Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1988, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 16. MAÍ 1988.
31
Jþróttir
íslandsmótið 1. deild:
Boltar fyrir gras og möl,
inni og úti íþróttaskór, knattspyrnuskór fyrir
möl og gras, gervigrasskór
Gott verð
ÁRMÚLA 36, REYKJAVÍK, SÍMI 82166 OG 83830.
• Aðalsteinn Aðalsteinsson, Völsungi, í hvítum buxum, sést hér í baráttu um knöttinn í leik Völsungs og ÍBK i
Keflavik I gær. DV-mynd Ægir Már Kárason
„Agalega svekktur“
- sagði Daníel Einarsson sem rekinn var af velli
ir mér,“ sagði Daníel Einarsson í liði
Keflavíkur i samtali við DV eftir leik-
inn gegn Völsungi. Daníel var vikið
af leikvelli á 19. minútu síðari hálf-
leiks.
„Ég sagöi línuverðinum að fylgjast
betur með línunni. Hann kallaði í
dómarann sem gaf mér gula spjaldið.
Ég sagði þá sem svo að þetta væri
ekki tilefni til að gefa gult spjald. Þá
fékk ég rauða spjaldið,“ sagöi Daníel.
„Að sjálfsögðu rautt spjald“
Friðgeir Hallgrímsson, dómari
leiksins, sagði eftir leikinn: „Daniel
sendi línuverðinum tóninn. Þegar ég
gaf honum gula spjaldið svaraði
hann mér og fékk þá aö sjálfsögðu
rauða spjaldiö."
• Daníel Einarsson, sem lék me£
Víði í Garði i fyrra, var rekinn a
velli í sínum fyrsta leik með ÍBK.
• Sigurður Halldórsson, sem lék
með Skagamönnum í mörg ár, þjálf-
ar nú 1. deildar lið Vöisungs.
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Ég er alveg agalega svekktur.
Dómarinn eyðilagði þennan leik fyr-
Frétta-
stúfar
Gott hjá Essen
• Alfreð Gíslason og félagar léku
um helgina fyrri úrslitaleikinn
gegn ZSKA Moskva í Evrópu-
keppni meistraraliöa í handknatt-
leik. Essen tapaöi leiknum í
Moskvu 18-15 þannig að liöiö á
góða möguleika í síðari leiknum
sem fram fer í Essen.
í fyrri úrslitaleiknum í Evrópu-
keppni bikarhafa léku Grosswald-
stadt frá Þýskalandi og sovéska lið-
ið Dynamo Minsk. Leikiö var í
Þýskalandi og sigraði Grosswald-
stadt 24-21. Martin Schwalb skor-
aði 12 mörk fyrir Grosswaldstadt
en hjá Minsk var Jakimovich
markahæstur með 10 mörk.
Maradona markakóngur
• Allt útlit er nú fyrir að Argent-
inumaðurinn Diego Armando
Maradona verði markakóngur í
ítölsku knattspyrnunni. Mara-
dona hefur nú skoraö 15 mörk en
félagi hans hjá Napolí kemur
næstur með 13 mörk. Næstir
koma Giuseppe Giannini sem
leikur með Roma og Antonio Vir-
dis hjá meistaraliðinu AC Milan
með 11 mörk.
Bosman samdi
• Hollenski landsliösmaðurinn í
knattspyrnu, John Bosman, sem
leikur með Ajax, hefur skrifað
undir tveggja ára samning við
belgisku Evrópumeistarana Mec-
helen.
Gott hjá Chelsea
• Fyrstu leikimir í úrslita-
keppninni um sæti í hinum ýmsu
deildum í ensku knattspymunni
fóru fram um helgina. Chelsea
sigraði Blackbura Rovers 0-2 og
Bradford Middlesboro 2-1 í bar-
áttunni um laust sæti í 1. deild. í
keppninni um sæti í 2. deild sigr-
aði Walsall iið Bristol City á úti-
velli 1-3.1 slagnum um laust sæti
í 3. deild sigraði Swansea Rother-
ham 1-0 og Torquay vann Scunt-
horpe 2-1.
Larissa meistari
• Nú er sá árstími þegar úrslit
fást í knattspyrnukeppni margra
Evrópulanda. í gær varð Larissa
grískur raeistari og hlaut liðið 43
stig í 1. deild. AEK varð i öðru
sæti með 40 stig og bronsverðlaun
komu í hlut PAOK sera hlaut 39
stig.
Porto langbest
• í knattspyrnunni í Portúgal
hefúr Porto verið í sérflokki í all-
an vetur og hefúr liðiö aðeins tap-
að einum leik. Liðið hefur nú 58
stig en Benfica í öðru sæti er meö
47 stig.
3. titill Graf
• Vestur þýska tennisdrottning-
in, StefFi Graf, vann um helgina
sigur í kvennaflokki í þriðja
skipti á opna vestur-þýska meist-
aramótinu. Graf sigraði Helenu
Sukovu í úrslitum af öryggi 6-3
og 6-2.
IBK-liðið fór
í gang þegar
Danni sá rautt
- ÍBK sigraði VölsungT 3-1
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
„Þetta var góður og sanngjarn sig-
ur og síðari hálfleikurinn var ágætur
hjá minum mönnum. Hvað brottvís-
un Daníels varðar þá er það rétt hjá
dómara að reka menn út af ef þeir
eru með munnsöfnuö. Ég hef sagt
mínum mönnum að láta dómara í
friði við sín störf og það verða þeir
að læra,“ sagði Frank Upton, þjálfari
Keflvíkinga, eftir að menn hans
höfðu unnið öruggan sigur á Húsa-
víkurliðinu Völsungi í 1. deild ís-
landsmótsins í knattspyrnu. Keflvík-
ingar skoruðu þrjú mörk gegn einu
marki gestanna en leikið var á mjög
þurrum malarvelli í Keflavík. Staðan
í leikhléi var 0-0.
í byrjun voru leikmenn beggja liða
taugaóstyrkir og knattspyman ekki
áferðarfalleg. Keflvíkingar urðu þó
fljótlega ágengir við mark Völsungs
og í fyrri hálfleiknum áttu þeir tvö
stangarskot.
Þegar Danni fékk rautt fór allt
af stað
Daníel Einarsson fékk að sjá rauða
spjaldið á 19. mínútu síöari hálfleiks
og Keflvíkingar léku því einum færri
til leiksloka. Við brottreksturinn
fóru hjólin að snúast og þegar innan
við tuttugu mínútur voru til leiks-
loka hafði ekkert mark verið skorað.
Á síðustu sautján mínútunum komu
öll mörkin fjögur og gekk mikið á.
Fyrst skoraði Siguröur Björgvinsson
úr tveimur vítaspyrnum áður en
Snævar Hreinsson skoraði
stórglæsilega með langskoti fyrir
Völsung. Nokkrum sekúndum
seinna innsiglaði Ragnar Margeirs-
son svo sigurinn.
• í liði heimamanna var Ólf Þór
Magnússon bestur og mjög frískur í
framlínunni. Hann fiskaði báðar
vítaspyrnumar sem ÍBK fékk í leikn-
um. Einnig áttu þeir Sigurður Björg-
vinsson og Jóhann Magnússon góðan
leik en Sigurður tók stöðu Daníels í
vörninni og stóð sig mjög vel.
• Hjá Völsungum var Theodór
Jóhannsson einna bestur en annars
voru flestir leikmenn liðsins þungir
á sér og seinir. Greinilegt er að Völs-
unga skortir meiri samæfingu.
„Siðara wtið
algert bull“
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Mínir menn voru seinir og þungir
í þessum leik og Keflvíkingar unnu
sanngjarnan sigur. Keflvíkingar fóru
þó ekki í gang fyrr en Daníel hafði
fengið rauða spjaldið," sagði Sigurð-
ur Halldórsson, þjálfari Völsungs, í
samtali við DV eftir leikinn gegn
Keflavík.
„Það sýndi sig enn einu sinni að lið
tvíeflast þegar þau missa mann út
af. Keflvíkingar reyndu mikið af
löngum sendingum sem gáfust vel.
Ég var ósáttur við síðari vítaspyrnu-
dóminn. Ég er ekki vanur að gagn-
rýna dómgæslu en þessi dómur var
algert bull. Við munum hins vegar
koma tvíefldir til næsta leiks. Okkur
vantar meiri samæflngu en þetta
kemur vonandi allt saman hjá strák-
unum. Okkur hefur verið spáð falli
í 2. deild en við ætlum okkur að af-
sanna þá spá. Við erum með mann-
skap til þess,“ sagði Sigurður Hall-
dórsson. -SK