Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1988, Síða 3
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1988.
27
Iþróttir
Atfreð Gíslason í úrslrtaleik í
Essen leikur við
CSKAfrá Moskvu
- Irfinu tekið létt í seinni leiknum á Spáni
Sjguiður Björnsson, DV, Þýakalandi;
• Páll Ólafsson laumaðist af sjúkrahúsinu á laugardaginn til að fylgjast
með félögum sinum í Dusseldorf.
Páll Ólafsson liggur á sjúkrahúsi:
„Líklega heill
effir 6 vikur“
Sigurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi
„Ég er orðinn þokkalega frískur
og laumaðist á leikinn hjá Diisseldorf
á laugardaginn þó ég eigi helst að
vera rúmhggjandi í nokkra daga í
viðbót. Ég reikna með því að eiga í
þessu í sex vikur en ætti að vera
orðinn góður í lok maí. Þá kem ég
heim og ætti að geta byrjað á fullu
meö landsliðinu í undirbúningnum
fyrir ólympíuleikana,“ sagði Páll Ól-
afsson, landsliðsmaöur í handknatt-
leik, í samtali við DV í gær.
Páll varð fyrir því óhappi á fimmtu-
dagskvöldið að hðbönd í vinstri
öxhnni slitnuðu og um leiö ílísaðist
úr beini. Leikmenn Dusseldorf voru
þá að hita upp á æfingu með léttum
fótboltaleik og Páll datt á vegg með
þessum afleiðingum. Hann hggur nú
á sjúkrahúsi í Dusseldorf og á að
dvelja þar út vikuna. Ljóst er að
keppnistímabiliö í Vestur-Þýska-
landi er búið hvað hann varðar og
það er mikið áfall fyrir Dusseldorf
sem berst við Gummersbach og Kiel
um meistaratitilinn.
Leikmenn Essen tóku lífinu
með ró þegar þeir mættu
spænsku meisturunum Bidasoa
ööru sinni i undanúrshtum Evr-
ópukeppm meistarahða í hand-
knattleik á laugardaginn. Eftir
22-7 sigur i heimaleiknum höfðu
þeir efni á slíku og þrátt fyrir að
spænska hðið ynni 19-12 var Ess-
en aha tíð öruggt með samanlagð-
an sigur og mætir CSKA Moskva
í úrslitaleikjum keppninnar í
mai.
Staðan í hálfleik var 10-8, Bid-
asoa í hag, og í seinni hálfleik var
um algera afslöppun hjá Essen
að reeða. „Viö hugsuðum um þaö
eitt að enginn myndi meiðast og
enginn lenti í leikbanni," sagði
Alfreð Gíslason við DV í gær.
Alfreð var tekinn úr umferð
allan leikinn en skoraði 2 mörk
fyrir Essen. Fraatz var marka-
hæstur með 4 mörk. Essen og
CSKA mætast 1 Moskvu þann 16.
mai og í Essen 23. maí.
Vestur-Þjóðverjar eiga annað
hð í úrshtum í ár - Grosswall-
stadt mætir Dinamo Minsk frá
• Alfreð Gíslason mun leika lyrstur Islendinga úrslitaleiki i Evrópu-
keppni með erlendu félagsliði.
Sovétríkjunum í úrshtaleikjum
Evrópukeppni bikarhafa. Gross-
wahstadt vann Karvina, 21-16, í
Tékkóslóvakíu á laugardaghm en
hafði unnið heimaleikinn, 28-13.
Vestur-þýski
handboltinn
Gummersbach - Dormagenl5-U
Kiel-Lemgo............28-18
Diisseldorf- Dortmund.21-19
Göppingen - Hofweier.28-21
Milbertshoven - Massenheim
.................25-20
Gummersbach......23
Dusseldorf.......23
Kiel.............22
Essen............22
Dormagen.........23
Grossw.stadt.....22
Göppingen.........22
Hofweier.........23
Lemgo............23
Massenheim.......23
Milbertshoven....23
Scliwabing.......22
473-400 35
462-445 34
507-419 33
443-403 28
435-415 25
471-455 24
441-473 21
491-519 20
418-462 19
498-514 18
493-496 16
475-479 16
Ntimberg........22 429-489 15
Dortmund........23 440-494 12
Vestur-þýska úwalsdeildin í handknattteik:
Frábær leikur Kristjáns og
Gummersbach enn efst
- Sigurður skoraði sjö fyrir Lemgo í Kiel
Sigurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi
Kristján Arason átti einn sinn
besta leik í langan tima þegar
Gummersbach vann öruggan sigur á
Dormagen, 15-11, í úrvalsdeildirini í
handknattleik á laugardaginn.
Kristján var markahæstur hjá
Gummersbach í leiknum og skoraði
6 mörk, eitt þeirra úr vítakasti.
Þulur sjónvarpsins hældi Kristjáni
á hvert reipi fyrir frammistöðu sína
og sagði að hann hefði sjaldan séð
hann betri. Gummersbach var 9-4
yfir í hálfleik og var komið í 13-6
þegar skammt var til leiksloka. Auk
Kristjáns átti Andreas Thiel stórleik
meö Gummersbach, enda fékk hann
aðeins 11 mörk á sig.
• Sigurður Sveinsson stóð fyrir
sínu þegar Lemgo sótti Kiel heim og
skoraði 7 mörk. Það sama verður
ekki sagt um hð Lemgo því Kiel vann
öruggan sigur, 28-18. Pólverjinn
Daniel Waszkiewicz sýndi snilldar-
takta og skoraði 7 marka Kiel.
O Páll Ólafsson stalst af sjúkra-
húsinu þar sem hann er í meðferö
vegna meiðsla og horfði á félaga sína
í Dusseldorf sigra Dortmund 21-19.
Dusseldorf er því áfram í slag við
Kiel og Gummersbach um meistara-
titihnn og er í öðru sæti.
mörkum Gummersbach.
STÓRÚTSALA Á HEIMILISGÓLFDÚKUM
%afsláttur
Framlengjum stór-útsöluna til 18.april. Komið og geriö góð kaup.
VECCFÓÐRARINN-
MÁLNING & JÁRNVÖRUR
Síðumúla 4, Símar 687171 og 687272.