Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Side 41
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988.
41
Fólk í fréttum
Geir Magnússon
Geir Magnússon viðskiptafræö-
ingur hefur verið í fréttum DV
vegna brottvikningar hans úr starfi
aðstoðarforstjóra Iceland Seafood í
Bandaríkjunum. Geir er fæddur 31.
maí 1933 í Rvík og varð viðskipta-
fræðingur frá HÍ 1959. Hann var
viðskiptafræðingur hjá Coldwater
Seafood Corporation í New York
1960-1974 og Icelandic Imports,
Inc., hjá Álafossi í New York
1974-1975. Geir hefur starfað hjá
Iceland Seafood Corporation í
Camp Hill í Pennsylvaníu frá 1.
mars 1975.
Gðir kvæntist 21. september 1957
Ragnheiði Hermannsdóttur, f. 17.
júní 1938, skrifstofumanni í Rvík.
Foreldrar hennar voru Hermann
Hermannsson, forstjóri Sundhallar
Rvíkur, og Torfhildur Baldvins-
dóttir, hárgreiðslumeistari Þjóð-
leikhússins. Geir og Ragnheiður
skildu 1965. Börn Geirs og Ragn-
heiðar eru Guðrún, f. 27. nóvember
1957, MA í kennslufræði frá Banda-
ríkjunum og kennari við Grundar-
skólann á Akranesi, og Ragnar
Torfi, f. 14. júní 1960, tölvufræðing-
ur í Bandaríkjunum, sambýliskona
hans er Halla Jóhannsdóttir, við-
skiptafræðinemi í Bandaríkjunum.
Geir kvæntist aftur 10. júlí 1966
Kathleen Russo, f. 7. desember 1942.
Börn Geirs og Kathleen eru Geir,
f. 5. september 1968, Ari, f. 27. júlí
1970, og Júlía, f. 13. janúar 1972.
Systur Geirs eru Helga, f. 29.
mars 1927, gift Robert McCarthy,
flugumferðarstjóra i San Frans-
isco, sem er látinn; Sigrún, f. 7.
nóvember 1929, gift Vito Luche,
fyrrv. veitingamanni í San Fran-
cisco; Ástríður, f. 16. júlí. 1931, gift
Martin, sölumanni í San Francisco;
og Þóra, f. 22. maí 1937, gift Ingva
Guðjónssyni, deildarstjóra hjá
Efnaverksmiðjunni Sjöfn.
Foreldrar Geirs voru Magnús
Jochumsson, póstmeistari í Rvík,
og kona hans, Guðrún Geirsdóttir.
Föðursystir Geirs, sammæðra, er
Margrét, amma Jóns L. Árnasonar
stórmeistara. Magnús var sonur
Jochums, verslunarstjóra á
ísafirði, Magnússonar, kaupmanns
á ísafirði, bróður Matthíasar
skálds. Magnús var sonur Joch-
ums, b. í Skógum í Þorskafiröi,
Magnússonar. Móðir Jochums var
Sigríður, systir Þorbjargar,
langömmu Finnbogu, ömmu Ein-
ars Benediktssonar sendiherra.
Sigríður var dóttir Ara, b. á Reyk-
hólum, Jónssonar og konu hans,
Helgu Árnadóttur, prests í Gufu-
dal, Ólafssonar, lögsagnara á Eyri,
Jónssonar, langafa Jóns forseta og
Jens, langafa Jóhannesar Nordals.
Móðir Magnúsar kaupmanns- var
Þóra Einarsdóttir, systir Guö-
mundar, fóður Theodóru Thor-
oddsen skáldkonu og Ásthildar
Thorsteinsson, móður Muggs.
Móðir Magnúsar póstmeistara var
Aðalbjörg Jónsdóttir, b. í Mið-
húsum í Skagafirði, Björnssonar,
b. í Glæsibæ í Skagafiröi, Hafliða-
sonar. Móðir Björns var Herdís
Gísladóttir, b. i Ásgeirsbrekku í
Skagafiröi, Þorlákssonar, b. í Ás-
geirsbrekku, Jónssonar, ættfóður
Ásgeirsbrekkuættarinnar, fóður
Halldóru, langömmu Hallgríms,
langafa Guðjóns B. Ólafssonar, for-
stjóra SÍS. Móöir Gísla var Ingi-
björg Guðmundsdóttir, b. á
Auðólfsstöðum, Steingrímssonar,
b. á Hofi í Vesturdal, Guömunds-
sonar, ættíoður Steingrímsættar-
innar yngri. Móðir Aðalbjargar var
Þuríöur Pétursdóttir. Móðir Þurið-
ar var Ingibjörg Guðmundsdóttir,
b. á Kálfastöðum i Hjaltadal, Hall-
dórssonar, bróður Stefáns, langafa
Kristjáns Eldjárns, afa Kristjáns
Eldjárns forseta.
Guðrún var dóttir Geirs Zoega,
útgerðarmanns og kaupmanns í
Rvík, bróður Tómasar, langafa
Geirs Hallgrímssonar seölabanka-
stjóra. Geir var sonur Jóhannesar
Zoega, glerskera í Rvík, Jóhannes-
arsonar Zoega, fangavarðar í Rvík.
Móðir Geirs var Ingigerður Ingi-
mundardóttir, b. á Völlum á
Kjalarnesi, Bjarnasonar, fóður
Helgu, langafa Haralds, föður
Matthíasar Johannessens skálds.
Móðir Guðrúnar var Helga Jóns-
dóttir, b. á Stóra-Ármóti, Eiríks-
sonar, b. og dbrm. í Kampholti í
Flóa, bróður Þorsteins, langafa
Guðnýjar, móður Vals Arnþórs-
sonar. Eiríkur var sonur Helga, b.
á Sólheimum, Eiríkssonar, b. í Bol-
holti, Jónssonar, ættföður Bol-
holtsættarinnar. Móðir Helgu var
Hólmfríður, systir Höllu, ömmu
Gunnlaugs Schevings listmálara.
Geir Magnusson.
Hólmfríður var einnig systir Magn-
úsar, langafa Sveinbjarnar Dag-
fmnssonar ráðuneytisstjóra.
Hólmfríður var dóttir Árna, b. á
Stóra-Ármóti, Magnússonar, b. í
Þorlákshöfn, Beinteinssonar, lög-
réttumanns á Breiðabólstað í
Ölfusi, Ingimundarsonar, b. í Hól-
um í Stokkseyrarhreppi, Bergsson-
ar, b. í Brattholti, Sturlaugssonar,
ættíoður Bergsættarinnar.
Afmæli
NHs Isaksson
Nils ísaksson, fyrrv. verslunar-
maður, Boðahlein 8, Garðabæ, er
níutíu og fimm ára í dag. Nils fædd-
ist á Eyrarbakka og ólst þar upp
en faðir hans var þar verslunar-
maður hjá hinni gömlu dönsku
verslun Lefoliis á Eyrarbakka. Nils
hóf þar störf innanbúðar fljótlega
eftir fermingu en fór svo síðar til
Ólafsvíkur þar sem hann var versl-
unarstjóri við verslun Garðars
; Gíslasonar. Nils flutti svo til Siglu-
ijarðar þar sem hann stundaði
verslunarstörf og var síðan skrif-
stofustjóri hjá Síldarútvegsnefnd
ríkisins, en á Siglufirði bjó hann í
íjörutíu ár. Hann kom svo til
Reykjavíkur en býr'nú í Garðabæ.
Kona Nils er Steinunn Stefáns-
dóttir, b. í Fljótum, Benediktsson-
ar. i
Nils og Steinunn eiga fjögur börn.
Þau eru: Gústaf, framleiðslustjóri
Kísihðjunnar við Mývatn, en hann
er kvæntur Þóru Ölafsdóttur og
eiga þau þrjú börn; Ólafur, endur-
skoðandi og fyrrv. skattrannsókn-
arstjóri, kvæntur Guðrúnu
Ólafsdóttur, en þau búa í Garðabæ
og eiga þrjár dætur; Bogi rann-
sóknarlögreglustjóri, kvæntur
Elsu Ingeborg, dóttur Bernhards
Petersen stórkaupmanns,, en þau
búa í Reykjavík og eiga þrjú börn;
Anna húsmóðir, gift Friðriki Hjart-
ar, sóknarpresti í Ólafsvík, en þau
eru búsett þar og eiga þrjú börn.
Nils átti fimm alsystkini og fimm
hálfsystur en á nú einn bróður á
lífi. Sá er Óli Magnús, fyrrv. for-
stjóri og starfsmaður Heklu í
Reykjavík, en hann varð níræður
26.1. sl. Önnur alsystkini Nils voru
Ólöf, móöir Ólafs G. Einarssonar,
formanns þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins; Ingibjörg, kona Jóhanns
Kr. Briem, prests á Melstaö, og
móðir Sigurðar Briem deildar-
stjóra í menntamálaráðuneytinu;
Júlía, sem dó ung; og Bogi sem lést
1951. Hálfsystur Nils frá fyrra
hjónabandi föður hans eru allar
látnar.
Foreldrar Nils voru ísak Jakob,
verslunarmaður á Eyrarbakka,
Jónsson, og Ólöf Ólafsdóttir. Föð-
urbróðir Nils var Vilhelm Frí-
mann, faðir Karenar, móöur Sigga
flug. Annar íöðurbróðir Nils var
Kristófer, b. í Vindási og Galtalæk,
faðir Finnbjargar, konu Árna Páls-
sonar prófessors. Föðurforeldrar
Nils voru Jón, b. á Vindási í Land-
sveit, Þorsteinsson, og Karen,
dóttir ísaks sýslumannsBonnesen
á Velli í Hvolhreppi og konu hans,
Önnu Kristínar Ohlmann,
langömmu Ellerts Kristófers, afa
Ellerts B. Schram ritstjóra. Meöal
móðursystra Nils var Sesselja,
Nils Isaksson.
móðir Ólafar, móður Hallgríms
tónskálds Helgasonar, Sigurðar,
stjórnarformanns Flugleiða, og
Ástríðar, konu Hans G. Andersen.
Meðal móðurbræðra Nils var Berg-
steinn, faöir Gizurar, fyrrv. hæsta-
réttardómara, fóður Sigurðar
bæjarfógeta, Lúðvíks hrl. og Berg-
steins brunamálastjóra. Móðurfor-
eldrar Nils voru- Ólafur, b. á
Árgilsstöðum í Hvolhreppi, Arn-
björnsson, af Kvoslækjarættinni í
Fljótshlíð, og Þuríður Bergsteins-
dóttir, systir Jóhannesar, afa
Gunnars Bergsteinssonar forstjóra
Landhelgisgæslunnar.
Sigríður Kristín Jónsdóttir
Sigríður Kristín Jónsdóttir hús-
móðir, Birkilundi, Stokkseyri, er
fertug í dag. Hún fæddist á Stokks-
eyri og ofst þar upp. Á unglingsár-
unum hóf hún afgreiðslustörf og
stundaði þau um skeiö.
Sigríður Kristín giftist 31.12.1968
Ólafi, f. 11.6. 1947, vörubílstjóra á
Stokkseyri. Foreldrar Ólafs eru
Auðunn, b. á Bakka í Ölfusi og í
Nikulásarhúsum í Fljótshlíð qg síö-
ar starfsmaður Kaupfélags Árnes-
inga, Pálsson, f. 8.8. 1908, d. 1966,
og Soffia Gísladóttir, f. 25.9. 1907.
Sigríður Kristín og Ólafur eiga
fjögur börn. Þau eru: Sesselja Jóna,
f. 1968, starfsmaður í frystihúsinu
á Stokkseyri; Auður Hlín, f. 1976;
Ólafur Már, f. 1980; og Auöunn, f.
1982.
Sigríöur Kristin á þrjú systkini.
Þau eru: Jón Áskell, b. á Skarði í
Gnúpverjahreppi, kvæntur Guð-
björgu Kristinsdóttur, en þau eiga
þrjú börn; Gunnar Valur, varð-
stjóri á Litla-Hrauni, en hann á tvö
.börn; og Ragnhildur, húsmóðir á
Stokkseyri, gift Jóni Hallgrímssyni
stýrimanni, en þau eiga sex börn.
Foreldrar Sigríðar Kristínar: Jón
í Söndu á Stokkseyri, Jónsson,
verkstæðisformaður þar á bifvéla-
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstand-
endur þeirra til að senda því myndir og
upplýsingar um frændgarð og starfssögu
þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast
í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Sigriður Kristin Jónsdóttir.
verkstæði, f. 10.8. 1908, og kona
hans, Sesselja Hróbjartsdóttir, f.
15.3. 1918. Föðurforeldrar Sigríðar
Kristínar: Jón, b. á Loftsstöðum,
Jónsson og kona hans, Ragnhildur
Gísladóttir. Móðurforeldrar Sigríð-
ar Kristínar: Hróbjartur, b. í
Mjósundi í Villingaholtshreppi,
Hannesson og kona hans, Guðtmna
Steinsdóttir.
Omar, Hermann, Lúðvík
og Smári Lúðvíkssynir
Ómar Vignir Lúðvíksson, tré-
smíöameistari og oddviti á Hellis-
sandi, til heimilis að Keflavíkur-
götu 7, Hellissandi, er fertugur í
dag. Svo skemmtilega vill til að
bræ.ður hans þrír eiga allir stóraf-
mæli nú á næstunni: Hermann
verður þrjátíu og fimm ára 3.4.
nk„ Lúðvík verður fjörutíu og
fimm ára á sunnudaginn og Smári
verður fimmtugur 14.3. nk.
Kona Ómars er Kay Wiggs frá
Norður-Karólínu í Bandaríkjun-
um, dóttir Vernons Wiggs verslun-
areiganda og Mamie Wiggs
kennara.
Ómar og Kay eiga tvö börn. Þau
eru Lísa Anne, f. 1983, og Ari Bent,
f. 1985.
Hermann er rafvirki í Reykjavík
og stafar hjá Samvirkja hf. Kona
Hermanns er Steinunn Erla, dóttir
Árna K. Jónssonar, bifreiðarstjóra
í Reykjavík, sem er látinn, og Jó-
hönnu M. Kjartansdóttur.
Börn Hermanns og Steinunnar
Erlu eru Eva Hlín, f. 1979, Elfa
Björk, f. 1983, og óskírður drengur,
f. 1987.
Lúövík er trésmíðameistari en
starfar nú hjá slökkviliðinu í
Reykjavík’. Kona Lúðvíks er Stein-
unn, frá Hellu á Hellissandi, dóttir
Kristófers Snæbjörnssonar og
Svanhildar Snæbjörnsdóttur.
Börn Lúðvíks og Steinunnar eru
Valgarður, rafvirki í Reykjavík, f.
1964, Guðmunda Arna verslunar-
skólanemi, f. 1969, Lúðvík nemi, f.
1972, og Guðbrandur Elí.'f. 1979.
Smári er trésmíðameistari en
starfar nú sem húsvörður við
Grunnskólann á Hellissandi. Kona
Smára er Auður Alexandersdóttir
frá Stakkhamri í Miklaholtshreppi,
dóttir Alexanders Guðbjartssönar,
og Kristjönu Bjarnadóttur.
Börn Smára og Auðar eru Alex-
ander Kristinn, læknir á Akureyri,
f. 1960, Lúðvík Ver, kennari við
Grunnskólann á Hellissandi, f.
1961, Örn, nemandi við Fjölbrauta-
skólann á Akranesi, f. 1967, og
Hildigunnur, nemi í MA, f. 1969.
Þeir bræöurnir eiga þrjár systur.
Þær eru Þórdís, húsmóðir í Kópa-
vogi, f. 25.9. 1940, gift Björgvini
Ólafssyni verkstjóra, og eiga þau
þrjú börn; Sigríöur, húsmóðir í
Reykjavík, f. 11.101944, gift Runólfi
Grétari Þórðarsyni trésmíðameist-
ara, og eiga þau þrjú börn; og Helga
Ágústína, f. 4.5. 1960, starfsmaður
hjá Pósti og síma í Reykjavík.
Foreldrar þeirra systkina eru
Lúðvík Albertsson frá Súðavík sem
lengst af stundaði verslunarstörf,
f. 13.7.1912, d. 1987, og kona hans,
Veroníka Hermannsdóttir frá Hell-
issandi, f. 23.6.1918. Föðurforeldrar
systkinanna voru Albert sjómaður
Einarsson í Súðavík og Þórdís
Magnúsdóttir. Foreldrar Veroníku
voru Hermann sjómaður Her-
mannsson og Ágústína frá Mið-
húsum, Kristjánsdóttir.
90 ára
Guðrún Jónsdóttir, Skólavegi 36A,
Búðahreppi, er sextug í dag.
Lussía Guðmundsdóttir, Viðborðsseli
I, Mýrahreppi, er níræð í dag.
50 ára
75 ára
Sveinn G. Kristjánsson, Fomastekk
12, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í
dag.
Gróa Svava Helgadóttir, Stigahlíð 18,
Reykjavík, er sjötiu og fimm ára í dag.
70 ára
28,
Rósa Ólafsdóttir, Eikjuvogi
Reykjavík, er sjötug í dag.
Valborg Guðrún Eiríksdóttir, Þóm-
felli 14, Reykjavík, er sjötug í dag.
Guðlaug Pálsdóttir, Langholtsvegi
144, Reykjavík, er sjötug í dag.
Björg Þorkelsdóttir, Nesvegi 57,
Reykjavík, er sjötug í dag.
Unnur Halldórsdóttir, Hrafnhólum 8,
Reykjavík, er fimmtug í dag.
Jón Wium Hansson, Bólstaðarhlíð 31,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Grétar H. Óskarsson, Seiðakvísl 38,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Jóhannes Magnús Þórðarson, Kross-
nesi, Álftaneshreppi, er fimmtugur í
dag. í tilefni þess tekur hann á móti
gestum á heimili sínu á laugardaginn.
Anna R. Hallgrímsdóttir, Sunnubraut
6, Laxárdalshreppi, er fimmtug í dag.
Anna Lilja Stefánsdóttir, Aðalgötu 13,
Árskógshreppi, er fimmtug í dag.
40 ára
60 ára
Ragna Karlsdóttir, Ólafsvegi 47, Ólafs-
firði, er sextug í dag.
Eiríka Inga Þórðardóttir, Vesturbergi
74, Reykjavík, er fertug í dag.
Haraldur Kr. Olgeirsson, Einilundi 9,
Garðabæ, er fertugur í dag.
Sigurður S. Ketilsson, Breiðvangi 31,
Hafnarfirði, er fertugur í dag.
Ásta B. Marteinsdóttir, Heiðargerði
30, Vatnsleysustrandarhreppi, er fer-
tug í dag.