Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Blaðsíða 13
13
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
Fréttir
Mikilvægt fyrir
Ólafsvík að eiga
kraftmikil félög
Ámi E. Albertsson, DV, Ólafevík;
Félagar í Kiwanisklúbbnum
Korra í Ólafsvík færðu félagsmið-
stöðinni í Ólafsvík höfðinglega gjöf
í síðasta mánuði. Það voru mjög
fullkomin hljómílutningstæki. Af-
hendingin fór fram í félagsmiðstöð-
inni 17. janúar að viðstöddum
itorrafélögum, Sinawikkonum,
æskulýðsnefnd Ólafsvikurkaup-
staðar og fleiri gestum.
Ingi Á. Pálsson, forseti Korra,
bauð gesti velkomna. í ávarpi sínu
ræddi hann um þjónustuhlutverk
Kiwanishreyfingarinnar og helstu
tekjur styrktarsjóðs Korra. Þær
eru sala á jólatrjám, greni, jóla-
pappír og farið er í sjóróðra. En
síðastliðið sumar var farin ný fjár-
öflunarleið. Það var sala á fána-
stöngum í tilefni af 300 ára
verslunarafmæli Ólafsvíkur og
gekk hún vel. Ingi gat þess að öllu
því fé, sem safnaö væri hjá almenn-
ingi, væri varið til styrktarverk-
efna.
Margir fá styrki
Þá kom fram að Korrafélagar hafa
á undanfórnum árum styrkt ýmsa
aðila hér í Ólafsvík, til dæmis kirkj-
una, heilsugæslustöðina, barna-
heimilið, dvalarheimihö Jaöar,
björgunarsveitina Sæbjörgu og
fleiri.
Á síðasta starfsári og þessu hefur
verið úthlutað hálfri milljón króna
úr styrktarsjóði Korra. Þar má
nefna björgunarsveitina Sæbjörgu,
einstaklinga, sem átt hafa í erfiö-
leikum, íþróttasamband fatlaðra
var styrkt og félagsheimilinu gefið
píanó í samvinnu við Lions- og
Rotaryklúbba Ólafsvíkur. Þá var
jólatré gefið á barnaheimilið og
skemmtun haldin fyrir eldri borg-
ara.
Ingi gat þess að kjörorð Kiwanis-
hreyfingarinnar starfsárið
1987-1988 væri; „Þjónum æskunni"
og þess vegna hefðu Korrafélagar
ákveðið aö gefa þessi hljómflutn-
ingstæki í félagsmiðstöðina með
þeirri von að æskufólk Ólafsvíkur
njóti þeirra um ókomin ár. Ingi las
síðan upp gjafabréf og bað Árna
E. Albertsson, formann Æskulýðs-
og íþróttaráðs Ólafsvíkur, að taka
á móti gjöfinni.
Innanhúss símakerfi
Þá tók til máls Svanhildur Páls-
dóttir, formaður Sinawikklúbbs
Ólafsvíkur, og sagði frá því að sl:
sumar hefðu Sinawikkonur í Ólaf-
svík staðið að útimarkaði og
blómasölu í tengslum við 300 ára
verslunarafmæli Ólafsvíkur og
hefði verið ákveðið aö nota hagnað-
inn til þess að kaupa innanhúss-
símkerfi í félagsheimilið. Þá las
hún upp gjafabréf og bað síðan Pál
Ingólfsson, formann stjórnar fé-
lagsheimilisins, að taka við gjöf-
inni. Páll þakkaði fyrir þessa góðu
gjöf.
Til máls tóku einnig Sveinn Þór
Elinbergsson, forseti bæjarstjórn-
ar, og Kristján Pálsson bæjarstjóri.
í máli þeirra kom fram mikið þakk-
læti fyrir þessar höfðinglegu gjafir
og sögðu þeir að það væri mikil-
vægt bæjarfélagi eins og Ólafsvík
að vita af jafnkraftmiklum félögum
og Kiwanismenn og eiginkonur
þeirra væru.
Félag starfsmanna Landsbanka íslands:
Sextíu áva í dag
Félag starfsmanna Landsbanka ís-
lands er sextíu ára í dag. Félagið var
stofnað í Kaupþingssalnum í Reykja-
vík hinn 7. mars árið 1928. Aðalmark-
mið félagsins eru að gæta hagsmuna
félagsmanna og að kynna fyrir þeim
nýjungar í bankamálum og öðru er
gerir þá að hæfari starfsmönnum.
Innan FSLÍ starfa margar fasta-
nefndir er annast hin ýmsu félags-
mál svo sem skemmtinefnd.
bókasafnsnefnd, mötuneytisnefnd og
seljanefnd en stjórn félagsins skipu-
leggur starfið með þessum nefndum.
Á fimmtíu ára afmælishátíð félags-
ins fyrir 10 árum kom út rit um sögu
þess. Fréttabréf starfsfólks Lands-
banka íslands, sem kemur út í dag,
verður helgað félaginu og þar er
drepið á nokkur atriði í sögu þess og
birt viðtöl við nokkra félagsmenn.
Hafnsögubáturinn Þytur við nýja viðlegukantinn þegar nýja vöruhöfnin var formlega tekin i notkun.
DV-mynd BB, ísafirði
Ný vömhöfn á ísafirði
Sigurjón J. Sigurðsson, DV, feafirði:
Ný vöruhöfn sem gerð hefur verið
í Sundahöfn á ísafirði hefur nú verið
tekin í notkun. Þar er um að ræða
120 metra viðlegukant og er þarna
því um verulega stækkun aö ræða
að sögn Haraldar L. Haraldssonar
bæjarstjóra. Hann flutti ræðu við
athöfnina, sem átti að vera við nýju
höfnina, en sökum hvassviðris gat
ekki af því orðiö. í stað þess var hald-
ið í Sjómannastofuna.
Hermann Skúlason skipstjóri várð
þess heiðurs aðnjótandi að vígja
höfnina því hafnsögubáturinn Þytur
lagðist að hafnarkantinum í stað tog-
arans Júlíusar Geirmundssonar IS
270.1981 var unnið við fyrsta áfanga
vöruhafnarinnar og fram á árið 1982.
Síðan lágu framkvæmdir niðri þar
til í fyrra. í fyrstu var fyrirhugað að
taka vöruhöfnina í notkun 1984 en
hún var tekin út af fjárlögum þar til
á síðasta ári. Þá komst hún á blað á
ný og hefur nú formlega verið tekin
i notkun. Ekki er hún þó fullgerð og
í næsta áfanga er stefnt að gerö fyrir-
stöðugarðs og frekari dýpkun.
Áætlaöur kostnaður við þetta er 24
milljónir króna. Eins og staðan er í
dag geta stærri skip ekki lagst að
kantinum sökum grynninga.
Ný lögreglustöð á Húsavík
Hólmfríöur Friöjónsdóttir, DV, Húsavik:
Senn líður að því að lögreglan og
sýslumannsembættið á Húsavík
flytji í nýtt húsnæði. Lögreglan er
nú til húsa á tveimur stöðum í bæn-
um. Varðstofan og skrifstofuhús-
næðið eru að Garðarsbraut 27 en
fangageymslurnar að Ketilsbraut 9.
Að sögn Þrastar Brynjólfssonar yfir-
lögregluþjóns mun skrifstofuaðstað-
an vera viöunandi en geymslurými
svo til ekkert og taka varð gám á
leigu til þess að leysa þann vanda.
Þröstur sagði að eins og málin
stæðu í dag væri ætlunin að flytja inn
Hið nýja hús lögreglunnar og sýslu-
mannsembættisins á Húsavik.
DV-mynd Hólmfriður.
í nýja húsnæðið um mánaðamótin
apríl-mai. Þó bénti márgt til þess að
það kynni að dragast og nefndi hann
sem dæmi að ekki væri enn farið að
bjóða út húsgögn í húsið. Þá væru
ýmsir hlutir, sem ættu að koma er-
lendis frá, svo sem tæki og lásakerfi,
rétt ókomnir til landsins.
Bygging hússins, sem Norðurvík
hf. hefur séð um, hefur gengið mjög
vel og alveg samkvæmt áætlun.
Þröstur sagði að hið nýja húsnæði
yrði sannkölluð bylting á starfsað-
stöðu lögreglunnar og hann vænti
þess að það myndi skila sér í framtíð-
inni í störfum lögreglunnar.
Aflaverðmæti
138 milljónir
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
Togarinn Gyllir ÍS 261, Flateyri,
aflaði á síðasta ári 4.143 tonna.
Fjórðungur aflans var fluttur
ferskur á markað erlendis en rúm-
um þrjú þúsund tonnum var
landað heima til vinnslu. Heildar-
verðmæti aflans nam liðlega 138
milljónum króna.
Gyllir við bryggju á Flateyri.
DV-mynd Reynir
Lido De Jesolo. Sannkallaður fjöl-
skyldustaður í nágrenni Feneyja.
Góðar strendur, hagstætt verðlag,
skemmtilegt götulíf og mikið úrval
skoðunarferða.
Ítalía er óskaland ferðamannsins.
3 vikur, áætlunarflug til Mílanó,
íslenskur fararstjóri.
Verð frá 41.499 kr.*
4 í íbúð 49.184 kr.
2 í íbúð 58.088 kr.
FERÐASKRIFSTOFAN
Suðurgötu 7
S. 624040
* Hjón með 2 börn 0-12 ára
STAÐUR