Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
29
Iþróttir
• Guömundur Steinsson, sóknarmaóur Framara, skýlir boltanum frá Nóa Björnssyni, fyrirliða Þórs. Alengdar fylgjast Kristinn R. Jónsson og Jónas
Róbertsson meö baráttu þeirra. DV-mynd Gylfi Kristjánsson
íslandsmótið -1. deild:
Gjafamark á
lokamínútunum!
- Oimair tiyggði Frömunim 1-0 sigur á Þórsmölinni
Gylfi Krist|áiisson, DV, Akureyii:
Framarar sitja nú einir á tapi
SL-deildarinnar í knattspymu, hafa
unniö báöa leiki sína og aðeins Fram
og KA hafa ekki tapað stigi til þessa.
Um helgina lá leiö Framara til Akur-
eyrar, þar mættu þeir Þórsurum og
héldu Framarar heimleiðis meö þrjú
stig eftir 1-0 sigur. Er óhætta aö segja
aö þar hafi Framarar náð fram
hefndum því í fyrra sigraði Þór í
báöum viðureignum iiöanna.
Leikurinn var leikinn viö erfiöar
aöstæöur, á höröum malarvelli og
var suðaustanrok horn í hom á vell-
inum. Framarar léku undan rokinu
í fyrri hálfleik, og sýndu þá lítið sem
gaf til kynna að þeir myndu sigra í
leiknum. Þórsarar vörðust mjög vel
og Fram náði aldrei tökum á miðj-
unni.
Framarar fengu þó tvö ágæt tæki-
færi í hálfleiknum. Pétur Ormslev
átti lúmskt skot beint úr aukaspymu
snemma í leiknum sem Baldvin varði
og síöan var hreinsað frá í horn.
Pétur var aftur á ferðinni með
skalla eftir fyrirgjöf af hægri kantin-
um en boltinn fór yfir. Þar með em
marktækifæri hálfleiksins upp tahn,
og héldu margir að Þórsarar hefðu
alla möguleika á að gera út um leik-
inn með rokið í bakið í síðari hálfleik.
En svo fór ekki. Framarar vom
geysilega ákveðnir í síðari hálfleik
og áttu flest færin. Þór átti það fyrsta
er Hlynur Birgisson komst einn inn
fyrir og fram hjá Birki í markinu,
en Hlynur missti boltann frá sér og
aftur fyrir endamörk.
Pétur Ormslev var svo á ferðinni,
fékk góða sendingu inn í vítateig en
Baldvin varði gott skot hans meist-
aralega í horn.
Varnarmistök á 86. mínútu
Sigurmarkið kom svo 4 mín. fyrir
leikslok og má skrifa það á Birgi
Skúlason, varnarmann Þórs. Hann
ætlaði að gefa boltann aftur til Bald-
vins markvarðar en sendingin var
allt of laus. Ormarr Örlygsson var
fljótur að notfæra sér það, komst inn
á milli og skoraði af öryggi. „Það er
alltaf gaman að skora mörk og þetta
var jú alveg sérstaklega skemmti-
legt,“ sagði Ormarr, sem er fyrrver-
andi KA-maður.
„Mínir menn léku skynsamlega í
fyrri hálfleik og héldu aö þeir væru
komnir yfir erfiða hjallann. Miðju-
spil okkar hvar í síðari hálfleiknum.
Framarar fengu aldrei neinn frið í
fyrri hálfleik en alltaf í síðari hálf-
leik. Þeir áttu skilið að vinna þetta
en markið var þó algjör gjöf,“ sagði
óhress þjálfari Þórs, Jóhannes Atla-
son, eftir leikinn.
Baráttan í lagi hjá Frömurum
Þetta var dæmigerður malarleikur
og ekki var rokið til að bæta ástand-
ið. Leikmenn áttu í miklu basli að
hemja holtann og svona leikir vinn-
ast oft á baráttunni einni saman. Hún
var í lagi hjá Fram allan leikinn, en
Þórsarar slökuðu á í síðari hálfleik
og guldu þess þegar upp var staöið.
Jón Sveinsson var besti maður Fram
í leiknum, en Pétur Amþórsson
einnig góður svo og Ormarr Örlygs-
son.
Birgir Skúlason átti góðan leik í
vörn Þórs og það var slæmt fyrir
hann að gera svo afdrifarík mistök í
sínum fyrsta deildarleik með Þór. Þá
var Baldvin góður í markinu að
venju. Dómari var Friðgeir Hall-
grímsson og skilaði hlutverki sínu
mjög vel.
fþróttabúnmgar
Æfingagallar
Trimmgallar
Allar stærðir
Merkingar á búninga
Toppgæði
og -verð.
o^add
36, REYKJAVÍK, SÍMI 82166 OG 83830.
Boltar fyrir möl,
gras, inni og úti
Gervigrasskór,
knattspyrnuskór
joggingskór.
SL-greiðslun
Framarar
komnirmeð
50 þúsund
Mörk Framara á lokamínútun-
um í leikjunum við Val og Þór í
tveimur fyrstu umferðum ís-
landsmótins hafa verið þeim dýr-
mæt í fleiri en einum skilningi.
Þessi tvö mörk hafa fært þeim sex
stig og efsta sætiö í 1. deild, en
jafnframt 50 þúsund krónur sem
verölaun firá Samvinnuferðum-
Landsýn. Fyrirtækið greiðir
hverju félagi 25 þúsund krónur
fyrir hvem unninn leik í deild-
inni í sumar.
Fjögur liö hafa þvi náð að hljóta
25 þúsundir hvert til þessa, ÍBK,
KR, ÍA og KA, en önnur hafa ekki
enn unnið til þessara auka-
greiðslna. SL greiðir einnig 12
þúsund krónur markahæsta liði
í hverri umferð, svo framarlega
sem það skorar fjögur mörk eða
fleiri en sá vinningur hefur ekki
gengið út enn sem komið er.
•-VS
1. deildin:
Frítil
1. júní
Leikmenn 1. deildar Uöanna eru
í 11-15 daga frii vegna ólympiu-
landsleikjanna við Portúgal og
ítaliu. Þriðja umferö deildarinnar
verður leikin í næstu viku, frá l.
til 5. júní.
KA og ÍBK mætast á Akureyri
miövikudagskvöldið 1. júni.
Kvöldiö eftir era tveir leikir, KR
og Völsungur í Reykjavik og ÍA-
Valur á Akranesi. Laugardaginn
4. júní leikur Leiftur sinn þriöja
heimaleik í röð, gegn Þórsurum,
og á sunnudagskvöldið lýkur
umferðinni með viðureign Fram
og Víkings í Laugardalnum. Góð-
ar líkur era á að loksins veröi
hægt aö leika á grasi i deildinni
í 3. umferðinni.
-VS