Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988. Vejslueldhúsið Álfheimum 74 MÖTUNEYTI OG FYRIRTÆKI Sendum heitan mat út í hádeginu til fyrirtækja og stofnana. Sími 686220 og 685660 Hárgreiðslustofan Klapparstíg . . Pantanasími 13010 Litakynning. ^ Permanettkynning. Strípukynning. Rakarastofan Klapparstíg Pantanasími 12725 Harris/3M telefaxtæki Alltaf í fararbroddi Mikil verðlækkun 2127 Harris/3M býður upp á hágæða telefaxtæki sem hafa sendingar- hraða allt að 10sekúndum. Þessi tæki í 2000-línunni eru algjörlega sjálfvirk og bjóða upp á allt sem þú þarft til að koma skjölum og öðrum gögnum til viðtakenda á öruggan og skjótan hátt. Kynntu þér 2110, 2123 og 2127 tækin. Hin nýja lína af telefaxtækjum frá Harris/3M er bæði vönduð og hagkvæm. Þessi tæki senda bréfið þitt frá einni heimsálfu til ann- arrar á 15 sekúndum. Slíkur hraði sparar ekki aðeins tíma heldur einnig peninga. Harris/3M 111-línan er sú hraðvrrkasta í sínum flokki. 111 -línan getur haft samskipti við allar gerðir telefaxtækja og prentgæðin eru ótrúleg. Kynntu þér 111 og 111AD telefaxtækin frá Harris/3M og þú sann- færist um gæði þeirra og þú munt komast að raun um eins og fleiri að þau eru sennilega bestu tæki sinnar tegundar í heiminum. Telefax fyrir: Banka • Innflytjendur • Útflytjendur • Lögreglu • Trygginga- félög • Dagblöð • Verkfræðistofur • Auglýsingastofur • Prentsmiðjur • Opinberar stofnanir o.fl. o.fl. Verðskrá 1.3. 1988 111.........kr. 95.800,- 2110 G........157.000,- 111 AD......kr. 99.500,- 2127.......kr. 271.100,- ARVÍKS* NAFNNUMEÞ 0599-8 <90 kennitaua 47 11 83-0<69 ARMUL11 - POSTHOLF 0000- 128 REYKJAVIK • SlMI 607222 • TELEX 3012 • TELEFAX 687295 Utlönd Shultz fer í nýja friðarför Reagan Bandaríkjaforseti ákvað í gær að senda Shultz utanríkisráð- herra aftur til Miðausturlanda síðdegis í dag að loknum leiðtoga- fundi NATO. Lýsti forsetinn því yfir að öll Miðausturlönd vildu að Banda- ríkin héldu áfram að fylgja eftir nýjum friðartillögum sínum. Allra fyrst mun Shultz fljúga til London þar sem hann mun eiga við- ræður við Hussein Jórdaníukonung. Því næst heldur Shultz til ísraels. í tillögum Bandaríkjamanna felst takmörkuð sjálfsstjórn fyrir Palest- ínumenn á herteknu svæðunum þar sem að minnsta kosti sjötíu og níu manns hafa fallið fyrir hendi ísra- elskra hermanna frá því í desember- byrjun. Einnig er gert ráð fyrir í tillögunum að haldin verði alþjóðleg ráðstefna sem myndi hrinda af stað beinum friðarviðræðum milli ísra- elsmanna og araba. í tiilögunum er ekki gert ráð fyrir að á alþjóðafund- inum verði komist að víðtæku samkomulagi. Á þriðjudaginn lauk sex daga frið- arför Shultz um Miðausturlönd og sagði utanríkisráðherrann eftir þá ferð að hann hefði orðið Var við meiri Samkvæmt skipun Reagans Bandaríkjaforseta mun Shultz, utanríkisráð- sveigjanleika hjá ráðamönnum þar herra Bandaríkjanna, halda af stað í dag í nýja friðarför til Miðausturlanda. en áður. Simamynd Reuter Verðfall á Norðursjávarolíu Páll Vflhjálmsson, DV, Osló: Norðursjávarolía lækkaði í verði í gær og hefur ekki verið ódýrari síðan 1986. Astæöa lækkunarinnar er talin vera sú að kaupendur gera ráð fyrir offramboði á olíu á næstunni. Einu olíuframleiðendurnir í Norð- ursjó eru Norðmenn og Bretar og kemur olíulækkunin sér illa fyrir efnahag þessara þjóða. Það er mun kostnaðarsamara að vinna olíu úr Norðursjó en til dæmis í Miðaustur- löndum þar sem borpallar eru á þurru landi. Eftir verðfallið í gær stendur í járnum hvort það borgi sig fyrir Norðmenn og Breta að vinna olíu á landgrunni sínu. Þegar tæknin bregst Það hefur löngum farið vel á með' þeim Ronald Reagan Bandaríkja- forseta og Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, og hafa þau haft ýmislegt að skrafa þegar þau hafa hist. Þegar fólk nær „vissum aldri“ geta tjáskipti þó orðið háð aðstoð ýmissa tækni- undra nútímans og þegar þau bregðast verður oft minna úr tengslunum en til stóð. Þegar þau Thatcher og Reagan hittust á leið- togafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel í gær urðu þau einmitt að sætta sig við sambandsleysi vegna þess að tæknin brást. í þetta sinn var það heyrnartæki forsetans sem bilaði og hvernig sem hann reyndi að stilla það neitaði tólið algerlega að hlýða. Á neðri mynd- inni hefur forsetinn geOst upp og tekið tólið úr eyranu. Lesa má von- brigðin úr andliti hans enda vafa- lítið sárt að missa af vísdómsorðum þessarar vinkonu sinnar og skoð- anasystur. Ekki fylgir sögunni á hvern Thatcher er að kalla á mynd- inni, nema hún sé að heimta breskt heyrnartæki handa forsetanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.