Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Page 21
MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988. 21 Fréttir Imm Ingimar Þórðarson, vöruflutningabílstjóri á Egilsstöðum, og aðstoðarmenn losa farm yfir í stærri bíl, sem svo ekur til Egilsstaða. DV-myndir Ægir Slæmt ástand á þjoðvegi: Selflytja farm- inn á smábílum Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði: Mjög slæmt ástand er nú á þjóöveg- inum frá Sævarenda aö Víkurgeröi sunnan Fáskrúðsfjarðar. Vegurinn er nánast eitt drullusvað og illfær venjulegum fólksbílum og er nú aö- eins leyfður ílmm tonna öxulþungi á honum. Vöruflutningabílar, sem koma úr Reykjavík, mega ekki aka lengra en að Víkurgerði. Þaðan verða bílstjór- arnir að selflyfja farminn á smábíl- um að Búðakauptúni, þar sem aðrir flutningabílar eru og taka farminn. Síðan er ekið norður á firði og upp á Hérað. Þessi vegarspotti er um 10 km og verður illfær á hverju vori þegar frost fer úr jörðu. Á veginum frá Fáskrúðsfirði til Reyðarfjarðar er nú leyfður sjö tonna öxulþungi og á sjálfsagt eftir að lækka. Spamaður í framkvæmdum hins opinbera kemur nokkuð oft í ljós á umræddum vegi en fram- kvæmdum er frestað ár eftir ár. Bílstjórar, sem aka þennan veg dag- lega, eru orðnir nokkuð langeygir eftir úrbótum sem lofað hefur verið nokkuð árvisst undanfarin ár og segja vegarslóðann einn hinn versta á leiðinni frá Reykjavík til Aust- fjarða. ?Álölaixkðultij7 IOI?QijlcjaÁ <?imíl58l4 Ekið í einn drullupyttinn af mörgum á Suðurfjarðavegi. Flensa eykur dánartíðni aldraðra Skæð inflúensa hefur gengið yfir landið undanfarnar vikur. Inflú- ensufaraldurinn hefur aukið dánar- tíðni meðal aldraðra nokkuð, en það er einkenni faraldra á borð við þenn- an. Skúli G. Johnsen borgarlæknir sagði í samtali við DV að það væri rétt, inflúensa gæti orðið öldruðum að aldurtila. „En ég hef ekki heyrt af slíku umfram það sem mætti telj- ast eðlilegt. Inflúensan getur orðiö þeim sem eru veikir fyrir að aldur- tila. Þess vegna erum við að reyna aö fá aldraða til að láta bólusetja sig. Það er mismunandi hversu út- breiddir faraldrarnir verða en þessi er einn af þeim verri. Fyrir bólusetn- ingu reynum við að finna út hvaða inflúensustofn er líklegastur til að koma til landsins hverju sinni og telj- um við að þeir einstaklingar, sem voru bólusettir í vetur við inflúensu, hafl nú mótefni fyrir þessari flensu," sagði Skúli. -JBj 83.468 FERMEIMR 788 ÍBÚÐIR 1970 ÍBÚAR Byggingarsamvinnufélag ungs fólks í Reykjavík, BYGGUNG, var sfofnað 1974 fil að byggja meðsem hagfelldustum kjörum íbúðir og íbúðarhús fyrir unga félagsmenn sína. Fró þeim tíma hefur BYGGUNG byggt íbúðarhús víða í Reykjavík og ó Seltjarnar- nesi. í lok þessa órs verður BYGGUNG búið að afhenda alls sjö hundruð óttatíu og ótta ’íbúðir. í órslok verða því samanlagðar fimmtón óra byggingaframkvœmdir BYGGUNG orðnar rétt um 83.468,89 heildarfermetrar. Við reiknum að meðaltali með u.þ.b. 2,5 íbúum ó hverja íbúð, sem þýðir að í órslok 1988 búa nólœgt um 1970 íslendingar í BYGGUNG-húsnœði, eða jafnmargir einstakl- ingar og búa í Grindavík. BYGGUNG er virkur þótttakandi í að gera búsetu í Reykjavík betri. BYGGINGARSAMVINNUFELAG UNGS FÓLKS Lynghólsi 3, 110 Reykjavík, sími (91)-67-33-09.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.