Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1988, Side 11
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1988.
35
Iþróttir
íslenskir siglingamenn ætla sér að
Gunnlaug
búa sig a
Ekki hefur enn verið ákveðið hvaða íþróttamenn
keppa fyrir Islands hönd á ólympíuleikunum í Seo-
ul en fastlega má reikna með að á meðal þátttak-
enda veröi, siglingamennirnir Gunnlaugur
Jónasson og Isleifur P. Friðriksson. Gunnlaugur
Jónasson keppti á ólympíuleikunum í Los Angeles
og náði þá 23. sæti ásamt félaga sínum, Jóni Olafi
Pétu”ssyni.
• Þeir Gunnlaugur og ísleifur stefna ótrauðir að
toppárangri í Seoul. Þeir setja markið hátt og telja
allir sem til þekkja að með réttum undirbúningi
eigi þeir að geta náð mjög góðum árangri.
• Gunnlaugur og Jón Olafur höfnuðu í 23. sæti
í Los Angeles á ólympíubátnum „470“. Þeir félag-
ar, Gunnlaugur og Isleifur, hafa lagt hart að sér
viö undirbúning og hefur Gunnlaugur meðal ann-
ars ferðast um Evrópu og tekið þátt í keppni
siglingamanna víðs vegar um álfuna á 21 móti.
Aðalmarkmiðið með þátttöku í þessum mótum
hefur auðvitað verið að afla nauðsynlegrar reynslu
fyrir OL í Seoul.
• Gunnlaugur hefur náð góðum árangri í Evr-
ópu. Hann sigraði meðal annars tvívegis á mótum
í Noregi og á síðasthðnu vori hafnaði hann í 11.
sæti á stójrmóti í Saint Maxime í Frakklandi ásamt
Haraldi Olafssyni. Þess má geta að 160 bátar frá
öllum heimshornum tóku þátt í mótinu. Þá má
einnig geta þess að þeir Gunnlaugur og Jón Ólafur
kepptu á heimsmeistaramótinu 1987 og náðu þá
sjöunda besta brautartímanum í fyrstu keppninni
af fimm.
• Gunnlaugi Jónassyni bættist mikill liðsauki á
síðasta hausti er gamla kempan Isleifur P. Friðriks-
son gekk til liðs við hann. Kunnugir telja að
Gunnlaugi sé mikill styrkur í ísleifi enda fer þar
reynslumikill og duglegur siglingamaður. Þeir fé-
lagar leggja hart að sér við æfingar og helga þeir
íþróttinni allan sinn frítíma enda slík fórn nauð-
Isleifur á aðstoð að halda sem vonandi berst áður
en það er um seinan. Þeir stefna hátt og eru stað-
ráðnir í að verða siglingaþjóðinni á Islandi til
mikils sóma á OL í Seoul. -sk
Gunnlaugur og Isleifur sigla beitivind (mótvind) ó æfingu á Skerjafirði á dögun-
um. ísleifur, til vinstri, hangir í „trapísunni" en Gunnlaugur hangir á tábandinu og stýrir.
DV-mynd Páll Stefánsson
• Hér sjást þeir Gunnlaugur Jónasson, til vinstri, og Isleifur P. Friðriks-
son en það kemur væntanlega í þeirra hlut að keppa fyrir íslands hönd
á OL i Seoul. DV-mynd Páll Stefánsson
• í sigl-
// ingakeppni
// ólympíuleik-
// anna er sigldur
// svokallaður ólympiu-
// hringur. Á teikningunni sést
/ uppdráttur að slíkum hring.
/ / Bátarnir hefja siglinguna við hlið
./'y' startbátsins (neðst til vinstri) og slgla
rakleitt frá bauju 1 til bauju 2 og áfram
utan við bauju 3 og þaðan að bauju 1 (i þrí-
-—^ hyrning). Þá er siglt frá bauju 1 og tekin kúvending
við bauju 2 og siglt aftur að bauju 1 (pylsa). Nú er sigld-
ur annar þrihyrningur sem i upphafi og endað á siglingu
frá bauju 1 til bauju 2 þar sem markið er. Um ein sjómíla er á milli bauj-
anna. Siglingin tekur um það bil 90 minútur.
-SK/Teikning Jóhannes Reykdal
„Hafna
nálægt
tíunda
sæti“
„Ég hef þá trú að þeir
Gunnlaugur og ísleifur
ættu að geta hafnað ná-
lægt tíunda sæti í sigl-
ingakeppni ólympíuleik-
anna í Seoul. Þeir hafa
lagt gífurlega hart að sér
við æfingar í allan vetur
þegar aðstæður hafa verið
hagstæðar en stundum
hefur ís hamlað æfmg-
um,“ sagði Óttarr Hrafn-
kelsson, stjórnarmaður í
siglingafélaginu Ými í
Kópavogi og starfsmaður
Siglingasambands ís-
lands, í samtali við DV.
„Vonandi skila þrot-
lausar æfmgar sér í
góðum árangri í Seoul.
Aðstæður í Seoul munu
ekki hafa mjög mikiö að
segja nema þá kannski of
mikill hiti. Þeir Gunn-
laugur og ísleifur eru
góðir viö ailar aðstæður
en kannski bestir í mikl-
um vindi. Ég á von á því
að þeir standi sig mun
betur á OL í Seoul en í Los
Angeles,“ sagði Óttarr.
-SK