Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988. Spumingin Lesendur Fylgist þú með Reykjavík- ur skákmótinu? Magnús Ingvarsson: Nei, það get ég ekki sagt, mjög lítið a.m.k. Anna Árnadóttir: Nei, ég hef ekki tíma tíl þess. Rósa Guðbjartsdóttir: Já, dálítið. Ragnheiður Kristinsdóttir: Nei, en ég fylgdist með einvígi Jóhanns úti. Hekla Hannibalsdóttir: Nei, ég hef engan áhuga á skák. Andrés Pétur Rúnarsson: Já, ég fylg- ist vel með því. Fýrirtiuguð ráðhúsbygging: Furðuleg hugmynd Bréfritari leggur til að akbraut verði lögð þvert yfir Tjörnína og endi i göngum niður í fyrirhugaðar bilageymslur ráðhússins. 9071-6085 skrifar: Fyrir nokkrum vikum barst inn um bréfalúguna til mín blað fulltrúa- ráðs Sjálfstæðisfélaganna. Af for- vitni leit ég yfir greinar blaðsins sem flestar eru beint lofsyrði á fyrir- hugaða ráöhúsbyggingu. Er ég las yfir grein Árna Sigfússonar kemur manni í hug „rödd húsbóndans" („his masters voice“), svo rækilega er blær greinarinnar í anda borgar- stjóra. Við lestur greinar Katrínar Fjeldsted (en sú grein er kveikjan að skrifum mínum) kemur fram svipað- ur tónn og hjá Árna en þó í aðeins öðrum anda og er þar imprað á ýmsu furðulegu varðandi ráðhúsið til stað- festingar á jáyrði hennar því til handa. - Hún heldur því fram að ef gömul hús væru þar sem Oddfellow- húsið og Tjamargötulengjan eru hefði hún verið á móti ráðhúsi við Tjörnina. Varðandi þessa rökfærslu vil ég varpa þessari spumingu til Katrínár Fjeldsted: Er ekki mögu- leiki að umbreyta áðurnefndum byggingum, t.d. með því að timbur- klæða Tjarnargötulengjuna eða rífa niður einhver húsanna þar? Hitt sjónarmið greinar hennar ér stjórnun umferðar um svæðið. Þar dregur hún upp svo furðulega hug- mynd að ég sem lesandi varð orðlaus. Hún talar um að gera Tjamargötuna að vistgötu með ljóskerum og bekkj- um til að vernda götuna frá þeirri örtröð bíla sem fylla hana daglangt og kanna hvort gera mæiti götuna að einstefnuakstursgötu. Einnig kemur fram hjá henni að ekki komi til greina að breikka Von- arstræti eða Fríkirkjuveg. Fyrr í grein sinni segir hún orðrétt: „Að- gerða vegna umferðaröngþveitis er þörf nu þegar í miðbænum, án tengsla við fyrirhugaöa ráðhúsbygg- ingu. f ljósi þess lagði ég til í borgar- ráði nýlega, að könnuð yrði hagkvæmni þess aö nota litla stræt- isvagna í .gamla bænum.“ Við samantekt eru tvö atriði sem framkvæma á við verndun Tjarnar- innar „nú“ og „síðar" varðandi hugmyndir hennar, þ.e. að gera Tjamargötu að einstefnuakstursgötu og innleiða litla strætisvagna um svæðið. Ég spyr sem almennur borgari: Hvaða hugrenningar eru það sem stjómendur borgarmála em að bræöa með sér? - Var ekki byijað á öfugum enda, fyrst að byggja ráðhús og síðan að hugsa um umferðarmál- in? Helst kemur mér í hug sagan um nýju fötin keisarans, þ.e. ráðhúsið strípað í umferðaröngþveiti. Borgarstjóri og borgarfulltrúar í meirihluta. Fyrst þetta skipulag er komið í gegn og þið búnir að tapa áttum, því þá ekki að gera það sem þarf að gera, svo að keisarinn fái nú fot! Ganga hreint til verks og leggja akbraut þvert yfir Tjömina, frá ljós- unum á gatnamótum Skothúsvegar og Fríkirkjuvegar, akbraut sem end- aði í göngum niöur í fyrirhugaðar bílageymslur ráðhússins? Mig undrar ekki þótt þið fáið gæsa- húð viö lestur þessarar tillögu. Þetta er það eina sem þið getið gert til að bjarga því að vitleysan verði ekki vitlausari. Með öiyggi allra í huga: Aðvöran Hringið í síma 27022 milli kl. 13 og 15 eða hringið Þingmanninum til hugarhægðar Þórhallur G. Ólafsson skrifar: Ég leyfði mér að slappa aðeins af í miðbænum í Reykjavík í sl. viku og settist inn á kaffistofu viö Austur- völl. Á meðan ég drakk og borðaöi horfði ég yfir Austurvöll og á Al- þingishúsið gamla. Þá var það að flugvél ein stór flaug beint yfir Al- þingishúsið. Flugvélin var, að því er mér virtist, aðeins fáeina metra yfir húsinu. Þeirri hugsun skaut strax upp hjá mér að þetta yrði að banna tafar- laust í eitt skipti fyrir öll áöur en alvarlegt slys hlytist af. Hvað um alla okkar ágætu alþingismenn sem gætu farist þarna á augabragði ef flugvélin dytti niður í miðbæinn og hvað um allt þetta fallega og góða fólk sem vinnur í miðbænum, skyld- fólk þess og vini, auk tjölda fólks sem alltaf er í miðbænum á daginn? Þarna eru allir í stöðugri hættu. Ég er þarna aldrei lengur en ég nauðsynlega þarf vegna þessara flug- véla sem þarna fljúga yfir. Hver vill bera ábyrgð á því ef flugvél „dytti" niður í miðbæinn og allt færi þar í bál? Það þarf ekki annaö en „dautt loft“, þ.e. breytingu á undirstöðu eða að eitthvað verði annað að til þess að svona geti komið fyrir. Það var einmitt svona breytileg undirstaða sem varð til þess í De- troit í Bandaríkjunum að flug 252 „datt“ niður og allir fórust, að und- anskildu einu litlu barni. Og sex manns fórust á jöröu niðri. Ég er nýkominn heim til íslands eftir að haja verið búsettur í 36 ár í Bandaríkjunum. Þar er ákaflega margt öðruvísi en hér á landi og sem of langt yrði upp að telja, en eitt vil ég benda á sem mikið er gert að þar í landi varðandi ýmislegt er fólki þykir vera varasamt. Þá eru með áberandi hætti auglýst með skýrum stöfum á spjöldum þessi orð: „SAFE- TY FIRST“ eða Öryggi framar öllu. Á undanfórnum 10 árum, og þá einkum í Bandaríkjunum, hefur ver- ið mikið gert að því að fjarlægja hús frá aðflugslínu flugbrauta og girða síðan háar girðingar beggja vegna flugvallanna, þannig að hvorki fólk né búfénaður komist inn á þetta svæði. Eitt af því sem byggt hefur verið á íslandi meðan ég var að heiman er nýja flugstöðin í Keflavík sem er inn- an við klukkutíma akstur frá Reykja- vík. Það þykir ekki mikið í Bandaríkjunum. Hvers vegna er ekki löngu búið að beina öllu flugi frá Reykjavíkurflugvelli til Keflavíkur? Með öryggi flugmanna, farþega og allra framangreindra í huga er ég hvattur af æðri máttarvöldum til þess að koma þessari aðvörun á framfæri strax. - Öry ggi framar öllu! Gunnar Kristinsson hitaveitustj. skrifar: í grein er Sighvatur Björgvinsson alþingismaður ritar í DV 23. febrúar um fyrirhugaöa byggingu Hitaveitu Reykjavíkur á Öskjuhlíð, vitnar hann í frétt í sama blaði, 16.2. um sama efni. Frétt þessa ritaði blaða- maður DV/SME nokkru effir að hann hafði hafl viðtal við mig í síma og ég hafði satt að segja lagt mig nokkuð fram um það að lýsa fyrirhuguðum framkvæmdum fyrir honum. Blaðamanninum hafa þó fundist aörar hliðar málsins áhugaverðari en sú er að framkvæmdunum sjálf- um sneri en í fréttinni leyndist þó 4ra lína tilvitnun í samtal okkar, ekki orðrétt að vísu, en meiningin ekki íjarri réttu lagi. Ég hafði svarað blaðamanninum því að engum hefði dottið í hug að arður af rekstri veit- ingahúss á 5. hæð gæti greitt kostnað við alla bygginguna. Síðasta setning fréttarinnar „það er því gert ráð fyrir að kostnaður vegna byggingarinnar greiðist með heitavatnsnotkun viðskiptavina Hitaveitu Reykjavíkur," er ályktun blaðamannsins, en ekki tilvitnun í viðtal, en að sjálfsögðu er hún rétt. Það má þó vera þingmanninum til hugarhægðar að ekki er fyrirhugað að hækka gjaldskrá Hitaveitunnar vegna byggjngarinnar og getur hann því haldið áfram að boða áhugamál sitt um flutning á peningum frá íbú- um höfuðbórgarsvæðisins út á landsbyggðina, forsendur eru óbreyttar. Þingmaðurinn getur því haldið áfram að boða áhugamál sitt um flutning á peningum frá höfuðborg- arsvæðinu, segir m.a. i bréfinu. „Hvers vegna er ekki löngu búið að beina öllu flugi frá Reykjavíkurflugvelli til Keflavikurflugvallar?" spyr bréfritari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.