöfh, febr.
Svartminkur......220 d. kr.
Brúnminkur.........„„227 d. kr,
Grásleppuhrogn
Um.....1100 þýsk mörk tunnan
Loönumjöl
Um........540 dollarar tonnið
Loðnulýsi
Um........360 dollarar tonnið