Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988. Utlönd Jesse Jackson býr við sífelida ógnun af hálfu aðila sem hatast við litaða kynþætti. Símamynd Reuter Formleg ákæra fyrir samsæri Yfirvöld í St. Louis í Missouri í Bandaríkjunum lögðu í gær fram formlega ákæru á hendur Londell Williams, þrítugum karlmanni sem sakaður er um að hafa ætlað að myrða Jesse Jackson. í ákærunni er sagt að Williams hafi haft í hyggju að skaða Jackson líkamlega. Eigin- kona Williams, Tammy, var ákærð fyrir ólöglegan vopnaburð, en hún mun hafa tekið þátt í ráðabrugginu með eiginmanni sínum. Þegar Williamshjónin voru hand- tekin var talað um að þau hefðu stað- ið aö samsæri um að myrða Jackson. Ekki er minnst á slíkt samsæri í ákærunum á hendur þeim og má því telja víst að yfirvöldum sýnist af- Londell Williams, þrítugur að aldri, hefur verið formlega ákærður fyrir að hafa, ásamt eiginkonu sinni, ætl- að að myrða Jackson. Simamynd Reuter sannað að fleiri aöilar en hjónin hafi tekið þátt í skipulagningu aðgerða gegn Jackson. Jesse Jackson, sem er einn af fremstu leiötogum þeldökkra í Bandaríkjunum, auk þess að hann sækist nú eftir útnefningu sem for- setaefni demókrata þar, lifir sífellt í skugga ógnana af hálfu öfgasinnaðra kynþáttahatara. Honum berast alltaf öðru hvoru morðhótanir. Fyrir nokkrum dögum varð að- stoðarmönnum hans mjög órótt þeg- ar skothylki fannst um borð í flugvél sem Jackson og fylgdarlið hans ferð- aðist í. Skothylki þetta var ekki af sömu gerð og þau sem öryggisverðir hans nota. Við erum aðeins að skapa rými fyrir nýjar vörulínur! Notið tækifæri sem ekki gefst aftur og gerið hagkvæm kaup Á rýmingarsölunni bjóðum við m.a.: Dæmi um verð: -Heilartepparúllur -Teppabúta og afganga -Mottur og stök teppi -Fyrsta flokks gólfdúka —ítölsk leðursófasett -Sófaborð -Borðlampa -Amerísk málverk Afsláttur Áður: Nú: 20% Ballet 139.500 111.600 30-50% ýmsir 5.000 2.500 20% L 1,70X2,40 36.025 28.820 25% Rikettfm. 595 446 20% Altana 121.000 96.800 30% Turin 15.250 12.200 20% Lampi 6.450 5.160 30% stærsta gerð 21.900 17.520 Góðir greiðsluskilmálar - Eurokredit - Visa-raðgreiðslur. TEPPABÚÐIN hf. SUÐURLANDSBRAUT 26, s. 681950-84850. I ’crid vc/komin! Lrtil knatt- spyma í opin- beru sjónvarps- stöðvunum Ásgeir Eggertsson, DV, Miinchen; Allt útlit er fyrir að umfjöllun um knattspyrnu í opinberu sjónvarps- stöðvunum ARD og ZTF í V-Þýska- landi verði lítil sem engin á næstu keppnistímabilum. Knattspymu- samtök V-Þýskalands eru þessa dag- ana að semja við fyrirtækið UFA um umfjöllunarrétt á þýskri knatt- spyrnu. UFA býður knattspyrnusamtökun- um 135 milljónir v-þýskra marka eða um helmingi meira en sjónvarps- stöðvarnar segjast hafa efni á. Fyrir- tækið UFA hyggst selja réttinn til útsendingar til hinna ýmsu útvarps- og sjónvarpsstöðva. Sjónvarpsstöðvarnar ARD og ZTF hafa hingað til sent þriggja mínútna útdrátt úr þremur til fjórum leikjum fyrstu og annarrar deildar stuttu eft- ir að leikjunum hefur verið lokið. UFA-fyrirtækið segir að þaö eina sem breytist sé að fleiri stöðvar en ríkis- sjónvarpið fái að sýna frá knatt- spymuleikjunum. Með rollur í herinn Asgeir Eggertsson, DV, Munchen: Ekki leist yfirmönnum Reiners Schmalzbauer á blikuna er hann birtist meö tvö hundruð kindur sínar sem hann krafðist aö hafa með sér í herbúðunum þar sem hann gegndi herskyldu. Schmalzbauer þessi er frístunda- fjárhirðir og hafði ekki tekist að finna neinn sem vildi hirða fé hans. Það var því örþrifaráö að þramma með hjörðina í herbúðimar. Ekki nutu rollumar dvalarinnar lengi því eftir þrjátíu stundir sem herkindur vom þær sendar til húsa sinna ásamt eigandanum. Nú hefur sem betur fer fundist lausn á þessu máli. Varð það úr að Schmalzbauer gegnir herskyldu í þrjá mánuði á ári hverju þar til skyldutíma hans er lokið. Þeim níu mánuðum sem eftir em á hveiju ári getur hann varið með kindum sínum að vild.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.