Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1988, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1988, Blaðsíða 10
34 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1988. Fóstrur óskast til staifa Barnaspítali Hringsins Óskum eftir að ráða fóstrur til starfa nú þegar eða eftir samkomulagi. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir þá sem hafa áhuga á skapandi starfi með börnum á ýmsum aldri. Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarframkvæmda- stjóri, Hertha W. Jónasdóttir, sími 29000-285. Reykjavík, 11. apríl 1988 RÍKISSPÍTALAR STARFSMANNAHALD N áttúrufr æðingur óskast Blóðbankinn - Blóðónæmisrannsóknadeild Óskum eftir að ráða náttúrufræðing til starfa við þjón- 'usturannsóknir nú þegar eða eftir samkomulagi. Fullt starf. Vinnutími 9.00-17.00. Umsóknir sendist Ólafi Jenssyni yfirlækni, Blóð- banka. Hann gefur jafnframt nánari upplýsingar um starfið, sími 29000-557. Reykjavík, 11. apríl 1988 RÍKISSPÍTALAR STARFSMANNAHALD Hjukrunar- frstóingar óskast til starfa Geðdeild Landspitalans Hjúkrunarfræðingar óskast á Geðdeild Landspítal- ans, deild 33C, Landspítalalóð. Móttökudeild, fjölþætt hjúkrunarþjónusta. Vaktavfnna, sveigjanlegur vinnutími. Starfshlutfall samkomulag. Boðið er upp á aðlögunartíma. Athygli skal vakin á námskeiði fyrir hjúkrunarfræðinga 25. apríl-6. maí. Hjúkrunarfræðingur óskast á göngudeild Geðdeildar Landspitalans, að Kleppi. Starfshlutfall samkomulag. Dagvinna. Starfið er fólgið í eftirmeðferð, forvarnarstarfi og stuðningi við einstaklinga og fjölskyldur. Athygli er vakin á námskeiði fyrir hjúkrunarfræðinga 25. apríl-6. maí. Nánari upplýsingar um framangreind störf gefur Nanna Jónasdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 38160. Umsóknir sendist skrifstofu Geðdeildar Landspítal- ans c/o Nanna Jónasdóttir. Vífilsstaðaspítali Hjúkrunarfræðingar óskast til sumarafleysinga og vegna forfalla. Vaktavinna. Starfshlutfall samkomu- lag. Nánari upplýsingar um störfin gefur hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, Bjarney Tryggvadóttir, sími 42800. RÍKISSPÍTALAR STARFSMANNAHALD íþróttir • Ungur kylfíngur úr Golf- klúbbi Reykjavíkur, Helgi A. Eiríksson, vann það frækilega afrek á dögunum að fara holu í höggi á golfvelli í Tulsa í Okla- homa í Bandaríkjunum. • Víðavangshlaup ÍR fer fram í 73. sinn á sumardaginn fyrsta, 21. apríl. Hlaupið er öll- um opið og er jafnframt sveita- keppni í karla-, öldunga-, sveina-, kvenna- og meyjaflokk- um. Vegalengdin er 4 km og byrjað er í Hljómskálagarðin- um viö Skothúsveg kl. 14. Eftir góðan hring í Vatnsmýrinni endar hlaupið í Tjarnargöt- unni. Þátttökutilkynningar þurfa að berast Guðmundi Þór- arinssyni eigi síðar en sunnu- dagskvöldið 17. apríl ásamt 200 kr. þátttökugjaldi. Verðlamia- afhending fer fram í ÍR-húsinu sama dag og þar er keppendum og starfsfólki boðið upp á veit- ingar. • Siglingamennirnir Gunn- laugur Jónasson og Isleifur P. Friðriksson munú hafa nóg að gera á næstu dögum. Þeir fóru utan um páskana til æfínga og gera ráð fyrir þátttöku í þremur mjög sterkum mótum á næst- unni, m.a. vormóti í Sete í Frakklandi dagana 15.-21. apríl. Þá má geta þess að þeir félagar, sem búa sig nú af kappi undir ólympíuleikana í Seoul eins og kemur fram í greininni hér til hliðar á næstu síðu, taka þátt í stórmóti í Kaupmannahöfn í byijun maí. Það heitir Copen- hagen spring series. Á þessum mótum ætla þeir að freista þess að ná ólympíulágmörkum sem íslenska ólympíunefndin setur til þátttöku á OL í Kóreu. Þeir Gunnlaugur og ísleifur hafa æft grimmt að undanförnu og ættu að geta náð góðum árangri á áðurnefndum mótum. Bandaríkj amenn hafa lengi verið þekktir fyrir hin ýmsu uppátæki og í íþróttunum gefa þeir ekkert eftir i baráttunni. Þessi mynd sýnir 16 feta háan knött sem útbuinn hefur verið í Bandaríkjunum og á hann eftir að „ferðast" um víða veröld. Bandarikjamenn ætla sér að haida heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu 1994 og þeir sem styðja þá eiga að skrifa nafn sitt á knöttinn, áhorfendur sem ieikmenn. Símamynd Reuter Mikil ólæti í Austur-Þýskalandi Ólæti knattspyrnuunnenda hafa nú borist til Austur-Þýskalands en hingað til hafa áhorfendur á knatt- spyrnuleikjum þar í landi haft hljótt um sig. Nýlega gerðist það á leik Lokomo- tive Stendal og Vorwaerts frá Frankfurt í 2. deild að áhorfendur þustu inn á völlinn á 33. mínútu er staðan var 0-1 fyrir gestina. Spjótum sínum beindu ólátaseggimir að dóm- ara leiksins og var flöskum og öðru lauslegu varpað í átt til hins svart- klædda en ekki var tekið fram í fréttaskeyti hvort hann hefði slasast eður ei. Heimaliðið var dæmnt til þess að leika næsta heimaleik sinn í 100 km fjarlægð frá heimavelli sín- um. -SK ' . . 1 , ‘flifÍB PPPtir r \ Gary Lineker , enski landsliðsmaðurinn í spánska liðinu Barcelona, hampar hér hinum glæsi- lega bikar á Spání eftir að Barcelona hafði sígrað Real Sociedad í úrslitaleik bikarkeppninnar á dögunum. Sigurinn var svo sannarlega sárabót fyrir Lineker og félaga hans i Barcelona en illa hefur þeim gengið á öðrum vígstöðvum í vetur. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.