Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1988, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1988, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1988. 29 Iþróttir Karlalið IB\^, sigurvegari í 2. deild 1987-88. Aftari röð frá vinstri: Eyjólfur Bragason þjálfari, Óskar Freyr Brynjarsson, Sigbjörn Óskarsson fyrirliði, Sigurjón Aðalsteinsson, Elías Bjarnhéðinsson, Þorsteinn Viktorsson, Sigurður Óli Ólafsson, Jóhann Pétursson, Friðrik Már Sigurðsson, handknattleiksráði, Stefán Agnars- son, handknattleiksráði. Fremri röð frá vinstri: Sigurður Friðriksson, Hörður Pálsson, Ingólfur Arnarsson, Jón Bragi Arnarsson, Viðar Einarsson, Þorvarður Þorvaldsson, Sigurður Friðriksson, Páll Scheving. DV-mynd Þorsteinn Gunnarsson Kvennalið IB\^, sigurvegari í 2. deild 1987-88. Aftari röð frá vinstri: Björn Eliasson þjálfari, Sædís Steingrímsdóttir, Heiða Ingadóttir, Unnur Sigmarsdóttir, Ásdis Tómasdóttir, Andrea Atladóttir, Ingibjörg Jónsdóttir fyrirliði, Arnheiður Pálsdóttir, Stefanía Guðjónsdóttir, Guðfinna Tryggvadóttir. Fremri röð frá vinstri: Lovísa Ágústsdóttir, Berglind Ómarsdóttir, Hulda Stefánsdóttir, Lilja Ólafsdóttir, Elisabet Benónýsdóttir. DV-mynd Ómar Garðarsson Tvö 1. deildar lið í Eyjum Ómar Garöarsson, DV, Vestmannaeyjum: Handknattleiksfólk úr ÍBV náöi þeim glæsilega árangri á nýloknu keppnistímabili aö vinna meistara- titla, bæði í 2. deild karla og 2. deild kvenna. Eyjamenn státaþví af tveim- ur 1. deildar liöum á næsta vetri og geta með sanni sagt aö mikill upp- gangur sé hjá þeim í íþróttinni. Bæði liðin höíöu nokkra yflrburði í sínum deildum og voru nánast allan vetur- inn örugg í toppsætunum - og voru bæði búin að tryggja sér 1. deildar sæti nokkru áður en keppni lauk. • Ásgeir Sigurvinsson. V-þýska ritið Bild: Ásgeir hyggst predika í íslenskri knattspymu - ætlar að Ijúka þjálfaranámi í Þýskalandi Sigurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi: í nýlegu hefti v-þýska íþróttarits- ins Sport Bild er grein um velgengni Stuttgart undir handleiðslu fyrirlið- ans, Ásgeirs Sigurvinssonar, og þjálfara félagsins, Ari Haan. Fyrir- sögnin er þessi: Þegar Ásgeir gefur fyrir markið svífur Stuttgart á skýj- um. í greininni segir að liðið standi og falli með framgöngu Ásgeirs - allt ráðist af getu hans hverju sinni. Blaöið segir að Evrópusæti sé nú nánast í höfn hjá liðinu og ástæðan fyrir því að Stuttgart sé ekki í barát- tunni um titilinn sé aðeins sú að Ásgeir hefur fulloft verið íjarverandi vegna meiðsla. Bild segir að þá full- yrðingu megi rökstyðja með því einu að skoða leiki liðsins í deildinni í vetur. Stuttgart hefur enn ekki tapað deildarleik þegar Ari Haan hefur náð aö tefla Ásgeiri fram, segir skrifFmn- ur Bild. Sagt er í greininni að samningur Ásgeirs renni út árið 1990 en þá verð- ur hann 35 ára gamall. í.samtali við blaðið segir Ásgeir að hann muni skoða framhaldið þá og telur lands- liðsmaðurinn íslenski óvíst hvort hann heldur þá áfram að leika með Stuttgart. Bild segir að Ásgeir hafi í hyggju að ljúka þjálfaranámi í V-Þýskalandi áður en ferli hans lýkur. Mun Ásgeir þá hafa í hyggju að hverfa heim til Islands, segir Bild, og gerast þjálfari þar. Kópavogshæli Staða deildarsjúkraþjálfara við endurhæfingardeild Kópavogshælis er laus til umsóknar. Starfið er m.a. fólgið í mati og þjálfun vistmanna á barna- og unglingadeildum. Einstakt tækifæri til að kynnast hinum ýmsu hliðum þjálfunar fjölfatlaðra. Staðan er laus til 6 mánaða eða lengur eftir sam- komulagi. Upplýsingar gefur yfirsjúkraþjálfari, sími 41500 frá kl. 08.00-16.00 virka daga. Reykjavík 11. apríl 1988. RÍKISSPÍTAIAR STARFSMANNAHALD Sjúkraliðar ósKast tíl starfa Vífilsstaðaspítali Sjúkraliðar óskast á Vífilsstaðaspítala í föst störf og til afleysinga. Allar vaktir, einnig fastar næturvaktir. Starfshlutfall samkomulagsatriði. Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarframkvæmda- stjóri, Bjarney Tryggvadóttir, sími 42800. Barnaspítali Hringsins. Sjúkraliðar óskast á barnadeildir nú þegar eða 1. maí. Litlar þægilegar deildir og góð vinnuaðstaða. Góður aðlögunartími. Fjölbreytt og áhugavert starf. Sveigj- anlegur vinnutími eða fastar næturvaktir. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda- stjóri, Hertha W. Jónsdóttir, sími 29000-285. Reykjavík, 11. apríl 1988. RÍKISSPÍTALAR STARFSMANNAHAID Mandeville dDF=r i_cmr^JizzjczDi^j FRAMLEIÐENDUR HEIMSINS FÍNUSTU DÖMU- OG HERRA- HÁRKOLLA OGHÁRTOPPA HAFA SÉRFRÆÐING ÞESSA VIKU Á RAKARAST OFUNNI KLAPPARSTÍG, sími 12725; hjá HÁRSNYRTINGU REYNIS, Strandgötu 6, Akureyri, sími 24408 og í KLIPPÓTEKI, Hafnargötu 23, Keflavík, sími 13428.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.