Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Page 48
FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Rftstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreif'jig: Sími 27022 Leki kom að Stál- - víkinni Leki kom að togaranum Stálvík frá Siglufirði í gær. Tekist hefur að þétta skipið. Þegar verið var að lagfæra víra sem lágu á milli Stál- víkur og danska flutningaskipsins Kongsaa, sem er vélarvana, rákust skipin saman meö þeim afleiðing- um að leki kom að báðum skipun- um. Stálvík hafði haft Kongsaa í togi frá því aðfaranótt miðviku- dags. Meiri leki kom að Stálvíkinni en Kongsaa. Lekinn er í vélarrúmi Stálvíkur og var hann það mikill að dælur skipsins höföu ekki und- an. Komið var með dælur úr landi og einnig komu froskmenn úr landi og með aðstoð þeirra tókst að þétta lekann. Lekinn í Kongsaa kom á stafnhylki skipsins. Bæði skipin liggja nú á Gunnólfs- vík og er hvorugt skipanna eða áhafnirnar í hættu. Kongsaa liggur fyrir festum. Togarinn Sigluvík er á leið til skipanna og er áætlað að Sigluvíkin dragi Kongsaa til Seyð- isfjarðar. -sme m Reykjavíkurskákmótið: Jón L. Árnason eraðstingaaf Þröstur Þórhallsson gaf biðskákina gegn Jóni L. Árnasyni i gær, án þess að tefla hana, og þar með er Jón kom- inn með 6,5 vinninga af 7 möguleg- um, einum og hálfum vinningi meira en næstu menn. Úrslit í öðrum biöskákum í gær urðu þau að Zsuzsa Polgar og Mar- geir Pétursson gerðu jafntefli, sömuleiðis Halldór G. Einarsson og Schön en Walter Browne vann Sæv- ^ ar Bjarnason. Margeir og Browne eru komnir með 4,5 vinninga eftir þessar bið- skákir en fimm skákmenn eru með 5,0 vinninga. í gær var frídagur hjá öðrum en biðskakareigendum. í kvöld verður 8. umferðin tefld en mótinu lýkur næstkomandi sunnudag. -S.dór LOKI Man nokkurhin margauglýstu slagorð SÍS? Vinnum saman! Bílstjórarnir aðstoða . smm ssnDiBiinsTöÐin Okuimálið: Ný dómsrannsókn í máli Hermanns Vegna kröfu verjanda Hermanns Björgvinssonar er hafin ný dóms- rannsókn á máli Hermanns. Ólöf Pétursdóttir, dómari við Sakadóm Kópavogs, hefur málið til meðferð- ar og sagði hún að nú væri verið að yfirheyra Hermann og áætlað væri að yfirheyrslur yfir vitnum hæfust snemma í næstu viku. Verjandi Hermanns krafðist nýrrar dómsrannsóknar vegna breytinga sem gerðar voru á kæru á hendur Hermanni. Ólöf Péturs- dóttir sagði að óneitanlega tefði dómsrannsóknin gang málsins en hversu mikið er erfitt að segja til um. Unnið er í málinu alla daga og ennþá er erfitt að segja til um hven- ær dómur í Sakadómi Kópavogs fellur i málinu. Bréytingar á ákærunni á hendur Hermanni Björgvinssyni voru gerðar eftir dóm Hæstaréttar í einu þeirra mála sem tengjast okur- málnu. í þeim dómi sagði að Seðlabanki heföi 2. ágúst 1984 horf- ið frá þvi að ákveða hámark vaxta. Hæstaréttardómurinn var kveðinn upp í desembermánuði 1986. -sme Fundað um bjór til miðnættis Ekki tókst að ljúka atkvæða- greiðslu um bjórmálið til 2. umræðu á Alþingi í gær þó fundað væri fram til miðnættis. Þetta er í þriðja skipti sem málið kemur til 1. umræðu en ljóst er að fjórar umræður þarf til að koma málinu aftur til nefndar og 2. umræðu. Fundur verður í neðri deild í dag og verður þá gengið til atkvæða. Það var laust eftir kl. 14 í gær sem byrjað var að ræða um bjórinn en fundi var ekki slitið fyrr en um mið- nætti svo að það er ljóst að málið fer ekki órætt til 2. umræðu. Reyndar var tvisvar gert hlé á umræðunni en þeir sem tala gegn bjór hófu umræðu um þingsköp og mótmæltu kvöld- fundi um málið - sögðu það enn eitt dæmið um að að knýja ætti málið áfram með látum. -SMJ Það var ekki amalegt, veðrið í höfuðborginni í gær. Þessi samborg- ari fylgdist grannt með tímanum og leit hvatlega á klukkuna áður en hann vatt sér út úr húsasundi á Skólavörðuholti og út í blíðuna í borginni. DV-mynd KAE Kjarasamningamir Felldir á Höfn og í Hafiiaifirði í gærkveldi voru nýju kjarasamn- ingarnir felldir bæði á Höfn og í Hafnarfirði. Á fundi Verkakvennafé- lagsins Framtíðarinnar í Hafnarfirði voru samningamir felldir með 94 atkvæðum gegn 8 en hjá Jökli á Höfn með 83 atkvæöum gegn 3. Á þremur stöðum hafa samning- arnir aftur á móti verið samþykktir, í Stykkishólmi, í Keflavík og hjá Dagsbrún. Þar sem samningamir hafa verið felldir munu verkalýðsfélögin óska eftir viðræðum við atvinnurekendur heima í héraði. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bandsins, sagði í samtali við DV að þessum nýja kjarasamningi yrði ekki hnikað. Fiskvinnslan væri áfram rekin með tapi þrátt fyrir aðgerðir ríkisstjórnarinnar og hún gæti ekki tekið á sig meira en fælist í nýgerðum kjarasamningum. Að sögn Þórarins mun Vinnuveitendasambandið stýra samningaviöræðum á hveijum stað fyrir hönd sinna meðlima. -S.dór Þingmannanefnd um vanda refabænda: Sumum bjaigað en ekki öllum „Það er ljóst að það þarf þó nokkuð mikið fé að bjarga refabændum og greinilegt er að ekki verður öllum bjargaö í þessari grein,“ sagði Stefán Guðmundsson, formaður þing- mannanefndar sem landbúnaðarráð- herra skipaði til að íjalla um vanda refabænda. Nefndin hefur skilað frá sér niðurstöðu sem hún varð sam- mála um að sögn Stefáns. Niðurstöð- ur hafa verið kynntar þingflokkum og ríkisstjórnin tók málið fyrir í morgun. Stefán sagði að ekki væri unnt að gefa upp að svo stöddu hve miklum fjármunum þyrfti að verja til að koma rekstri refabænda á réttan kjöl. Stefán sagði þó að það væri nið- urstaða nefndarinnar aö rétt væri að koma refabændum til hjálpar til að nýta þá þekkingu og mannvirki sem byggst hafa upp í greininni og glata ekki þeim ijárfestingum sem þar eru fyrir hendi. Fé yrði varið til bænda og fóðurstöðva og reynt yrði að aðstoöa menn til að söðla yfir í minkarækt. -SMJ Veðríð á morgun: Bjart veður suðaustan- lands Á morgun veröur hæg vestan- og norðvestanátt með lítilsháttar snjó- eða slydduéljum á Vestur- og Norð- urlandi en bjart veður á Suðaustur- landi. Vægt frost verður á Noröausturlandi en annars staðar 0 til 3ja stiga hiti. Hnrfstungu- maðurinn í gæslu- varðhald Unghngspilturinn, sem stakk jafnaldra sinn með hnífi í sölut- urni við Vesturgötu á þriðju- dagskvöldið, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. mars. Honum hefur einn- ig verið gert að sæta geörann- sókn. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.