Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Síða 18
18
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
Meiming
Islenskar
kvikmyndir til
Rúðuborgar
Ur kvikmynd Kristínar Jóhannesdóttur, Á hjara veraldar.
Fjölmargar kvikmyndahátíðir
eru haldnar í Frakklandi árlega,
frægust þeirra er hátiðin í Cannes.
Sem dæmi um aðrar má nefna
kvikmyndahátíðina í Deauvill,
sérstaklega tileinkaða bandarísk-
um kvikmyndum, hátíð hinna
þriggja meginlanda í Nantes, íber-
íuhátiðina í Biarritz og hátiö ítal-
skra kvikmynda í Nice. Norrænar
kvikmyndir hafa hins vegar hlotið
litla umijöllun og athygli í Frakk-
landi sem og annars staðar í
heiminum en árið 1986 voru um 80
kvikmyndir framleiddar á Norð-
urlöndum. Á þessu vilja framtaks-
samir Frakkar ráða bót og efna til
fyrstu Norrænu kvikmyndahátíð-
arinnar í Rúðuborg dagana 2. til 8.
mars nk. Vegna aldagamalla
tengsla Rúðuborgar við Noröur-
lönd er vel við hæfi að fyrsta
norræna kvikmyndahátíðin sé
haldin þar en forsvarsmenn henn-
ar hafa í hyggju að gera slíka hátíð
að árlegum viðburði.
Fimm til Frakklands
Það eru Frakkarnir Jean-Michel
Mongrédien kvikmyndagerðar-
maður, Claude Lechat, og Franco-
ise Buquet sem bera hita og þunga
hátíðarinnar. Þær Francoise Buqu-
et og Claude Lechat komu hingað
til lands sl. haust til þess að velja
flmm íslenskar kvikmyndir á
Rúðuborgarhátíðina og ræða við
leikstjóra, leikara og aðra sem
tengjast íslenskri kvikmyndagerð á
einn eða annan hátt. Fimm íslen-
skar kvikmyndir voru valdar og
fimm íslendingum boðið á hátiðina
í Rúðuborg. Kvikmyndin Skytturn-
ar, efitir Friðrik Þór Friðriksson,
er eina íslenska myndin sem kepp-
ir til verðlauna. Á hjara veraldar,
eftir Kristínu Jóhannesdóttur, Með
allt á hreinu, eftir Ágúst Guð-
mundsson og Hrafninn flýgur, eftir
Hrafn Gunnlaugsson verða sýndar
í flokki kvikmynda sem ber yflr-
skriftina „Panorama du nouveau
cinema Nordique“ eða heildaryfir-
lit um nýjar norrænar kvikmyndir.
Útlaginn verður sýnd í flokki sem
ber yfirskriftina „Journees The-
matques" (Dagar tileinkaðir
ákveðnu þema), sem skiptist í þrjá
undirflokka „Films Pur Enfants",
„Documentaries" og „Sagas“ eða
kvikmyndir fyrir böm, heimildar-
myndir og fornsögulegar myndir.
íslendingarnir fimm, sem boðið var
á Rúðuborgarhátíðina, eru: Friðrik
Þór Friðriksson, Þórarinn Þórar-
insson, Kristín Jóhannesdóttir,
Arnar Jónsson og Guðbrandur
Gíslason.
Skytturnar keppa
Vemdari hátíðarinnar er franska
kvikmyndasafnið „Centre National
de la Cinématographie" og hátíðina
styrkja fjölmörg fyrirtæki og
menningarstofnanir Norðurlanda í
Rúðuborg. Norræn menning, leik-
list, tónlist og myndlist munu setja
svip sinn á borgina á meðan á há-
tíðinni stendur. Nína Gautadóttir,
og Rosso. Andlit Noregs em Odd-
var Einarson með kvikmynd sína
Errance og Erik Gustavson með
Blackout. Svíar senda þijár mynd-
ir í keppnina eftir þá Carsten
Brandt Demoner, Bo Widerberg
Ormens vag pa Halleberget og Kay
Pollak Alska Mej!
Sá á kvölina sem á völina
Hveijir ráða vali á islenskum
myndum á erlendar kvikmyndahá-
tíðir?
Aðspurður sagði Guðbrandur
Gíslason, framkvæmdastjóri Kvik-
tilkynningu um að ákveðin kvik-
myndahátíð verði haldin og spyija
þá um leið hvort einhveijar kvik-
myndir frá íslandi muni taka þátt
i þessum hátíðum eða fara í ein-
hveija af þeim keppnum sem þar
eru haldnar. Á undaínfomum ámm
hefur ekki alltaf verið um margar
kvikmyndir að velja til þess að
senda á hátíðir, þannig að yfirleitt
hafa þær myndir sem em búnar til
það árið farið og enginn þeirra fyr-
ir utan Atómstöðina hefur t.d. náð
að komast í keppni í Cannes. ísland
og Kvikmyndasjóður er aðili að
Úr Með allt á hreinu ettir Agúst Guðmundsson.
íslensk listakona í París, mun t.a.
m. opna sýningu í Rúðuborg í
byijun mars. í fréttatilkynningu
frá forsprökkum hátiðarinnar er
þess getið aö nokkrir leikstjórar og
leikarar keppnismyndanna muni
sækja hátíðina í Rúðuborg í mars
svo sem „Bo Widerberg, Stefan
Jarl, Kay Pollack, Aki Kaurismaki,
Kristín Jóhannesdóttir, Friðrik Þór
Friðriksson og aðrir.“ Frá Dan-
mörku eru í keppninni kvikmyndir
eftir Helle Ryslinge: Flamberede
Hjerter og Gabriel Axel: Bebettes
Gjestebud, (byggð á sögu eftir Kar-
en Blixen). Finnsku bræðurnir Aki
og Mika Kaurismaki sýna kvik-
myndir sínar: Vaijoja Paratiisissa
Úr kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Skyttunum.
myndasjóðs og Kvikmyndasaíns
íslands, eftirfarandi: „Það er ekki
til nein algild regla um það hver
ræður því vali. En ef við tökum t.d.
þær íslensku myndir sem valdar
eru til óskarsverðlaunakeppninn-
ar, þá hefur Félag kvikmyndagerð-
armanna séð um þá tilnefningu. í
sambandi við Rúðuborg voru það
franskir aðilar sem höfðu samband
við okkur. Það er ánægjulegt þegar
útlendingar sýna íslenskum kvik-
myndum slíkan áhuga. Frakkar
höfðu samband við okkur fyrir um
það bil ári síðan. Og Kvikmynda-
sjóður hefur fjármagnað flutnings-
kostnaö á kvikmyndahátíðir og fari
mynd í einhvers konar keppni þá
hefur sjóðurinn kostað sýningar-
eintak cif þeirri mynd með erlend-
um texta.“
Hver fylgir myndunum eftir, t.d.
í Rúðuborg?
„í Rúðuborg er ein mynd í
keppni, það eru Skyttumar og
Friðrik Þór Friðriksson fer þangað
og stendur fyrir sínum málum
varðandi sína mynd. Kristín Jó-
hannesdóttir, sem er stjómarmaö-
ur í stjóm Kvikmyndasjóðs, verður
þama fyrir hönd Kvikmyndasjóðs
og fylgir jafnframt sinni mynd.“
Hver em tengsl sjóðsins við kvik-
myndahátíðir yfirleitt?
„Ég þekki ekki hvemig það hefur
verið frá upphafi. Hins vegar hafa
aðstandendur og skipuleggjendur
ýmissa hátíða sent Kvikmynda-
sjóði árlega með góðum fyrirvara
norrænu samstarfi um að kynna
kvikmyndir. í þessu samstarfi taka
þátt kvikmyndastofnanir allra
Norðurlandanna og fá til þess
nokkurn styrk frá Norðurlanda-
ráði. Því fé sem fæst frá Norður-
landaráði er varið til þess að kynna
kvikmyndir frá Norðurlöndunum
utan Norðurlandanna og þar á
meðal á stærstu kvikmyndahátíð-
unum, t.d. í Cannes og Berlín."
Hvaða gildi hefúr kvikmyndahá-
tíð í Rúðuborg fyrir íslenskar
kvikmyndir?
„Ég held tvímælalaust að öll
kynning af þessu tagi, eins og fer
fram í Rúðuborg, sé mjög jákvæð
fyrir islenskar kvikmyndir. Við
höfum ekki mikið bolmagn, hvorki
mikið fjármagn né fólk til þess að
kynna íslenskar kvikmyndir er-
lendis. Þegar aöilar eins og í
Kvikmyndir
Guðbjörg Guðmundsd.
Rúðuborg sýna íslenskum kvik-
myndum svona mikinn áhuga, þá
er það tvímælaiaust íslenskri kvik-
myndagerð til framdráttar og
Kvikmyndasjóður fagnar ipjög
þessu framtaki í Rúðuborg. Þetta
er lítil hátíð sem hefur afmarkað
svið og miðast við þessa ákveðnu
borg og þau héruð sem þar eru í
kring en hún er engu að síður góðra
gjalda verð,“ sagði Guðbrandur að
lokum.
Rómverskir riddarar réðust
inn í „Rúðuborg“
Rómveijar kölluðu Rúðuborg
Rotarmagnus á dögum Cesars. Á
tímum Göngu-Hrólfs var hún gerö
að höfuðborg Normandí. Á 15. öld
var borgin eins konar miðstöð í
stríðinu á milli Englendinga og
Frakka. Englendingar lögðu borg-
ina undir sig árin 1419 til 1449 og
líflétu Jóhönnu af Örk á markaös-
torgi í Rúðuborg árið 1418. Jóhanna
var aðeins 19 ára gömul er hún var
brennd lifandi á báli, hún var dreg-
in fyrir dómstóla og ákærð fyrir
galdra. Bóndastúlkan Jóhanna
fékk vitrun frá englum, sá sýnir
og gekk á fund Frakkakonungs.
Stjórnaði stríði og barðist ötullega
sjálf og leiddi her Frakka í ótal
sigra. Mikið hefur verið ritað um
Jóhönnu af Örk og rithöfundar svo
sem Schiller, Shaw, Anouilh, Volt-
arie og fleiri hafa gert þjóðsöguna
um hana að yrkisefni sínu. Og
Rúðuborg kemur við sögu í Gerplu
Halldórs Laxness: „Þar hófust upp
nokkrir er sögðu það æva skyldu
að norrænir víkingar beygði
hnakka sinn fyrir kristnum mönn-
um, eða geingi undir boð þeirra;
kváðu nær að brenna Rúðuborg og
drepa jarlinn og biskupana.“ (bls.
214) og síðar „....; en þá var ham-
íngja norrænna manna slík, og
ágæti þeirra að því hófi, að útlend-
ir konúngar keptust um að gefa
þeim lönd sín til eignar, og buðu
þeim dætur sínar að konum, svo-
sem þá er Karl konúngur í Frakk-
landi gaf Gaunguhrólfi Normandí
og að baugþaki dóttur sína Pópu:
Nú hefur hrólfsniðjúngur í Rúðu,
Ríkharður jarl, spurt hver frægð
yður er orðin á Einglandi, af sökum
hjartaprýði yðvarrar og garpskap-
ar og þess ósigranleika sem öll
heimsbygðin skelfist við.“ (bls. 217)
í seinni heimsstyijöldinni varð
Rúðuborg fyrir miklum skemmd-
um í loftárásum. En þó eru þar
ennþá margar fallegar og sögulegar
byggingar sem varðveist hafa, svo
sem dómkirkja í gotneskum stfl,
sem ber merki um auð og mikil-
vægi Rúðuborgár á miðöldum. í
borginni er einnig dómhús sem
þykir eitt það „fallegasta" í Frakk-
landi.
Allar leiðir liggja til Rúðu-
borgar
Það er ástæða til þess að fagna
því aö svo margar íslenskar mynd-
ir skuli vera sýndar samtímis á
kvikmyndahátíð. „Oft veltir lítil
þúfa þungu hlassi" segir máltækið.
Þótt hátíðin sé ung og óreynd getur
hún eflaust vakið áhuga Frakka á
norrænum kvikmyndum sem er
takmark frumkvöðla hennar. Hver
veit nema „allar leiðir“ liggi að lok-
um til Rúðuborgar?
Fyrstu verðlaun í Rúðuborg eru
peningar og dreifing myndarinnar
í Frakklandi. Sem sagt til einhvers
að vinna annars en verðlaunagrips,
viðurkenningarsKjals eða gæða-
stimpils. Þaö væri vel við hæfi að
Skyttumar hittu í mark og bæra
sigur úr býtum á þessari fyrstu
norrænu kvikmyndahátíð í Rúðu-
borg. Það er vonandi að íslenskri
kvikmyndagerð vaxi ásmegin um
ókomna tíð og lokki til sín heimsins
lýð.