Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
Viðskipti
Tölvuráðgjafar þiggja sölulaun
- fá greitt fyrir að beina viðskiptum til ákveðinna tölvufyrirtækja
„Því miður eru mörg dæmi um að
tölvuráðgjafar hafi þegið þóknun frá
söiuaðilum hug- og vélbúnaðar, jafn-
vel án vitundar verkkaupa. Það er
ljóst að hagsmunir ráðgjafans geta
verið verulegir. Ekki er óalgengt að
greidd sé 10 til 20 prósent þóknun af
minni kerfum, og 5 til 10 prósent af
stærri kerfum. Það er því ljóst að
þóknunin getur numið milljónum
þegar stærri kerfi eru keypt.
Kalla sig tölvuráðgjafa en eru
í reynd sölumenn
Þetta er úr grein Halldórs Kristj-
ánssonar verkfræðings í nýjasta
liefti Tölvumála, tímariti Skýrslu-
tæknifélags íslands. Grein þessi
hefur vakið athygli margra. Halldór
fullyrðir að siöleysi ríki hjá mörgum
þeim sem gefi sig út fyrir að vera
tölvuráðgjafar og menn í viðskipta-
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 19 20 Ib.Ab
Sparireiknmgar
3jamán. uppsogn 19 23 Ab.Sb
6 mán. uppsogn 20 25 Ab
12 mán. uppsogn 21 28 Ab
18mán. uppsogn 32 Ib
Tékkareikningar, alm. 8 12 Sb
Sértékkareikningar 9 23 Ab
Innlán verötryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
• 6mán.uppsógn 3.5 4 Ab.Úb, Lb.Vb, Bb.Sp
Innlán með sérkjörum 19 28 Lb.Sb
Innlán gengistryggð
Bandarikjadali'r 5.75 7 Vb.Sb
Sterlingspund 7,75 8,25 Ob
Vestur-þýsk mork 2 3 Ab
Danskarkrónur 7,75-9 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útláraóverðtryggð
Almenmr vixlar(forv) 29,5 32 ■ Sp
Viöskiptavixlar(forv) (1) kaupgenqi
Almenn skuldabréf 31 35 Sp
Vidskiptaskuldabréf (1) kaupqengi Allir
Hlaupareiknmgar(yfirdr) 32,5 36 Sp
Útlán verðtryggð
Skuldabréf 9.5-9,75 Allir nema Ub
Útlán tíl framleiðslu
isl.krónur 30.5 34 Bb
SDR 7,75 8,25 Lb.Bb, ~
Sb
Bandarikjadalir 8,75 9,5 Lb.Bb, Sb.Sp
Sterlingspund 11 11,5 Ub.Bb, Sb.Sp
Vestur-þ'-sk mórk 5 5,75 * Ub
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5 9
Dráttarvextir 45,6 3.8 á
mán.
MEÐALVEXTIR
Óverötr. feb. 88 35.6
Verðtr, feb. 88 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitalamars 1968 stig
Byggingavisitala mars 343 stig
Byggingavisitala mars 107,3 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 9%1 . jan.
VERÐBRÉFASJOÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávoxtunarbréf 1,3927
Einíngabréf 1 2.670
Einingabréf 2 1.555 •
Einingabréf 3 1,688
Fjolþjóðabréf 1.342
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2.672
Lifeyrisbréf 1 342
Markbréf 1,387
Sjóðsbréf 1 1,253
Sjóðsbréf 2 1,365
Tekjubréf 1,365
HLUTABRÉF
Soluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 130 kr
Eimskip 384 kr.
Flugleiðir 255 kr.
Hampiðjan 138kr.
Iðnaðarbankmn 155 kr.
Skagstrendingurhf. 189 kr.
Verslunarbankinn 135 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr
lífinu treysti á sem slíka en í reynd
séu þeir ekki annað en sölumenn og
þiggi þóknun hjá tölvufyrirtækjum
fyrir aö ráðleggja viðkomandi að
kaupa ákveðnar tölvur.
Maður með gott hvolpavit á
tölvum opnar stofu og segist
vera ráðgjafi
„Ég hef einfaldlega áhyggjur af
þessu og tel að það sé kominn tími
til breytinga. Það er ekkert annað en
fullkomið siðleysi í viðskiptum þegar
einhver maður sem hefur gott
hvolpavit á tölvum opnar stofu sem
ráðgjafi og ráðleggur mönnum síðan
út og suður að kaupa ákveðna tegund
af tölvu sem hann fær þóknun fyrir
að ráðleggja. Þetta er ljót sölu-
mennska," segir Halldór við DV.
Halldór segir ennfremur að sér
hafi veriö boðin þóknun frá ákveðnu
fyrirtæki fyrir að ráðleggja mönnum
að kaupa tölvur þess. „Þar bauðst
mér allt að 20 prósent þóknun. Ég
benti á móti á að þetta snerist um
siðgæði, það að bera fyrst af öllu hag
tölvukaupandans sem leitað hefur til
þín fyrir brjósti."
í grein Halldórs í Tölvumálum seg-
ir hann að tölvuvæðingin hafi verið
svo hröð hér á landi að þörfin fyrir
tölvuráðgjöf hafi aukist. „Á við-
skiptasíðum dagblaðanna og í sér-
tímaritum birtast vikulega fréttir af
nýjum fyrirtækjum á sviði tölvu-
ráðgjafar og hugbúnaðargerðar."
Ekki gerður munur á tölvuráð-
gjöf og sölu tölva
„Reyndar vekur það athygli að fyr-
irtækin kynna starfsðmi sína oft á
þann hátt að þau ástundi tölvuráö-
gjöf, hugbúnaðargerð og sölu hug-
eða vélbúnaðar. Þetta er í samræmi
við þá þróun sem átt hefur sér stað
á undanförnum árum, að ekki er
gerður skýr greinarmunur á tölvu-
Halldór Kristjánsson verkfræðingur. „Ekki er óalgengt að greidd sé 10 til 20 prósent þóknun af minni kerfum og 5 til
10 prósent af stærri kerfum.“ DV-mynd GVA
ráðgjöf og framleiðslu og sölu á
hugbúnaði eöa vélbúnaði.“
„Kaupandinn getur ekki treyst því
að hann hafi fengið fullkomlega hlut-
lausa og faglega ráðgjöf né að
hagkvæmasta leiðin hafi verið far-
in,“ segir Halldór.
Hann telur ennfremur að verk-
fræðistofum og rekstrarráðgjafastof-
um sé best treystandi og að það sé í
undantekningartilfellum að þær
hljóti þóknun fyrir að beina viöskipt-
um til þeirra sem selja hugbúnað.
Verkfræðingar og rekstrar-
ráðgjafar með siðareglur
„Verkfræðingar og rekstrarrað-
gjafar hafa sett starfsreglur sem
banna þeim að taka við þóknun eða
fríðindumn fyrir verk frá öðrum en
Tékkað inn með Codeco.
Arnarflug með Codeco
Arnarflug hefur hafið tölvuinn-
skráningu farþega frá Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Innskráningarkerflð
nefnist Codeco og er tengt Corda far-
bókunarkerfi félagsins. Um mitt
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Sgmvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
Island í tíunda sæti yfir
helstu verðbólgulönd
Alþjóðlegur samanburður sýnir
að ísland hafiiar í 10. sæti á lista
yfir þau lönd þar sem veröbólga
var mest árin 1980 til 1985. Þetta
er samkvæmt grein eftir Þorvald
Gylfason í nýjasta hefti efnahags-
ritsins Vísbendingar.
Bólivía átti heimsmetið. Þar var
verðbólgan 611 prósent á ári að
meðaltali þetta tímabil. Á íslandi
var verðbólgan 48 prósent á ári aö
meðaltali.
Röðin var annars þessi. Bólivía í
fyrsta sæti, siðan Argentína, ísrael,
Brasilía, Perú, Mexíkó, Ghana,
Nicaragua, Sierra Leone og loks
ísland í tíunda sæti. ísland er í lan-
gefsta sæti þessara landa í lífskjör-
um, þjóðartekjum á mann.
-JGH
verkkaupa. Flestir þeirra taka ekki
að sér ráðgjöf sé um slíkt að ræða.
Hér telja menn heiður stéttarinnar
mikilvægari en stundarhagsmuni.“-
Suma ber að varast
sérstaklega
Halldór segir ennfremur: „Þótt
ótrúlegt sé eru nokkrir aðilar hér á
landi sem ástunda tölvuráögjöf án
þess að nokkur sýnileg þekking á
tölvu- og rekstrarmálum sé til stað-
ar. Samhliða ráðgjafarstarfseminni
selja þeir viðskiptamönnum sínum
allan þann búnað sem þeir þurfa,
leynt og ljóst. Sérstaklega verður að
vara við þessum fyrirtækjum en
vegna vanþekkingar þeirra sem leita
tölvuráðgjafar hafa nokkrir slíkir
aðilar náð fótfestu hér á landi.“
Þóknunin hækkar verð tölva
Loks segir Halldór að augljóst sé
að þessar þóknanir hækki verð vél-
og hugbúnaðar þar sem tölvusalinn
verði að gera ráð fyrir þóknuninni
við álagningunni og kaupandinn
greiði þess vegna þóknunina óbeint.
„Þannig rukka þessir aðilar inn fyrir
ráðgjöf við tölvukaup, þiggja síðan
þóknun frá tölvusalanum og í mörg-
um tilvikum annast þeir uppsetn-
ingu og þjónustu búnaðarins sem
tölvusalinn alla jafnan sér um og
innifalið er í verði tölvanna. Ég tel
aldrei eins brýnt að afmarka starfs-
svið tölvuráðgjafanna frá starfssviði
tölvusalanna og færast skrefi fram á
við til hagsbóta fyrir alla,“ segir
Halldór Kristjánsson verkfræðingur.
-JGH
Milljón króna munur á
nýja miðbænum og Breiðholti
Góð 2ja herbergja ibáð í nýja
miðbænum er einni milljón króna
dýrari en góð íbúð í Breiðholti.
Þetta er það verð sem kaupendur
verða að greiða fyrir staöinn. Hluti
af múninum skýrist einnig af því
að íbúðir í nýja miðbænum eru
nýrri en í Breiðholti.
„íbúðir í nýja miðbænum eru
mjög eftirsóttar núna,“ segir Ingv-
ar Guðmundsson hjá fasteignasölu
Kaupþings hf. „En það er samt
engin verðsprenging í gangi, íbúð-
irnar hafa hækkað jafnt og þétt og
í takt við verðbólguna. Ekkert
meira."
Góð 2ja herbergja íbúð í nýja
miðbænum kostar 4 milljónir
króna en 3 milljónir í Breiðholti.
Fast á eftir nýja miðbænum í vin-
sældum koma íbúðir í fjölbýlis-
húsum í Fossvoginum og Háaleitis-
hverfinu.
-JGH
þetta ár mun Corda tengjast Galileo
bókunarkerfmu ásamt mörgum af
stærstu flugfélögum heims eins og
United, British Airways, K.L.M. og
fleiri félögum. -JGH
Ólafur Jónsson hjá Steypustöð Suðurlands, til vinstrí, tekur við þúsundasta
Scaniabílnum á íslandi frá Ágústi Hafberg hjá ísarn hf. DV-mynd S
Þúsundasta Scanian
Þúsundasti Scania Vabis flutningabíllinn á íslandi var seldur á dögunum.
Það var Steypustöð Suöurlands sem keypti. Ágúst Haíberg, forstjóri ísarn
hf., umboðsaðila Scania, afhenti Ólafi Jónssyni, framkvæmdastjóra steypu-
stöðvarinnar, bílinn - með heilsteyptu handtaki að sjálfsögðu. -JGH