Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
31
DV
2. deild:
Öruggur
sigur
HJáKS
Ægir Edvarðssan, DV, Siglufirði;
Siglfírðingar unnu Tindastól, 4-2, í
annarri deildinni á laugardag en lið-
in mættust á malarvellinum á Siglu-
firði.
Siglfirðingar hófu annars leikinn
íneð mikilli baráttu og skoruðu strax
á 3. mínútu. Var þar að verki Eng-
lendingurinn Paul Friar, sem átti
þokkalegan leik. Skot hans var fall-
egt en Englendingurinn lét ríða af
.rétt utan vítateigs. Á 5. mínútu jók
Hafþór Kolbeinsson muninn eftir að
Róbert Haraldsson hafði skotiö í
stöng. Enn héldu Siglfirðingar áfram
sókninni og skoraði Hafþór aftur á
18. mínútu eftir langt innkast, 3-0.
Tlndastóll sóttl í sig veðriö er þar
var komið og minnkaði Eyjólfur
Sverrisson muninn á 38. mínútu með
glæsilegu marki beint úr auka-
spyrnu, 3-1.
Seinni hálfleikinn hóf Tindastóll
með miklum látum og skoraði aftur
snemma í hálfleiknum en Eysteinn
Kristinsson var þar að verki, 3-2.
KS-menn sóttu eftir mark hans og
munaöi oft litlu að þeir næðu að
skora. Það var síðan Róbert Haralds-
son sem gerði 4. og síðasta mark
leiksins eftir að hafa leikið vöm gest-
anna grátt, 4-2.
Hafþór Kolbeinsson KS-ingur bar
af á vellinum, var mjög skeinuhættur
og barðist vel.
Maður leiksins: Hafþór Kolbeins-
son, KS.
Sigtufjorður:
Snjóalög
á grasinu
Ægir Edvarösson, DV, Siglufiröi:
Leikur KS og Tindastóls í ann-
arri deildinni í knattspyrnu var
spilaður á malarvellinum á Siglu-
firði eins og fram kemur hér fyr-
ir ofan. Þótt vorið sé komið fyrir
nokkru má segja aö grasvöllur-
inn í bænum sé enn ekki kominn
undan vetri. Enn liggur snjór yfir
honum og því nokkuö í að þar
veröi spilað.
íþróttir
• Eyjamenn sækja að Guðmundi Erlingssyni, markverði Þróttar, t eitt skiptið af mörgum í leiknum í gær.
DV-mynd Ómar Garðarsson
Islandsmótið - 2. deild
Eyjamenn lögðu tíu Þrótt-
ara í tíu vindstigum!
- Þróttarar manni færri fiá 7. mínútu og sigurmark ÍBV kom á lokasekúndunum
Ómar Garöarsson, DV, Eyjum:
Manni fleiri og með tíu vindstig í
bakið tókst Eyjamönnum aö knýja
fram sigur á Þrótti með marki á síð-
ustu mínútunni, 3-2, eftir aö hafa
lent 0-2 undir í síöari hálfleikn-
um!
Liðin höfðu aöeins leikið í 7 mínút-
ur á góðu grasinu á Hásteinsvelli
þegar Hermanni Arasyni úr Þrótti
var vísað af leikvelli fyrir að hrinda
Eyjamanninum Inga Sigurössyni eft-
ir að leikurinn hafði verið stöðvað-
ur.
Þróttarar sóttu undan veðurofsan-
um, og á 35. mínútu náði 17 ára ný-
liöi frá Blönduósi, Valgeir Baldurs-
son, aö koma þeim yfir, 0-1. Fyrri
hálfleikur, eins og leikurinn reyndar
í heild, bar mjög keim af veðrinu og
einkenndist af þæfingi fram og til
baka.
Eyjamenn hófu seinni hálfleik af
miklum krafti og sókn þeirra var oft
þung. Það kom þeim því í opna
skjöldu þegar Siguröur Hallvarösson
braust upp völlinn, gegn rokinu, á
57. mínútu og kom Þrótti í 0-2.
Tómas Ingi Tómasson lagaði stöð-
una í 1-2 með skallamarki átta min-
útum síðar og rétt á eftir jafnaði
Hlynur Jóhannsson eftir horn-
spymu, 2-2. Á þessum kafla sýndi
Guðmundur Erhngsson, markvörð-
ur Þróttar, oft snilldartilþrif og hélt
liði sínu svo sannarlega á floti.
Liðin sóttu á báða bóga, Þróttarar
voru líflegri en áður eftir jöfnunar-
markið en þeir máttu sætta sig við
að fljúga tómhentir í land. Á loka-
mínútunni skoraði Hlynur Elísson
sigurmark ÍBV, 3-2, og Þróttarar
gátu rétt hafið leikinn á ný áður en
hann var flautaður afl
Maður leiksins: Guðmundur Erl-
ingsson, Þrótti.
. - £________________________'. ^ . . . ■ .. r.
• Sigurður Sveinbjörnsson, Fylkismaöur, notar ekki beint löglega leið til aö hata hemil á Víðismanninum Bimi
Vilhelmssyni í leik liðanna í Garðinum á laugardaginn. DV-mynd Ægir Már Kárason
íslandsmótið - 2. deild:
„Kóstuðum frá
okkur sigrinum"
Ægir Mar Kárason, DV, Suðumesjum:
,,Við köstuðum frá okkur sigrin-
um en það var ágætt að ná í stig
héma í Garðinum. Við vissum að
þeir væm erfiðir heim að sækja, Víð-
ismenn eru með gott og sterkt lið en
í heildina vorum við betri í leiknum
og hefðum átt skilið að fá öll stigin,"
sagði Marteinn Geirsson, þjálfari
Fylkis og fyrrum þjálfari Víðis-
manna, eftir 1-1 jafntefli liðanna í
Garðinum á laugardaginn.
„Við höfðum kviðið fyrir þessum
leik í nokkurn tima. Fylkismenn eru
með mjög léttleikandi hð og gott,
þeir eiga eftir að ná langt í sumar.
Við vomm heppnir að ná jafntefli,“
sagði Heimir Karlsson, þjálfari og
sóknarmaður Viðismanna, við DV.
Aðstæður í Garðinum vora erfiðar,
rok, rigning og blautur og erfiöur
grasvöllur. Leikurinn bar keim af þvi
en þó brá stundum fyrir góðum köfl-
um, einkum hjá Fylkismönnum sem
vom mun betri aðilinn ailan tímann,
fljótari á boltann og léttari. En þeir
virtust alltaf vilja spila alla leið inn
í markið í stað þess að skjóta.
í byrjun seinni hálfleiks skoraöi
Hörður Valsson af stuttu færi eftir
fyrirgjöf, óvaldaður eftir að boltinn
hafði farið yfir Gísla Heiðarsson,
markvörð Víðis, 0-1. Við þetta tóku
heimamenn nokkuð við sér og á 70.
mínútu náði Guðjón Guðmundsson
aö jafna með föstu skoti eftir skyndi-
sókn Víöismanna og sendingu frá
Svani Þorsteinssyni, 1-1.
Eftir það sóttu Fylkismenn nær
látlaust. Örn Valdimarsson átti
skalla í þverslá, fékk síöan boltann
aftur og þá varöi Gísli í hom. Heima-
menn björguðu líka einu sinni á
marklínu. En á lokamínútunni
komst Heimir skyndilega einn inn
fyrir vörn Fylkis, sigurmark Víðis
blasti við, en vamarmaður Fylkis
komst fyrir hann á síðustu stundu.
Heimamenn vildu vítaspyrnu en
Þorvarður Bjömsson dómari var á
öðm máli.
Maður leiksins: Baldur Bjarnason,
Fylki. *