Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 700 kr. Verð I lausasölu virka daga 65 kr. - Helgarblað 80 kr. Blaðamannanám Nokkur umræöa hefur farið fram á síöum Morgun- blaðsins og innan Blaöamannafélags íslands um nauð- syn íslensks blaöamannaskóla. Nú síðast hefur Þorbjörn Broddason dósent gert grein fyrir því aö félagsvísinda- deild Háskóla íslands hefur gert áætlun um eins árs nám í hagnýtri fjölmiðlun og slík kennsla hefur þegar verið tekin upp í fjölmiðlafræði innan deildarinnar. Áhugi er á að auka og bæta við það nám. Hér skal tekið undir þau sjónarmið og rök sem mæla með aukinni kennslu á þessu sviði. Blaðamennska og hhðstæð störf við aðra fjölmiðla á ekki að vera háð til- viljunum, enda kreflast þau bæði reynslu og þekkingar. Blaðamennska verður að vísu aldrei lærð í skólum, enda er ritstíll, frásögn og vald á íslenskri tungu mis- jafnt eftir mönnum. En undirstöðurnar eru nauðsynleg- ar og í ljósi þess að fjölmiðlar skipa æ veigameiri sess í daglegu lífi, upplýsingastreymi, skoðanamótun og áhrifum er vitaskuld hafið yfir allan vafa að fólkið, sem miðlar fréttum og frásögnum, þarf að kunna til verka. Á örstuttum tíma hefur Qölmiðlun tekið risastórt stökk. Auk fimm dagblaða eru nú reknar fjölmargar útvarpsstöðvar, tvær sjónvarpsstöðvar og aragrúi tíma- rita er gefinn út í hverjum mánuði. Fjöldi blaðamanna hefur vaxið gífurlega og ungt og reynslulítið fólk hefur hópast til starfa á þessum vettvangi. Enn fleiri sækjast eftir starfmu og enn ríkir sá hugsunarháttur að hver og einn geti gengið inn í blaðamannastarf án sérstaks undirbúnings. Fjölmiðlarnir hafa ekki verið tilbúnir til að taka við auknu hlutverki, blaðamannastéttin hefur ekki verið undir það búin að axla ábyrgðina og afleiðing- in er sú að yfir okkur hellist Qölmiðlun sem er oft á mörkum þess að vera frambærileg. Blaðamennskan er ekki eingöngu fólgin í því að skrifa og tala eða koma fram á skerminum. Blaðamaður- inn þarf að kunna skil á rétti sínum og annarra, prent- frelsinu og tjáningarfrelsinu, rétti sakborninga og vemdun heimildarmanna. Hann þarf að þekkja skyldur sínar og um leið takmörk. Hann þarf að þekkja til í þjóð- lífinu, kunna erlend mál og síðast en ekki síst þarf blaða- maður að hafa gott vald á okkar eigin tungu. Það ber ekki skólakerfmu og íslenskukennslunni gott vitni hversu móðurmálsþekkingu ungs fólks er ábótavant og oft nístir það merg bein að heyra og lesa ambögurnar sem boðið em upp á í fjölmiðlunum. Orðaforðinn virð- ist takmarkaður við hundrað orð, sletturnar færast í aukana og stafsetning eða orðatiltæki jaðra við klám. Ungt fólk, sem hyggur á fjölmiðlastarf, sækir í er- lenda skóla sér til undirbúnings. Þar er hvorki kennd íslenska né lærist neitt um íslenskt þjóðlíf, menningu eða atvinnusögu. Þegar þetta unga fólk kemur heim aftur þekkir það hvorki haus né sporð á mönnum eða málefnum hérlendis. Allt hnígur því að þeirri niður- stöðu að íslenskur blaðamannaskóh sé æskilegur og tímabær. Með einhverri lágmarksmenntun má gera meiri kröfur til blaðamanna, sem aftur skilar sér í ábyrgari fjölmiðlun og betra máh. Nám er ekki einhlítt en úr því við höfum shtið barnsskónum í fjölmiðlun verður að fylgja þeirri þróun eftir með hæfara fólki. Blaðamannaskóh getur skihð hafrana frá sauðunum. íslenskir fjölmiðlar bera mikla ábyrgð og hafa enn meiri völd. Við eigum að taka þau völd alvarlega og átta okkur á því að blaðamennska krefst fólks sem kann, sem þekkir og sem kennir. Ehert B. Schram Það er engu líkara en BandaríHja- mönnum takist að klúðra öllum stefnumálum sínum í Mið-Amer- íku. í syöri hluta álfunnar hefur allt mistekist sem stjóm Reagans hefur tekið sér fyrir hendur, nema innrásin á Grenada. Fyrsta for- gangsmál stjómar Reagans var að hefla mikla sókn gegn heims- kommúnismanum á heimaslóðum með því að efla hægrimenn í E1 Salvador og kontraskæruliða 1 Nic- aragua. Þetta hvort tveggja er fariö út um þúfur og þótt borgarastríðið í E1 Saivador sé horfið úr fréttun- um geisar það enn af fullum krafti og er mannskæðara en stríðið í Nicaragua. í Nicaragua hefur stefnan beðið skipbrot, þingiö hefur hætt stuðn- ingi við kontraliðið og ekki annað sýnna en borgarastríðið lognist þar með út af. Ef til vill var við því að búast að íhlutun í þessum ríkjum mistækist. Þótt ítök Bandarflcja- manna séu mikil eru þeim þó tak- mörk sett. Öðm máli gegnir um Panama. Þar em ítökum Banda- ríkjamanna lítil takmörk sett, allt frá upphafi hefur Panama verið þvi sem næst bandarísk nýlenda. Pan- ama var stofnað út úr Kólumbíu fyrir tilstilli Bandaríkjamanna um síðustu aldamót í þeim tilgangi ein- Tilvera ríkisins byggist á Panamaskuröinum og honum ráða Bandarikja- menn enn þá þótt þeir muni afhenda hann um næstu aldamót." - úrygg- isvörður að störfum við Panamaskurð. íhlutun sem mistókst um að grafa Panamaskurðinn sem yrði bandarískt yfirráðasvæöi. Sjálf tilvera ríkisins byggist á Panamaskurðinum og honum ráða Bandaríkjamenn enn þá þótt þeir muni afhenda hann um næstu aldamót. Í Panama geta Banda- ríkjamenn ráðið því sem þeir vflja, eða hafa getað húngað til. Nú eru þeir að missa þau ítök úr höndum sér. Góður málstaður í fyrstu höfðu Bandaríkjamenn almenningsálitið með sér, aldrei þessu vant, þegar þau ætluðu aö láta til skarar skríða. Aðdragandi þess máls er vel kunnur, Noriega hershöfðingi var ákærður í Miami fyrir eiturlyflasmygl og þess krafist að hann yrði framseldur. Þetta setti bandarísk yfirvöld í klemmu. Noriega hefur um árabil verið dyggur pólitískur erindreki Banda- ríkjastjómar og mikilvægiu- milli- liður í samskiptum hennar við Kúbu og Nicaragua. Noriega hafði verið hrósað á árum áður fyrir gott framlag í baráttunni gegn eitur- lyflasmygli, svo háðulegt sem það er. Sannleikurinn er hins vegar sá að Noriega þáði morð flár frá myrkrahöfðingjum í Kólumbíu fyr- ir að leyfa þeim að nota Panama sem birgðastöð og bækistöð fyrir hreinsun á kókaíni og að auki fór mikið magn af hassi um Panama til Bandaríkjanna. Líkur benda til að sumir aðilar í Bandaríkjasflóm hafi vitaö þetta lengi en látið kyrrt liggja af póli- tískum ástæðum. Noriega var mik- ilvægur bandamaður. Þegar hann var ákærður var sflómin neydd til að kreflast þess aö fá hann fram- seldan. Þetta litu Panamabúar á sem beina íhlutun í innanríkismál sín og hvorki Noriega né öðrum datt í hug að sinna þessu. Þá upp- hófust vandræði Bandaríkjamanna sem ekki sér fyrir endann á. Klúöur Það fyrsta sem Bandaríkjamenn gerðu rangt í þessu var aö leita til forsetans. Delvalle forseti hafði verið útvaliim af Noriega og kosinn í kosningum þar sem úrslitin vom svo greinilga fólsuð að Bandaríkja- menn neituðu að viðurkenna þau. Nú snera ráðamenn í Washing- ton við blaðinu og viðurkenndu Delvalle með því að fá hann á sitt band á móti Noriega. Delvalle tók KjaJlariim Gunnar Eyþórsson fréttamaður rúmi liggja. Aðgerðir sflómar Bandaröflanna hafa leitt til þess að iðnframleiðsla Panama hefur minnkað um 40 prósent og alvarleg efnahagskreppa vofir yfir. En þess- ar aðgerðir höfðu þveröfug áhrif, sú andúö sem átti aö beinast aö Noriega snerist upp í andúð á Bandaröflunum og niðurstaðan varð að Nóriega er traustari í sessi. Það er ekki annað sýnna en hann sé orðinn eins konár sameiningar- tákn gegn íhlutun risans í norðri, ekki aðeins meðal íbúa Panama heldur líka annarra ríkja álfunnar. Vanmegnugur risi Af þessu má þann lærdóm draga að það er mikið vandaverk að hlut- ast til um málefni erlendra ríkja. „Ef til vill var við því að búast að íhlut- un í þessi ríki mistækist, þótt ítök Bandaríkjamanna séu mikil eru þeim takmörk sett. - Öðru máli gegnir um Panama.“ á sig rögg og krafðist þess að Nori- ega segði af sér sem yfirmaöur hersins. Þá sýndi Noriega hver það er sem ræðurí Panama. Hann ein- faldlega rak forsetann, eða öllu heldur lét þingið reka hann. Lýðræðið í Panama nær jafnlangt og Noriega vill láta það ná. Þá gripu Bandarflflamenn til þess að beita íbúa Panama efnahagslegu harð- ræði. í landinu er fyrir mikil andúö á Noriega og einræði hersins og ætlunin með efnahagsþvingunum var að gera Noriega ókleift að sflóma. Gjaldmiðill landsins er Banda- ríkjadollar og efnahagslífiö byggist að miklu leyti á bankastarfsemi. 117 bankar era í Panama, langflest- ir þeirra erlendir. Bandarflflamenn frystu aflar innistæður Panama- sflómar í þeim fiármálastofnunum innan Panama og utan sem þeir réðu yfir. Afleiðingin varö aö pen- ingastreymi stöðvaðist aö mestu. Það var mikill misskilningur aö þetta mundi þrýsta á Noriega, hon- um tókst að útvega dollara til að borga hemum laun og þar með var hann á grænni grein. Hann lætur sé þrengingar almennings í léttu Bandarflflamenn fóra af staö með offorsi óg fullir hneykslimar sem kemur nokkrum áratugum of seint. Allt frá upphafi hafa Bandarflfla- menn til dæmis vitað að það var Noriega persónulega sem drap prestinn Hector Gallegos árið 1971 en það mál varð til þess að mikil milliríkjadeila varð um mannrétt- indabrot í Panama. Eiturlyflamálið er heldur ekki nýtt. Með því að vinna bak við fiöldin í samvinnu við nefnd fyrr- verandi forseta Kólumbíu, Venesú- ela og Costa Rica, sem hafa fyrir löngu boöið sig fram til milligöngu, hefði veriö hægt aö ná þeim til- gangi aö losna við Noriega á efdr- laun. Þegar þjóðarmetnaöi er blandaö í málið er ekki viö því aö búast að Panama hlýöi undirdán- ugast eins og til var ætlast. Það er fyrirsjáanlegt að Banda- rflfiamenn hafa ekkert annaö en skömm og armæðu af þessu máli. Jafnvel þótt Noriega fari frá, þegar honum sjálfum sýnist, hefur hon- um þegar tekist aö bjóöa risaveld- inu í noröri byrginn og vinna sé meiri hylli en hann á skilið. Gunnar Eyþórsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.