Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Page 29
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988.
45
Sviðsljós
Áttræður stórleikari
James Stewart á afmæli í dag
Einn af þekktari leikurum kvik-
myndasögunnar, James Stewart,
er áttræður í dag. Hann er borinn
og barnfæddur í Indianafylki. Ja-
mes Stewart fékk snemma áhuga á
að troða upp og sýna sig, þótt hann
væri feiminn í eðli sínu. í æsku
kom hann oft fram sem töframaður
pða harmóníkuspilari og lék oft í
skólaleikritum í bamaskóla. Síðar
lá leið hans í háskólann í Princeton
þaðan sem hann útskrifaðist með
gráðu í arkitektúr árið 1932, þá 22ja
ára gamall.
Skólafélagi hans hvatti James til
að fara í leiklistarskóla í Falmouth
í Massachusetts vegna áhuga hans
á leiklistinni, og Stewart sló til. Svo
sérkennilega vildi til aö herbergis-
félagi hans þar var leikarinn Henry
Fonda. Þeir fóra síðan saman til
Hollywood til að freista gæfunnar
árið 1935. Báðir náðu þeir miklum
frama, eins og sagan sannar, og
hafa alla tíð síðan verið miklir
mátar. Þó er til þess tekið að þeir
hafi verið á sitt hvorum vængnum
í stjórnmálum, Henry Fonda til
vinstri, en Stewart hefur alla tíð
verið mikill íhaldsmaður.
Þremur árum eftir að James
Stewart kom til Hollywood fór
hann að geta sér gott orð sem leik-
ari. Fyrsta mynd hans, þar sem
hann fór að láta að sér kveöa, var
myndin „You Can’t Take It With
You“ frá 1938. í kjölfarið fylgdu
þijár myndir árið eftir sem juku
enn á frægð hans. Það voru mynd-
irnar „It’s A Wonderful World“,
„Mr Smith Goes To Washington"
og „Destry Rides Again“ sem sýnd
var í ríkissjónvarpinu fyrir
skömmu. Þá var hann strax búinn
að skipa sér sess sem eitt af stóru
'nöfnunum í Hollywood.
Þegar síðari heimsstyrjöldin
hófst gekk James Stewart í flug-
herinn og var sprengjuflugmaður.
Hann þótti standa sig vel sem slík-
ur og fór einar tuttugu sprengju-
ferðir til Þýskalands. Hann náöi
talsverðri tign innan hersins, áður
en hann snéri sér aftur að leiklist-
inni.
Eftir stríð fóru hlutverk hans að
breytast og verða fjölbreyttári. Áö-
ur voru þau yfirleitt fyrir feimna
persónuleika sem bárust ekki mik-
ið á og hlutverkin keimlík. Eftir
stríð fékk hann allar tegundir af
hlutverkum, með alls konar mann-
gerðum og þótti gera flestum hlut-
verkum góð skil.
James Stewart kvæntist aðeins
einu sinni, sem sjaldgæft telst með-
al leikara vestanhafs, og gekk til-
tölulega seint í hjónaband, eða 41s
árs gamall. Hann hefur alla tíð
gætt þess að halda einkalífi sínu
aðskildu frá leiklistinni.
Stewart er ótrúlega afkastamikill
leikari og hefur leikið í á áttunda
tug kvikmynda. Margar þeirra eru
mjög frægar eins og til dæmis „The
Plúladelphia Story“ (1940), „Harv-
ey“ (1950), „Rear Window" (1954),
„The Spirit of St. Louis“ (1957),
„Vertigo" (1958), „Anatomy Of
Murder” (1959) og „Chayenne Aut-
umn“ (1964).
Líklega er James Stewart þekkt-
astur fyrir samvinnu sína við Al-
fred Hitchcock og af myndum hans,
sem Stewart lék í, eru þekktastar
„Rope“ (1948) og „The Man Who
Knew Too Much“ (1956). Hin siðari
ár hefur James Stewart lítið látið á
sér kræla sem leikari, og í mesta
lagi tekið að sér smáhlutverk. Þrátt
fyrir að James Stewart sé með
þekktari leikurum vestanhafs, þá
hefur hann aldrei fengið Óskars-
verðlaun. Fjórum sinnum var
hann þó tilnefndur á árunum
1939-59, en varð aldrei að ósk sinni.
Ein af frægari myndum James Stewart var myndin „Rear Window" frá
árinu 1954 þar sem hann lék á móti Grace Kelly. Simamynd Reuter
20 ára aldurstakmark.
Snyrtilegur klæðnaóur_
Opiðí
kvald
frá 22-03
STJÖRNLAUST
STUÐííí^
Big Foot sér um tónlist
Tunglsins í kvöld
í<ijcííia J'i /z ri
Kvosmni undir LanK|drtungii Slmar 11340 og 621625
Lokaö um hvítasunnuna á
laugardag og sunnudag
Bíókjallarinn opinn
mánudagskvöld
Aldurstakmark 20 ár
Aðgöngumiðaverð kr. 500,-
laugardagskvöld
föstudagskvöld
í KVÖLD
LENN0N
v/Austurvöll
LOKAÐ
um helgina
MARCO-POLO
dúettinn leikur
föstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöld.
Vinningsmidinn ú tónleika
F östudagsk völdið
er aðalkvöldið
um hvítasunnuna
/ kvökl veróur niikió ad gerasl i
EVRÓPU og búast niá vió miklu
Jjölmenni þvi að á morgun letlum
vió aó hafa EVRÓPU lakaóa.
Láttu sjá þig i EVRÓPU i kvöid
og mundu aó láta skrá þig i
„Stjörnustœlingu '88"
Aógöngumióaveró kr. 500.-
Stjörnustæling ’88
Vinnið ferð á
tónleika
Michaels Jackson í
Hollandi
Þér gefst ná kostur á að taka þátl
i skemnuiiegum leik i EVRÓPU.
Þá skellir þér i gervi uppáhalds-
poppstjörnunnar þ'rnnar og lcetur
sem þá syngir eitthverl af hennar
fratgustu lögum - svo einfalt er
það.
Keppnin fer fram um nastu helgi
og verðlaunin eru ekki af lakara
taginu: tvar helgarferóir til Holl-
ands og aógöngumióar á hljóm-
leika með Michael Jackson. Og
nota bene, þaó var uppselt á tón-
leikana í janúar!
Skráning þátttakenda i s. 35355
á daginn.
li
HUÓMSVEIT
ANDRA BACKMAN
gömlu og nýju
dansamir
Rúllugjald kr. 500,- Opið kl 1000-300
Snyrtilegur klæðnaður.
SKEMMTISTAOiRNip
- œtian ctcc cct ccm ketýuta, /