Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
17
Lesendur
Frá setningu Búnaðarþings á Hótel Sögu á sl. ári.
Búnaðarþingið:
Dagpeningar 4 þús
und krónur á dag
Einar Bj. hringdi:
Síðasta Búnaðarþing hefur orðið
þjóðinni dýrt ef marka má fréttir.
Þóknun þeirra fulltrúa, sem sátu
þingið, er sögð hafa skipst í laun,
dagpeninga og ferðakostnað. AUs er
talið að laun þeirra 25 fulltrúa, sem
sátu þingið, hafi ekki verið undir
þremur milljónum króna.
Dagpeningar þeir er fulltrúarnir fá
eru þeir sömu og hiö opinbera greið-
ir, eða um 4 þúsund krónur á dag! -
Launin eru síðan ákveðin af þingfull-
trúunum sjálfum er þinginu lýkur. í
frétt um þetta Búnaðarþing kemur
fram að gera megi ráð fyrir að þing-
fulltrúar fái ekki lægri upphæð en
120 þúsund krónur, hver fyrir sig.
Þetta allt greiðir Búnaðarfélagið
sem svo þiggur rekstrarfé sitt af hinu
opinbera, ríkissjóði, eða með öðrum
oröum frá mér og þér, hinum al-
menna skattgreiðanda. - Hver var
svo að tala um sparnaö og samdrátt
hjá hinu opinbera og hjáleigum þess?
Það er annars mikið umhugsunar-
efni hvernig allar þessar ráðstefnur
og þing hinna ýmsu félagasamtaka
íjármagna fundahöld sín ár hvert -
að ekki sé nú spurt um það hvemig
allur sá fjöldi, sem situr þessar ráð-
stefnur og þing, getur komist frá
vinnu sinni heilu vinnudagana og
jafnvel vikurnar. Gefa vinnuveitend-
ur þessu fólki vinnufrí, rétt sisona,
án þess að það komi niður á starfsemi
viökomandi fyrirtækja í einkarekstri
og opinberum? Það virðist vera nóg
um auraráð þegar þingin eru annars
vegar.
Vióa utan þéttbýlfs er ekki skylt að nota bílbeltin. - Skyldu þær aðstæður
eiga við hér? - Nýi vegurinn við Ólafsvíkurenni.
WlHct oy vlðtuxtct eÍýH<l
Litaval
SÍÐUMÚLA 32 SÍMI 68 96 56
MILLTEXinnimálning með7eöa20%gljáa-BETT vatnsþynnt plastlakk
meö 20 eða35% gljáa - VITRETEX plast- og mynsturmálning -
HEMPELS lakkmálning og þynnir- CUPRINOLfúavarnarefni, gólf-og
húsgagnalðkk, málningaruppleysir ofl. - ALCRO servalakk og spartl -
MARMOFLOR gólfmálning - BREPLASTA spartl og fylliefni - Allar
stærðir og gerðir afpenslum, rúllum, bökkum, límböndum ofl.ofl.
Kynniö ykkur verðiö og fáió góð ráö í kaupbæti.
Nýtt í öryggismálum bifreiða;
Bílar skærlitir og þurrkur í gangi
Sigurjón Ámason skrifar:
Eg verð nú aö leggja orð í belg um
þá dæmalausu og fáránlegu „her-
ferð“ sem tryggingafélögin em nú í
gegn bíleigendum. Ég segi gegn bíl-
eigendum vegna þess að ég get ekki
séð að nokkur glóra sé í þessum nýju
reglum sem settar hafa verið og eiga
að auka umferðaröryggið. - Það eina
sem dugir í þeim efnum er að hamra
á að fara eftir þeim reglum sem gilda
og fylgja þeim eftir af lögreglu og síð-
an pógu háum sektum við brot.
Þetta með að kveikja ökuljósin um
leið og farið er af stað, hvenær dags
sem er, án tillits til birtu og aðstæðna
er hrein aðför að almennri skynsemi
og ég á eftir að sjá að fólk fari eftir
þessari reglu þegar dag tekur að
lengja. Það er ekkert svar að segja
sem svo viö fólk: Ja, ef þú ekki getur
passað að slökkva ljósin um leið og
þú ferð út úr bílnum þá kaupirðu
bara tæki sem stjórnar því fyrir þig!
- Á hið opinbera að skikka mig til
að kaupa eitt eða annað vegna fárán-
legra reglna, sem brjóta gegn sið-
ferðisvitund fólks?
Þetta með beltin spennt er einnig
regla, sem brýtur gegn siðferðis-
hugmynd fólks. Einkum og sér í lagi,
þegar ekki eru allir skyldaðir til að
nota beltin. Næsti ökumaður á göt-
unni (t.d. leigubílstjóri) er e.t.v. sá
sem ekki þarf að hlíta þessari reglu!
Samt er hann við akstur allan daginn
og hefur það að atvinnu. Er hann þá
ekki í neinni hættu - og er þá engin
hætta þótt ekið sé án belta?
Og síðan koma undanþágumar frá
notkun bObelta. Ég var búinn að
minnast á leigubílstjórana, þeir eru
undanþegnir. Einnig eru fjölmargir
aðrir hópar sem ekki þurfa að spenna
beltin, þ.á m. allir þeir sem geta sýnt
„læknisvottorð" um að þeir geti ekki
spennt beltin! - Mega þá þeir, sem
eru hvað veikastir fyrir, t.d. vegna
veikinda eöa slysa, aka án belta?
Hvers konar rökleysur em þetta?
Síðan kemur fáránlegasta undan-
tekningin: „Ekki er skylt aö hafa
öryggisbelti við asktur við erfið og
hættuleg skilyrði utan þéttbýhs...“
Er hér verið að hygla landsbyggðar-
fólki eða hvað? Eða er þá ekkert
öryggi í því að hafa beltin þar sem
skilyrðin eru erfið og hættuleg?
Nú legg ég til að sett verði lög um
að ökumönnum verði gert að skyldu
að hafa rúðuþurrkurnar á meðan
ekiö er hvemig sem viðrar og að
nóttu sem degi. Maður veit jú aldrei
hvenær byrjar að rigna! - Einnig er
full þörf á að bifreiðaeigendum verði
settur aðlögunartími til ársins 1990
en það ár verði skylda að hafa alla
bíla hér á landi appelsínugula, til að
þeir sjáist betur!
Það ár getur þá vitleysan veriö full-
komnuð: ljósin á allan sólarhringinn,
beltin spennt hjá sumum, en ekki
öhum (undanþágum verði fjölgað
þannig aö hestamenn þurfi ekki að
spenna beltin í sínum bílum), rúðu-
þurrkumar ávallt í notkun meðan á
akstri stendur (helst líka í kyrrstöðu)
og enginn bíll verð í fluttur til lands-
ins nema hann sé með appelsínugul-
um lit!
NÝR STAÐUR
* Hjón með 2 börn 0-12 ára.
í Limasol á suðurströnd Kýpur er
fjölskrúðugt mannlíf, jafnt að nóttu
sem degi. Pað er því engin tilviljun
að æ fleiri af yngri kynslóðinni telja
Kýpur einn skemmtilegasta sumar-
leyfisstaðinn við Miðjarðarhafið.
2-3 vikur, áætlunarflug um
Amsterdam, íslenskur fararstjóri.
Verð frá 40.916 kr.*
4 í íbúð 48.336 kr.
2 í íbúð 51.516 kr.
FERDASKRIFSTOFAN
-