Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Side 35
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
47
LífsstOl
Hvers eiga
franskar að gjalda?
Landbúnaðarráðherra vill ekki innfluttarogveitingamenn ekki íslenskar
Eins og fram hefur komið í fréttum
að undanfómu hefur staðið mikill
styr um innflutning á frönskum
kartöflum að undanförnu. Um tíma
var bannað að flytja þær inn að
boði landbúnaðarráðherra en fjár-
málaráðherra tók sig til og aflétti
innflutningsbanninu vegna þess að
franskar kartöflur væra iðnaðar-
vara og ætti því innflutningur aö
vera frjáls.
Síðasta útspilið í þessari deilu var
er landbúnaðarráðherra nýtti sér
heimild í lögum til þess að hækka
jöfnunargjald á franskar kartöflur
úr 40% í 190%. Þetta gerir hann á
þeim forsendum að leyfilegt sé að
hækka slíkt gjald ef um er að ræða
vöru sem niðurgreidd er til fram-
leiðenda erlendis.
Þessi hækkun kom eins og köld
vatnsgusa framan í ýmsa aðila.
Upp reis deila um hvort flokka
ætti franskar kartöflur sem iðnað-
arvöru eða landbúnaðarafurð.
Yrðu þær flokkaðar sem iðnaðar-
vörur hefur landbúnaðarráðherra
ekkert vald til að stemma stigu við
innflutningi á þeim frekar en súkk-
ulaði og ullarvörum, innílutningur
yrði frjáls og varan í heiðarlegri.
samkeppni við sambærilega ís-
lenska vöru.
Vegna þessa héldu Neytendasam-
tökin, Verslunarráð, Félag ís-
lenskra stórkaupmanna og ýmsir
aðrir sem þessu máli tengjast
blaðamannafund á dögunum. Þar
komu fram ýmis sjónarmið sem
Mikið fjaðrafok hefur veriö um franskar kartöflur að undanförnu.
DV-mynd BG
nánar verða rakin hér á síðunni,
en meginmálið er hvort ráðherra
hefur nokkra lagalega forsendu
fyrir að beita heimild til hækkunar
jöfnunargjalds.
Vilhjálmur Egilsson hjá Verslun-
arráði sagði t.d. aö erfiöur rekstur
kartöfluverksmiðjanna væri ekki
landbúnaðarvandi.
„Það má ekki taka hvaða vitleysu
sem er úti á landi og kalla það land-
búnað,“ sagði Vilhjálmur.
Þetta er nú orðiö að deilumáh
sem ekki verður séð fyrir endann
á.
-PLP
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna.
DV-mynd BG
Jóhannes Gunnarsson:
„Matarbudda
almennings
Á blaðamannafundi, sem hald-
inn var í tilefni hækkunar jöfn-
unargjalds á franskar kartöflur,
skýrði Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna,
sjónarmið neytenda.
„Þarna er verið að seilast ofan
í matarpyngju almennings til aö
Standa straum af kostnaði við
tvær óarðbærar kartöfluverk-
sraiðjur. íslenskir neytendur
hafa ekki efni á aö halda uppi
atvinnubótavinnu norður í
landi.“
í máli hans kom einnig fram að
þaö væri skýlaus krafa Neyt-
endasamtakanna að komið yrði á
fót hlutlausri upplýsingaþjón-
ustu fyrir landbúnaöinn t.d.
iiman Þjóðhagsstofnunar.
„Landbúnaðarráöherra hefur
verið með sífelldar stríðsyfirlýs-
ingar gagnvart íslenskum neyt-
endum. Þessi hækkun er
dæmigerö fyrir vinnubrögð land-
búnaðarráöherra. Hún er byggð
á hæpnum upplýsingum neðan
úr Bændahöll þar sem tekiö er
tillit til hagsmuna landbúnaðar-
ins en sjónarmið neytenda gjör-
samlega hundsuð. Þaö er rétt að
láta á þaö reyna á Alþingi hvort
ekki sé hægt aö stöðva þessar
víðtæku heimildir ráöherra til
skattlagningar.“
-PLP
Spillir hátt verð á frönskum kartöflum ferðaþjónustu?
Grænmeti og garðávextir
gætu farið sömu leið
Er landbúnaðarráðherra lét stöðva
innflutning á frönskum kartöflum á
sínum tíma mótmæltu á annað
hundrað veitingamenn ráðstöfun-
inni. Sögðu þeir íslensku framleiðsl-
una hvergi nærri jafngóða þeirri
erlendu og væri svo'enn þrátt fyrir
að reynt hefði verið að bæta fram-
leiðsluna.
Vilhjálmur Egilsson hjá Verslun-
arráði lýsti áhyggjum sínum vegna
væntanlegra áhrifa hás matarverös
á ferðaþjónustu úti á landi.
„Veitingamenn um allt land eru
uggandi vegna hás matvælaverðs í
kjölfar söluskatts á matvæli og
hækkun jöfnunargjalds á franskar
kartöflur heggur í sama knérunn."
Bjarni Árnason hjá Sambandi veit-
inga- og gistihúsa tók í sama streng.
Sagði hann að hátt matarverð ætti
eflaust eftir að valda búsifjum í þess-
ari atvinnugrein sem hefur verið í
uppgangi undanfarin fimm ár. Hann
lét einnig í ljós áhyggjur yfir því að
grænmeti og garðávextir ættu eftir
að hljóta sömu örlög:
„Þessar aðgerðir landbúnaðarráð-
herra beinast ekki einungis gegn
kartöflum. Það sama gæti gerst í
sambandi við grænmeti og garðá-
vexti, þetta er allt í beinu samhengi,"
sagði Bjarni að lokum.
-PLP
Vilhjáimur Egilsson hjá Verslunarráði Islands.
DV-mynd BG
■ -■ _ á k
„Raðherra bregst trausti Alþingis
Á blaðamannafundi vegna hækk-
unar á jöfnunargjaldi á franskar
kartöflur voru einnig fulltrúar inn-
flytjenda. Einn þeirra var Haukur
Hjaítason hjá Dreifingu sf. en það
fyrirtæki hefur flutt inn mikið af
kartöflum
„Með þessum aðgerðum er ráð-
herra að bregðast trausti Alþingis.
Ríkisstjórnin hefur verið að beita sér
fyrir verðhjöðnun. Þessar aðgerðir
eru síst í anda þeirrar stefnu. Viö
viljum hvetja Alþingi til að endur-
skoða þessár heimildir ráðherra til
aukinnar skattheimtu."
-PLP
Jónas Bjarnason i landbúnaðar-
nefnd Neytendasamtakanna.
DV-mynd BG
Jónas Bjamason:
„Heimild
ráðherra til
hækkunar
stenst ekki“
Sú heimild í lögum, sem land-
búnaðarráðherra beitir til að
hækka jöfhunargjald á frönskum
kartöflum, er á þá leið að ef hrá*
efhi er niðurgreitt erlendis til
framleiðenda er heimilt að
hækka jöfnunargjald á innflutn-
ing.
Beiting þessarar heimildar
stenst því ekki i þessu dæmi að
mati Jónasar Bjamasonar sem
sér um landbúnaöarmál hjá
Neytendasamtökunum.
„Kartöflur eru ekki niöur-
greiddar í löndum Evrópubanda-
lagsins samkvæmt þeim
upplýsingum sera ég hef undir
höndum. Þetta kemur fram í
skýrslu um landbúnaðarmál í
löndum bandalagsins en þar eru
kartöflur flokkaðar sem hrein
markaðsvara. Ég hringdi í við-
skiptafulltrúa breska sendiráös-
ins og staðfesti hann að þessar
upplýsingar væru réttar.
Heimild ráöherra stenst þvi
ekki í þessu tilviki því hún gildir
því aðeins að hráefni sé niður-
greitt til erlendra framleiðenda.11
-PLP
Blómafrjókornin
frá ORTIS!
T /)/)0/blómafrjókorn frá
X UU / 0spönskuhásléttunni.
KÆUMEÐHONDLUN SEM TRYGGIR STYRKLEIKA OG GÆÐI.
VERÐ VIÐ ALLRA HÆFI.
M1C0'S/F
Sími6
Sfmi612292
SÖLUAÐILAR:
Heilsumarkaöurinn, Hafnarstrœti 11
Kornmarkaöurinn, Skólavöröustíg 21 a
Frœkorniö, Skólavöröustíg 16,
SS, Glœsibœ, Austurverl og Laugavegi.
Nýi-bær, Eiöistorgi
Kaupstaöur, Mjóddinni
Garöakaup, Garöabæ
Fjaröarkaup, Hafnarfiröi
Heilsuræktin, Kópavogi
Heilsuhomlö, Selfossi
Heilsuhorniö, Akureyri
Kf. Egilsstööum
Kf. Húsavik
SkagflröingabúA, SauAárkrAkl