Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988. 17 Lesendur Munnsöfnuður í lögreglustöðinni: Eiga Austfirð- ingar ekki upp á pallborðið? Héraðsbúi skrifar: Mig langar til að bæta viö nokkr- um oröum'við þá umræöu, sem átt hefur sér staö um, þann atburö, er tveir lögregluþjónur uröu til þess að tvíbrjóta upphandlegg ungs manns fyrir það eitt að aíþakka að yfirhöfn hans eða jakki yrði tekinn af honum. Það hefur kannski verið hitamolla í fatahenginu en fyrr má nú vera kurteisin í lögreglumönn- unum! Annars var tilefiii bréfs þessa ekki síður munnsöfnuður sá er lög- reglukona í lögreglustöðinni í Reykjavík lét falla i garð Austfirð- inga. Stendur ekki einhvers staöar að ekki megi vera ókurteis við op- inbera starfsmenn og það geti varðað sektum og fangelsi aö brjóta þaö ákvæði? En hver er réttur þegnanna og hvar stendur konan í þessu máli? Á aö sekta hana eða fangelsa, vísa henni úr starfi eða bara að þagga máhð niður? Hárrækt með „leysi“ - eða hárkollur Kristján Guðmundsson skrjfar: í fréttatíma Stjörnunnar hinn 24. febr. sl. fullyrti Torfi Geirmundsson, að sköllótt fólk gæti ekki fengið allt hárið aftur með „leysigeislameðferð" eins og þeirri sem framkvæmd er hjá Heilsulínunni á Laugavegi. Oft fengi fólk bara fingerð hár sem yrðu aðeins nokkurra cm löng og þeim héldu sumir aðeins með áframhaldandi meðferð. Þetta væri því dýr lausn. Nú óska ég að koma með eftirfar- andi athugasemdir við þessi ummæli Torfa: 1. Það er aðeins fyrst eftir að hárið kemur upp sem það er fingert. Það þykknar fjótlega og verður jafngróft og upprunalega háriö. 2. Hárið verður að öðru leyti einnig eins og upprunalega háriö, m.a. hvaö varðar vöxt. Reyndar yrði sköllótt fólk himinlifandi þótt hárið yrði ekki nema nokkurra cm langt. John Lydon, söngvari P.I.L., þarf ekki á hárrækt að halda meðan hann skartar þessum fínu fléttum. 3. Enginn viðskiptamanna Heilsulín- unnar hefur misst hárið eftir aö meðferö lauk. Hins vegar er gott að styrkja hárvöxtinn eftir að meðferð i lýkur með því að koma í einn og einn tíma á nokkurra mánaða fresti. Hvað verðlagningu varðar skal upplýst að tíminn hjá Heilsulínunni (3 kortér til klukkustund) kostar 890 kr. Sex tímar, 5340 kr„ kosta því svip- að og ódýrustu hárkollur. Sá fjöldi viðskiptavina Heilsulínunnar, sem hafa losnaö við hárkollurnar, líkir því ekki saman hve geislameðferðin er ódýrari og betri lausn á skalla- vandamálinu en kollurnar, ekki síst hvað varðar umhirðu. Kannski er þar einmitt að finna ástæðuna fyrir andúð Torfa á geisla- meðferðinni. - Torfi er nefnilega umsvifamikill hárkollusali. Kannski liggur sama ástæöa að baki því að Torfi minnist ekki orði á að geisla- meðferð Heilsulínunnar gerir meira en að hæra skalla; hún stöðvar einn- ig hárlos, lífgar og gerir glansandi líflaust hár, eyðir flösu og exemi, endurvekur litafrumur hársins og hraöar hárvexti um þriðjung. Hitt hefði Torfi mátt minnast á; að óvandaðir leikmenn úti í bæ selja sársauklafulla geislameðferð með smygluðum tækjum á kr. 1150 tím- ann (og mætti kalla það okurgeisla). Vegna þessa er nauðsyn á að taka fram að meðferðin hjá Heilsulínunni er algjörlega sársaukalaus. Og þar sem margir, ekki síður konur og börn en karlar, eiga um sárt að binda vegna hárvandamála er vert að geta þessa. Hollusta og heilbrigði fyrr og síðar Gunnar Sverrisson skrifar: Hér áður fyrr, er fólkið í landinu vissi almennt minna en í dag um hollustu og næringargildi þeirra fæðutegunda, sem það neytti dag- lega, og margir hverjir ekki heldur um gildi heilsuræktar, er staðhæft að sumum þeirra varð aldrei mis- dægurt og náðu háum aldri. Tel ég að eitthvað af gömlu húsráðunum hafi komið þar við sögu og hjálpað til. Jafnvel eins og af eðlisávísun. Nú á seinni tímum er fólk betur upplýst en áður um hollustuefni réttrar fæðu og heilsurækt, svo og hvað það eigi að varast og hvers megi vænta í þessum efnum til bóta ef það fer rétt að. Dæmin eru reynd- ar mörg um það hversu vel hefur tekist til og hvernig mönnum hefur tekist að bæta sig og hressa. Umræðan um þessi efni finnst mér vera af hinu góða enda þótt menn séu ekki á eitt sáttir um eðli og gildismat einstaka þáttar. Samt finnst mér ein- hvern veginn að téð umræða mætti Er hægt að rekja hollustu og heilsurækt nútímans til hinna gömlu húsráða? að einhverju leyti vera tengd upplýs- ingum, aðferðum og áhrifum gömlu húsráðanna og myndu þá sjálfsagt fleiri en ella færa sér samtvinnuð hollustu- og heilsuræktarráð í nyt á kostnað þess gamla og einfalda, fyrir minni peninga og með minni fyrir- höfn. Villandi upplýsingar um fæðu og aðra hollustu láta margir sér í léttu rúmi liggja, en ég tel að rangar upp- lýsingar megi á stundum rekja til þess að sá eða þeir sem bak við þær upplýsingar standa viti ekki betur. Og það er jú mannlegt að skjátlast í dagsins önn og þrasi. _j7_pexla— íslensks skemmtanalífs! IMú—nrðefa allir Wlánaklúbbsfélagar og gestir þeirra timanlega því heilmikið er um að vera um helgina. Hinn frábæri Tommy Hunt skemmtir á töstíi- dags- og Iaugardagskvö1d7 _____—-— Guðmunduf—Haukur. annast tónlistarflutning föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld._ Í,,ALACARTE" salnum erköminnnýr og spenn- andi matseðill. IVIunið að panta borð í tima. Opnunartímar Mánaklúbbsins: Fimmtudaga 18.00-01.00 Föstudaga 18.00-03.00 Laugardaga 18.00-03.00 Sunnudaga 18.00-01.00 Brautarhölii 20, símar 23333, 23335 og 29098 A Annaðkvöldfrum- sýnir Leik-félag Akureyrar verkið Horftaf brúnni eftir Arthur Miller. Leik- ritið fjallar um líf Eddie Carbone hafnarverkamanns í Brooklyn. I föstu- dagsblaðinu verður gerð grein fyrir leik- ritinu og frumsýn- ingu Leikfélags Akureyrar. Söngleikurinn Jesus ChristSuperstarverð- urfrumsýndur íveit- ingahúsinu Evrópu um helgina. Þettaer glænýuppfærslasem ersérstaklegagerð með veitingahús í huga. ^ ; i ' . ... -5" Fjórir nýirfram- haldsmyndaflokkar hefja göngu sína á skjánum í næstu viku, þará meðal nýir þættir um lög- regluforingjann Taggart. Sagt verð- urfrá þeim í föstu- dagsblaði DV á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.