Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Page 4
Fréttir
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988.
I>V
Sauðfjárbúskapur í borgarmenningunni:
Yfir300 bóm komu til mín í
heimsókn um sauðburðinn
-segir Amór Guðlaugsson, sauðfjárbóndi í Kópavogi
Þeim fækkar óðum sem stunda
búskap inni í miðju þéttbýli. Þó eru
einstaka karlar sem hafa nokkrar
kindur, hesta eða hænur. Til
skamms tíma voru fjórir sauðfjár-
bændur í Kópavogi. Þeir eru allir á
leið út fyrir þéttbýhskjarnann en
Kópavogsbær hefur útvegað þeim
land undir búskapinn við Fífu-
hvammstúniö.
Einn þessara sauðfjárbænda er
Arnór Guðlaugsson. Hann hefur
stundað búskap ásamt konu sinni og
Guðbirni syni sínum neðan við
Digranesveginn síðastliðið 21 ár.
Sjálfur býr hann hinum megin göt-
unnar.
„Ég skal segja þér að það komu hér
ung hjón fyrir nokkrum árum í
kringum sauðburðinn. Þeim fannst
hreinlega stórkostlegt að vera við-
stödd burð lambanna, höfðu varla
upplifað neitt þessu líkt, enda aldrei
verið í sveit.
Fæðingin er stórkostleg, hvort sem
er hjá mönnum eða dýrum. Sauð-
burðurinn laðar fólk alltaf að. í fyrra
komu til að mynda heil þrjú hundruð
skólabörn til mín.“
Arnór Guðlaugsson, fjárbóndi í Kópavogi, með tvö vorlömb. DV-mynd GVA Það sýnist kannski sitt hverjum
um að hafa fjárhús og rollur fyrir
framan stofugluggana hjá sér en
Arnór segir að sambúðin við ná-
grannana hafi gengið afskaplega vel.
„Reyndar kviknaði í hjá mér í
fyrra. Þar voru víst einhverjir strák-
bjánar aö verki. Fólk segist munu
sakna mín enda fengið ókeypis skít
í garðinn. Ég sagði viö prest hér um
daginn að ekki væri guðlast að hafa
rollur innan um mannfólkið. Jésú
fæddist í jötu, Nýja testamentið var
þýtt í fjósinu í Skálholti og margir
hafa lært kverið sitt í íjósinu hér
áður fyrr þegar of kalt var í baðstof-
unni.“
Arnór sagði frá Sóleyjarkollu,
frægustu kind á íslandi. Hún hefur
borið fjórum sinnum um vetur, nú
siðast í mars og þykir það einsdæmi.
Nýja lambið heitir Derrick, en rollan
bar sama kvöld og sá þýski bófaskelf-
ir hóf göngu sína á skjánum á ný.
Loks sagði Arnór að þaö væri mik-
ilvægt að hafa eitthvað við að vera í
ellinni þegar manni hafl verið ýtt út
af vinnumarkaðnum. Þar kæmu roll-
urnar sér vel.
-HLH
HandknatUeikssambandið og Skaksambandió:
„Mark og mát“
Handknattleikssamband íslands
og Skáksamband íslands eru um það
bil að stofna með sér sérstakt félag
til aö reka hraðhappdrætti, líkt og
lukkuþrennurnar sem eru í gangi, til
fjáröflunar fyrir þessi sambönd. Örn
Petersen, starfsmaður Visa ísland,
hefur fengið 9 mánaöa leyfi til að
koma þessu hraðhappdrætti á lagg-
irnar og verður hann starfsmaður
þess til næstu áramóta.
Örn sagði í samtali við DV að fjár-
öflunarfélagið, sem samböndin ætla
aö stofna í síðustu viku maí, ætti að
heita „Mark og mát.“ Þar sem Há-
skólinn hefur einkaleyfi á peninga-
happdrættum yrði hér um vöru-
happdrætti aö ræða. Þar sem ekki
fást allar vöru alls staðar hefur Visa
ísland verið fengið til aö aðstoöa við
að færa til peninga til vörukaupa
fyrir vinningshafa. Örn sagðist von-
ast til aö hraöhappdrættið gæti fariö
af stað í fyrstu viku júní.
Örn Petersen benti á að þessi tvö
sambönd, Skáksambandið og Hand-
knattleikssambandið, væru með
mestu umsvifin á aiþjóðavettvangi
af íslenskum íþróttasamböndum og
því hefði þótt rétt að þau slægju sér
saman í þetta fjáröflunarfélag. Hand-
knattleikssambandið fær hluta af
Lotto-hagnaöinum en Skáksamband-
ið ekki. Eignarhlutfall sambandanna
í „Mark og mát“ verður þannig að
Handknattleikssambandið mun eiga
60% en Skáksambandið 40%.
-S.dór
Skagfírðingar teknir
á 150 km hraða
Tveir Skagfirðingar á vélhjólum
voru teknir í kappakstri á Vestur-
landsvegi á fóstudag. Það var klukk-
an rúmlega sex síðdegis aö lögreglan
mældi þá á 149 kílómetra hraöa. Þá
voru þeir á Vesturlandsvegi við
Korpu á norðurleið. Þeir voru báöir
sviptir ökuleyfi. Ökumennirnir eru
19 og 26 ára gamhr.
-sme
Bakarinn sem sagt var upp störfum hjá KB:
Átti eitt ár íeftir-
laun eftir aldar-
fjórðungs starf
„Mér finnst það furðulegar að-
farir aö kalla manninn upp á skrif-
stofu klukkan 10.30 á frídegi verka-
lýðsins til aö segja honum fýrir-
varalaust upp starfi eftir 24 ára
starf hjá Kaupfélagi Borgfirðinga.
Hann vantar aðeins eitt ár til að
komast á eftirlaun,“ sagöi Sigur-
geir Erlendsson tengdasonur bak-
arans, sem rekinn var fyrirvara-
laust frá brauðgerð Kaupfélags
Borgfirðinga fyrir að hjálpa
tengdasyni sínum í bakarii sem
hann hefur nýverið sett á fót.
Bakarinn hefur fengiö sér lög-
fræðing til aö annast sín máL Sig-
urgeir Erlendsson, sagði í samtali
viö DV að tengdafaðir hans heföi
starfað í 24 ár hjá kaupfélaginu og
hefði því átt eftir eitt ár í starfi til
aö komast á eftirlaun.
Ólafur Sverrisson kaupfélags-
sfjóri sagði í samtali við DV eftir
brottreksturinn að manninum
hefði verið sagt upp störfum þar
sem kaupfélagið og umræddur
starfsmaöur þess ættu ekki lengur
sameiginlega hagsmuni þar sem
bakarinn væri orðinn hluthafi í
ööru bakaríi og ynni þar í hjáverk-
um.
Sigurgeir Erlendsson bakari seg-
ir tengdafóður sinn eiga lítið hluta-
bréf í bakaríinu til að ná nauðsyn-
legum fimmta aöila inn í hlutafé-
lagið. Tengdafaöir hans hefur að-
eins einu sinni hjálpað honum í
bakaríinu en það var á aðfaranótt
1. maí en strax daginn eftir var
honum sagt upp störfum. Það var
á frídegi verkalýðsins auk þess sem
verkfall var hjá kaupfélaginu og
því lítið að gera fyrir bakarana þar.
-JBj
Beðið staðfestingar páfa
á dagskrá heimsóknarinnar
hugsanlegt að messað vevði á Þingvöllum
„Við bíðum nú staðfestingar frá
páfanum á þeirri dagskrá sem við
höfum sett saman,“ sagði Alfred Jol-
son, biskup kaþólikka á íslandi, um
væntanlega dagskrá páfaheimsókn-
ar sem mun verða um mitt næsta ár.
Jolson sagði að niðurstaða fengist
væntanlega næstu daga enda Jó-
hannes Páll páfi aö ljúka heimsókn
sinni í S-Ameríku.
Jolson sagöi aö miklar vangaveltur
hefðu veriö um væntanlegan messu-
stað páfa enda þyrfti margs að gæta
í því sambandi. Gert er ráð fyrir tölu-
verðum fjölda fólks við messuna en
Jolson játaði að Landakotstúnið væri
nú líklegasti messustaðurinn. Áður
höfðu Amarhóll og Háskólalóðin
verið nefnd til sögunnar. Þá sagði
biskupinn einnig að það hefði komiö
til tals að messa yröi haldin á Þing-
völlum sem yröi þá með þátttöku
fleiri safnaöa. Það væri þó of snemmt
aö spá fyrir um það enda er ekki
búist við aö páfinn dvejjist hér lengur
en einn og hálfan dag.
Páfinn mun örugglega hitta forseta
íslands og þá er líklegt að ríkisstjóm-
in fái áheym hjá honum. ísland verð-
ur annað Norðurlanda sem páfinn
heimsækir en hann fer fyrst til Nor-
egs. -SMJ
Næturdagskrá rásar 2
Engin bilun
DV sagði frá því á miðvikudag að
hlustandi næturdagskrár rásar 2 að-
faranótt mánudags hefði haft sam-
band og sagt að lítið eftirlit væri með
næturdagskrá rásarinnar. Hann
sagði að hjakkað heföi verið í sama
farinu í tvær klukkustundir.
Ólafur Þórðarson hjá rás 2 hafði
samband við DV vegna þessa. Hann
sagði að næturdagskrá rásar 2 væri
forrituð inn á tölvu. Starfsmenn rás-
arinnar könnuðu tölvuútskriftir um
bilanir, sem ætíö liggja fyrir, m.a. frá
aðfaranótt mánudags, og sagði Ólaf-
ur að engin bilun hefði átt sér stað.
Það geta komið upp tilfelli þar sem
um gallaða geisladiska er að ræöa,
sagði Ólafur, en í slíkum tilfellum er
í mesta lagi um tveggja mínútna bil-
un að ræða á meðan þaö er lagfært.
-StB
Knattspyma á Litia-Hrauni:
Jafnt hjá
föngum og
lögfræðingum
Úrvalsliö lögmanna og fanga á
Litla-Hrauni áttust við í stór-
skemmtilegum knattspymuleik fyrir
nokkru. Leikurinn fór fram á heima-
velli þeirra síðamefndu. Leiknum
lauk með jafntefli, átta mörkum gegn
átta.
Leikurinn var prúðmannlega leik-
inn og höfðu liðsmenn beggja liða
gaman af. Fyrirhugað er að liðin
mætist sem fyrst á ný.
í liði lögmanna voru eftirtaldir
leikmenn: Guðmundur Þórðarson,
fyrrverandi landsliðmaður úr
Breiðabliki, Viöar Már Matthíasson,
Andri Ámason, Ólafur Garðarsson,
Gunnar Jónsson, Sigmundur Hann-
esson, en hann mun hafa leikiö með
KR í æsku, Guðni Haraldsson og
bræðurnir Friöjón Öm og Ingólfur
Friðjónssynir.
Eftir leik settust liösmenn saman
að rabbi og var þá fastmælum bund-
ið að mætast oftar á vellinum að
Litla-Hrauni. -sme