Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988. Utlönd Versta útreið hægri manna í þrjátíu ár Jacques Chirac forsætisráöherra á tali við fréttamenn eftir ósigurinn i gær. Símamynd Reuter Bjami Hinriks son, DV, Bordeaux: Francois Mitterrand er fyrsti for- seti Frakklands frá stríöslokum sem nær kjöri í annaö sinn. Klukk- an átta í gærkvöld var ljóst að hann hafði sigraö Jacques Chirac, fram- bjóðanda miðju- og hægri manna, og það með meiri mun en búist haföi verið við. { dag eöa á morgun mun Mitter- rand tilnefna nýjan forsætisráð- herra og ný ríkisstjórn síðan taka við, líklegast samansett af sósíalist- um og miðjumönnum. Upplausn þjóðþingsins og nýjar þingkosning- ar koma til greina. Mitterrand fékk 54,5 prósent at- kvæða á móti 45,5 prósentum Chiracs og þessi mikli munur gefur forsetanum meira svigrúm og vinnufrið en ef hann hefði náð kjöri með lágmarksmeirihluta. Forset- inn vinnur nú með 2 prósent meira fylgi en 1981. Þetta er hins vegar versta útreið hægri manna frá 1958. Eftir fyrri umferð kosninganna 24. apríl þótti víst að Mitterrand myndi sigra í þeirri seinni. En at- burðir síðustu viku - þegar Chirac og stjórn hans stálu senunni með frelsun gíslanna í Líbanon, árás hersins á aðskilnaðarsinna í Nýju Kaledóníu og frelsun 23 gísla svo og heimkoma eins af leyniþjón- ustumönnunum sem stóðu að eyði- leggingu skips grænfriðunga á Nýja-Sjálandi fyrir nokkrum árum og dæmdur hafði verið af þarlend- um yfirvöldum - hleyptu nýjum krafti í kosningabaráttu Chiracs og fylgismenn hans fóriTaftur að trúa á sigur. Vonbrigði stjórnarsinna voru mikil og andrúmsloft sjónvarpsvið- ræðna stjórnmálamanna í kjölfar úrslitanna hlaðið spennu og beiskju. Chirac flutti yfirlýsingu í sjónvarpi strax eftir að úrslit voru kunn og þakkaði öllum þeim sem studdu hann, talaði aðeins um verk stjórnar sinnar síðustu tvö árin og sagði stuðningsmönnum sínum aö þær vonir sem bundnar höfðu ver- ið við framboð hans myndu lifa áfram. Baráttunni væri ekki lokið. Þetta er í fyrsta skipti frá stríðs- lokum sem hinn sigraði í forseta- kosningum kemur fram sama kvöld og úrslit eru kunn. í ræðu sinni seinna um kvöldið lagði Mitterrand áherslu á samein- ingu, frelsi, jafnræöi og gagn- kvæma virðingu. Hann talaði um mikilvægi unga fólksins og að væntanleg stjórn yrði að leita sátta þar sem upp úr hefði soöið. Átti hann þar meðal annars við Nýju Kaledóníu. Fórsetinn sagði að nýtt tímabil væri hafið í sögu landsins. Hvers vegna sigrar Mitterrand með svo miklum mun? Eins og búast mátti við fylktu allir vinstri menn sér á bak við hann: sósíalist- ar, kommúnistar, bæði hefðbundn- ir og lengst til vinstri, og græningj- ar. En þaö sem vantaði upp á til að ná meirihluta kom frá fylgis- mönnum Raymonds Barre og Le Pens. Einnig kom góð kjörsókn frekar Mitterrand til góða en Chirac. ’Af 54,5 prósentum Mitter- rands má ætla aö 2 prósent séu at- kvæði stuðningsmanna Barres og 3,5 prósent komi frá Le Pen. Chirac fékk einungis 60 prósent af öllum atkvæðum Le Pens úr fyrri um- feröinni og er greinilegt aö yfirlýs- ing þess síðarnefnda 1. maí, þar sem hann hvatti óbeint til hjásetu í seinni umferðinni, hefur haft sitt að segja. Af viðbrögðum ýmissa miðju- manna og hófsamra hægri manna er greinilegt að þeir eru ekki á móti samvinnu við sósíalista og samsteypustjórn af einhverju tagi eini raunhæfi möguleikinn. Megin- þema kosningabaráttu Mitterrands var samstaða og samvinna Frakka og líklega er hann sannfærður um að víðtæk samvinna meirihluta stjórnmálaflokka í Frakklandi sé eina leiðin til að 'vinna gegn vax- andi fylgi Þjóðfylkingar Le Pens, bæta efnahag landsins og búa það undir breytingarnar miklu í Evr- ópu 1992. í Frakklandi hafa menn löngum skipst í tvær jafnar fylkingar hægri og vinstri eins og tiltölulega jöfn úrslit í forsetakosningum hafa allt- af sýnt. Breytingar í frönskum stjórnmálum síðustu vikur og þær breytingar, sem búast má við að uppstokkun spila á næstu dögum leiði af sér, verða kannski aö nýtt afl fyrir miðju nær að sameina mikinn meirihluta Frakka. Flestir búast við að Mitterrand tilnefni Michel Rocard, sósíalista, forsætisráðherra. Að vísu tekur sú útnefning ekki gildi fyrr en 20. maí nema Chirac, núverandi forsætis- ráðherra, segi af sér. Hann hefur lýst sig reiðubúinn til þess ef forset- inn óskar. Francois Mitterrand óskað til hamingju með sigurinn í forsetakosningun- um i Frakklandi í gær. Simamynd Reuter Telur sig eina foringja stjómarandstöðunnar Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux: Le Pen, leiðtogi öfgamanna til hægri, hélt langa sjónvarpsræðu í Talaðu við ofefeur um eldhústæfei SUNDABORG 1 S. 68 85 88 - 68 85 89 Le Pen telur sig nú eina mögulega foringja stjórnarandstöðunnar. Simamynd Reuter gærkvöldi þar sem hann taldi sig eina mögulega foringja nýrrar stjórnarandstöðu og hvatti Frakka til að fylkja sér um hann. Að hans sögn undirbjó meirihluti Sameining- arflokks lýðveldisins og Lýðræðis- bandalagsins sitt eigið sjálfsmorð. Valery Giscard d’Estaing, fyrrver- andi forseti og einn leiðtoga Lýðræð- isbandalagsins, taldi úrslitin áfall fyrir frjálslyndisstefnu og að miöju- menn þyrftu að skilgreina og skýra betur stöðu sína og stefnu. Hann sagðist bíða og sjá hvað ný ríkis- stjórn gerði áður en hann gagnrýndi og að fyrirfram væri hann ekki á móti stjórninni. Raymond Barre frá Lýðræðisbandalaginu tók í sama streng og óskaði þess að næstu sjö ár yrðu Frakklandi gæfurík. Simon Veil frá Lýðræðisbandalag- inu og fyrrum forseti Evrópuþings- ins sagði samstarf sósíalista og miðjumanna mögulegt þótt of snemmt væri að fullyrða nokkuð um það. Mitterrand og sósíalistar þyrftu að skilgreina betur stefnu sína áður en miðjumenn ákvæðu nokkuð um samstarf. Eitt væri ljóst: samstarf við Þjóðfylkingúna kæmi ekki til greina. Michel Rocard sagðist skilja áhyggjur þeirra sem ekki kusu Mit- terrand og að morgundagurinn yrði ekki auðveldur en staða Frakklands væri ekki eins slæm og af væri látið. í Vestur-Þýskalandi voru viðbrögð ráðamanna jákvæð, Willy Brandt, fyrrum formaður sósíaldemókrata, var ánægður með sigur Mitterrands og Helmut Kohl kanslari, sagði aö hvort sem Chirac eða Mitterrand hefði náð kosningu hefði hann orðið ánægður. í Bretlandi var Margaret Thatcher forsætisráðherra sömuleiðis ánægð því þótt furöulegt megi virðast kýs hún fremur sósíalistann Mitterrand en hægri manninn Chirac. Ráða- menn í Bretlandi bjuggust þó ekki við svo stórum sigri sem raun varð á. Skoðanakannanir eftir úrslit forsetakosninganna sýna að Frakkar vita ekki almennilega hvernig stjórn þeir vilja. Simamynd Reuter Hápunkturinn Bjanú Hinnksson, DV, Bordeaux: Þessi sigur Mitterrands er há- punkturinn á ferli hans sem stjórn- málamanns. Fjórum sinnum hefur hann boðið sig fram. Fyrst árið 1965 gegn De Gaulle og síðan tvisvar gegn Valery Giscard d’Estaing 1974 og 1981. Tvisvar hefur Mitterrand tap- að, hann hefur tvisvar unnið og allt- af hefur atkvæðafjöldinn aukist. Gegn De Gaulle hlaut Mitterrand 44,8 prósent atkvæða, 1974 fékk hann 49,2 prósent og í sigri sósíalista sjö árum seinna 51,8 prósent og núna 54,5 prósent. Þetta er ekki stærsti sigur fransks forseta. Pompidou vann eitt sinn stórsigur með 58,2 pró- sentum atkvæða. Þær skoðanakannanir, sem gerðar voru skömmu eftir að úrslit voru kunn í gærkvöldi, sýna að Frakkar vita ekki almennilega hvernig stjórn þeir vilja eða öllu heldur að þeir vita ekki hvernig þeir eiga að bregðast við’þeim breytingum sem orðið hafa á hinu venjulega flokkamunstri með hjá MHterrand auknum áhrifum Þjóðfylkingar Le Pens og uppstokkun hinna hefö- bundnu hægri ílokka, Lýðræðis- bandalagsins, sem stendur reyndar ansi nálægt miðju, og Sameiningar- ílokks lýðveldisins. Rúmlega helmingur Frakka virðist vera fylgjandi því að Mitterrand leysi upp þingið og efni til nýrra kosninga en 25 prósent eru á móti. Ef efnt yrði til kosninga myndi Sósíalistaílokk- urinn fá 42 prósent atkvæða og hinir ýmsu vinstri flokkar til samans 54 prósent en Lýðræðisbandalagið og Sameiningarflokkurinn saman 38 prósent og Þjóðfylkingin 8 prósent. Flestir Frakkar vilja sósíalískan forsætisráðherra eða 36 þrósent. Tæp 30 prósent kjósa óflokksbund- inn mann og 22 prósent vilja að hann komi frá miðju stjórnmálanna. Af þeim stjórnmálamönnum, sem helst hafa heyrst nefndir í sambandi við forsætisráðherrastólinn, eru 32 prósent fylgjandi Michel Rocard, 17 prósent vilja Valery Giscard d’Esta- ing og 12 prósent Jacques Delors.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.