Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Page 35
MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988. 47 Heimilisbókhald DV: LíísstQl Stórkostleg hækk- un milli mánaða viö framkiillun og koperingu á 24 mynda litfilmu oi> 24 nwnda KONICA litfilmu sem Jui færd til baka mann í febrúar var aðeins kr. 4998,75, þannig að hækkun milli mánaða nemur um 58.8%. Þetta er meðaltal 44 einstaklinga. Þegar litiö er á tölur einstakra fjöi- skyldna kemur fram mikill munur. Lægstu tölumar námu kr. 3668 á mann. Þetta er tveggja manna fjöl- skylda. Hæstu tölurnar koma frá fimm manna fjölskyldu á Reykjavík- ursvæðinu. Matarkostnaður á mann í þeirri fjölskyldu nam kr. 12.452. Dýrasti mánuðurtil þessa Marsmánuður er sá dýrasti til þessa og ekki gott að sjá neina ein- hlíta skýringu. Páskarnir koma að vísu inn í en þeir eru ekki slík hátíð að þeir slái út jólin. Þeir eru því ekki aðalástæðan fyrir hækkuninni. Liðurinn „Annað“ virðist óvenju- hár fyrir marsmánuð. Hann er undantekningalaust mun hærri en matarliðurinn og koma þar til ýmsar ástæður. Sámkvæmt bréfum þátttak- enda vega iðgjöld af bifreiöatrygging- um þungt og einnig er nokkuð um fermingar. Á meðfylgjandi súluriti gefur að hta þróunina síðustu mánuði. Hver súla er meðaltal matarkostnaðar á Marsmánuður þungur í skauti Marsmánuður virðist hafa verið dýr mánuður ef marka má tölur úr heimilisbókhaldi DV. Meðaltalsmat- arkostnaður á mann reyndist vera kr. 7.935. Meöaltalsmatarkostnaður á Maturinn er sífellt stærri hlutur I útgjöldum heimilanna. mann á mánuði. Ferhð er þannig að tölumar fóru lækkandi frá því í des- ember þar til að þær snarhækka nú. Gaman væri aö fá línur frá þátttak- endum þar sem þeir skýra þessa miklu hækkun, og nú er um aö gera að senda inn tölur aprílmánaðar. Heimilisbókhald er kjarabót Þótt tölurnar hafi hækkaö mjög fyrir marsmánuð eru þær samt sem áður í lægri kantinum. Jafnvel hæstu tölurnar þykja lágar. Það er því greinilegt að með því að skipu- leggja heimihshaldið og halda bú- reikningum í lagi má spara verulegar íjárhæðir. Lækkiö því við ykkur heimiliskostnað og gerist þátttak- endur í heimilisbókhaldi DV. Þaö er veruleg kjarabót. -PLP MOTTOKUSTAm AUAN BÆf Til dæmis: m Bókaverslun Isafoldar Austurstræti Gleraugnadeildin Austurstræti veiðihúsið Hafnarstræti, Rvík. Veiðimaðurinn Nóatún Steinar Rauðarárstíg, Rvik Handið Siðumúla. Rvík Neytendur íslensku frönsku kartöflumar lélegar Neytandi kom meö franskar kartöflur hingað á DV og sagði sín- ar farir ekki sléttar. Kartöflurnar voru keyptar í verslun í Reykjavík fyrir helgi og áttu síðan að vera með sunnudagssteikinni en reynd- ust óhæfar. Þegar hvolft var úr pokanum í ofnskúffuna kom innihaldiö í ljós. Nær helmingurinn af kartöflunum voru annað hvort meö hýðinu eða augum eða hvoru tveggja. Eins og gefúr að skilja ber enginn shkt á borð fyrir fólk, því bara við að sjá þær missir það lystina. Þessar kartöflur eru islensk framleiðsla og seldar undir merki Þykkvabæj- ar. Aö kvarta yfir íslenskri kartöflu- framleiðslu er eins og beijast viö vindmyllur, ekkert er gert til að bæta ástandið. íslensku framleið- endurnir kvörtuðu sáran yfir lélegum undirtektum neytenda hér á landi og fóru fram á vemd fyrir óheftum innflutningi erlendis frá. Innflutningsgjald hækkað Eins og greint var frá i fréttum í marsmánuði stóð mikill styr um innflutninginn á frönskum kartöfl- um. Veitingamenn lýstu því yfir að íslenska framleiöslan fullnægði ekki kröfúm þeirra og almenning- ur keypti frekar þær erlendu. Um tíma var stöðvaöur innflutningur á kartöflum aö boði landbúnaöarráö- herra. Fjármálaráöherra aflétti síöan banninu á þeirri forsendu aö franskar kartöflur væru iönaöar- vara og þvi ætti innflutningur að vera frjáls. Landbúnaðarráöherra nýtti sér svo heimild í lögum og hækkaði innflutningsgjáldiö úr 40% í 190%. Skýringin var sú að leyfilegt væri að hækka slíkt gjald ef um væri að ræða vöru sem niöurgreidd er til framleiðenda erlendis. Eftir sitja neytendur og verða að taka því sem að þeim er rétt. Annað hvort verður neytandinn aö velja, ódýrari og óætar kartöflur eða dýr- ari og þá inannamat. Við spyrjum: Eiga neytendur endalaust aö kyngja sliku? Ekki tókst að ná í forráöamenn kartöfluverksmiðjú Þykkvabæjar- kartaflna vegna þessa máls. -JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.