Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1988, Side 12
34
MÁNUDAGUR 16. MAÍ 1988.
Iþróttir
Enn eitt
metið hjá
Wimbledon
vann Uverpool, 1-0, í úrslitum bikarsins
Úrslit í ensku bikarkeppninni hafa
oft veriö óvænt en úrslit leiks Liver-
pool og Wimbledon eru með þeim
óvæntari hin síðari ár. Liverpool eitt
besta, ef ekki besta félagslið í heimi,
lagt svo að segja á heimavelli af liði
sem var utan deilda fyrir ellefu
árum. Slíkar hugsanir þóttu það fár-
ánlegar í Englandi að veðmangarar
gáfu þeim sem þorðu að veðja á
Wimbledon mikiö fyrir lítið. Með
þessum sigrí sínum kom Wimbledon
í veg fyrir að Liverpool næði að sigra
tvöfalt í annað skipti á stuttum tíma
og verða fyrst liða í Englandi til að
drýgja þá dáð.
Leikmenn Liverpool, sem flestir
hafa spilað marga leiki á Wembley-
leikvanginum í London, fyrir Li-
verpool svo og landslið ýmissa þjóða
náðu aldrei að sýna það léttleikandi
spil sem þeir eru frægir fyrir. Til
þess var barátta Wimbledonleik-
mannanna of mikil. Ávallt var
Wimbledonfótur eða Wimbledon-
höfuð komið fyrir knöttinn. Það tók
léikmenn beggja liða nokkum tíma
að átta sig á aðstæðum en eftir það
var stanslaus keyrsla og barátta all-
ann leikinn út í gegn.
Beardsley skorar:
markið dæmt af
Eftir tæpt korter virtist Liverpool
vera að ná yfírhöndinni og þá gerðist
umdeilt atvik er Peter Beardsley
skoraði mark sem dæmt var af. Andy
Thom, miðvörður Wimbledon, braut
á Beardsley, náði þó ekki að fella
hann alveg en datt-sjálfur. Beardsley
var því kominn í gegnum vömina
og skoraði mark. Dómarinn flautaði
strax er brotið var á Beardsley. Þar
var hann of fljótur á sér, átti að beita
hagnaðarreglunni. Þetta atvik skipti
sköpum fyrir Liverpool. Alan Hans-
en, fyrirliði Liverpool, sagði eftir
leikinn: „É'g sagði við dómarann að
þetta hefði verið slæm ákvörðun hjá
honum. Dómarinn sagði að þetta
væri sanngjörn gagnrýni og ég tók
það sem svo að hann viðurkenndi
mistökin."
Leikmenn Liverpool héldu áfram
að sækja og þrisvar sinnum varð
Dave Beasant, markvörður Wimble-
don, að veija stórkostlega. Hann var
liðinu mikill styrkur því auk þess
sem hann varði allt sem á markiö
kom þá sýndi hann geysilegt öryggi
sem varð meðspilumm hans mikil
hvatning.
En leikmenn Wimbledon áttu sín
færi og voru varnarmenn Liverpool
í sífellu að bægja hættu frá markinu.
Það tókst þó ekki alveg því á 36. mín-
útu skoraði Lawrie Sanchez mark
með skalla eftir homspymu. Þá var
sett á svið endurtekning á sögunni
um Davíö og Golíat. Skömmu síðar'
brá Grobbelaar, markvörður Li-
verpool, sér í skógarferð, missti af
knettinum. Terry litli Gibson náði
honum en tókst ekki að skora í autt
markið.
í síðari hálfleik hélst baráttan án
þess að leikmenn fengju góð mark-
tækifæri. Reyndar fékk Liverpool
vítaspymu sem að flestra mati var
hrein gjöf. Bakvörðurinn Clive Go-
odyear og John Aldridge komu að
knettinum á svipuðu augnabliki.
Goodyear komst á knöttinn á undan
en Aldridge féll. Dómarinn dæmdi
umsvifalaust vítaspymu og var ef til
vill að bæta Liverpool upp mistökin
frá þvi í fyrri hálfleik er hann dæmdi
af þeim mark. En Beasant, mark-
vörður Wimbledon, kórónaði stór-
kostlegan leik sinn með því að verja
vítaspymuna. Eftir það var aldrei
spuming um hvort liðið ynni þrátt
fyrir að Liverpool setti báða vara-
menn sína inn á.
Engin leikmaður var bókaður í
leiknum en mörgum var heitt í
hamsi. Blóð, sviti og tár spmttu út á
leikmönnum og er það satt að segja
stórkostlegt að ekki skuli hafa soðið
upp úr hjá þeim. -EJ
• Fögnuður leikmanna Wimbledon var mikill þegar sigurinn var í höfn gegn Liverpool á laugardag. Hér faðmast
þeir Terry Gibson og John Fashanu, (númer 9). Simamynd Reuter
• Diana prinsessa heilsar hér upp á Kenny Dalglish, framkvæmdastjóra
Liverpool, fyrir leikinn gegn Wimbledon í úrslitum ensku bikarkeppninnar
á laugardag. Símamynd Reuter
TVeir tímar í undirbúning
- sagði Bobby Gould, sijóri Wimbledon
„Éghefði átt að
grípa knöttinn"
- sagði Beasant, markvörður Wimbledon
„Rökrétt að
Aldridge
tæki vítið“
— sagði Kenny Dalgl-
ish, stjóri Liverpool
Kenny Dalglish, framkvæmda-
stjóri Liverpool, er að vonum von-
svikinn yfir úrslitum leiksins. „Von-
brigðin eru geysileg. Liverpool hefur
gengið mjög vel undanfariö. Hver
sigur er sætur og ósigur súr. Leik-
menn Liverpool hafa spilað
skemmtilega knattspymu þetta
keppnistímabil og skemmt þúsund-
um knattspymuaðdáenda. Viö náð-
um ekki þeim tökum á leiknum sem
við ætluðum okkur, annars hefðum
við verið að fagna nú en ekki
Wimbledonliðið," sagði Dalglish og
bætti við. „Ég ætlaði að taka John
Aldridge út af áður en vítaspyrnan
var tekin en hann hefur skorað ellefu
sinnum úr vítaspyrnum fyrir Liver-
pool og því var rökrétt að hann tæki
spymuna," sagði Dalglish að lokum.
John Aldridge var með tárin í augun-
um er hann var tekinn út af og sagð-
ist ekkert vilja tala um vítaspyrnuna.
-EJ
Bobby Gould, framkvæmdastjóri
Wimbledon, er ákaflega hamingju-
samur maður. Hann tók við liðinu í
haust og lætur draum leikmanna og
aðdáenda Wimbledon rætast. „Við
unnum saman í tvo klukkutíma dag-
inn fyrir leikinn að því að fmna út
hvemig við gætum stoppað Liver-
pool og nú uppskerum við fyrir
vinnu okkar,“ segir Gould.
Draumur Wimbledon hefur ræst,
en líkumar vom liðinu ekki hag-
stæðar. Liverpoolliðið, sem byggist á
aðkeyptum stjömum, kostar margar
miljónir punda en liö Wimbledon
kostaöi ekki helming þess sem greitt
var fyrir Peter Beardsley er hann var
keyptur í fyrrasumar fyrir 1,9 millj-
ónir punda. Ekki er ólíklegt að leik-
menn Wimbledon hækki í verði eftir
bikarsigurinn.
-EJ
Markmannsrisinn Dave Beasant,
fyrirliði Wimbledonliðsins, gnæfði
upp úr Wimbledonhópnum er liðið
fagnaði sigri sínum á Liverpool í
London í gær. Beasant, sem hefur
spilað með liðinu frá þvi aö Wimble-
don var í 4. deild og hefur reyndar
spilað hvem einasta leik liðsins und-
anfarin sex ár, var maður leiksins.
Þrisvar sinnum varði hann dauða-
færi frá leikmönnum Liverpool og
setti punktinn yfir i-ið er hann varði
vítaspymu John Aldridge í síðari
hálfleik. Aldridge, sem tók sína tólftu
vítaspymu fyrir Liverpool, hafði
aldrei áður mistekist að skora og
aldrei hafði vítaspyrna mistekist í
úrslitaleik í ensku bikarkeppninni
fyrr.
Markvörðurinn Dave Beasant var
þrátt fyrir aUt ekki ánægður með
vörsluna á vítaspymunni. „Ég hefði
átt að grípa knöttinn. Yfirleitt stend
ég beinn þegar andstæöingarnir fá
vítaspymur. Þeir sem em bestir að
taka vítaspyrnumar bíða eftir að
markverðirnir skutii sér og skjóta
svo í hitt homið. Ég bíð og skutia
mér þegar andstæðingurinn hefur
skotið,“ sagöi Beasant í sigurvímu.
Beasant, sem er tæpir tveir metrar
á hæð, hefur vakið athygli fyrir
leikstíl sinn. Fyrir utan það að verja
sem berserkur tekur hann flestar
aukaspymur hðsins á eigin vallar-
helmingi og skálmar að því loknu í
eigið mark. Einnig á hann það til að
rekja knöttinn áleiðis að marki and-
stæöinganna til að ná sem lengstri
spyrnu. „Þegar við vorum í 3. deild
ákváðum við Dave Bassett, sem þá
var framkvæmdastjóri Iiðsins, að ég
skyldi prófa þessa aðferð og hún hef-
ur reynst vel. Ég næ meiri ná-
kvæmni með þessum spyrnum og því
em meiri líkur á að við skorum
mark,“ sagði Beasant.“
-EJ