Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Blaðsíða 41
MÁNUDAGUR 7. MARS 1988.
53
Fréttir
Oft fylgjast margir með uppboðunum.
MEINDYRAFÆLA
ERU MEINDÝR I HÍBÝLUM ÞÍNUM?
Reyndu þá hátíðnifæluna. Hún fælir burt mýs,
rottur, flugur og skordýr. Skaðlaus flestum
tegundum gæludýra.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Byko, Nýbýlavegi 6, Kópavogi
Húsasmiðjan hf., Súðarvogi 3-5, Reykjavík
Axel Sveinbjörnsson hf., Akranesi
Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi
Vélsmiöjan Þór hf., ísafirði
Vélsmiðja Bolungarvíkur, Bolungarvík
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki
Akurvík hf., Glerárgötu 20, Akureyri
Veiðarfæraverslun Sigurðar Fanndal, Siglufirði
Kaupfélag A-Skaftfellinga, Höfn, Hornafirði
Stál hf., Seyðisfirði
Kaupfélag Árnesinga, Selfossi
Kaupfélag Suðurnesja, Keflavík
Fréttabréf af Vatnsnesinu:
Fiskmarkaður Vestmannaeyja:
Heildarsóluverðmæti aflans
að nálgast 40 milljónir kr.
virðist vera að festa sig í sessi. Hann
hóf starfsemi sina 12. janúar og fram
í síðustu viku var búiö að selja sam-
tals milli 13 og 1400 tonn. Heildar-
söluverömæti aflans er að nálgast 40
milljónir króna. Þetta fór frekar ró-
lega á stað samfara litlu flskiríi en
hefur aukist og veriö stöðug aukning
fram á daginn í dag samfara betri
afla. Mánudaginn 22. febrúar voru
seld 130 tonn, sem er stærsti dagur-
inn til þessa.
Finnur Sigurgeirsson fram-
kvæmdastjóri segir að þetta hafi
farið mjög vel af stað og þrátt fyrir
að magn hafi aukist virðist markað-
urinn þola það, heldur sér í verði.
Ef htið er á sölumar síðasta mánu-
dag þá voru 26 tonn af ufsa óslægöum
seld á 20,35 krónur kílóiö, 22 tonn af
slægðum þorski fóru á 46,52 krónur
en meðalverö af óslægöum var á
38,13 krónur. „Við erum því bjart-
sýnir á framhaldið og markaðurinn
Ómar Garðarsson, DV, Eyjum:
Fiskmarkaður Vestmannaeyja h/f
Finnur Sigurgeirsson framkvæmda-
stjóri. DV-myndir Ómar
Spáð í verðið og síðan boðið.
er búinn að festa sig í sessi,“ sagði
Finnur Sigurgeirsson.
Bjarndýrið í Skagafirði og
krummi á krossi kirkjunnar
Róbert Jack, DV, Tjöm, Vatnsnesi:
Mér fmnst það furöulegt að þeir
sem lýsa vetraríþróttunum á ólymp-
íuleikunum í Calgary í Alberta-fylki
í Kanada geta ekki borið fram Cal-
gary á réttan hátt. Áhersla er lögð á
fyrri hluta orðsins en ekki hinn síð-
ari. Ég held að Vestur-íslendingar
myndu flnna að því og álíta íslend-
inga á heimalandinu ekki mikla
málamenn. Annars finnst okkur
sveitamönnum mjög gott að Ríkis-
sjónvarpið færir okkur myndir af
þessu íþróttamóti og gott að ísland
tekur þátt leikunum. Það er meira
virði en að sigra.
Hér á Vatnsnesinu má halda skíða-
mót þessa dagana því snjórinn er
mikill og varla fært að komast í
kaupstaöinn. Við áttum von á ísnum
í Húnaflóa en hann kom ekki sem
betur fór. Ég hef talað viö marga
menn að undanfórnu og fannst þeim
ekki fagurt að bjamdýrið skyldi
drepið noröur í Skagaflröi. Þetta var
húnn sem mátti lifa. Ekkert fæst fyr-
ir dautt dýrið en ef þvi hefði verið
leyft aö lifa - skotið með deyfikúlu
sem allir dýralæknar eiga - heíði
verið hægt aö selja það í dýragarð
fyrir góða peninga.
Bjarndýr í Manitoba
Þessi drápsfíkn réttlætir sig ekki og
er skammarleg í alla staði. Það finnst
Bjarndýrshúnninn sem drepinn var
i Fljótum.
mönnum hér.
Ég man eftir, þegar ég var prestur
í Manitoba, að í bænum White Horse
viö Hudson Bay komu mörg bjarndýr
á land á hverjum vetri til aö leita sér
aö æti. Þau voru ekki skotin heldur
gáfu íbúar bæjarins þeim mat þangað
til þau fóru aftur út á ísinn. Dönsku
lögin um að drepa bjarndýrin eru nú
úrelt og tími kominn til að alþingis-
menn semji lög til að vemda þessar
skepnur. Þeim fækkar með hverju
árinu.
Bjarndýr í Grímsey
Ég man að rétt áöur en ég kom til
að þjóna í Grímsey hafði bjarndýr
komiö í land af ísnum. Gamall
Grímseyingur tók þá til sinna ráða,
þegar hann sá dýrið. Hann opnaöi
fjárhús sitt og hleypti kindunum út
og niður í fjöru þar sem bjarndýrið
var. Það var svangt og greip eina
kindina. Fór það með hana út á ís-
inn, át hana og hvarf síðan á haf út.
Ekki hefur Skagfiröingum dottið í
hug að gera slíkt?
Krummi á krossi kirkjunnar
Fuglalíf er ekki mikið á þessum tíma
árs. Snjótittlingar þó margir og koma
heim á bæi til að fá eitthvað að borða.
Og krummi situr á krossi kirkjunnar
og bíöur eftir að fá brauð og ánnað
sem ég gef honum. Hann er skemmti-
legur og skynsamur fugl og gleymir
ekki aö þakka fyrir sig á sinn hátt.
Það er fátt fólk á Vatnsnesinu og
þaö er eins og ein fjölskylda sem
vinnur saman ef nauðsyn krefur. í
rauninni erum við heimur út af fyrir
sig. Hér er engin spenna eða óþæg-
indi og segja má með sanni að allir
séu bræður.
Tjörn, 16. febrúar.
Með bestu kveðjum, RJ.
Heildsölubirgðir:
HNOÐRI SF.
Pantanasími: 675070
Áður Nú
Khaki-buxur 1.490 500
Galla-buxur . 1.490 500
Joggingpeysur 1.425 6Ó0
Joggingbuxur 1.190 400
Peysur 2.490 1.900
Skyrtur 1.790 400
Gallajakkar 2.900 1.400
Dömujakkar 2.790 1.395
Barnabuxur 1.100 600
Áprentaðir bolir 600 300
„Allar aðrar vörur
með 20% afslætti" \J*
VERÐDÆMI
kólavörðustíg