Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Side 9
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988. 9 IJtlönd Gagniýnir gagniýnenduma Nei við kjarn- orkulausri Evrópu Leiötogar NATO-ríkjanna sendu í gær frá sér,yfirlýsingu þar sem sagði að herferðin fyrir fækkun kjarn- orkuvopna myndi ekki einskorðast við hugmyndimar um kjarnorku- vopnalausa Evrópu heldur þurfi einnig að koma tÚ fækkunar hefð- bundinna vopna. Fóru leiðtogarnir fram á að Var- sjárbandalagið fækkaði verulega hefðbundnum vopnum. Þeir lögðu hins vegar áherslu á að þó svo að jafnvægi kæmist á hvaö varðaði hefðbundin vopn myndu vestræn ríki samt sem áður þurfa á kjam- orkuvopnum að halda. Virðist því sem NATO hafni hugmyndum Gor- batsjovs Sovétleiðtoga um kjam-' orkuvopnalausan heim árið 2000. Leiðtogarnir þurfa í dag að samein- ast um erfiða ákvarðanatöku. Um er að ræða hvenær og hvernig þurfi að endurnýja þær bandarísku skamm- drægu kjamorkuflaugar sem stað- settar em í Evrópu. Bretar og Bandaríkin leggja áherslu á end- Fundur leiötoga aðildarrikja NATO hófst i Brussel í gær og lýkur í dag. Símamynd Reuter urnýjun en Frakkar og Vestur-Þjóð- skammdrægum kjarnaflaugum eins verjar vilja hins vegar fækka og Sovétmenn leggja til að verði gert. Yitzhak Shamir, forsætisráð- herra ísraels, sakaöi í gær þá sem gagnrýna ísrael um að vera haldn- ir blindu gagnvart þeim ásetningi araba aö hertaka allt ísrael. Shamir fagnaði við sama tæki- færi því aö George Shultz, utanrik- isráðherra Bandarikjanna, hyggst nú snúa aftur til Miðausturlanda til frekari viðræðna um framtíð herteknu svæðanna á vesturbakk- anum og Gazasvæöinu, þar sem uppreisn Palestínumanna hefur nú staðið í tóíf vikur. Shamir sagði í gær aö ef ísraelsmenn drægu herhð sitt til baka frá herteknu svæðunum, eins og arabar krefjast, myndi það hafa geigvænleg- ar afleiöingar í för með sér. Vonir glæðast Vonir manna hafa nú glæðst nokkuð um að annar vestur-þýsku gislanna, sem nú eru í haldi öfga- manna i Líbanon, muni innan skamms öðlast frelsi sitt að nýju. í tilkynningu, sem í gær barst frá hreyfingu þeirri sem hefur Þjóð- verjann í haldi, segir að persónuleg afskipti Hafez Al-Assad, forseta Sýrlands, hafi nú leitt til þess að hugsanlega verði Ralph Schray lát- inn laus. Hreyfingin, sem hcfur bæöi Schray og landa hans, Rudolf Gor- des, í haldi hefur krafist þess aö Mohamed Ali Hamadi og bróöir hans, Abbas, sem báðir eru í v- þýskum fangelsum, verði látnir Íausir. Þótt Hamadi brseöumir séu enn í haldi í Þýskalandi segja libönsku skæruliðamir að þeir vilji skapa velvilja meðal v-þýskra stjórnvalda með því aö láta Schray lausan. Tilefni yfírlýsinga tímaritum viðtöl við Mitterrand þar sem hann ræddi afvopnunarmál og sagði meðal annars að núna væri ekki tími til að ræða endurnýjun skammdrægra kjarnorkuflauga Bandaríkjamanna í Evrópu en reikn- að er með að í kringum 1994 verði þær orðnar úreltar og sumir innan NATO, eins og til dæmis Margaret Thatcher, hafa viljað ræða strax þessa endurnýjun. Forsetinn sagði að þvert á móti þyrfti að taka upp viðræður við Sovétmenn um minnk- un hefðbundins herafla. Chirac var ekki lengi að svara. Hann hélt blaðamannafund á þriðju- daginn um utanríkismál og án þess að nefna beint forsetann svaraði hann yfirlýsingu Mitterrands.. Chirac gagnrýndi forsetann óbeint fyrir undanlátssemi við Gorbatsjov og sakaði hann um að grafa undan samstöðu innan NATO. Mitterrand kom svo fram í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi og endurtók þaö sem hann hafði áður sagt og svaraði forsæfis- ráðherranum en gaf náttúrlega lítið út á gagnrýni Chiracs. Á hak viö orðaskipti, sem bera keim af kosningabaráttu og áróðri, býr flóknari veruleiki. Kjarnorku- herafli Frakka, þótt lítill sé, gerir stöðu þeirra í afvopnunarviðræðum viðkvæma. Ef samið verður í fram- tíðinni um fækkun skammdrægra flauga, eins og Vestur-Þjóðverjar til dæmis vilja, má telja víst að reynt verði að fá Frakka með í þær viöræð- ur en Frakkar mega ekki heyra á það minnst að hróflað sé við kjarnork- unni þeirra og eru reyndar með á prjónunum aukningu kjarnorkuher- aflans sem gæti virst mótsagna- kennt. Það eru samskiptin við Vestur-Þýskaland sem skipta Frakka miklu máli, bæði hvað snertir öryggi Evrópu og eins framtíð Evrópu- bandalagsins og þetta vita bæði Mitterrand og Chirac. Það sem fram hefur komið í máli æðstu ráðamanna undanfarna daga hefur ekki alltaf verið í fyllsta samræmi við stefnu þeirra og fyrri yfirlýsingar. En í Vestur-Þýskalandi og annars staðar vita menn að kosningar eru væntan- legar í Frakklandi. Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux; Natófundurinn í Brussel hefur orð- ið frönskum stjórnmálamönnum tilefni yfirlýsinga. Mitterrand forseti áleit að í kjölfar afvopnunarsamn- ingsins, sem undirritaður var i desember síðastliðnum, væri nauð- synlegt að sækja fundinn til að skýra frá viðhorfum Frakka. Franskir ráðamenn hafa ekki setið fundi af þessu tagi frá því að Frakkar drógu sig út úr hemaðarsamvinnu NATO. Samkvæmt franskri sfjómarskrá er forseti landsins ábyrgur fyrir ör- yggis- og vamarmálum en forsætis- ráðherrann hefur meiri völd í innanríkismálum. Mitterrand hefur með fundinum í Bmssel og yfirlýs- ingum í blaðaviðtölum viljað sýna að í sambúðinni við Jacques Chirac er það forsetinn sem hefur töglin og hagldirnar þegar Evrópa og varnar- mál eru annars vegar. Þátttaka hans á fundinum er mikilvæg út á við en ekki síður innan Frakklands þar sem jafnalvarlegt mál og öryggi Evrópu hlýtur að vera baráttumál fyrir kom- andi forsetakosningar. Á mánudaginn birtust í tveimur Mitterrand Frakklandsforseti ásamt Carrington lávarði í höfuðstöðvum NATO í Brussel. Simamynd Reuter Sprengingar í Dacca Tugir heimatilbúinna sprengja vom sprengdar í Dacca, höfuðborg Bangladesh, í morgun, í þann mund er kjörstaðir voru opnaðir þar, en í dag fara fram kosningar til þings landsins. Engar fregnir hafa enn borist af manntjóni eða eignaskemmdum af völdum sprenginganna. Þegar kjörstaðir í Bangladesh vom opnaðir í morgun höfðu stjómvöld komið fyrir um rúu þúsund hermönnum við þá og er hlutverk þeirra að sjá til þess að kosningar fari friðsamlega fram og að stjórnarandstaða meini fólki ekki að kjósa. Talið er að kjörsókn verði með minna móti enda hafa flestir eða allir stjórnarandstöðuflokkar landsins hvatt fólk til að hundsa kosningamar. Héldu forsetafrúna komna Síðastliðinn laugardag varð uppi fótur og fit meðal starfsmanna flug- vallarins í Manila, höfuðborg Filippseyja, þegar einhver rak aug- un í að þangaö var komin Imelda nokkur Marcos. Aö sjálfsögðu héldu starfsmennirnir að þar væri á ferð eiginkona Ferdinands Marc- os, fyrrum forseta landsins, sem settur var af fyrir tveim árum og nú er í útlegð í Bandaríkjunum. Þegar að var gáð reyndist ferða- langm-inn hins vegar vera starfs- maöur hollenska sendiráðsins í Ástraliu sem er alnafni forsetafrú- arimiar og róuðust taugar við- staddra nokkuð viö þær upplýsing- ar. Hægri öfgamenn unnu íhaldsflokkurinn í Suður-Afríku, sem er lengst til hægri af stjóm- málaflokkum landsins, vann afgerandi sigur í aukakosningum um sæti á þingi landsins í gær. Er sigur þessi enn eitt merki þess að hægrimönnum aukist nú mjög fylgi meðal hvitra í Suður-Afriku. Kosið var um tvö þingsæti og er taliö að íhaldsflokkurinn muni vinna bæöi sætin en flokkurinn heldur mjög fram yfirburðum hvíta kynstofnsins fram yfir þá sem litaðir em.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.