Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988.
13
Lesendur
„Það er augljóst, að kona situr ekki löglega í embætti forseta íslands, nema 4. lagagr. stjórnarskrár sé breytt",
segir bréfritari. - Forsetasetrið að Bessastöðum.
Forsetakjör og kyngreining
Ásdís Erlingsdóttir skrifar:
í 4. grein stjómarskrárinnar segir:
„Kjörgengur til forseta er hver 35 ára
gamall maöur...“ (tilvitnun stytt).
En kona eöa kvenmaður er ekki
nefnd á nafn. Samkvæmt 33. grein
stjómarskrárinnar er nafn konunn-
ar virt, ásamt karlinum, að þau megi
bjóða sig fram í Alþingiskosningum.
Það er þess vegna augljóst mál, að
kona situr ekki löglega í embætti for-
seta íslands, nema að 4. lagagrein sé
breytt í líkingu við 33. grein, en þar
em bæði kynin tilgreind sem hæfir
frambjóðendur. - En samkvæmt 5.
grein stjómarskrárinnar situr kona
löglega í embætti forseta íslands. En
þar segir: „Sá sem flest fær atkvæði,
ef fleiri en einn er í kjöri, er réttkjör-
inn forseti." - Hvers vegna fórum við
ekki að lögum eins og aörar þjóðir?
Þannig kom í ljós, að er ríkisarfar
Danmerkur og Svíþjóðar vom kon-
ur, þá þurfti að breyta lögunum til
þess að þær gætu orðið þjóðhöfðingj-
ar viðkomandi landa. - Því krefst ég
þess að Alþingi sjái sóma sinn í að
breyta 4. grein stiómarskrárinnar
þannig að kvenframbjóðandi verði
rétt kjörinn forseti íslands.
Hættið þeim ævintýraleik að gera
konur í embættisleit að hvorug-
kynsverum, þ.e.a.s. maður - mann-
kyn. - Orðið maður er karlkynsorð,
ef um karlpersónu er að ræða. En
orðiö maður er ekki kvenkyns, nema
um kvenkynsperósnu sé að ræða.
Bæði kynin eiga rétt til að bjóða sig
fram til forsetaembættisins, - en ekki
bamið.
Orðatiltækið „manni flnnst" eða
„sjáðu maður“ hefur sömu hvomg-
kynsmerkingu og mannkyn, þ.e.a.s.
maður, kona og bam. - Eg spyr:
Fæðir maður bam? Eða var fröken
Ingibjörg Bjarnason fyrst kjömi ai-
þingismaður á íslandi?
Ef hæstaréttardómari og íslensku-
fræðingur væm á gönguferð framhjá
Fæðingarheimib Reykjavíkur,
myndu þeir þá segja sem svo; „Þama
inni em mennimir að fæða bömin?"
- Eða ef þeir sæju margar konur í
hóp, myndu þeir þá segja; „Ne-hei,
sjáðu mennina?" - En maður og kona
em menn.
Vísítolumálin:
Vaknaðu,
Steingrímur!
Ábending
um málfar
Ingvar Agnarsson skrifar:
I fjölmiðlum er mjög algeng
rangnotkun oröasambandsins
„að notast við“ e-ð. Þar hefur
mátt heyra og $já málfar sem
þettæ „Loftleiöirkaupanýjaþotu
af fullkomnustu gerð og ætla að
NOTAST VIÐ HANA til milli-
landaflugs", eða „Eimskip hefur
fest kaup á nýju og fullkomnu
flutningskipi og ætlar að NOT-
AST VH) ÞAÐ til Atlantshafssigl-
inga.“
Meö þessu orðalagi er geflð í
skyn, eða raunar beiniínis sagt,
aö þaö sé neyðarúrræöi fyrir
umrædd félög að þurfa aö nota
þessi umræddu farartæki, fiug-
vélina eða skipið, sem þó em af
fulikomnustu gerö, rétt eins og
þau væm Jitt hæf til notkun-
ar.
Hér væri verkefiii fýrir mól-
fræðinga að stemma á að ósi. •
S. Kjartansdóttir skrifar:
Ég hef lengi haft æma ástæðu til
að láta í mér heyra á opinberum vett-
vangi. Nú nýlega lét sá ofurvinsæli
stjómmálamaður, Steingrímur Her-
mannsson, hafa það eftir sér að hann
vildi fella niður allar vísitölur. - Ég
bara spyr: er nú Sambandið farið að
þurfa að borga lánin sín til baka?
Með þessu leyfir ráðherrann sér
að leggja til að við hverfum aftur til
hðinna tíma og losnum við að borga
það sem við skuldum. Ég segi nei,
takk. Ég vil fá að borga mín hús-
næðislán og námslán að fifllu. - Til
hvers? Jú, til þess að sonur minn
geti fengið lán þegar að honum kem-
ur svo og e.t.v. önnur lán sem til
boða standa í þessu landi.
Við verðum að skiija aö vísitala er
ekkert nema mælikvarði á verð-
bólgu. Mín kynslóð skilur þetta þótt
stundum sé stunið undan því, eins
og gengur, og ég tnii því ekki að
nokkur maöur vilji hverfa aftur til
þess tíma, þegar sparifé landsmanna
var étið upp á meðan þeir græddu
sem fjárfestu gegndarlaust.
En þetta vom dýrðardagar Sam-
bandsins og kannski vill ráðherra
hverfa aftur til þeirra tíma. Eða hef-
ur hann einhver rök fyrir þessari til-
lögu sem ég kalla óábyrga? - Er hon-
um alveg sama um landsmenn, bara
ef hægt er að tryggja einhverja sér-
hagsmuni? Er engin ábyrgðartiifinn-
ing til staðar?
NÝKOMIÐ
Brasilíumahóní, askur, eik, iraco, paun,
marfin, brenni. Fullþurrkaður viður.
BYGGW HE
Grenásvegi 16 - sími 37090
AUGLÝSING
Staða símavarðar í fjármálaráðuneytinu er laus til
umsóknar.
Umsóknum sé skilað í fjármálaráðuneytið fyrir 26.
maí nk.
18. maí 1988
Fjámálaráðuneytið
Tjaldsvæði lokuð á
Þingvöllum
Gróður er skammt kominn á veg á Þingvöilum. Tjald-
svæðin verða því lokuð enn um sinn. Þjónustumið-
stöð þjóðgarðsins er hins vegar opin. Þar er hreinlæt-
isaðstaða fyrir almenning og margvísleg fyrirgreiðsla
önnur. Leiðsögn um þingstaðinn er einnig í boði án
endurgjalds að vanda.
Þeim sem hug hafa á leiðsögn er bent á að snúa sér
til þjóðgarðsvarðar á Þingvallabæ sími, 99-2677.
Stangaveiði fyrir landi þjóðgarðsins er öllum heimil
endurgjaldslaust til maíloka.
Þó eru menn beðnir að varast veiði í Lambhaga um
varptímann.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður við
framhaldsskóla.
Við Fjölbrautaskólann í Garðabæ eru lausar til um-
sóknar kennarastöður í eftirtöldum greinum: stærð-
fræði, viðskiptagreinum, ensku, samfélagsgreinum,
raungreinum, íslensku, spænsku og fjölmiðlafræði.
Þá vantar stundakennara í ýmsar greinar.
Iþróttakennara vantar enn fremur í heila stöðu í eitt ár.
Við Kvennaskólann í Reykjavík, menntaskóla við
Fríkirkjuveg, vantar kennara í stærðfræði, líffræði og
íslensku. Þá vantar stundakennara í þýsku og félags-
fræði.
Við Verkmenntaskóla Austurlands, Neskaupstað, eru
lausar kennarastöður í íslensku, dönsku, stærðfræði,
tréiðn, málmiðn og rafiðn.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík, fyrir 6. júní næstkomandi.
Umsóknir um stundakennslu sendist skólameisturum
viðkomandi skóla.
Menntamálaráðuneytið
ySm
wmm
■'dpiJ
'
■
þar sem smáauglýsingarnar verða
STÓRAR! Síminn er 27022
-* •■-T