Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988. Ármennl5ára Þaö var fjölmcnni á 15 ára af- mæli Ármanna um helgina í félags- heimili þeirra aö Dugguvogi sem gefið var nafniö Árósar í afmælinu. „Við erum hérna í næsta nágrenni við árósa Elliðaánna og nafnið passar því vel,“ sagði Guöni „ís- lenskusérfræðingur" Kolbeinsson sem gaf félagsheimilinu nafn. „Líklega hafa mætt í afmælið hjá okkur um 70 manns og þetta gekk vel. Menn borðuðu nægju sína af Ármannatertunni og fengu sér kafíi og kók með. Þarna voru veiði- menn á öllum aldri samankomnir," sagöi tíðindamaöur okkar á staðn- um undir lok hófsins G. Bender Tertan glæsilega snædd i afmæl- inu. DV-mynd G. Bender Sviðsljós Olyginn sagði... Cornelis Vreeswijk sænski vísnasöngvarinn snjalli, lést um mitt síðasta ár eins og margir vita eflaust. Ein af hans síðustu óskum var að stofnað- uryrði sjóðurtil hjálpar ungum, efnilegum en félitlum lista- mönnum. Nú fyrir skömmu varð draumur hans að veru- leika og var stofnaður sérstakur sjóður með þessu markmiði í Stokkhólmi á dögunum sem tileinkaður er honum. Kari Storækre, sem áður var gift njósnaranum Arne Treholt, á nú von á barni með nýjum eiginmanni sinum, Ake Wilhelmsson. Hefurhafiðnýtt ]fi í Svíþjóð Kari Storækre, fyrrverandi eigin- kona njósnarans Arne Treholts, hefur nú hafið nýtt líf sem sænskur þegn. Hún er nú gift sjónvarpsmann- inum sænska, Áke Wilhelmsson, sem er 55 ára gamall. Sjálf er Kari Stor- ækre 37 ára og á 10 ára son, Thor- stein, með Arne. Hann býr hjá móður sinni og Áke sem hefur komið hon- um í föðurstað. Nýlega tilkynnti Kari að hún ætti von á barni og kom það henni sjálfri mjög á óvart. Kari og Áke eru aðeins búin að vera gift í hálft ár og búa í Stokkhólmi. Hann hefur verið i 25 ár hjá sænska ríkisútvarpinu, bæði hljóðvarpi og sjónvarpi. Hann hyggst hætta í sínu starfí og þau ráðgera að vera með sjónvarpsþátt sem bera á heitið „Godmorgen Scandinavia". Kari var þekktur dagskrárgerðar- maður í Noregi áður en ósköpin dundu yfir með Arne Treholt. Sendirfrásérnýjamynd . Leikstjorinn Louis Malle er kvæntur leikkonunni kunnu, Candice Bergen, en þau sjást hér við frumsýningu myndar Malle’s „Au Revoir les Enfants". Símamynd Reuter Hinn frægi franski leikstjóri Louis Malle er nýbúinn að senda frá sér nýja kvikmynd er ber heitið „Au Revoir les Enfants”. Hún byggir á sjálfsævisögumolum úr bernsku Louis Malle þar sem hann minnist þrettán ára gamals bekkjarbróður síns sem var gyðingur og sendur í útrýmingarbúðir nasista. Hinn 57 ára gamli Louis Malle er ekki aðeins þekktur í heimalandi sínu fyrir myndir sínar heldur hefur hann framleitt nokkrar myndir í kvikmyndalandinu Bandaríkjunum sem náö hafa miklum vinsældum. Þar má telja myndir eins og „Pretty Baby“, „Atlantic City“ og „My dinn- er vith André". Louis Malle er kvæntur bandarísku leikkonunni Candice Bergen. Michael Jackson afhenti forseta söfnunarsjóðs til styrktar svertingjum í fram- haldsskólum, Christopher Edley, tæpar tuttugu og fjórar milljónir króna sem söfnuðust á hljómleikum fyrir skömmu. Simamynd Reuter Rausnarleg gjöf Þótt margt misjafnt hafi verið sagt milljónir króna sem Michael afhenti um Michael Jackson er ekki hægt sjóði til styrktar svertingjum í fram- að segja annað en að hann hafí til haldsskólum í Bandaríkjunum. að bera góða kosti. Hann tók sig til Michael Jackson er sérlega fram- í síðustu viku og hélt styrktartón- takssamur í tónlistarmálum þessa leika í Madison Square garði í dagana, enda þykir hann líkiegur til heimsborginni New York. Alls söfn- þess að hljóta fjölda grammy-verð- uðust tæplega tuttugu og ijórar launa þegar þau verða afhent. Ólafur Ó. Jónsson og Engilbert Jensen i heimspekilegum umræð- um. DV-mynd G. Bender Valdór Bóasson, einn af stjórnarmönnum i Ármönnum, ræðir málin við Árna ísaksson veiðimálastjóra og umræðuefnið er auðvitað veiði. DV-mynd G. Bender Whitney Houston Sigurður Pálsson, félagi númer 100 í Ármönnum, smakkar á tert- unni góðu. DV-mynd ÁÞS á móður sem heitir Cissy Hou- ston. Hún er söngvari eins og Whitney en hefur aðallega sungið trúarlega söngva. Whit- ney kom móður sinni mjög á óvart með því að tilkynna henni að hún ætlaði að eyða um 200 milljónum króna af eigin fé til þess að taka upp lög með sér og móður sinni og ætti að taka öll herlegheitin upp á myndband. Síðan er ætlunin að setja allt saman á markað um næstu jól. Rod Stewart á átta ára gamla dóttur og sjö ára gamlan son og eins og gengur og gerist þá heldur hann stundum afmælisveislur fyrir þau. En Rod Stewart er ekkert fyrir hefðbundnar af- mælisveislur og því lét hann krakkana í afmælisveislunni fara í sérstakan leik sem fólst í jví að finna tuttugu dollara seðla sem hann hafði falið. Fyrsti krakkinn, sem tókst að safna þannig 100 dollurum, fékk að gjöf mini-útgáfu af Mercedes Benz að verðmæti 2 hundruð þúsund krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.