Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Side 21
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988. .21 LíEsstíH Verslun við Suður-Afríku: Viðskiptabann ekki í gildi en verslun illa séð Eins og kunnugt er af fréttum hefur feröaskrifstofan Útsýn hætt viö fyrirhugaða ferð tii. Suöur-Afríku vegna bréfs sem utanríkisráðherra ritaöi félagi íslenskra ferðaskrif- stofa. í bréflnu fór utanríkisráð- herra þess á leit við ferðaskrifstof- ur að ekki yrðu famar skipulagðar ferðir til Suður-Afríku né neitt það gert sem flokkast gæti undir skipu- lagða atvinnustarfsemi þar. Það vekur furðu að á sama tíma er flutt inn talsvert magn ávaxta frá Suður-Afríku og virðist enginn hafa neitt við það að athuga. Niðursoðnir ávextir frá Libby’s, Del Monte og Gold Reef eru gjarnan frá Suður-Afríku og ferskir ávextir af tegundinni Cape eru einnig það- an. Aðrar þjóðir hafa látið í ljós vanþóknun á aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku með því að kaupa ekki vörur þaðan, eða hvað? DV keypti niðursuðuvörur frá Suður-Afríku á dögunum og voru dósirnar merktar á sænsku, norsku og finnsku, auk þess sem Tvær dósir með ávöxtum frá Suður-Afriku. DV-mynd BG !d 250g blandede frukter ValmistuRaja/Distribuerati av Ðistribuetes av DEL MONTEINTERNATIONALINC. P.O. BOX 3 STAINES, MIDDLESEX, ENGLAND LICENSEE OF DEL MONTE CORPORATION Valmistaja/Tillverkare/Produseri i SOUTH AFRICAN PRESERVING CO. CAPE TOWN, SOUTH AFRICA Dósirnar eru greinilega merktar upprunalandi á sænsku, norsku og finnsku. Skyldu þær fást í þessum löndum? Neytendur þeim var pakkað í Bretlandi. Þetta bendir eindregið til þess að við- skiptabann á Suður-Afríku sé bara í orði, ekki á borði. Þaö sem meira er, svo virðist sem ferskir ávextir, sem fáanlegir eru um þessar mund- ir, séu flestir annaðhvort frá Suður- Afríku eða ísrael. íslensk stjórnvöld hafa ekki séð ástæðu til þess að banna viðskipti við Suöur-Afríku. Þau hafa þó ekki setið aðgerðalaus. DV ræddi þessi mál við Helga Ágústsson, skrif- stofustjóra í utanríkisráðuneyti: „Það hafa ekki verið sett nein lög hér eins og á hinum Noröurlönd- unum um viðskiptabann á Suöur- Afríku. Ráðherra og forverar hans hafa þó farið þess á leit við fyrir- tæki að viðskiptum við Suður- Afríku verði haldið í lágmarki og þau verði nánast engin meðan mannréttindi eru fótum troðin í landinu. Einnig hefur þeim tilmæl- um veriö beint til stórra fyrirtækja og verkalýðsfélaga að þau kaupi ekki vörur frá Suður-Afríku.“ Að sögn Helga þá hefur þetta gert þaö að verkum að innflutningur á vörum frá Suður-Afríku er að til- tölu mjög lítill. En meö þessu er ekki öll sagan sögð. Þær vörur, sem DV náöi í, eiga það sameiginlegt að þær eru merktar breskum dreifmgaraðil- um þó upprunaland sé merkt Suður-Afríka. Þá er 'spurningin bara, hvaða land kemur fram á innflutningsskýrslum? U pplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? i i Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- | andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar | íjölskyldu af sömu stærð og yðar. . | I Nafn áskrifanda Heimili_____________________________________________ j Sími________________________________________________ j i Fjöldi heimilisfólks________ i Kostnaður í febrúar 1988: ____________________________________________________ i Matur og hreinlætisvörur kr. __________________' Annað kr. ____________________ I I Alls kr. | I I Anna Bjamason, fréttaritari DV í Denver Það er engum erfiðleikum bund- ið að skila vörum aftur hér í landi. Svo lengi sem þú hefur geymt strimihnn er hægt að fá vörunni skilað og meira að segja endur- greidda ef viðskiptavinurinn vill. Hér hefur viðskiptavinurinn alltaf á réttu að standa, alveg sama hvernig í pottinn er búið. í stórverslunum er sérstakt af- greiðsluborð sem kallað er „Þjón- usta við viðskiptavini”. Þangað er fariö með varning sem viðkomandi ætlar að skila. Spurt er af hverju þú sért að skila vörunni og síðan ekkert gengiö nánar eftir því. Við lentum í því á dögunum að ritvél, sem við keyptum nýlega, skemmdist í ferðatösku er viö vor- um á ferðalagi. Fyrst ætluðum við að athuga hvort ferða/farangurs- tryggingin okkar (Eurocard) bætti svona skaða, en svo var ekki. Við höfðum samband við International Air Passengers Association, gull- kort, sem lítið hefur veriö gumað af heima og er í sambandi við Eurocard. Kortiö okkar var ekki einu sinn á skrá hérna i Ameríku, svo ekkert var þar aö hafa. Flugfélagið vildi ekkert fyrir okk- ur gera vegna þess að ekki hafði verið merkt á töskuna að í henni væri ritvél. Fengum nýja vél Þá fórum við með ritvélina aftur í búðina og ætluðum að athuga hvort þeir vildu bæta hana. Af- greiðslustúlkan í viðskiptamanna- deildinni spurði hvað væri að, og við sögðum að ekki væri hægt að skrifa á vélina sem við höfðum keypt fyrir tæpum mánuði. Ekkert var spurt nán,ar út í þetta, aöeins hvort við vildum fá nýja vél eða peningana til baka. Við vildum fá nýja vél. En þegar til átti að taka var þessi tegund uppseld. Þá var óöara hringt í aðra verslun, sömu tegundar, í nágrenninu. Þar voru til sams konar vélar og við fórum þangað og gengum út með nýja vél. Verður að viðurkennast að við vorum með dálítið samviskubit, en hugguöum okkur við að við tækj- um sjálf þátt í kostnaðinum við þetta. Svona nokkuð er örugglega reiknað inn í verð vélarinnar í upp- hafi. Það var svo sem ekki himin- hátt, vélin, sem er Brother rafmagnsritvél, mjög fullkomin, kostaði 177 dollara eða sem svarar rétt um 7000 ísl. krónum. En við heyrðum af íslenskum námsmanni, sem svo sannarlega „notfærði" sér þessa þjónustu. Eða réttara sagt, misnotaði hana eigin- lega enn meira en við gerðum. Hann keypti sér húsgögn á út- sölu. Skömmu seinna lauk útsöl- unni, þá skilaði maöurinn húsgögnunum og fékk þau endur- greidd á fullu verði. Eftir skamman tíma var aftur útsala, á sams konar húsgögnum og þá keypti vinurinn þau aftur, á útsöluverði. Þegar þessi ungi námsmaður fór svo heim til íslands var óhentugt að taka húgögnin með sér, svo hann hafði engin umsvif og bara skilaði þeim aftur í verslunina og fékk pening- ana til baka enn á ný. Þetta kallar maður að „notfæra” sér hlutina út í ystu æsar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.